Neisti - 26.08.1979, Side 10

Neisti - 26.08.1979, Side 10
Pétur Pálsson / stríði þess dags fer dauðinn um saklausar brár slökkur lós í mörgum fögrum augum meðan stór krepptur sigggróinn hnefi bíður fœris að Ijúkast upp og fyllast af sólskini. Úr Þrælar tímans, Herfjötur Pétur Pálsson ljóða og laga- smiður lést á miðju sumri. Ef unnt væri að syngja her úr landi hefði Pétur sungið okkur herlaus fyrir löngu; með tónlist sinni við Sóleyj- arkvæði; með bók sinni Her- fjötri, sem hann tileinkaði hernámsandstæðingum; með öðrum óbirtum ljóðum og steflum. Neisti kveður ljúfling þarsem Pétur Pálsson var. Nokkrir herstöðvaandstæð- ingar, vinir og félagar Péturs efndu til samkomu í minn- ingu hans hinn 16. ágúst. Samkoman var haldin í Stúdentaheimilinu og sóttu hana á sjötta hundrað manns. Ríflega 20 manns íluttu úr verkum Péturs bundið og óbundið mál, birt og óbirt, það var leikið og sungið. Samkoman tókst hið besta og má með sanni segja að „söngurinn hafi ómað í brjóstum allra“ því sungið var sem aldrei fyrr á fjölda- samkomu hér á landi. Ljóðin hér á síðunni eru úr bókinni Herfjötur, utan Til mannanna sem ekki hefur birst áður. Danslag ÆFR (Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík) er einnig úr Her- fjötri. Til mannanna (orkt undir tónlist eftir Grieg) Prologus: Til baka liðinna daga sem tónar hrísli innhverfum fögnuði stef úr fornum hætti ó, stormur hefur ljóð verið leikið þessu líkt. Spyr ég spurnar um spádóm mannanna tregðu vaxtar við ok dauðans örskotsstund við skál og sköpun hugmynda úr leiftri leiddir til bakgrunns veruleikans fullum af myrkri - hreyfivana í djúpri þögn sem hlé milli tóna hljóma örlagakviðunnar og strá flökta við veginn í vonlausri trú á manninn en spyrjum ei trega trúum ljósi í höndum stríðandi Iýðs úr mund komi vor og mildur vetur úr fótsporum okkar vatn til drykkjar örþyrstum afkomendum. . . Avarp Haraldar S. Blöndal Flutt á samkomu í Stúdentaheimilinu 16. ágúst sl. Góðir félagar! Félagi Pétur Pálsson var þannig að um hann gæti verið sagt „hann var of góður fyrir þennan heim“ og þá í þeim skilningi að hann hafi orðið undir í baráttu þar sem reglur og gildismat er ákveðið af þeim sem hata og fyrirlíta það viðkvæma og veika. En þetta er aðeins ein hlið málsins, sú hlið sem að okkur vinum hans sneri var með öðrum hætti þar var Pétur sterkur og full- valda. Ekki þó þannig fullvalda eins og Halldór Laxnes talar um að yfirstéttargaurinn Snorri Sturluson hafi verið, að hann hafi getað skipað hverjum sem var hvað sem var og ekki þurft að taka við skipun frá neinum, heldur fullvalda í þeirri merkingu að hann fann sjálfan sig þegar hann túlkaði þann málstað sem alþýðu er kærastur. Það er einmitt þetta fullveldi manneskjulegra eiginleika, sem Pétur var svo ríkulega gæddur, sem er sléttað út í hinu brjálaða auð- valdsstríði allra gegn öllum. Og það er þessi eyðing mannlegrar verð- mæta, þetta látlausa morð á mann- eskjum, sem gerir að verkum að árangur í baráttunni fyrir sósíal- ísku þjóðskipulagi þolir enga bið. Ég veit að Pétri hefði líkað að við létum fráfall hans verða til þess að slagorð baráttunnar hljómuðu sem aldrei fyrr og það með allri þeirri músík sem hverjum og einum er gefin. Manneskjur allra landa samein- umst gegn auðvaldinu! Stefla Allir vilja ergja snauðan dansar hann við svarta dauðann meðan haustið reitir rauðan reynikvist í skóg meðan haustið reitir rauðan reynikvist í skóg. Oft í viðum vetrartrjáa leit ég skuggann skuggan gráa honum rann þar blóðið bláa blint í hvítan snjó honum rann þar blóðið bláa blint í hvítan sjó. Barnastefla Litla fœtur, Hvaða? Þá langar til að vaða í fjöru ö og aða alveg eins og þú eins og þú. Hjá mararskel og þángi býr marhnúturinn Krángi Þar er ögn og ángi alveg eins og þú eins og þú Hver á grasi grœnu sárt grœtur lömbin vænu Fíngrar án og œnu alveg eins og þú eins og þú. Danslag ÆFR JÖLA SÁLMUR SJÓNVARPSALÞ ÝÐLJ Saga vor á Fróni er saga furðumerk. A f ístrunni á jóni Þeim andansprúða klerk Af húngurmorða mjóni og mey í dulmálsserk. En nú er öldin önnur og engin höggvinn háls. Upp með pott og pönnur og „pig“ til nœsta máls. Fín með falskar tönnur finnst oss þjóðin frjáls. Við gull og glæsta sali við gleðjast sumir oss Þó menn um herinn mali minn skal bera kross Börn og betlidali bríng tú mí mœ boss. Já, saga vor á Fróni er saga furðumerk. Af ístrunni á jóni Þeim andansprúða klerk Af húngurmorða mjóni og mey í dulmálsserk.

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.