Neisti - 25.07.1979, Síða 3
7. tbl. 1979 - bls. 3
Af þingi BSRB
Launafólk hefji sameiginlega gagnsókn
31. þing BSRB var
háð 11.-14. júní s.l.
Engin tök eru að gera
grein fyrir öllu sem
Eftirfarandi kjara-
málaályktun var
samþykkt:
Stjórnvöld hafa d samningstíma-
bilinu ítrekað rofið gerða kjara-
samninga stéttarfélaga. Þannig liðu
ekki nema fjórir mánuðir frá því
fjármálaráðherra undirritaði nú-
gildandi kjarasamning við BSRB
þar til kjaraskerðing var lögbund-
in. Síðan hefur kjaraskerðingin
verið siendurtekin og skortir nú
stórlega á að staðið sé við kjara-
samning þann, sem nú er að renna
út.
Gagnvart þessari kjaraskerðingu
hafa launþegasamtökin sýnt mikið
umburðarlyndi. Þetta umburðar-
lyndi hefur haft það eitt í för með
sér, 'að stjórnvöld og atvinnurek-
endur hafa eflst í kjaraskerðingar-
áformum sínum. Það er því knýj-
andi nauðsyn að launþegar hefji
sameiginlega gagnsókn í kjarabar-
áttu sinni.
31. þing BSRB lýsir yfir fullum
stuðningi við uppsögn á kjara-
samningum opinberra starfsmanna
og leggur áherslu á eftirtalin megin-
atriði við gerð nýs samnings:
1. Bœlt verði að fullu sú kjara-
skerðing, sem opinberir starfsmenn
hafa orðið fyrir af völdum stjórn-
valda.
2. Vísitalan mæli jafnan að fullu
þær verðhækkanir, sem eiga sér
stað. Þingið bendir á, að kaup-
lækkun með skerðingu verðbóta-
ákvæða er jafnranglát og lögbund-
in grunnkaupsskerðing.
3. Áfram verði haldið þeirri jafn-
launastefnu, sem BSRB hefur
markað, sem miðar að því að
tryggja öllum launþegum lífvœnleg
kjör fyrir dagvinnu.
Jafnframt verði mismunandi launa-
kerfi opinberra starfsmanna sam-
ræmd, með það fyrir augum að
auka launajafnrétti.
4. Aukin áhersla verði lögð á ýmsa
félagslega þœtti, t.d. aðbúnað á
vinnustað, endurhœfingu og starfs-
menntun, styttri vinnuskyldu vegna
aldurs og óþægilegs vinnutíma.
Aukin verði aðild starfsmanna að
stjórnun stofnana.
5. Lögð verði áhersla á, að kjara-
samningar verði gerðir skýrir og
ótvírœðir.
6. Sett verði tryggileg ákvœði íaðal-
kjarasamning um rétt BSRB og
bæjarstarfsmannafélaga til upp-
sagnar kaupliða með verkfalls-
heimild á samningslímabilinu, ef
kaupmætti umsaminna launa
og/eða raungildi verður raskað af
stjórnvöldum.
Jafnlaunastefnu
í reynd
Sigurjón Helgason bar fram til-
lögur varðandi kjaramálin, sem
einkum beindust að því að jafn-
launastefnan sem þarna er lýst
stuðningi við kæmi beint fram í ein-
stökum þáttum kröfugerðarinnar.
Urðu talsverðar almennar um-
ræður um breytingartillögu hans
við annan lið ályktunarinnar, þar
sém hann lagði til að við yrði bætt
kröfu um að verðlagsbætur yrðu
jafnan fyrir alla, og miðaðar við
vísitöluprósentu um miðbik launa-
skalans. Slíkt þýddi að þærheildar-
verðbætur sem ríkið greiddi væru
hinar sömu eins og ef hverjum og
þarna fór fram. Hér
verður aðeins drepið á
nokkra þýðingarmikla
þætti.
einum yrði greitt eftir prósentu-
reglum. Hins vegar mundi þetta
verja þá lægst launuðu miklu betur
fyrir verðbólgunni en þá hæst
launuðu.
Fyrir mistök var breytingar-
tillaga þessi sett upp á móti öðrum
liðnum í heild sinni en ekki eins og
hún var upphaflega hugsuð, að hún
bættist efnislega við þann lið. Var
þessi breytingartillaga felld með
128 atkvæðum gegn 22. Fékk hún
áreiðanlega eitthvað minni stuðn-
ing en efni stóðu til vegna ofan-
nefndra mistaka, þar sem fólk var
raunverulega neytt til að fella út
hluti úr öðrum liðnúm sem það
gjarnan vildi að væri þarna með, ef
koma átti breytingartillögunni inn.
Hvað sem þessu líður var stuðn-
ingurinn við hana allt of lítill sé þess
gætt að Starfsmannafélag Ríkis-
stofnana (SFR) sem hafði 38
fulltrúa á þinginu var einhuga um
þessa stefnu á aðalfundi sínum í
apríl s.l.
Var það mál manna að ýmsir af
forystuliði SFR létu sér ekki eins
annt um þessa kröfu inni á BSRB
þingi eins og innan SFR fyrir þing.
Heyrðist ekkert frá þeim málglöð-
ustu þeirra um þetta á þinginu.
Hvernig þeir greiddu atkvæði er
ekki vitað, þar sem Kristján Thor-
lacius krafðist leynilegrar atkvæða-
greiðslu um þetta „tilfinningamál"
eins og hann orðaði það.
Heildarsamtökin fari
með samnings-
og verkfallsréttinn
Talsverð umræða var um samn-
ingsréttarkröfur, þó einkum það
atriði hvort samnings- og verkfalls-
rétturinn skyldi vera í höndum að-
ildarfélaga BSRB eins og er í félög-
um ASÍ og vinnumálalöggjöfin
leyfir ennþá. Það hefur verið krafa
BSRB forystunnar að aðildarfélög-
in skuli einungis hafa samningsrétt
um sérsamninga, og hafði hún sitt
fram á þessu þingi. Breytingartil-
laga Sigurjóns Helgasonar um að
krafan skyldi vera um samnings-
réttinn hjá félögunum sjálfum var
felld, þótt stuðningur við hana
kæmi frá þó nokkrum félögum. Að
öðru leyti samþykkti þingið stefnu í
þessu máli sem felur í sér kröfu um
sama samningsrétt og aðrir búa við.
Stuðningur við
farmenn
Farmannaverkfallið stóð sem
hæst meðan þingið var og voru
bráðabirgðalög og verkfallsbann
yfirvofandi. Samþykkti þingið á-
lyktun sem fordæmdi verkbanns-
aðgerðir „vinnuveitendasambands-
ins“ og skoraði á viðsemjendur
farmanna að leysa þegar í stað
þessa kjaradeilu þannig að far-
mönnum væru tryggð hliðstæð kjör
og aðrir búa við miðað við raun-
verulegan vinnutíma. Var þetta
mjög útvatnað afbrigði að upphaf-
legri tillögu Sigurjóns Helgasonar
sem fól í sér yfirlýsingu um stuðn-
ing við farmenn í verkfallsaðgerð-
um sínum og fordæmingu á yfirvof-
andi gerðardómslögum. Breyting-
artillaga hans í sömu átt var felld í
almennri atkvæðagreiðslu.
Það hefði verið mikið gæfuspor
fyrir BSRB og reyndar fyrir verka-
lýðshreyfinguna í heild ef upphaf-
leg tillaga Sigurjóns eða breytingar-
tillagan hefði verið samþykkt.
Ástæða þess að hún náði ekki fram
að ganga er eflaust, að það sat í
mönnum að í verkfalli BSRB 1977
tóku skipstjórar á farskipum undir
hatramman áróðurssöng íhaldsins,
meðal annars með samstilltu pípi á
ytri höfninni í Reykjavík.
En hvað sem þessu líður var hér
um stuðningsyfirlýsingu að ræða
og þörf ábending um að verkalýðs-
hreyfingin hefur annað þarfara að
gera en að standa í hefndaraðgerð-
um vegna fyrri mistaka en þarf að
snúa bökum saman til varnar sjálf-
stæði sínu og baráttustöðu undir
kjörorðinu: Árás á einn okkar er
árás á okkur alla.
Bæjarstarfsmannaráð
og tvískinnungur
Lögum var breytt í þá átt að
stofna formlega svokallað bæjar-
starfsmannaráð (7 manna) innan
BSRB, sem skal hafa eftirfarandi
hlutverk, m.a.: Að fylgja fast eftir
samþykktum bæjarstarfsmanna-
ráðstefnu og vera ráðgefandi aðili
gagnvart stjórn BSRB varðandi
málefni bæjarstarfsmanna og álykt-
unaraðili um sömu mál. Þá segir í
þessum lögum, að sé formaður eða
varaformaður BSRB bæjarstarfs-
maður skuli hann sjálfkjörinn í
þetta ráð og vera formaður þess.
Þótti ýmsum reyndum BSRB
félögum óþefur af þessu og að hér
væri til málamiðlunar verið að efla
blokk bak við íhaldsforystuna í
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar, og formann þess Þórhall
Halldórsson, en hann varð fræg-
astur fyrir klofningsbrölt sitt í
verkfalli BSRB 1977, sem mjög
varð til að veikja það verkfall.
Hvort það var af þessari ástæðu
eða annarri gaf formaður SFR,
Einar Ólafsson, út þá „dagskipun“
til fulltrúa SFR sérdeilis til fulltrúa
í laganefnd að hamla gegn þessu
máli. Hvaða áhrif sem þetta kann
nú að hafa haft, er hitt ljóst að
talsverður hluti SFR fulltrúa
greiddi atkvæði gegn myndun bæj-
arstarfsmannaráða. Hins vegar
greiddi nú Einar Ólafsson atkvæði
með því.
Spurði ég, blaðamaður Neista,
nærstaddan þaulvanan þingseta
hverju slíkt sætti. Kvað hann margt
á svona þingum fyrir ofan skilning
okkar mannlegra. Væri þetta lík-
lega liður í stórbrotinni hemaðar-
áætlun í makki. Benti hann á að
formaður SFR sæti í uppstilling-
arnefnd með öðrum mikilmennum
sem réðu þeim ráðum sem mestu
varðaði.
Um verkfallssjóð
og jafnréttismál
Ákveðin var stofnun verkfalls-
sjóðs BSRB, sem í skulu renna 15%
af árgjöldum félaganna til sam-
bandsins, sem og aukafélagsgjöld
þeirra sem í verkfalli eru skyldaðir
að vinna.
Meðal annarra mála sem þarna
voru rædd voru jafnréttismál og
samþykkt um þau framsækin álykt-
un. í henni er m.a. lögð áhersla á
kröfuna um næg og góð dagvistar-
heimili, um jafnan rétt karla og
kvenna til að vera heima vegna
veikinda barna, um rétt beggja
foreldra til fæðingarorlofs, um rétt
allra til hlutastarfa. Einnig var lögð
áhersla á kröfur til hagsbóta fyrir
aldraða og öryrkja.
Margt lleira var rætt og vil ég vísa
til Ásgarðs, tímarits BSRB, sem
birta mun niðurstöður þingsins á
næstunni.
Andóf 79
Margir munu spyrja sig hvort
Andóf 79 hefði ekki látið til sín taka
á þinginu, miðað við það hvernig
allsherjaratkvæðagreiðslan um
samningsréttinn fór. Svo var nú
ekki. Enginn talaði þarna við
umræðuna sem kenndi sig við þau
samtök eða tók upp merki þeirra.
Þó komu fulltrúar þeirra til þings-
ins sem gestir til að afhenda rúmar
100 þúsund krónur í verkfallssjóð,
en þessir peningar urðu afgangs af
þeirri peningasöfnun sem Andófið
efndi til vegna starfsemi sinnar.
Um stjórnarkjör
og meginmál
í heild hafði forystan „góðan
hernil" á þinginu og miklu betri en á
hinum almennu félögum í fyrr-
nefndri allsherjaratkvæðagreiðslu.
Stjórnarkjör í lok þingsins hafði
á sér yfirbragð mikillar og vel-
makkaðrar einingar, Kristján
Thorlacíus formaður og fyrrnefnd-
ur Þórhallur klofningur Halldórs-
Meðal fulltrúa SFR á
þingi BSRB var Sigurjón
Helgason, sjúkraliði.
Hann sat í jafnréttis-
nefnd, en lét önnur mál
einnig mikið til sín taka
eins og fram kemur í
meðfylgjandi frásögn.
Sigurjón starfar með
verkalýðsmálahóp Fylk-
ingarinnar.
Blm.: Breytingartillögur þínar féllu
Blm.: Breytingartillögur þínar féllu
hver af annarri. Telurðu samt ekki að
þú hafir talsverðu fengið áorkað á
þinginu?
Sigurjón: Það held ég. Það er aldrei til
tjóns að berjast fyrir góðum málsstað,
þótt allt komist ekki í gegn. Þótt
breytingartillaga mín við kjaramála-
ályktunina félli þá var þingnefnd áður
búin að taka talsvert af mínu framlagi
inn í hana svo hún varð af miklu
skarpari. Þá tel ég að samþykktin til
stuðnings farmönnum hafi verið mikil-
væg, þótt hún væri ansi útþynnt miðað
við það sem ég vildi hafa hana.
Ég varð fyrir vonbrigðum með
undirtektir undir breytingartillögu
mína við kjaramálaályktunina, þ.e.a.s.
um jafnar verðbætur miðað við miðju
skalans, sérstaklega varð ég fyrir
vonbrigðum með hve fáir fulltrúar
SFR greiddu henni atkvæði. Þó var
þetta tekið beint úr nýgerðri samþykkt
aðalfundar SFR. Það er hvimleitt að
vera alltaf að tala um láglaunastefnu ef
það kemur svo hvergi beint fram í
sjálfri kröfugerðinni.
Blm.: Stuðningurinn við farmennina
var ekki eins eindreginn og maður
hefði kosið. Hverju báru menn við?
Sigurjón: Það kom nú ekki mikið fram
í sjálfum umræðunum. Ég var hins
vegar tekinn eintali og hvattur til að
son varaformaður, o.s.frv. Annars
skilst mér að á bakvið tjöldin hafi
uppstillingin verið hið stóra mál
þingsins, og mátti stundum heyra
óminn af því. Þannig heyrðist það
t.d. á víxl til SFR fólksins að finna
yrði einhvern annan í stað Guð-
rúnar Helgadóttur, þar sem hún
gæfi ekki kost á sér, og svo hitt að
menn yrðu endilega að styðja
Guðrúnu. Vissu óbreyttir lítt hvað-
an á þá stóð veðrið, en virtist helst
að barist væri um tilveru Guðrúnar
í stjórninni, án þess að vart yrði við
nokkurn málefnalegan ágreining í
því sambandi. Á endanum flaug
svo Guðrún auðvitað inn án þess
nokkur mælti mót.
Það er ekki hægt að segja að
þetta þing hafi verið mjög ákvarð-
andi um meginmálin nú, þ.e.a.s.
aðgerðir til að brjóta á bak aftur
kjararán ríkisstjórnarinnar. Það er
verkefni sem bíður baráttusinna
innan BSRB sem og annarra
samtaka launafólks á næstunni.
R.S.
taka breytingartillögu mína til baka og
bent á píp farmanna að opinberum
starfsmönnum í verkfalli okkar 1977.
Þeir sögðu að farmenn ættu engan
stuðning skilið. Við getum bara ekki
endalaust látið reka á reiðanum með
að ýmsir hópar launafólks gangi hver
gegn öðrum. Ég vildi taka af skarið og
leggja áherslu á þýðingu samstöð-
unnar. Það voru bara ekki nógu margir
sem vildu ganga eins langt og ég.
Blm.: Var einingin í þinglokin raun-
veruleg?
Sigurjón: Það var nú talsverð undir-
alda, sérstaklega frá SFR held ég. Við
vissum aldrei hvort Guðrún Helga ætti
að vera áfram þarna í stjórn eða annar
fulltrúi frá SFR. Eitthvað virtist
óhreint í því máli. Einhver hrossakaup
sem ég veit ekki hvort hún vissi einu
sinni nokkuð um sjálf. Hræddur um að
mikið hafi verið makkað á bakvið.
Blm.: En hvað nm þá viðurkenningu
að veita klofningsmanninum úr verk-
fallinu 77 varaformannsembættið?
Sigurjón: Ég held að allir hafi gert ráð
fyrir að íhaldið fengi þennan mann.
Það þykir víst sjálfsagt að forystu-
mennirnir semji sín á milli um þetta, til
að halda friðinn.
R.S.
Sigurjón Helgason
tekinn tali