Samvinnan - 01.04.1977, Blaðsíða 19

Samvinnan - 01.04.1977, Blaðsíða 19
Kannski ekkert skipti hann máli annað en þessi hestur, og að vera til og lifa væri einungis fólgið í gangi hans og tilþrifum . . . þar heima og hefur skúrað og þvegið og tekið til í bænum. Hann fylgir henni heim um kvöldið. Eftir kistulagninguna fer Einar að hitta kaupfélagsstjórann . . . „Það yrði ekki komist hjá þvi vegna þess að þar voru bækur sem geymdu strit, vonbrigði og ávinninga í tölum, og eng- inn kvaddi svo þetta líf að ekki yrði sleg- ið þverstriki undir gjöld og tekjur." bls. 147. Hjá kaupfélagsstjóranum fær hann að vita að skuldin er: „Tvö þúsund þrjú hundruð áttatiu og fimm krónur, sextíu og þrír aurar . . . Hann var að hugsa um trésmiðina og hvernig þeir höfðu hreyft sig þegar þeir lyftu lokinu og létu það siga yfir kist- una og hvernig það hafði fallið í grópina með daufum smell og síðan ekkert nema lakkaður viðurinn, unninn af ókunnum höndum, og þessi skuld færð í bækur af ókunnum mönnum, sem höfðu séð töl- urnar vaxa á hverju ári. Það voru ekki tölur um spor eða vökur eða áhyggjur eða svita eða þreytu. Þær voru hvorki vonlausar né bjartsýnar og það var ekki hægt að skjóta þær og þótt margir hefðu reynt að brenna vondar tölur, heyrði það ekki til samvisku manna í þessu byggðarlagi og þess vegna var skuldin þarna óafturkallanleg og ópersónuleg og án allrar viðkvæmni, eins og dýr sem hjartað hefur verið skorið úr og heilinn en heldur samt áfram að lifa. Hann leit upp og sagði: — Ég ætla að borga þessa skuld.“ bls. 151-152. Einar tekur þá ákvörðun að selja allt- saman, skjóta og selja. Það kemur i ljós að þegar allt er selt, jörðin, hús og bú- peningur reynist skuldin nær helmingur af heildar söluverði. Kaupfélagsstjórinn hafði lofað Einari að hann mundi aldrei krefjast þess að jörðin yrði seld uppí skuldir. Margrét biður Einar að skipta um skoðun og fara hvergi, einnig faðir hennar sem minnir Einar á að hægt er fá lán. En allt kemur fyrir ekki. Einar fer sínu fram. Faðir Margrétar kaupir Gilsbakka af Einari á sex þúsund krón- ur sem þykir gott verð, og dóttir hans Margrét, lofar Einari að fylgja honum suður. Einar kallar hana við það tæki- færi: „Jarðargróðann". Einhver tilkomumesti kafli Lands og sona segir frá því er Einar fer með Hvít- ing, skýtur hann og grefur. Lesandinn finnur hversu hart er brugðist við, sú taug sem fastast bindur Einar þessari sveit og þessum stað er skotin sundur, af blendnum tilfinningum. Engum getur dottið í hug að Einari sé léttbært að yfir- gefa sveitina, til þess er líðan hans með landinu og öllu kviku þar alltof mikil. Einar er innst inni sveitamaður, en raun- sær sveitamaður. Margrét lofar Einari sem fyrr segir að fara með honum suður, hún biður hann hinsvegar að koma ekki til að kveðja foreldra hennar, hún ætlar að hitta hann á gistihúsinu í kaupstaðnum við brott- för. Nóttina fyrir brottfarardag sefur Einar í þessu gistihúsi, daginn eftir skil- ur hann við sig hundinn og jarðargróð- ann. Margrét kemur ekki. „Og svört slóð vatnsins bugðaðist út hvíta breiðu eylendisins undir hólnum og veginum, sem hún hafði ekki gengið og ekki hafði verið sporaður þennan morgun. Þrátt fyrir það var hún stúlkan hans og engin nema hún, án sársauka og óþols yfir að hafa beðið, og hún héldi áfram að vera stúlkan hans þótt aldrei kæmi slóð í þennan snjó.“ bls. 234. III. Land og synir gerast í sveit, okkur er líka óhætt að fullyrða að þessi sveit sé í Skagafirði. Augljóst leiðarminni í sög- unni er hesturinn, ekki aðeins Hviting- ur sem jafnframt gegnir táknrænu hlut- verki, heldur hestar yfirleitt. í sögunni fáum við sjaldan að vita um hugsanir annarra en Einars og sú vitneskja sögu- manns er takmörkuð. Hinsvegar fáum við ýmislega viðbótarvitneskju ef við tengjum persónur sögunnar hestum þeirra: „Þeir höfðu riðið fetið og faðir hennar hafði haft taumana slaka og bifazt eftir rólegum hreyfingum gamla blesótta hestsins, sem hafði borið hann alla vegi eins lengi og hún mundi. Þeir höfðu far- ið götuna á undan Einari og hestur hans hafði sótt á að hlaupa og lyft fótunum hátt í stuttum hröðum skrefum með höfuðið alveg í fangi hans undan taum- takinu.“ bls. 71. „Hreppstjórinn sat álútur í hnakknum og hafði báðar hendur á taumunum og hesturinn hljóp fallega undir honum. Það var eins og þeir yrðu allir góðir í höndum hans. Þeir höfðu aga af honum og jafnvel móbikkjur báru sig við að hlaupa þegar hann var setztur á þær. Hann var alltaf á brúnum hesti og með þennan svarta hatt og menn þekktu hann af þessu tvennu og sögðu: þarna fer hreppstjórinn, og höfðu aga af hon- SKÁLDSAGA EFTIR INDRI-BB G. HDR5TEINSS0N 19

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.