Samvinnan - 01.04.1977, Side 26

Samvinnan - 01.04.1977, Side 26
en dagsbirtan yrði að fullu horfin úr dalnum. í eldhúsinu sat Jelka enn við gluggann og prjónaði. Jim stikaði út i eitt hornið og tók þaðan stuttan riffil, sem hann átti. Hann þrýsti skothylkjum i hlaupið og sagði: „Það bjarm- ar af tunglinu yfir hæðirnar. Ef þig langar að sjá það koma upp, er bezt fyrir þig að fara út núna. Það verður fagurrautt, þegar það kemur upp.“ „Eftir andartak,“ svaraði hún. „þegar ég er búin með þessa umferð.“ Hann gekk til hennar ag strauk mjúkt höfuð hennar. „Góða nótt. Ég kem líklega aftur um hádegi á morgun.“ Rökkursvört augu hennar fylgdu honum út um dyrnar. Jim setti riffilinn i sliðrið, sem hékk við hnakkinn, fór á bak og hleypti hestinum nið- ur dalinn. Á hægri hönd reis stór, rauður máninn hratt upp yfir dökknandi hæðirnar. Tvi- lýsið, siðasti dagsbjarminn og ljós hins rísandi mána, skerptu útlínur trjánna og gaf hæðun- um dularfulla, nýja dýpt. Ryk- ugar eikurnar glóðu og glitr- uðu og skugginn undir þeim var svartur eins og flauel. Risastór, háfættur skuggi af hesti og riðandi manni fylgdi Jim á vinstri hönd skáhallt fyrir framan hann. Frá bæjum nær og fjær barst spangól i hundum, sem bjuggu sig und- ir nætursöng. Og hanarnir göl- uðu, héldu að nýr dagur væri risinn of snemma. Jim hleypti geldingnum á brokk. Glymj- andi hófatökin bergmáluðu frá kastalanum að baki hans. Hann hugsaði um hina ljós- hærðu May í „Stjörnunum þremur“. „Ég verð seinn, kannski verður einhver annar búinn að ná í hana,“ hugsaði hann. Máninn var nú að fullu kominn upp yfir hæðirnar. Jim hafði riðið eina mílu, þegar hann heyrði hófaslög, sem komu í átt til hans. Reið- maður birtist á valhoppi og stöðvaði hest sinn. „Ert það þú, Jim?“ „Já, halló George.“ „Ég var einmitt á leið til þín. Mig langaði að segja þér, — þú kannast við lindina í efri hluta lands mins?“ „Já, já?“ „Jæja, ég var þarna uppfrá seinnipartinn i dag. Ég fann útkulnað bál og kálfshöfuð og lappir. Húðin var á bálinu, hálfbrunnin, en ég dró hana út og fann brennimarkið þitt á henni.“ „Hver andskotinn,“ sagði Jim, „hve gamalt var bálið?“ „Jörðin er enn heit undir öskunni. Ég gizka á, að það sé frá þvi i nótt sem leið. Heyrðu, Jim, ég get ekki farið með þér, ég verð að fara til bæjarins, en mér fannst ég verða að segja þér þetta, svo að þú gætir litast þarna um sjálfur.“ „Hefurðu nokkra hugmynd um, hvað þarna hafa verið margir menn?“ spurði Jim ró- lega. „Nei, ég athugaði þetta ekki svo gaumgæfilega." „Jæja, það er víst bezt, að ég fari uppeftir og líti á þetta. Ég var líka á leið í bæinn. En ef þarna eru þjófar að verki, langar mig ekki til að missa meira af búpeningnum. Er þér sama, þótt ég stytti mér leið gegnum land þitt, George?" „Ég myndi koma með þér, ef ég þyrfti ekki til bæjarins. Ertu með byssu?“ „Já, já, hér við fótinn á mér. Þakka þér fyrir að segja mér frá þessu.“ „Það var ekkert. Farðu bara yfir landið, sem þú vilt. Góða nótt.“ Nágranninn sneri hest- inum við og fór á valhoppi i þá átt, sem hann hafði komið úr. Fáein andartök sat Jim í tungsljósinu og horfði á mikil- fenglega skuggamynd sína. Hann dró riffilinn úr slíðrun- um og ýtti skothylki fram í hlaupið og hélt byssunni því- næst yfir hnakknefinu. Hann sneri til vinstri út af veginum, fór upp dálítinn hrygg, gegnum eikarlund og svo niður hinum megin og niður í næsta dal- verpi. Eftir hálfa klukkustund hafði hann fundið yfirgefna bálið. Hann athugaði þungt, stirnað kálfshöfuðið og þreif- aði á rykugri tungunni til þess að dæma um, hve lengi það hafði verið dautt eftir því, hvað hún var þurr. Hann kveikti á eldspýtu og gáði að brenni- marki sínu á hálfbrunninni húðinni. Loks fór hann aftur á bak hestinum og reið yfir gras- litlar hæðirnar og kom inn á sitt eigið land. Frumkvœdi og forysta í föðurvömmálum. í áratugi hafa kaupfélögin og Sambandið staðið í fararbroddi með nýjungar og framfarir í innflutningi og dreyfingu kjarnfóðurs í landinu. Og enn sem fyrr höfum við stöðugt fyrirliggjandi fjölbreytilegt úrval fóðurs fyrir allan búpening. Samsetning fóðursins byggist á langri reynslu sértræðinga og bænda hér á landi og er að sjálfsögðu framleitt samkvæmt stöðlun Fóðureftirlits ríkisins. STEWART FÓDURSALT Trygging gegn steinefnaskorti. COCURA 4,5 og 6 STEINEFNAVÖGGLAR Látið ekki COCURAvantaí jötuna. SALTSTEINAR BLÁR ROCKIE - HVÍTUR KNZ - RAUÐUR KNZ Fyrir hesta, sauðfé og nautgripi. ASETONA Örugg vörn gegn súrdoða. Veitum allar nánari upplýsingar. ^ Innf lutningsdeild Sambandsins og kaupfélögin. 26

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.