Neisti - 25.07.1979, Qupperneq 5
7. tbl. 1979, bls. 5
„Fyrsta verkaskiptingin er millimanns
og konu í því skyni að ala upp nýja
einstaklingaNú get ég bœtt þessu við:
Fyrsta stéttaandstœðan í sögunni er
samtíma fyrirbœri og hagsmunaand-
stœða karls og konu í sérhjúskapnum,
og fyrsta stéttakúgunin fer fram,
samhliða því sem karlmennirnir undir-
oka kvenþjóðina
(Úrvalsrit I, bls. 396).
„Sérfjölskylda nútímans er grund-
völluð á þrœlkun konunnar á heimil-
inu, hvort sem hún er nú opinber eða
dulklœdd, - og þjóðfélagið er sett
saman úr eintómum sérfjölskyldum“.
(Sama bls. 403).
Stéttabaráttan og
Matthías Á.
I Morgunblaðinu 24. mars s.l. er
viðtal við Matthías Á. Matthíesen fyrr-
verandi fjármálaráðherra um samning-
inn um aukinn samningsrétt BSRB
gegn 3% kauphækkun. í viðtalinu lýsir
Matthías þeirri skoðun sinni að
samningurinn muni „valda meiri út-
gjöldum í framtíðinni en menn gera sér
grein fyrir,“ og fordæmir einnig
ákvæði um samningsrétt einstakra
félaga um sérkjarasamninga.
Stéttarbarátta 17. apríl gerir grein
fyrir þessari afstöðu Matthíasar og
bætir við: „Þeir fáu (!) sem enn taka
mark á mogganum hljóta í samrœmi
við þetta að styðja samkomulagið(l)
sem umtalsverðan sigur. Það hefði
einhvern lima þótt saga til nœsta
bæjar, að íhaldið styddi ,,vinstri“-
stjórn!"
Það hlýtur að hafa komið Stéttabar-
áttunni ánægjulega á óvart þegar
verkalýðsmálaráð Sjálfstæðisflokks-
ins dró rökrétta niðurstöðu af orðum
Matthíasar (miðað við hagsmuni
íhaldsins) og skoraði á fólk að fella
samningana.
ÁD.
um sínum af ónógum vopnabúnaði
NATO af meira kappi en Morgun-
blaðið. Á sama tíma og hægri öflin í
Bandaríkjunum vilja endurvekja
„virðingu Bandaríkjanna erlendis",
þá ræðir einn af helstu forystu-
mönnum skandínavískra maóista
um að Bandaríkin séu að flýja frá
Evrópu. Miðað við allt þetta er í
sjálfu sér ekkert undarlegt þótt
bæði sænskir og norskir maóistar
hafi sagt hlutlaust frá stórsigri
breska íhaldsflokksins í kosning-
unum í maí í blöðum sínum. Bæði
blöðin lögðu þó áherslu á vilja
Tatchers til að berjast gegn Sovét-
ríkjunum.
Á kappræðufundi með Fylk-
ingunni s.l. vetur sögðust forystu-
menn í EIK-ml vera á móti NATO.
Jafnframt sögðust þeir vera á móti
„einhliða veikingu NATO“. Þeim
tókst þó aldrei að útskýra þessa
afstöðu sína með skiljanlegu móti á
fundinum.
Það hefur verið á almanna vit-
orði undanfarin ár, að forysta
kínverska skrifræðisins var hliðholl
NATO og veru íslands í NATO.
Síðasta skiptið, sem þetta var
staðfest var nú í vor, þegar íslenskir
blaðamenn voru á ferðalagi í Kína.
í viðtali við Wang Zhen, varafor-
sætisráðherra Kína, kom m.a. þetta
fram samkvæmt frásögn Morgun-
blaðsins 6. maí: ,,Þá ræddi fVang
sérstaklega um ísland, sem hann
sagði mjög mikilvægan stað. Hann
kvað Kínverja mjög hrifna af
utanríkisstefnu íslands ,,og hvaða
afstöðu þið hafið tekið til trygging-
ar friði í heiminum". Hann sagði að
Kínverjar hefðu verið hrifnir af því
raunsœi fslendinga að semja við
Bandaríkin um varnir landsins og
hve samvinna landanna vœri góð.
Hann kvað Kínverja hafa virtþessa
afslöðu íslands, jafnvel áður en
sambúð Bandaríkjanna og Ktna
batnaði".
Það sem hefur verið að gerast
innan maó-stalínísku samtakanna
hér á landi og í Skandinavíu er
hægfara aðlögun að þessari stefnu
kínverska skrifræðisins. Umræðan
í Klassekampen gefur smávegis
innsýn í það hvar þessi umræða er
stödd.
ÁD.
monologue exterieur
ástin mín
ef þú vilt vera mr. hyde
skal ég vera dr. jeckyll
með doktorsgráðu í pönki
og prímitífum aðferðum við
að stjórna heiminum
við giftum okkur
í trássi við tímann
og mókadongjafir á síðkvöldum,
lúnatískir varðmennirnir fá ekki haldið aftur
af okkur er við leggjumst útí skýjaða veröld
á mótorhjólum
júanavindling milli varanna
þar sem þokan hylur hið ósýnilega,
síðan spilum við póker
við heiminn í handjárnum
með ásvitsföngum í röndóttum
nærfötum
og reisum mannhæða háa girðingu
í hjörtum okkar
sem slá þá í rot
og tilfinningar sem við færum út
í mörgþúsund sjómflur
og landgrunn ástarinnar rís
fáni í hálfa stöng spítalans;
eftir það verður aldrei skýjað
í mosagrænum terlynbuxum
í ljósbrúnum skyrtum
með safaríkar wrigleyvarir
standa landvættirnir aftan á tíkallinum
og miða á þá sem nálgast
pleisið af sömu heift
og drakúla sem hélt höll sinni hreinni
með því að girða hana hauskúpum
óvina sinna;
fóðraðir á ódýru nautakjöti
og djúpsteiktum kartöflum (oftast brenndum)
og rækjubleiku gunnarsmajonesi
ganga þeir um hrollkalt hraunið,
nema á kvöldin
í bröggunum í fjögurra hæða blokkunum
fá þeir stundum hass í pípurnar sínar
og láta sig dreym’um að komast heim
í kaliforníusólina
og hlusta á gömlu beach boys plöturnar
sem fagna þeim
útbrunnar
einsog grænir heilar þeirra eins og blóðug hjörtu
þeirra er þeir loksins ganga
óeinkennisklæddir atvinnuiausir
um götur stórborganna
þar sem regnbláar kjötbúðirnar eru
opnar allan sólarhringinn
John Wayne
- In memorian.
Sígarettan bíður enn eftir andlitinu,
kúrekahatturinn hangir einmana í fataskápnum;
reuterstrimlarnir streymd’yflr borgina
john wayne er látinn.
á því leikur enginn vafl,
ómegaúr hans fara á þjóðminjasafnið
og grænu húfurnar munu ábyggilega passa
á önnur höfuð einhvern tíma þegar skógurinn
þarf að hylja sál þeirra.
djonn vein er látinn
í ljósaskiptunum fær karon óskarinn
en ef til vill leikur hann sér nú
með bonansabyssu í valhöll.
útúrdúr á miðnesheiði
john wayne er látinn
plastvöðvar
hans fara á uppboð einsog
flísar úr krossi krists
og dætur hans munu hefja leit
að staupinu sem hann drakk síðasta
vískísjússinn úr
og íbúar reykjavíkurborgar
geta flutt svipbrigði hans vestr’yfir
næst þegar leifur heppni fer í þerapíu
til innheima.