Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1977, Qupperneq 21

Samvinnan - 01.04.1977, Qupperneq 21
Þar voru bækur sem geymdu strit, vonbrigði og ávinning í tölum, og enginn kvaddi svo þetta líf að ekki yrði slegið þverstriki undir gjöld og tekjur . . . er það Kani af vellinum. Og hann ekur á brott úr borginni, æðir norður í sveit drukkinn og illa hafður, keyrir útaf á leiðinni og biður bana. Hann átti að minnsta kosti ekki afturkvæmt í sveit- ina. Atburðarásin í Norðan við strið er ekki þessleg, að hún verði auðveldlega rakin. Höfundur gerir sér helst mat úr smáatvikum sem fá þó verulegt gildi af samhenginu. Stíllinn er rólegur og líð- andi þarsem kímnin á greiðan farveg til lesandans. Dæmi: „Aðrir snúa sér að símstöðinni og útvarpinu. Báðar þessar stofnanir eru í sama húsi. Þeir höggva upp hurðina áður en húsvörðurinn hefur tíma til að opna fyrir þeim. Um kvöldið þykir ríkisstjórninni ástæða til að mót- mæla landgöngunni. Hún lætur á sér skilja að Tjallinn sé kominn í algjörri ó- þökk landsmanna ef einhverjir skyldi kæra sig um að vita það. Og forsætis- ráðherra biður fólk að vera kurteist við gestina á meðan þetta ástand vari.“ bls. 13. Þetta var i Reykjavík á fyrsta degi hernámsins, en sagan gerist í ónafn- greindum bæ fyrir norðan (Akureyri). Þegar fyrsti hermannahópurinn, fjöru- tíu „ambassadorar á klossum" kemur þangað á varðskipi, stendur á bryggj- unni vél til að vinna mó, sem er álitið dæmi um atvinnuleysið í bænum, enda ætlunin að nota vélina í framkvæmda- vinnu hjá bændum. En nú breytist allt á skömmum tíma. Með hernum, sem um síðir taldi nálega fjögur þúsund manns eða álíka margir og íbúar bæjarins, kom atvinnan. Allir urðu skyndilega ríkir, að a. m. k. á eigin mælikvarða. Bretavinna dregur til sin en sjómennska og allar aðrar atvinnu- greinar leggjast nær niður. Aðeins tveir menn róa áfram á sjó, Nikulás og Jói Tangó, sem ekki mega til þess hugsa að vinna við gervismíði hjá Tjallanum, en það er flugvöllurinn, einskonar handunn- in eilífðarsmíð. Vinnumórallinn grotnar niður í iðjuleysi, setið á skóflunni í stað þess að moka með henni. Fjármálaspilling og skert siðgæðisvit- und siglir hraðbyri í kjölfarið. Jón Falkon kaupir af bændum lóðina sem herinn hvggst hafa undir flugvöll og selur þeim á margföldu verði. Ungar stúlkur leiðast útí kynlífssukk. Innlendar framkvæmdir eru litlar en i bókinni er þó dæmi um skóverksmiðju Jóns Falkon og Vopna. Þar átti að gera skó úr steinbítsroði, en sá innlendi iðn- aður varð að reyk. Sögunni lýkur með flugvélaárás Þjóð- verja. Enginn hermaður lætur þar lífið en sjómennirnir Jói Tangó og Nikulás verða verst úti, þeir eru á sjó þegar árás- in er gerð og fá á sig kúlnadembu. Jói deyr og Nikulás er dauðvona i bókarlok. Það eru semsagt hermenn friðarins sem láta lífið í Norðan við stríð. Þessar sögur eru þannig ólikar í veiga- miklum atriðum. Norðan við stríð er t. d. mun þjóðfélagslegri en 79 af stöðinni. í Norðan við stríð er kímnin leidd í önd- vegi þarsem „tilfinningastill“ hafði yfir- leitt drottnað í 79 af stöðinni og Landi og sonum, stundum þó með öfugum for- merkjum, töffaraanda. Þó er Indriði alltaf sjálfum sér líkur, nærfærin efnis- meðferð segir alltaf til sín, raunsæi og ófá stilsatriði sem hér skal ekki farið nánar útí. Hver verður þá útkoman ef við leggjum þessar þrjár skáldsögur saman hvað tím- Vamir Ef neistanum tekst að ná sér upp komast hjá bráðri köfnun og sloka lífsandans ioft svo að skaphitinn varpi skíðlogum eldstólpa uppúr þekjunni í átt til stjarnanna — er hlaupið til og hringt á slökkviliðið. Kristinn Reyr ann í þeim snertir? í ákveðnum skilningi fáum við þá samfellda þjóðlifsmynd tímabilsins 1935-1955 einsog slíkt getur yfirleitt gerst í skáldsögum. Við skulum að lokum skoða þetta aðeins nánar. í Landi og sonum, sem kemur fyrst í tímaröð, kynnumst við íslenskri sveit fjórða áratugsins, störfunum þar og lífi fólksins. Hesturinn er þarfasti þjónninn og mjólkurbíllinn einstakur í sinni sveit. í einstaka svipmyndum kynnumst við hverfandi menningu sveitanna þegar þar var fjöldi fólks og mergur þjóðlífsins. En þetta hefur breyst. Fólkið flýr núna úr sveitum og niðrí kaupstaðina þarsem lif- vænlegra er að búa og þar er vaxarbrodd- ur þjóðlífsins. Þar hefur vélmenningin þegar hafið innreið sína, vélar í bátum, rafmagn í húsum og annað eftir þvi. í Norðan við stríð er þessari þróun fylgt eftir. Við kynnumst þar kaupstaðar- lífinu á íslandi, fyrst á örlitið þróaðra stigi en í Landi og sonum, en nú er horft frá miðju kaupstaðarins en i Landi og sonum var hann séður úr sveit. En þessi tiltölulega hæga þróun á sér ekki langra lífdaga auðið. Erlendis er skollið á stríð og uppá íslandi skellur á holskefla hraðr- ar atburðarrásar með hernámi Breta og síðan tilkomu Ameríkanans. Skyndilega eru flugvélar, herskip, kafbátar og næg vinna orðin hluti af lífi þessa kreppu- fólks. Þróunin verður gífurlega ör, allt er á fleygiferð og þjóðlífið skiptir gjör- samlega um svip. Síðast kemur 79 af stöðinni og gerist í höfuðborginni. Þar er að fjara út þessi flóðbylgja örlagaatburða en þó verður ekki aftur snúið og þróunin heldur á- fram. Það er kannski táknrænt að nú er söguhetjan ekki sjálfseignarbóndi held- ur leigubílstjóri í borg sem græðir helst á akstri hermanna og sprúttsölu. Sjálf- ur er hann þó sveitamaður einsog kannski allir íslendingar. Bíllinn hefur leyst af hólmi hestinn og er þarfasti þjónninn í lífi borgarbúa. Og jafnframt er bíllinn tilfinningalega tekinn við hlut- verki hestsins, bíllinn er leigubílstjóran- um unga það sem Hvítingur er Einari. Nú er það ekki hestur, það er bíll; ekki sveit heldur borg og tæknin er „tekin við af“ náttúrunni. Lokið 19. 11. 1976. Kjartan Jónasson. Heimildir: Land og synir Indriði G. Þorsteinsson. Norðan við strið Indriði G. ÞorsteinsSon. 79 af stöðinni Indriði G. Þorsteinsson. Eðlisþættir skáldsögunnar Njörður P. Njarðvik. Að yrkja á atómöld Sveinn Skorri Höskuldsson. íslensk skáldsagnaritun 1940-1970 Erlendur Jónsson. 21

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.