Neisti - 26.08.1979, Side 12

Neisti - 26.08.1979, Side 12
Áskriftargjald síðari hluta ’79 - venjuleg áskrift kr. 3000 - stuðningsáskrift kr. 5000. Merktar greinar túlka ekki endi- lega stefnu Fyikingarinnar. Útgefandi: Fylking byltingarsinnaðra kommúnista Aðsetur: Laugavegur 53A, sími 17513 Ábm.: Bima Þórðardóttir Gírónúmer Neista er 17513-7 Land. bcl- - '•" / f-i y/4* v t x íS >.f O t U „Patria libre o morir". Nicaragua: - Fijálst föðurland eða dauði. Þann 17. júlí lagði einræðisherra Nicaragua Anastasio Somoza Debayle niður völd og flýði til Flórída. Eftir- maður hans, Urquyo, rikti aðeins i tvo daga. Þar með lauk einræði Somoza ættarinnar, sem ríkti í 40 ár. Sigurvegararnir eru Þjóðfrelsisfylk- ing sandínista (FSLN), sem þrátt fyrir ójafnan leik tókst að brjóta á bak aftur „þjóðvarðiið“ Somoza búið vopnum frá Bandaríkjunum og fsrael. Að loknum sigri tekur við uppbygging lands og efnahags, sem er í rúst eftir langvarandi hernaðarátök. Hér skal í stuttu máli gerð grein fyrir atburðun- um. Somoza fyrr og nú Árið 1931 voru bandarískar sveitir sendar til Nicaragua til að koma á röð og reglu í landinu og sérstaklega til að hafa hemil á skæruliðaforingja að nafni Augosto Cesar Sandino. Þetta voru ekki fyrstu afskipti Bandaríkj- anna af Nicaragua, því frá 1909 hafði landið verið meira eða minna undir beinni stjórn bandaríska sjóhersins. Bandaríkjamönnum gekk erfiðlega að vinna á Sandino og þeiryfirgáfu landið 1933 án þess að hafa tekist það. Áður en þeir fóru stofnuðu þeir „þjóðvarðlið“ Nicaragua og settu yfir það skjólstæðing sinn Anastasio Som- oza Garcia. Ári síðar tókst honum að koma höndum yfir Sandino með klækjum og lét myrða hann. Útrým- ingarherferð gegn stuðningsmönnum Sandino fylgdi í kjölfarið. Árið 1936 hafði Somoza tryggt stöðu sína svo að hann gat sölsað undir sig forseta- embættið. Þannig hófst nærri hálfrar aldar ættarveldi Somoza í Nicaragua. Somoza hóf fljótt að skara eld að sinni köku. Innlendir landeigendur drottnuðu yfir efnahag landsins en ekki bandarískir „ávaxtaauðhringir". Þetta gerði einræðisherranum auð- veldara um vik. Hann sölsaði fyrst undir sig kaffi- og nautgriparækt þýskra innflytjenda. Þaðan lá leiðin yfir í vændishús og síðar iðnað með aðstoð bandarísks mútufjár. Að lok- um, á fimmta áratugnum, náði hann undirtökunum í baðmullarframleiðslu landsins. Þegar Somoza var myrtur 1956 af námsmanni einum, hafði hann sankað að sér um hundrað milljónum dollara, sem synir hans Luis og Anastasio hafa ávaxtað. Synirnir erfðu einnig þjóðvarðliðið eftir föður sinn. Anastasio varð yfir- maður þess, en Luis gerðist forseti. Hann ríkti í sjö ár og hafði „yfirum- sjón“ með forseta í fjögur ár, eða þar til hann dó árið 1967. Þá tók Anastasio við og sat að völdum, með smávægi- legum hléum, þangað til honum var steypt af stóli fyrir mánuði. Somoza gamli hefði orðið hreykinn af sonum sínum hefði hann lifað. Bankar og tryggingarfélög færðust yfir í eigu ættarinnar, svo og opinber fyrir- tæki. Árið 1972, þegar miklir jarð- skjálftar urðu í Nicaragua, fór megnið af alþjóðlegu aðstoðinni í vasa Som- oza. A síðustu árunum hóf Somoza- fjölskyldan útflutning á mennsku blóði og blóðplasma og er það dæmigert fyrir þau tengsl, sem voru milli Somoza og þjóðarinnar í þau 40 ár, sem þeir ríktu. Somoza-ættin var blóðsuga á þjóðinni. Sandínistahreyfingin Morðið á Sandino vakti hneykslun og viðbjóð um alla S-Ameríku og víðar. Hann varð því strax tákn and- stöðunnar gegn Somoza-fjölskyldunni og einræði hennar. En það tók rúm 20 ár að byggja upp nýja sandínistahreyf- ingu. Hreyfingin var einangruð og fáliðuð í fyrstu. Eftir morðið á Somoza eldri, árið 1956, tóku hjólin að snúast. Vopnuð barátta var hafin undir lok fimmta áratugsins. „Smátt og smátt myndaðist smár marxískur hópur, sem í voru aðallega háskólastúdentar. Þeir gerðu sér grein fyrir nauðsyn skipu- lagðrar byltingarhreyfingar, sem tengdist verkafólki og bændum," eins og segir í fréttabréfi stuðningsnefndar Nicaragua í Bretlandi. Árið 1962 var FSLN, þjóðfrelsisfylking Nicaragua, stofnuð undir forystu Carlos Fonseca Amador. Á fyrstu árum hreyfingar- innar var hún undir sterkum áhrifum frá kúbönsku byltingunni hvað bar- áttuaðferðir snertir. Lögð var áhersla á eflingu skæruliðahópa í fjöllunum og vonast var til að þeir næðu smám saman tengslum við bændur. Árið 1967 kom til fyrstu meiriháttar átak- anna við stjórnarherinn. Þeim átökum lyktaði með hernaðarlegum ósigri sandínista. Pólitískt hafði orrustan þau áhrif, að í fyrsta sinn varð vart verulegs stuðnings bænda við hreyf- inguna. Það kom fram í forsetakosn- ingum skömmu síðar. Eftir átökin árið 1967 komu upp deilur innan sandínistahreyfingarinn- ar um baráttuaðferðir. Það bar mest á þremur skoðanahópum. f fyrsta lagi var hópur, sem hélt fram þeirri skoðun að einungis langvarandi barátta gæti tryggt myndun pólitískrar meðvitund- ar, sem væri „forsenda hernaðarsigurs og marxísks ríkisvalds". í öðru lagi var s.k. öreigaskoðanahópur, sem var minnstur. Hann lagði áherslu á upp- byggingu fjöldaflokks samkvæmt marx-lenínískum hugmyndum. ör- eigaskoðanahópurinn var afar gagn- rýninn á stefnu þriðja skoðanahópsins „Terceristas", eða uppreisnarmennirn- ir, en þeir hvöttu til samfylkingar með öðrum öflum, einnig borgaralegum öflum. Þessi samfylking átti að leiða til eins víðtækrar samstöðu og mögulegt væri til að flýta fyrir falli Somoza. At- burðarásin hefur sýnt að „uppreisn- armenn“ höfðu rétt fyrir'sér. Þrátt fyrir missætti um baráttuað- ferðir hefur ávallt ríkt eining um megin stefnumið hreyfingarinnar, þ.e. þjóð- nýtingu allra eigna Somoza-fjölskyld- unnar og að þjóðvarðliðið skyldi lagt niður og í þess stað skyldi koma alþýðuher. Síðast en ekki síst voru sandínistar sammála um að fram- kvæma umfangsmiklar landbúnaðar- umbætur og skipta upp jarðnæði milli bænda. Atburðarás síðustu ára Sú atburðarás sem leiddi til falls Somoza hófst í desember 1974, er sandínistar réðust inn í Managua og tóku nokkra ráðherra og diplómata sem gísla. Somoza neyddist til að sleppa nokkrum pólitískum föngum og greiða 2/2 milljón dollara í lausnar- gjald. Sandínistar gerðu aftur árás í október 1977 er þeir réðust á herbúðir í Masaya, þriðju stærstu borg landsins. Somoza svaraði á grimmdarlegan hátt. Heilar bændafjölskyldur „hurfu", eins og svo algengt er í S-Ameríku, eða voru sendar í fangabúðir. Þessar að- gerðir sýna að ,,uppreisnarmenn“ höfðu tekið frumkvæðið innan sandín- istahreyfingarinnar. Samhliða þessum aðgerðum sandín- ista styrktist hin borgaralega andstaða í Nicaragua. Efnahagsörðugleikar juku á vandræði Somoza. í öngum sínum greip hann til þess ráðs að láta myrða P.J. Chamorro ritstjóra, helsta forystumann borgaraandstöðunnar. Morðið hafði sömu áhrif og að hella olíu á eld. Alda hneykslunar og reiði skall yfir landið. Mótmælaaðgerðir gegn stjórninni áttu sérstað hvarvetna. Sá hluti borgarastéttarinnar, sem andsnúinn var Somoza hvatti til alls- herjarverkfalls sem stóð í viku; aðeins viku, sakir hræðslu borgarastéttar- innar við fjöldahreyfinguna, og efna- hagslegs skaða, sem verkfallið olli henni. Þetta sýnir ljóslega „baráttu- gleði" hinnar „þjóðlegu borgarastétt- ar“, sem sumir gera svo mikið úr. Hjartað er nálægt pyngjunni. Sandínistar réðust hinsvegar á ráð- húsið í Managua og tóku þar gísla. Aftur burfti einræðisherrann að láta lausa pólitíska fanga og greiða lausn- að útvarpa ávarpi sandínista til þjóð- að útvarpa ávarpi Sandínista til þjóð- arinnar. í september hvöttu sandínistar til allsherjaruppreisnar. Eftir byrjunar- örðugleika tókst þeim að ná fjöl- mörgum borgum landsins á sitt vald, þó ekki höfuðborginni. Somoza svar- aði með loftárásum á helstu borgir landsins, en í þeim féllu þúsundir óbreyttra borgara. Sandínistar neydd- ust til að hörfa undan til fjalla, og suð- urhluta landsins. Bandaríkin, helsti bakhjarl Somoza, kom á fót samningaviðræðum milli Somoza og andstöðunnar, sem „Breiða andstöðufylkingin“ (FAO) var fulltrúi fyrir. Eftir nokkra fundi lýsti hinn svokallaði „tólf manna hóp- ur“, sem er nátengdur sandínistum, því yfir, að viðræðurnar væru yfirskin eitt og þjónuðu einungis þeim tilgangi að vernda hagsmuni Bandaríkjanna. Þá var Alþýðufylkingin (MPU) sett á stofn, en að henni stóðu verkalýðs- félögin, tólf manna hópurinn áður- nefndi og námsmannahreyfingin. Al- þýðufylkingin skipulagði herferð þar sem krafist var myndunar „Þjóðlegrar föðurlandsfylkingar“ (FPN), þar sem öll öfl andstöðunnar myndu taka höndum saman. Fljótt kom í ljós að Somoza hafði lítinn áhuga á að komast að samkomu- lagi við FAO. Andstaðan við samn- ingaviðræðurnar var mikil og Þjóð- lega föðurlandsfylkingin náði brátt undirtökunum. f mars sameinuðust hinir þrír armar sandínistahreyfingar- innar. í lok maí hófu sandínistar loks loka- sóknina gegn Somoza. Vopnuð upp- reisn hófst 29. maí og allsherjarverk- fall 4. júní. Borgirnar féllu ein af ann- arri í hendur sandínista, og 19. júlí þrömmuðu hersveitir þeirra inn í höfuðborgina Managua, en þá Som- oza flúinn tveimur dögum áður, til sól- arstranda Miami á Flórídaskaga. Frh. bls. 11

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.