Neisti - 26.08.1979, Page 8

Neisti - 26.08.1979, Page 8
8. tbl. 1979, bls. 8 Örlagaríkur ágúst í íran: Stórsókn gagnbyltmgarafla en Kúrdar verjast franskir stjórnarhermenn búa sig undir atlögu að Kúrdum. Úrslitaatburðir byltinga verða einatt með skjótum hætti, jafnvel þó sú gerjun sem er undanfari þeirra taki langan tíma. Sú bylting í fran þar sem síðustu leifum keis- arastjórnarinnar var útrýmt varð um aðra helgi í febrúar: I einum vettvangi höfðu byltingarsinnar hertekið stöðvar lögreglu og hers í Teheran og fleiri borgum. Og það varð maðurinn sem settist að í hinni heilögu borg Qom, maðurinn sem aldrei vildi semja við keisarann eða fulltrúa hans, maður sem einnig var trúarlegur leiðtogi fólksins, sem - því miður- varð sameignartákn bylting- araflanna: Khomeini. Nú er svo komið að hann hefurtekið forystu fyrir gagnbyltingaröflunum, og allir þeir sem ætla sér að verja ávinninga byltingarinnar, réttindi fólksins á efnahagslegu sem pólitísku sviði að ógleymdum réttindum þjóðar- minnihlutanna, hljóta að líta á það sem Af trotskíistum í Iran Eftir þá atlögu sem stjórnin í íran hefur gert að prentfrelsi og er- lendum fréttariturum hefur verið erfitt að fá nokkrar fréttir af vinstri hópum í landinu. Einsog nú er ástatt getum við ekki fært lesendum Neista aðrar fréttir af félögum okkar í íran en þær að þeir hafa sætt sömu ofsóknum og aðrir vinstri menn, s.s. Fedayin hópur- inn, sem þeir höfðu samstarf við. Einsog áður hefur verið sagt frá hér voru 16 félagar handteknir í borginni Ahwaz í Kúsestan í lok maí. 14 þeirra sátu enn inni þegar við síðast vissum, þrátt fyrir öfluga alþjóðlega herferð til að fá þá lausa, tveimur var sleppt um síðustu mánaðamót. f viðtali við annan þeirra í blaðinu Rouge kemur fram að aðbúnaður í fangelsinu hefur verið nádæma illur, þeir sem veikst hafa fá enga aðhlynningu og sumir sæta jafnvel pyndingum. Þegar atlagan var gerð að bæki- stöðvum vinstrisamtaka snemma í ágúst voru bækistöðvar Sósíalíska verkamannaflokksins þar ekki undanþegnar, og útgáfa blaðs þeirra hefur líka verið bönnuð. Samstaða með þeim og starf að frelsun þeirra skiptir nú enn meira máli enn fyrr. Til að leggja fram einhvern skerf geta menn sent mótmælaskeyti til Byltingarráðs Islam (Islam Revolutionary Coun- cil), Teheran, fran. sitt mikilvægasta verk að steypa forystuklíku Khomeinis af stóli. Þegar þetta er skrifað er langt þvífrá útséð um hver þróun mála verður að sinni, en tvær örlaga ríkar helgar í ágúst virðast samt marka tímamót. 12. og 13. ágúst var ráðist á öll helstu vinstri samtök í Teheran, 19. ágúst hófst atlagan að sjálfstæðishreyfingu Kúrda. Stjórnlagaþings- kosningarnar Að sönnu vissu menn að sterk öfl í íran, sem vel að merkja býr við kapítalíska efnahagsgerð, vildu koma á sterkri stjórn, binda endi á sjálf- stjórnartilraunir þjóðarbrota og uppi- vöðslusemi verkafólks. Raunveru- legar byltingar einkennast sem kunn- ugt er af því að fólkið tekur málin í sínar eigin hendur, án þess að spyrja kóng eða prest. Og víða í íran urðu þeir gleðilegu atburðir að bændur tóku jarðir stórlandeigenda og skiptu þeim; verkamenn lögðu niður vinnu til að krefjast betri kjara og aðbúnaðar; þjóðarbrot viðruðu sjálfstjórnarkröfur sínar. Febrúarbyltingin íranska á sumt samerkt með sögulegum forvera sín- um. Forystan réð ekki nógu vel við þróunina, alþýðan stefndi lengra en þeir sem hún hafði lift í valdastóla. Og sigurinn á sjálfum kapítalismanum var eftir. Þeir sem vildu hindra þá þróun, íslömsku hægriöflin, töldu mikilvæg- ast að gera atlögu að ávinningum byltingarinnar, s.s. skoðanafrelsinu og frelsinu til að mynda pólitísk samtök. Sú viðleitni þeirra kom útaf fyrir sig ekki á óvart. Atkvæðagreiðslan um íslamska lýðveldið í vor var eins ólýð- ræðisleg og hugsast gat en til þess eins gerð að styrkja miðstjórnarvald Khomeinis og lepps hans Bazargans. Og menn höfðu hvað eftir annað orðið vitni að því að ofstækisfull islömsk hægriöfl, manna sem ýmist kölluðu sig „Flokksmenn guðs“ eða „Baráttumenn islömsku byltingar- innar“, gerðu árásir á fundi vinstri manna og leystu þá upp hvenær sem tækifæri gafst. Og ekki var mönnum grunlaust um að þetta óföngulega lið nyti velvildar yfirvalda. Samt virðist atlagan í ágúst hafa komið vinstri öflunum í opna skjöldu. Þó var ljóst að með stjórnlagaþings- kosningunum 3. ágúst átti að „ljúka þessu lýðræði". Kosningabaráttan stóð í viku. Kosið var um þing sem átti að leggja blessun sína á islamska stjómarskrá sem búið var að ganga frá áður. Allir máttu að vísu bjóða sig fram, en kjósendum var gert að rita nöfn þeirra sem þeir kusu á kjör- seðlana (75% kjósenda eru ólæsir)“. Þó hjálpuðu sérstakir aðstoðarmenn mönnum að kjósa frambjóðendur sem höfðu blessun Khomeinis, víða héngu aðeins nöfn þeirra uppi á kjörstöðum. Hvað eftir annað var ráðist á þá vinstrimenn sem reyndu að hafa einhvern áróður í frammi í kosningun- um og á sjálfum kosningadaginn var efnt til risastórrar bænasamkundu i Teheran þar sem Taleghani, sem áður var talinn frjálslyndur, réðst á vinstri- menn af hörku. Fedayin samtökin upplýstu að tvö hundruð félagar þeirra hefðu verið handteknir kosningavik- una, sumir þeirra pyndaðir. Úrslit kosninga sem staðið er að á þennan máta eru ljós áður en þær fara fram - það liggur við að sovéska kerfið sé heiðarlegra. En að þessu sinni hlutu yfirvöld ekki jafn mikinn stuðning einsog þegar kosið var um islamska lýðveldið. Það voru einkum þjóðar- minnihlutarnir sem hundsuðu kosn- ingarnar, t.d. kusu ekki nema 80 þúsund Kúrdar af meira en milljón at- kvæðisbærra manna. Sá leiðtogi Kúrda sem hlaut sæti á stjórnlaga- þinginu hefur nú verið sviptur því. Árásin á vinstri öflin Árásin á vinstri öflin hófst með því að islamskir hægrimenn sem virðast hafa tekið að sér öll skítverk stjórn- valda, réðust inn á skrifstofur hins frjálslynda borgarlega blaðs Ayand- egan og lokuðu því og um leið íjórum öðrum blöðum sem prentuð voru á þessum stað. Þessari atlögu að prent- frelsinu var mótmælt af nánast öllum vinstri kantinum og frjálslyndum öfl- um. Yfirvöld lýsti því hins vegar yfir um leið, að þau hyggðust láta setja ný prentfrelsislög, og mátti vart hugsa sér meira rangnefni. Prentfrelsi ávannst í febrúarbyltingunni að því leyti að ótal samtök einfaldlega tóku sér það og komu síðan blöðum sínum á framfæri um eigið dreifingarkerfi, yfirleitt götu- sölufólks. Samkvæmt þessum lögum er mönn- um bannað að rita stygðaryrði um hin islömsku stjórnvöld auk þess sem menn verða að sækja um sérstakt leyfi til útgáfu blaða. Síðan þessi lög tóku gildi sunnudaginn 12. ágúst, hafa hátt í fimmtíu blöð verið bönnuð í landinu. Þann sama dag efndu mörg vinstri- samtök, ásamt borgarlega stjórnar- andstöðuhópnum, Þjóðlegu lýðræðis- fylkingunni, til mótmæla við háskól- ann í Teheran. Ráðist var á mótmæl- endur á sama hátt og ráðist var á mótmælin sem fram fóru strax eftir að Ayandegan var lokað. En þeir skiptu að þessu sinni tugum þúsunda og komust alla leið að bústað Bazargans þar sem byltingarvarðmenn, sem eru hin islamska lögregla Khomeinis, leystu gönguna upp. Skömmu síðar var forystumaður Þjóðlegu lýðræðis- fylkingarinnar kærður fyrir að stofna til óeirða - vegna þess að ráðist var á mótmælagöfngu hans! Daginn eftir réðust islamskir hægri- menn á allar helstu stöðvar vinstri- samtaka í Teheran og brutu allt og brömluðu, þ.á.m. Fedayin samtak- anna, sem eru róttæk vinstri samtök og öflugust hópa á þeim kantinum, og bækistöðvar Sósíalíska verkamanna- flokksins (trotskýista). Vinstrimönn- um hafði borist njósn af þessari árás og höfðu þeir yfirgefið bækistöðvarnar. Á næstu dögum reyndu einstaka hópar vinstrimanna að andmæla en jafnan var ráðist á þá af slagsmálahóp- um hægrisinna. Það er táknrænt um samspil þessara aðila að byltingar- varðmenn tóku síðar við þeim bæki- stöðvum sem hægrimennirnir höfðu hertekið. Margir leituðu skjóls hjá Mujahedin skæruliðunum, sem er islamskur hópur sem jafnframt átti mikinn þátt í febrúarbyltingunni ásamt Fedayin skæruliðunum, en sem þrátt fyrir yfirlýsta hollustu við Khomeini hefur látið sér annt um ýmsa ávinn- inga byltingarinnar. Stöðvar þeirra voru ekki teknar strax, heldur sátu hægrisinnar um þær í heila viku uns Mujahedinmenn urðu loks að rýma þær. Eftir það voru blöð vinstrimanna smám saman bönnuð, meira að segja blað hins Moskvusinnaða Tedeh- flokks, sem þó hafði óspart svarið Khomeini tryggð. Svo virðist sem vinstri öflin hafi verið óviðbúin þessari árás og eins og nú horfir virðast þau neydd til að starfa neðanjarðar þó langt því frá sé útséð um hvort þeim takist ekki að vekja að nýju afl fjölda- hreyfingarinnar í þágu þess frelsis sem ávannst í febrúar. Atlagan að Kúrdum Af þjóðarminnihlutum í fran eru Kúrdar öílugastir og eiga sér lengsta

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.