Samvinnan - 01.04.1977, Síða 27

Samvinnan - 01.04.1977, Síða 27
~S. '4 orlofsdvöl sumariff 197? 0RL0FSTÍ!y)AR: AFSLfiTTUR: AÐSTAÐA: 8. - 15. jðní Hðsmæð ravikan að BIFRÖST 1977 15. - 20. 11 5 dagar 6. 300 é mann 20. - 27. II vika UPPSELT 27. - 4. jöll vika 9.900 é mann 4. - 11. tl vika 9.900 é mann 11. - 18. 11 vika 9.900 é mann 18. - 25. II vika 9.900 é mann 25. - 1. 11 vika 9.900 é mann 1. - 8. Sgúst Nemendasamban dsvika SVS 1977 8. - 15. ii vika 9.900 é mann 15. - 22. ii vika 8.900 é mann 22. - 29. 1! vik a 8.900 é mann Þeir sem p ant a sér orlofsdvöl og greið a fyrir 1. maí fS 10 % af ofangreindu verðií af slátt. NATARKORT: BÖRN: PANTANIR: Orlofsdvölin er seld é tueggja manna herb. með handlaug (þrjö rúm) og þriggja manna herb. með Sér snyrtingu og sturtu. Aðgangur að gufubaði, íþrðttasal, setustofu og bðkasafni. Ötvarp S huerju herb. og 15 mín. akstur í sundlaug. ödýrt heimilisfæði með okkar uinsælu matar - kortum, hálft eða fullt fæði. LÍkur matseðill og sami matsveinn og fyrri Sr. Börn yngri en 8 Sra fá frítt fæði og upDÍhald í fylgd foreldra sinna. 8-12 Sra börn greiða 50 % gjald. Barnaleikvöllur S*staðnum. HjS Guðmundi Arnaldssyni B.ifröst, Borgarfirði INNLEND ORLOFSDVÖL BIFRÖST BORGARFIRDI Hlýr sumarvindur blés um hæðarbrúnirnar. Eftir því, sem tunglið fetaði hærra upp á himinhvolfið, glataði það rauða litnum og varð á lit- inn eins og sterkt te. Úlfar hófu söng sinn á milli hæðar- draganna og heima á bæjun- um tóku hundarnir undir með dapurlegu spangóli. Dökk- grænn litur eikanna og gulur litur grassins kom vel í ljós í tunglskininu. Jim heyrði í kúabjöllum og reið á hljóðið i átt til hjarðar sinnar. Hann fann hana rólega á beit og nokkur dádýr höfðu slegizt í hópinn. Hann hlustaði upp i vindinn eftir hófaslögum eða mannsröddum. Klukkan var orðin meira en ellefu, þegar hann beindi hest- inum heim á leið. Hann fór framhjá vesturturni sandkast- alans, reið í skugga hans og kom svo aftur fram í tungls- ljósið. Pyrir neðan sig sá hann glampa dauft á þökin á hlöðu sinni og húsi. Geisli endur- kastaðist frá svefnherbergis- glugganum. Hestarnir, sem voru á beit, litu upp, þegar Jim reið yfir hagann. Rauður glampi kom í augun, þegar þeir sneru höfð- unum. Jim var næstum kominn að réttinni, þegar hann heyrði hestatraðk inni í hlöðunni. Hann kippti i taum hestsins Hann hlustaði. Aftur heyrðist það, traðkið úr hlöðunni. Jim tók riffilinn og fór hljóðlega af baki. Hann sleppti hestinum og læddist í átt til hlöðunnar. í myrkrinu heyrði hann, hvernig heststennur tuggðu hey. Hann færði sig innar i hlöðuna og fann stallinn, sem hesturinn var við. Eftir að hafa hlustað andartak, kveikti hann á eldspýtu með þvi að strjúka henni við riffilinn sinn. Við stallinn stóð hestur með hnakk og beizli. Beizlismélin héngu laus og losað hafði verið um hnakkgjörðina. Hesturinn hætti að eta og sneri höfðinu að ljósinu. Jim slökkti á eldspýtunni og flýtti sér út úr hlöðunni. Hann settist á barm brynningarkers- ins og horfði niður i vatnið. Hugsanirnar komu svo hægt, að hann kom þeim jafnóðum i orð og sagði í hálfum hljóð- um: „Á ég að gá inn um glugg- ann? Nei. Höfuðið á mér myndi kasta skugga inn i herbergið." Hann athugaði riffilinn, sem hann hélt á. Við núning og handfjötlun hafði svart byssu- lakkið nuddast af og silfurlit- ur málmurinn komið í ljós. Að lokum stóð hann ákveð- inn á fætur og gekk í átt til hússins. Á tröppunum teygði hann fótinn fram og reyndi hverja tröppu varlega áður en hann steig fullum þunga sin- um á hana. Smalahundarnir þrir komu framundan hús- veggnum, hristu sig, teygðu og þefuðu, dingluðu skottinu og fóru þvínæst aftur að sofa. Það var dimmt í eldhúsinu, en Jim vissi, hvar hver hlutur var. Hann rétti út höndina og snerti borðshorn, stólbak, handklæðaslána um leið og hann gekk áfram. Hann gekk svo hljóðlcga gegnum eldhúsið, að hann gat jafnvel heyrt sinn eigin andardrátt, skrjáfið, þeg- ar buxnaskálmarnar strukust saman og tifið i úrinu í vas- anum. Svefnherbergisdyrnar voru opnar og það myndaðist 27

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.