Neisti - 01.10.1963, Qupperneq 1
EFNI:
HÚSNÆÐI
FYLKINGARFRÉTTIR
FERTUGASTA OG SJÖTTA ÁR
HORFUR
ÆF 25 ÁRA
ATÓMIÐ
BÓKMENNTIR
AFRÍKA 1963
SPJALL
ÁLYKTUN
Sjaldan hefur lygin verið stórkostlega tröllslegri en þessa haustdaga,
þegar vesælir leiksoppar auðvaldsaflanna berja höfðinu allt hvað af tekur
við steininn í grátbroslegri tilraun að telja sjálfum sér trú um að við-
reisnin hafi „ tekizt vel „ Lífskjörin batnað
Daglegar þarfir brýna aftur á móti sannleikann fyrir hverjum þeim
manni, sem vinnur fyrir sér sjálfur.
Það er langt síðan menn gátu leyft sér það andlegt brfari að hafa
skoðun á því" hvort jörðin væri flöt,eða hnöttótt í laginu. Nú munu þeir
vandfundnir, sem hafa skoðun á því máli. Staðreyndi/’ leysa skoðanir af
hólmi. Makalaus er sú fáfræði að vita ekki,eða heimska að vilja ekki vita,
að grundvöllur sósxalismans eru löngu raunsönnuð visindi.
Það er vandi okkar og vegsemd ungra sósíalista að búa okkur sem
bezt undir það verkefni.sem framþróunin fær okkur í hendur pð skapa
fyrirmyndar þjóðfélag á íslandi.
Þessu blaði er ætlað það hlutverk að verða okkur nokkur
hjálp, að við megum gerast betri sósíalistar hver og einn, og efla félags-
l£f okkar. Þvf sósfalisti.sem ekki starfar 1 styrkum félagsskap við sam-
herja sína.miimir á háspennustaur einhvers staðar a öxræfum uppi, sem
ekki ber neirrn rafmagnsstreng.
Þetta blað er fyrsti áfangi að þvi marki að koma okkur upp miklu og
voidugu málgagni. Þvi byrjum við svo smátt.að við höfum ekki efni á að
fara meir.ekki vantar viljann. Áætlun er til umútgáfu 4-6 blaða af þess-
ari stærð framá næsta sumar. Hvernig okkur gengur og hvað sfðar verður
er mest komið undir manndómsneistanum f þér, lesandi góður.
1