Samvinnan - 01.04.1977, Síða 29

Samvinnan - 01.04.1977, Síða 29
um annast um þetta og athuga aðstæður.“ Jim reikaði i átt að vatns- bólinu. „Heyrið þið,“ kallaði hann, „þið viljið nú ekki vera svo góðir að hreinsa svolítið til, þið skiljið?“ Mennirnir gengu inn í húsið. Eftir fáeinar mínútur komu þeir aftur og báru stirnað lík- ið á milli sin. Það var vafið innan i teppi. Þeir lyftu því upp í kerruna. Jim kom í átt- ina til þeirra. „Verð ég að fara með ykkur núna?“ „Hvar er konan þín, hr. Moore?“ spurði sýslumanns- fulltrúinn. „Ég veit það ekki,“ sagði hann þreytulega. „Hún er ein- hversstaðar hér nálægt." „Þú ert viss um, að þú hafir ekki drepið hana líka?“ „Já, ég snerti hana ekki. Ég skal finna hana og koma með hana seinnipartinn í dag. Það er að segja, ef þið viljið ekki, að ég komi með ykkur núna.“ „Við höfum tekið af þér skýrslu," sagði likskoðarinn, „og guð veit, að við höfum augu i höfðinu, er ekki svo, Will? Auðvitað er möguleiki á, að þú verðir ákærður fyrir morð, en þeim möguleika verð- ur sleppt. Það er alltaf þannig í þessum landshluta. Vertu nú ekki of harðhentur við konu þína, Moore.“ „Ég skal ekki meiða hana,“ sagði Jim. Hann stóð og horfði á kerr- una skrölta burtu. Hann spark- aði hugsandi i rykuga jörðina. Heit júnísólin var nú komin upp fyrir hæðirnar og glamp- aði grimmilega á svefnher- bergisglugganum. Jim gekk hægt inn í húsið og kom aftur út með níu feta langa nautasvipu. Hann gekk yfir húsagarðinn og inn i hlöð- una. Þegar hann klifraði upp stigann upp á heyloftið, heyrði hann, að háa hvolpsýlfrið hófst aftur. Þegar Jim kom aftur út úr hlöðunni, hélt hann á Jelku yfir öxlinni. Við brynningar- kerið setti hann hana varlega niður. Hárið á henni var löðr- andi í heyi. Blóðrákir sáust aftan á blússunni hennar. Jim vætti marglita klútinn sinn úr vatnsdælunni og þvoði bitnar varir hennar og andlitið og strauk hárið frá andlitinu. Dimm augu hennar fylgdu hverri hreyfingu hans. „Þú meiddir mig,“ sagði hún, >,þú meiddir mig mikið.“ Hann kinkaði alvarlega kolli. „Eins mikið og ég gat án þess að drepa þig.“ Heit sólin skein á jörðina. Nokkrar maðkaflugur suðuðu, þær fundu blóðlyktina. Jelka reyndi að brosa með bólgnum vörunum. „Fékkstu annars nokkurn morgunverð?" „Nei,“ sagði hann, „engan.“ „Jæja, ég ætla þá að steikja nokkur egg.“ Hún brölti með erfiðismunum á fætur. „Leyfðu mér að hjálpa þér,“ sagði hann. „Ég skal hjálpa þér úr blússunni, hún storknar við bakið á þér, það verður sárt.“ „Nei, ég geri það sjálf.“ Það var einkennilegur hljómur í röddinni. Dökk augu hennar hvíldu hlýlega á honum and- artak. Síðan sneri hún sér við og haltraði inn i húsið. Jim beið, sitjandi á barmi vatnskersins. Hann sá reykinn koma upp um reykháfinn og líða beint upp í loftið. Eftir fáein andartök kallaði Jelka á hann úr eldhúsdyrunum. „Komdu, Jim. Morgunverð- urinn þinn.“ Fjögur steikt egg og fjórar, þykkar sneiðar af fleski láu á hituðum disknum fyrir fram- an hann. „Kaffið verður til- búið eftir andartak," sagði hún. „Ætlar þú ekki að borða?“ „Nei, ekki núna, munnurinn á mér er of sár.“ Hann reif í sig eggin og horfði þvínæst á hana. Svart hárið var vandlega greitt. Hún var komin i hreina, hvíta blússu. „Við förum i kaupstaðinn seinnipartinn i dag,“ sagði hann. „Ég ætla að panta timb- ur. Við skulum byggja nýtt hús neðar í dalnum." Hún leit snögglega á lokaðar svefnherbergisdyrnar og horfði þvínæst aftur á hann. „Já,“ sagði hún, „það verður ágætt.“ Og siðan eftir andartak: „Ætl- arðu nokkurn tíma að slá mig aftur — fyrir þetta?“ „Nei, aldrei aftur fyrir þetta.“ Bros kom fram i augu henn- ar. Hún settist á stól við hlið hans, og Jim rétti út höndina og strauk yfir hár hennar og niður hálsinn að aftan. 4 Þröstur Magnússon Vióhöftim eiðaifærin og verkimar- vörurnar Viö erum umboósmenn fyrir: Þorskanet frá: MORISHITA FISHING NET LTD. "Islandshringinn” og aörar plastvörur frá A/S PANCO Vira frá: FIRTH CLEVELAND ROPES LTD. Saltfiskþurrkunarsamstæöur frá A/S RAUFOSS og PYROFABRIKKEN Slægingarvélar frá: A/S ATLAS Loönuflokkunarvélar frá KRONBORG Fiskþvottavélar frá: SKEIDES MEK. FABRIKKER A/S Pökkunarvélar fyrir saltfisk frá A/S MASKINTEKNIKK F/V Kassaþvottavélar frá: FREDRIKSONS Bindivélar frá SIGNODE Umboössala fyrir: HAMPIÐJUNA H.F Innflytjendur á salti, striga og öllum helstu útgeröarvörum. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafuróadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200 29

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.