Neisti - 25.07.1979, Page 4

Neisti - 25.07.1979, Page 4
7. tbl. 1979, bls. 4 Nokkrar maó -stalínískcur kollsteypur Hægri þróun kínverska skrifræðis- ins og endurreisn þeirra „borgaralegu“ afla sem Maó og hans klíka kom á kné í menningarbyltingunni, hefur valdið því að margir maóistar hafa snúið baki við Peking-skrifræðinu. Sumir maó- istahópar gerðust Lin Piaoistar eftir fall Lin Piao. Aðrir hoppuðu af þegar Deng komst endanlega upp á toppinn Enn eru þó nokkrir hópar maóista sem enn elta linuna frá Peking. í Evrópu eru helstu hóparnir á Norður- löndum. Innan þessara hópa eru í dag nokkrar raddir, sem reyna að andæfa eltingarleiknum við stefnu kínverska skrifræðisins. (Sjá greinina um N ATO- umræðu meðal maóista í Noregi.) Það er aftur á móti vonlaust að geta sér til um hversu útbreytt þetta andóf er, eða hversu alvarlega það er þenkjandi. Maóistar hafa jú löngum sýnt, að þeir geta torgað ýmsu án þess að þeim verði ómótt. Margir hefðu t.d. ætlað að innrás Kína í Víetnam mundi valda þeim maóistum erfiðleikum, sem fyrir aðeins 3-4 árum fordæmdu alla þá sem efuðust um fullkomið ágæti foryst- unnar í Víetnam. En þessi atburður virðist ekki valda maóstalínískum samtökum í Svíþjóð, Noregi eða fslandi neinum teljandi vandræðum. Hér á landi hafa bæði EIKml og KFÍml elt línu kínverska skrifræðisins. Á síðustu mánuðum hefur KFf-ml jafnvel verið enn ákafari i stuðningi sínum. í Verkalýðsblaðinu hefur aftur á móti mátt sjá að undanförnu einstaka aftur og lýstu því yfir (með nokkrum rétti) að Deng væri ekki maóisti. Þeir styðja því „fjórmenningaklíkuna“. Meðal þessara maóista er einn helsti fræðimaður maóismans franski próf- essorinn Bettelheim, sem er eini maðurinn sem reynt hefur að rökstyðja kenningar Maós fræðilega. gagnrýnisraddir í lesendabréfum og hvatningu til gagnrýni í afstöðunni til Kína. Það er líka næstum ómögulegt annað en að einstaka maóistar í EIK- ml velti fyrir sér málunum eins og höfundur lesendabréfs í Verkalýðs- blaðinu 21. maí: ,, Við sögðum ekki styggðarorð um stefnu Kommúnista- flokks Albaniu fyrr en allt var að fara til fjandans hjá þeim í endurskoðunar- stefnu og blaðran sprungin í samskipt- um þeirra við Kinverja. Við gagnrýnd- um ekkert frá Kína á áhrifa- og valdalíma fjórmenningarklíkunnar sem tókst með áhrifum sínum i áróðursmálum og fasískum stjórnar- háttum að gera ógnarlegan skaða..." Gagnrýni höfundar þessa lesenda- bréfs á stjórnarhætti í Kína í dag er aftur á móti sú ein, að hann er ekki alveg viss um að stefna Dengs í efna- hagsmálum sé að öllu leyti rétt! Kampútsea Einmitt þetta dagana er það helsta hitamál maóista að verja Pol Pot og félaga hans í Kapútseu. Þeir lýsa Sihanouk fyrrum einræðisherra og kúgara alþýðunnar í því landi, sem hinum ágætasta fulltrúa alþýðunnar. í þeim efnum keppa þeir við Elínu Pálmadóttur. Það hefur auðveldað þeim leikinn í þessum efnum að áróður víetnömsku fjölmiðlanna hefur verið ærið mótsagnakenndur. Það verður aftur á móti fróðlegt að heyra hvað þeir hafa að segja um samfylkingu, sem nú er í augsýn á milli Pol Pots og „Hreyfmgu frjálsra Kombodíu- manna", sem tengd er In Tam fyrrum forsætisráðherra Lon Nol, sem nú er búsettur í Bandaríkjunum. Samkvæmt viðtali við leng Sary sem birtist í New York Times 1. júní segir Ieng Sury að „gagnkvæmur skilningur fari vax- andi,“ milli þessara leyfa af her lepp- stjórnar bandarísku heimsvaldastefn- unnar og Pol Pots. (Það var Þorsteinn Helgason sem sagði í Dagskrár-grein í Þjóðviljanum að það væri þráhyggja hjá Halldóri Guðmundssyni að halda að Bandaríkin kæmu eitthvað nálægt málum í Indókína!). V erkalýðshreyfingin Algengasta aðferð forystumanna EIK-ml þegar þeir deila á aðra er að falsa skoðanir þeirra. Dæmi um þetta er t.d. grein eftir Ara Trausta í Verkalýðsbl. 21. maí. Þar segir hann: „ Greining marx-leninismans á óhjá- kvæmilegri tilveru og störfum borg- aralegrar verkalýðsforystu á tímum einokunarauðvalds er röng fyrir Fylk- ingunni." Nú veit Ari mæta vel, að þessi fullyrðing hans er röng, en það veldur honum vafalaust engum áhyggj- um (Það var Stéttabaráttan sem full- yrti það fyrir nokkrum árum, að það væri meðvituð stefna EIK-ml að beita rógi.). Grein Ara fjallar annars aðal- lega um grein eftir Guðmund Hall- varðsson sem birtist í Þjóðviljanum. Hann ræðst með offorsi á að Guð- mundur skuli tala um „uppgjöf* og „misskilning“ verkalýðsforystunnar í dag. í hans augum eru kjaraskerðingarnar, sem núverandi ríkisstjórn hefur framkvæmt, einfald- lega stefna verkalýðsforystunnar. Það verður allerfitt fyrir Ara að útskýra þróun verkalýðsbaráttunnar undan- farin ár út frá þessum sjónarhóli. T.d. verða samningarnir 1977 og stefnu- mótun ASÍ-þingsins 1976 næstaóskilj- anleg fyrirbæri. Þessi einsýni EIK-ml hefur einnig löngum gert þeim ókleift að greina á milli verkalýðsafla og borgaraafla í stéttabaráttunni. Þessi einsýni verður þeim mun alvarlegri sem byltingaröflin á íslandi leika ein- ungis lítið hlutverk í þeirri stéttabar- áttu sem fram fer hér á landi og oftast lýtur forystu stéttasamvinnusinnaðra og borgaralegrar verkalýðsforystu. Kvennabaráttan Án efa hefur einangrunarstefna EIK-ml auðveldað samtökunum að halda hugmyndafræðilegum yfírráð- um sínum yfir meðlimunum. Hvort sem þetta er meðvitað eða ekki, þá hefur einangrunarstefna verið næstum allsráðandi í starfi samtakanna. Rétt- lætingin á þessari einangrunarstefnuer mismunandi. Þegar þeir vilja alls ekki taka þátt í samfylkingu, þá heimta þeir að skilningur þeirra á heimsvalda- stefnu sé viðurkenndur í grundvelli samfylkingarinnar. Þetta mál nota þeir t.d. til að réttlæta tilvist 8. mars- hreyfingarinnar. Til þess að aðgreina sig enn frekar frá Rauðsokkahreyf- ingunni hafa þeir endurskoðað allar helstu kenningar marxismans. um kúgun kvenna. Samkvæmt þeim er kúgun kvenna ekki upprunnin í verka- skiptingu á milli kynjanna heldur stéttaskiptingunni og þeir fordæma óspart karlveldishugmynd Rauðsokka og telja jafnvel baráttu gegn fjölskyld- unni í núverandi my nd vera af hinu illa. Það er því ekki úr vegi að benda þess- um „marx-leninistum“ á bók Engels „Uppruni fjölskyldunnar“ þar sem stendur: „/ gömlu, óprentuðu handriti, sem við Marx sömdum 1846 stendur þetta: 4 Maóistar í Noregi rœða 4 afstöðuna til NA TO í Klassekampen, málgagni norsku maó-stalíníska AKP-ml, hefur á undanförnum vikum mátt sjá um- ræðu í lesendabréfum um afstöð- una til NATO. j umræðunni er mikið rætt um afstöðu Jan Myrdal, sænsks rithöfundar og maóista, til NATO. í einu lesendabréfinu er vitnað í grein eftir Jan Myrdal í blaðinu Folket i bild. Þar segir hann: ,,Nú reyna Bandaríkin að flýja af hólmi í Evrópu. Nú er NATO evrópskt varnarbandalag, sem stendur and- spœnis gráðugri heimsvaldastefnu Sovétríkjanna... í þessari styrjöld munu þjóðirnar þurfa á að halda eldflaugum og orrustuflugvélum NA TO og fleiru. Þegar sagt er að alþýðustríðið ráði úrslitum þegar til lengri tíma er litið, þá er ekki þar með sagt að alþýðan sigri með andlegri orku, sigurinn vinnst með rifflum og eldflaugum Lesendabréfið sem þessi tilvitnun er í er í blaði dags. 4. maí. Höfundur bréfsins heldur síðan áfram: „Að krefjast úrsagnar úr NA TO í dag er það sama og að gera varnarlaust barn varnarlausara. Það vœri að láta æðsta draum Brésnefs rætast". Og undir lokin kemur smávegis af maóískri „díalektík“: ,,Þess vegna er ég sem NATO-andstæðingur ósammála þeim sem vilja að við segjum okkur úr varnarbanda- laginu i dag. Ég er sannfærð um að sagan mun sýna að slík aðgerð leiddi til hinna verstu hörmunga". í öðru lesendabréfi (31. maí) kemur fram að P. Steigan formaður AKP-ml svaraði spurningu frá fréttamanni um það hvort hann væri ekki lengur gegn NATO með þessum orðum: „Jú, við erum það; en ekki á skilmálum Sovétríkj- anna". Höfundur þessa lesenda- bréfs, sem er „forlagssjef* og með- limur í AKP-ml, segir annars í kafla, sem hann lætur heita „Gegn úrsögn nú“:,,Efþeirsem ekkisjáað nein hætta stafi af Sovélríkjunum, þvert á telja Sovétrikin til vina, fá meirihluta þjóðarinnar til að sam- þykkja úrsögn úr NATO nú, þá mun það vafalaust veikja stöðuna í öryggismálum í Noregi og flýta fyrir styrjöld... Að skapa varnir, sem eru nœgilega öflugar til að vega upp þessa minnkun gæti koslað marga tugi milljarða króna í áratugi... Ég vil ekki vera með um að taka sjénsinn á því að við náum þessu stigi, né heldur sjénsinn á því sem gæti skeð áður en við náum þessu stigi". Það má segja AKP-ml það til hróss (A.m.k. miðað við sænsku maóistasamtökin SKP, sem nú stefna á að taka upp kröfuna „Svíþjóð í NATO“) að lesendabréf- unum í Klassekampen eru fleiri, sem vilja að krafan um úrsögn úr NATO standi óbreytt. Sumir benda á að NATO sé tæki heimsvalda- stefnunnar og beinist gegn verka- fólki og sósíalistum. Aðrir benda á að hæpið sé að fullyrða, eins og Jan Myrdal, að Bandaríkin ráði ekki innan NATO. Það er eins og allt væri í lagi að vera með ensku, þýsku og frönsku heimsvaldastefnunni í NATO - en ekki þeirri bandarísku. Enn aðrir rökstyðja afstöðu sína á þennan hátt: „Kröfuna „Orsögn Noregs úr NATO“ vil ég halda í. Það er mikilvægt, sérstaklega vegna þess að þátttaka í NATO skapar falska öryggiskennd hjá fólki. ,,NATO mun verja okkur, okkur varðar ekkert um varnir landsins, við þurfum ekki að hugsa um þá hluti." " (14. maí) Á sama tíma og Bandaríkin efla herstyrk sinn og undirbúa sig hernaðarlega og pólitískt undir það að geta beitt sér gegn byltingar- öflum eins og þau gerðu fyrir ósigurinn í Víetnam 1975, þá ræða skandínavískir maóistar um ágæti NATO og birta fréttir þar sem NATO-hershöfðingjar lýsa áhyggj-

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.