Neisti - 25.07.1979, Page 8

Neisti - 25.07.1979, Page 8
Níu trotskistar hnepptir í fangelsi Arabar kreQast réttar síns íran: V erkalýðsbókmenntir sem vit er í Ólafur Haukur Sím- onarson lætur mikið að sér kveða um þessar mundir. í vetur kom frá honum ágæt skáldsaga Vatn á myllu Kölska og nú hefur Alþýðuleikhús- ið hafið sýningar á nýju leikriti eftir Olaf. Það heitir Blómarósir. Hin háþróaða verkaskipting auð- valdsþjóðfélagsins hefur verið mjög drjúg við að reisa veggi á milli verka- leikið í Lindarbæ Það er lýðsins og bókmenntanna ogafleiðing- arnar eru eðlilega þær að almenningi finnst bókmenntir og listir koma sér æ minna við. Þessa múra geta engir rofið nema listamenn. Með tilliti til stéttaskipt- ingar er staða þeirra mjög svipuð stöðu menntamanna yfirleitt, þeir geta valið að standa með lágstéttunum og túlka þeirra málstað í verkum sínum og ef þeir velja þá leið þurfa þeir náttúrulega að kynna sér veruleika þess fólks sem þeir eru að skrifa fyrir og samalaga sig þeim hópi eins rækílega og unnt er. „Pólitískar deilur á kaffistofunni.“ Þar hefur hnífurinn raunar oftast staðið í kúnnu hjá íslenskum rithöf- undum. Þeir hafa snobbað niður á við - eins og kallað er - og gjarna viljað skrifa stórfenglegar verkalýðsbók- menntir en látið það vera að kynna sér verkalýðsmál og líf verkafólks. Um þetta mætti nefna mörg dapurleg dæmi. Blómarósir Blómarósir Ólafs Hauks Símonar- sonar eru af ánægjulega ólíku tagi. Þar er gerð virkilega heiðarleg tilraun til þess að grípa á kýlum auðvaldsþjóð- félagsins og ýta undir umræðu um mál sem þörf er að ræða. Að mínu viti hefur sú tilraun tekist. Það voru að vísu nokkrir gallar á frumsýningunni sem vonandi verða sniðnir af á næstu sýningum, til dæmis voru nokkur atriðanna of löng og þá sérstaklega atriðið þar sem blómarósirnar fara á dansleik. Þar stöðvaðit framvinda leiksins, og atriðið myndi varla missa nokkuð af merkingu sinni þó það styttist um helming. Slíkir og þvílíkir gallar á verkinu eru hins vegar bæði fáir og smáir og skipta minnstu máli. Hitt er mikilvægara að í leikritinu er dregin upp sterk og nærfærin mynd af lífi kvennanna sem það snýst um. Blómarósirnar eru sjö og hafa allar sín einstaklingseinkenni en þær mynda líka heild. Vandamál blómarósanna eru ekki ný af nálinni. Ein þarf fóstureyðingu, ein slasast á vinnustað, ein er einstæð móðir og í það minnsta þrjár þeirra þurfa að dragnast með dæmalaust erfiða foreldra á bakinu. Þessi hefð- bundnu vandamál sem mörg okkar þekkja af eigin raun og annarra og mörgum finnst hálfvegis hafa verið kaffærð í vandamálaumræðu - þau öðlast líf og verða fersk í þessu leikriti vegna þess að þau tengjast bæði persónum og pólitík. Alþýðuleikhús Leikur og öll túlkun á sviðinu var með hinum mestu ágætum. Það má vafalaust þakka stefnufastri og góðri leikstjórn og hæfileikaauðgi hópsins sem slíks. Það var varla hægt að finna misfellu á samstarfi og samspili leikara og raunar bar öll leiksýningin vott um átak sem var sterkt, vegna þess að það var sameiginlegt. Leiktjöldin eru líka sérkennilega skemmtileg og handhæg. Þau eru óvenjulega sjálfstæð en miða á sinn hátt að sama marki og annað í þessari sýningu: Að draga fram stéttaandstæð- ur þjóðfélagsins, lýsa gráum og hörð- um veruleika verkafólks og hvetja það til samstöðu og baráttu. Sama máli gegnir um búningana og raunar er plakat, leikskrá og allt sem viðkemur sýningunni óvenjulega vandað og skemmtilegt. Að endingu vil ég óska öllum þeim sem stóðu að þessari sýningu mjög langs starfsaldurs. Kristján Jóh. Jónsson “... miðað við Rokkefeller eru launin lág.‘ f byrjun þessa mánaðar voru níu félagar í HKS (Sósíalíska verka- mannaflokknum, deild Fjórða alþj. samb. í fran) handteknir. Handtök- urnar áttu sér stað í borginni Ahwaz, sem er í héraðinu Khuzistan í Suður- fran, en í því héraði eru helstu ólíulind- ir landsins. fbúar Khuzistans eru að meginhluta arabar, sem að undan- förnu hafa krafist aukinnar sjálfs- stjórnar sér til handa. Hefur komið til óeirða milli þeirra og byltingarráða Khomeinis, sem hafa reynt að bæla niður baráttu arabanna. HKS hefur einn stjórnmálaflokka í íran stutt heilshugar baráttu' araba og annarra minnihlutaþjóða í íran fyrir sjálfsákvörðunarrétti. Handtökurnar áttu sér einmitt stað daginn eftir að HKS deildin í Ahwaz hafði sent frá sér yfírlýsingu, þar sem krafíst var sjálfs- ákvörðunarréttar til handa áröbum og að herlögum yrði aflétt í héraðinu. í lífshættu Af hinum níu handteknu eru sjö í lífshættu. Byltingarráðið sem stóð fyrir handtökunum neitar að skýra frá, hvar þeir eru niðurkomnir og þeim hefur ekki verið leyft að hitta lögfræðinga. Á hinn bóginn hefur fréttst að hinir handteknu séu ákærðir fyrir samvinnu við bandaríska agenta! Allt síðan HKS kom á fót deild í Ahwaz í sl. marsmánuði hefur hún búið við sífelldar ofsóknir hægrimanna í bylt- ingarráðunum. Blaðsölumenn samtak- anna hafa þráfaldlega verið handtekn- ir og margir félagar hafa orðið fyrir árásum vopnaðra trúarofstækis og hægrimanna. Þrátt fyrir þessar of- sóknir hafa samtökin alfarið hafnað að starfa neðanjarðar enda hafa þeir öðlast með hugrekki sínu og staðfestu virðingu og samúð stórs hóps verka- manna, sem hefur áhuga á sósíalisma og vill viðhalda og auka þau lýðréttindi sem milljónir írana börðust fyrir á síðasta ári. HKS hefur nú hafið mikla herferð til að fá hina handteknu látna lausa. Haldnir hafa verið blaðamanna- fundir og þúsundum flugrita verið dreift. Þá hafa öll helstu dagblöð í íran sagt ítarlega frá handtökunum og einóig skýrt frá mótmælum í öðrum löndum gegn þeim. Aðeins upphafið? Margir óttast að þessar handtökur séu aðeins upphafið að yfirgripsmikl- um ofsóknum á hendur vinstrimönn- um og kommúnistum í íran. Fram að þessu hafa þeir getað starfað nokkuð frjálslega, t.d. hefur HKS getað selt málgagn sitt Verkamanninum í 35000 eintökum vikulega og sömuleiðis hald- ið fjöldafundi þrátt fyrir ofsóknir hægrimanna. Sósíalíski verkamannaflokkurinn (HKS) er í mestri hættu, því að gagnrýni hans á Khomeini og kröfur hans um áframhaldandi þróun bylt- ingarinnar í átt til sósíalismans eru sem fleinn í holdi þeirra sem halda að íranska byltingin hafi runnið skeið sitt á enda. - S.Hj. Nöfn þeirra félaga okkar sem handteknir hafa verið í íran: Mustafa Seifabadi Hormoz Fallahi Mustafa Gorgzadeh Hamid Shahrabi Fatima Fallahi Maha Hashemi Omid Mirbaha Mohammed Poorkahvaz Eins og frem kemur á öðrum stað hér í blaðinu hefur að undanförnu komið til átaka milli araba í Iran og íranska hersins, sem hefur leitast við að brjóta baráttu þeirra á bak aftur. Arab- ar í fran eru einkum búsettir í hinu olíuauðuga Khuzestanhéraði við botn Persaflóans. f því héraði eru arabar um 70% íbúanna. í nýlegum bæklingi sem Arabíska menningarmiðstöðin hefur sent frá sér kemur fram að meginhluti arabanna er verkafólk, sem bæði vinnur við olíu- iðnaðinn og einnig við þjónustustörf. Aftur á móti eru kaupmenn og aðrir kapitalistar ekki af arabískum upp- runa. Þá segir í bæklingnum: ,, Vegna þessarar stéttarstöðu búa arabarnir í fátœklegustu og skítugustu hlutum borganna, hnappaðir saman í hreys- um... Meira en 70% íbúanna í Khuzestan eru arabar en aðeins 5% háskólamenn og 1% háskólakennarar i borginni Abadan i Khuzestan eru arabar". Arabar hefja baráttu Arabar hafa nú hafið baráttu fyrir réttindum sínum. Hafin hefur verið útgáfa blaða, fundir og mótmæli hafa átt sér stað og þeir hafa stofnað sín eigin samtök. Barátta kúrda og turk- mena í íran að undanförnu á án efa þátt í þjóðlegri vakningu araba. Kröfur arabá komu vel fram á fjöldafundi í borginni Khorramshahr nú í vor, en þær voru m.a: Arabíska verði viður- kennd sem opinbert tungumál í araba- héruðunum. Frelsi veitist til að prenta bækur, blöð og yfirlýsingar á arabísku. Fulltrúar araba sitji í stjórnlaga- þinginu. Hluti olíugróðans renni til arabísku þjóðarinnar. Kröfur araba hafa mætt næsta litl- um skilningi hjá Bazargan-stjórninni. Hefur þeim raunar aðeins verið svarað með kúgunaraðgerðum gegn samtök- um araba, einnig hefur þráfaldlega verið ráðist á fundi þeirra. Stjórnin í Teheran telur allar slíkar kröfur vera „aðskilnaðarstefnu" og er þessari röksemd 'einnig beitt gegn kúrdum og turkmenum. Byltingarnefndirnar sem eingöngu eru skipaðar persum hafa haft í frammi daglegar árásir á samtök araba. Átök brjótast út Eins og áður sagði er mikill hluti arabanna verkafólk, réttindabaráttan því að miklu leyti hvílt á því. Hafnar- verkamenn í borginni Khorramshahr hófu verkfall um miðjan maí til að krefjast hærri launa og að verkalýðs- félag þeirra yrði viðurkennt. Um svipað leyti voru 20 leiðtogar stál- verkamanna handteknir í borginni Ahwaz. í maílok réðust úrvalssveitir íranska hersins á menningarmiðstöðvar araba í ýmsum borgum. Arabar létu þessari ögrun ekki ósvarað og þyrptust í þús- undatali út á göturnar til mótmæla og var kveikt í lögreglustöðvum og versl- unum. Stjórnin svaraði með útgöngu- banni og neyðarlögum og 700 fallhlíf- arhermenn voru sendir til að bæla mótmælin niður. Sagt er að í bardögunum sem á eftir fylgdi hafi 200 látið lífið og 600 særst. Intercontinental Press S.Hj. Þjóðernisminnihlutar krefjast réttinda sinna víðsvegar um Iran.

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.