Neisti - 25.07.1979, Side 1

Neisti - 25.07.1979, Side 1
17. árg. 7. tbl. 1979 - ÖREIGAR ALLRA LANDA SAMEINIST Verð í lausasölu kr. 200. FYLKING BYLTINGARSINNAÐRA KOMMÚNISTA - STUÐNINGSDEILD FJÓRÐA ALÞJÓÐASAMBANDSINS í fótspor Alþýðuflokksins í humátt eftír Ihaldinu Við höfum skrifað það áður hér í NEISTA, að þegar auðvaldið sveiflar svipunni krýpur Alþýðubandalagið í duftið. Þetta hefir komið betur í ljós síðustu vikur en nokkru sinni fyr. Fyrir mánuði síðan lagði Alþýðubandalagið fram tillögur, sem það ætlaði fyrst að keyra í gegnum þingið, og síðar að lögfesta með bráða- birgðalögum. Ekkert er eftir af þessum tillögum nú. Bráðabirðgalögin, sem loks voru sett fela ekkert af hugmyndum Alþýðubandalagsins í sér nema þá eina sem aldrei mátti orða - verkfalls- bann. Það er vissulega efni til umhugsunar, að þeir flokkar sem hingað til hafa helst sótt sér fylgi úr röðum verkafólks, skuli nú hafa efnt til banns á verkfalli. Stéttsvik eru vissulega ekki nýmæli í þeim herbúðum, þýlund við auðvaldið því síður. Hingað til hefur Alþýðubandalagið þó veigrað sér við að ráðast beint að barátturétt- indum verkalýðsins. Þessi þróun er dæmigerð fyrir alla þróun Alþýðubandalagsins yfirleitt. S.l. vetur hefir svonefnt samráð við verkalýðshreyfinguna verið aðalstefnumál flokksins, sem hefir í raun þýtt takmarkalausa auðvaldsþjónkun, og enda- laust ,,tillit“ til hagsmuna auðvaldsins í landinu. Gerðardómslögin nýju eru rökrétt framhald af þessari stefnu - öllu skal fórnað til að halda í ráðherradóm þriggja manna. Á tímabili vinstri stjórnarinnar síðari 1971-74 og svo s.l. ár hefur Alþýðubandalagið barist fyrir því að koma sér innúr kuldanum og í náðarfaðm hins borgaralega ríkisvalds. Virku flokksfólki hefir verið smalað inní nefndir og ráð og þægir þjónar fengið umtalsverða bitlinga. Þessi barátta flokksins hefur komið í stað hinna yfirlýstu markmiða hans, að berjast fyrir hagsmunum verkafólks. Embættasýkin er farin að ráða ferðinni eins og hún hefur gert hjá Alþýðuflokknum um áratugi, og þá er þess skammt að bíða að flokkurinn varpi sósíalískri hugmyndafræði sinni fyrir róða og afhjúpi endanlega eðli sitt. Það er hægt að draga þrjár ályktanir af ömur- legri frammistöðu verkalýðsforystunnar og Al- þýðubandalagsins frammi fyrir hótunum Vinnuveitendasambandsins. - Þáttaka verkalýðsflokka í borgaralegri ríkis- stjórn leiðir ekki til bættrar baráttustöðu verkalýðsins - þvert á móti. Hún bindur verkalýðshreyfinguna enn fastar undir þræls- ok stéttasamvinnunnar. - Alþýðubandalagið hefur í reynd gefið uppá bátinn tilraunir sínar til að sýnast sósíalískur flokkur og viðurkennt alræði auðvaldsins í málefnum verkafólks, hvort sem það alræði er framkvæmt fyrir tilstilli ríkisvaldsins, með gerðardómi eða með hótunum atvinnuT rekenda. - Þess vegna er nauðsynlegt að byggja upp nýjan verkalýðsflokk, sem getur sameinað alla þá, sem sætta sig ekki við að þjóna burgeisunum sýknt og heilagt, en vilja þess í stað efna til baráttu innan og utan verka- lýðshreyfingarinnar fyrir meiriháttar þjóð- félagsbreytingum og nýjum starfsháttum sem geta leitt til þeirra, fyrir virku lýðræði innan hreyfingarinnar og algeru sjálfstæði verkalýðshreyfingarinnar gagnvart stéttar- hagsmunum auðvaldsins. Ef hinu þjóðfélagslega valdi verkalýðsins er ekki beitt mun auðvaldið fara sínu fram óhindr- að. Þetta vald reynir Alþýðubandalagið að lama um þessar mundir, með gerðardómslögum og svonefndu samráði. Baráttan gegn þessum skemmdarverkum Alþýðubandalagsins er brýnasta verkefnið í dag. Þvílík barátta er forsenda allra framfara í málefnum verkafólks. Án slíkrar baráttu mun auðvaldið stjórna verkalýðshreyfingunni áfram gegnum Alþýðu- bandalagið áfram - verkafólki til tjóns, og greiða þjónustuna með bitlingum ofaní hungruð gin framagosanna í flokknum. Framkvæmdanefnd Fylkingarinnar. Stöðvum sókn íhaldsins. Það hlakkar í íhaldinu þessa dagana. Sjálf- stæðisflokkurinn nýt- ur þess að vera í stjórn- arandstöðu og láta vinstri stjórnina vinna skítverkin fyrir sig. Undir yfirvarpi frjáls- hyggjunnar sækir í- haldið fram í hug- myndafræðilegri bar- áttu. Ólafur Björns- son, og aðrir postular, boða frelsi tilað rang- færa skoðanir. Sjá greinar í opnu: Nokkrar maó- stalín ískar koll steypur. Hve lengi munu maó- istar á Norðurlöndun- um torga kollsteypum Peking-skrifræðisins, án þess þeim verði ómótt? Sjá bls. 4. Þjóðin gegn forseta lýð veldisins Hver er bakgrunnur Sandinistahreyfingar- innar? Sjá bls. 10

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.