Verklýðsblaðið - 20.05.1931, Page 2
REYKVÍSKIR KJÓSENDUR,
«em dveljið axmarsstaðar um kosmngamar.
Munið áð fai:a til bæjarfógeta eða hreppstjóia
til að kjösa. Munið að B-listinn er liati Komm-
únistaflokksins.
Gert er ráð fyrir, að lúxusíbúðaskatturinn
nemi að jafnaði meðalhúsaleigu fyrir þær íbúð-
ir, sem notaðar eru, umfram þarfir. Mundi því
8W0.10.00 króna skatfcur á lúx.usíbúðir í Reykja-
vík ekki vera of hátt áætlað.
Þetta er áreiðanlega viturlegasta lausnin á
húsnæðisvandræðunum, þar sem vitanlegt er,
að aðaiorg.ök þeirra er, að eignastéttin heldur
húsnæðinu fyi’ir verkalýðnum, til þess að geta
lifað sjálf í vellystingum pragtuglega í skraut-
höllum sínum, og haldið húsaleigunni í upp-
skrúfuðu verði.
Væri slíkur skattur lagður* á lúxusíbúðir,
myndu margar íbúðir losna, húsaleigan lækka
og nægilegt fé fást inn til byggingar verka-
mannabústaða.
Fengjust inn miljón krónur, væri hægt að
byggja verkamannabústaði á hverju ári fyrir
allt það fé. 800.000 krónur, sem fengjust inn á
þennan hátt í Reykjavík, er 32 sinnum meira
fé en ætlað er til verkamannabústaða þar sam-
kvæmt núgildandi lögum (og ekki fæst).
Tollur á lúxusvamingi. Með „lúxusvamingi“
er átt við gull- og silfurstáss og allskonar ó-
hófsvörur, sem yfirstéttin ein kaupir. Af þess-
urn vörum er flutt inn fyi*ir ca. 1 þi miljón ár-
lc-ga, og fer stöðugt vaxandi. Ætlast er til að
þessar vörur verði tollaðar með 150% af inn-
kaupsverði.
Afnám á borðfé konungs, þarf ekki frekai'i
skýringar við. Enginn alþýðumaður álítur
þeim 70 þús. vel varið, sem fara í slíkt tildur.
Lækkun á kostnaði við Alþingi. Hér er um
ýmsan sparnað áð ræða. Ætlast er til að að-
ems þeir þingmenn séu launaðir, sem ekki eru
á fullum launum annarsstaðar. Þingfararkaup
lækki og risnufé forseta Alþingis falli niður.
Lækkun á kostnaði við ríkisstjórn. Risnu-
kostnaður ráðherranna feltUr niður. Laun fyrir
ýmiskonar aukastörf og kostnaður á sendi-
herraskrifstofunni í Kaupmannahöfn fellur
niður. Ætlast til að tekjur sendiherra fyrir
vegabréf, yfirlýsingar o. s. frv. nægi.
Lækkun á launum hálaunaðra embættis-
manna. Þessi liður er ekki eins hár og búast
mætti við, vegna þess að hæst launuðu em-
bættismennimir eru ekki launáðir beint af rík-
inu. Ilæstlaunuðu embættismennb’nir eru
bankastjói'ar og framkvæmdastjórar allskonar
oft starfsmenn fyrirtækja, sem ríkið er ábyrgt
fyrir og verður að standa straum af, og alþýða
manna verður að súpa seyðið af hinum óhóflegu
launum þein*a. Samt sem áður æru 200,000
krónur allálitleg upphæð, sem hægt er að spara
með því að miða launin við það, að þau séu yfir-
leitt 6000 krónur á ári.
Ýmsum menntamönnum, sem háar náms-
skuldir hvíla á, mun þykja þetta lág laun.
Flokkurinn leggur til að námskuldir, sem fá-
tækir menntamenn geta ekki staðið straum af,
séu afskrifaðar að nokkru eða öllu leyti.
Ætlast er til að læknar verði launaðir af rík-
inu eingöngu og veiti læknishjálp ókeypis. Hins-
vegar leggi ríkið þeim til að kostnaðarlausu öll
vej-kfæri og vinnustofur og styrki þá til utan-
ferða eftir því, sem nauðsyn krefur.
Afnám gjalda til kirkjumála og guðfræði-
deildar háskólans. Flokkurinn krefst skilnaðar
ERTU Á KJÖRSKRÁ!
Kjósandi! Á skrifstofu Kommúnistaflokks-
ins, Aðalstræti 9 B, liggur frammi kjörskrá.
Komið og athugið hvort þið eruð skráðir þar.
Aukakjörskrá til alþingiskosninga í Reykjavík
liggur til sýnis á skrifstofu borgarstjóra. Opið
kl. 10—12 árd. og 1—5 síðd. (nema laugar-
daga). Kærið sti*ax, ef þið eruð ekki á kjör-
skrá.
B-LISTINN
ER I.isn VERKAMANNA
OG VERKAKVENNA I REYIUAVÍK
ríkis og kirkju og þá segir sig sjálft, að kostn-
aður ríkisins af kirkjumálum fellur niður. t
raun og veru væri hér um að ræða miklu meiri
tekjuauka fyrir ríkissjóð. Til viðbótar kæmu
allar þær tekjui* áf ríkiseignum, sem nú renna
til kirkjunnar.
Afnám ýmiskonar bitlinga. Við rannsókn á
þeim bitlingum og ónauðsynlegum „aukastörf-
um“, sem nú valda ríkissjóði útgjalda, hefir
komið í ljós að spara má minnsta kosti 200,000
krónur, öllum að skaðlausu. Mun enginn sakna
bitlinganna nema sjálfir bitlingamenninrir.
Afnám eftirlauna. Það er mjög fjarri því, að
Kommúnistaflokkurinn vilji setja embættis-
menn ríkisins á guð og gaddinn, er þeir hafa
slitið kröftum sínum. Hann vill koma á almenn-
um ellitryggingum, og þá eru eftirlaunin óþörf.
Stöðvun á greiðslum vegna tslandsbanka.
Öllum er ennþá í fersku minni þegar þingflokk-
arnir hjálpuðust að til að velta miljónatöpum
íslandsbanka yfir á hið breiða bak íslenzkrar
alþýðu. „Tíminn“ talar með fjálgleik miklum
um 30 miljón króna víxilinn, sem bændur
skrifuðu upp á ásamt. alþýðunni í kaupstöðun-
um, og telur sanngjarnt, að á móti komi við-
hald ranglátrar kjördæmaskipunar, sem á að
tryggja Framsókn völdin.En hverjir voru það,
sem skrifuðu upp á 30 miljón króna víxilinn?
Var það ekki Framsókn, sem gerði það með að-
stoð thaldsins og „hlutleysi" sósíaldemókrata,
og án þess að spyrja samþykkjandann, íslenzka
alþýðu, til ráða?
Ráðstafanir Alþingis með Islandsbanka baka
nú ríkissjóði 550.000 króna útgjöld á hverju
ári, í auknum vaxta- og afborganagreiðslum.
Vafalaust eru þessar miljónir, sem þegar
nafa verið lagðar í tslandsbanka ekki síðustu
miljónirnar, sem lagðar verða í þessa b únlausu
hít. Það er því sannarlega tími til kominn að
segja hingað og ekki lengra, og láta Islands-
banka sigla sinn sjó og sæta sömu meðferð og
hvert annað gjaldþrota fyrirtæki.
Kommúnistaflokkurinn leggur til að þessar
550.000 verði notaðar til að útvega fátækum
fiskimönnum og bændum ódýr reksturslán.
Þannig er fjármálastefnuskrá Kommúnista-
flokksins.
9 miljónir til alþýðunnar.
Á þennan hátt getur alþýðan heimt aftur
9 miljónir af því vei'ðmæti, sem hún á hvei'ju
ái'i skapar með vinnu sinni og eignastéttin ræn-
ir hana. Og þessar miljónir notar hún til að
létta af sér sárustu neyðinni og bæta kjör sin.
Allir þeir, sem eru þessu samþykkir, kjósa
Kommúnistaflokk tslands við næstu kosningar.
Allir þeir sem vilja að þessar kröfui verði að
ver-uleika, kjósa B-listann í Reykjavík og fram-
bjóðendur kommúnista í öðnim kjördæmum.
Og ef yfirstéttin daufheyrist við öllum þess-
um kröfum, heldur áfram að svelta verkalýð-
inn og stofnar lífi og velferð allrar alþýðu í enn
meiri voða, verður hin vinnandi alþýða til
sjávar og sveita að taka af henni völdin og
stofna verkamanna- og bændastjórn. Verka-
manna- og bændastjórn, sem framkvæmir þessa
stefnuskrá og miklu meira, sem tekur stór-
atvinnutækin af auðmönnunum og rekur þau til
hagsmuna hinni vinnandi stétt, sem tekur alla
utanríkisverzlun í sínar hendur og útvegar
markað fyrir allar íslenzkar afurðir, sem teng-
ist Ráðstjórnarríkjunum vináttuböndum, selur
þeim íslenzku afurðirnar, og fær frá þeim þær
vörur, sem tsland þarf í staðinn.
Undir merki Kommúnistaflokks tslands,
verður alþýðan til sjávar og sveita að vígbúast
til að hrinda þessari stefnuskrá í framkvæmd.
Vinnandi menn og konur til sjávar og sveita!
Aukið Kommúnistaflokknum ásmegin með því
að kjósa lista hans og frambjóðendur 12. júní.
Prentsm. Acta h.f.
Mjóstræti 6
Talsími 948. Reykjavík.
Bóka og blaða prentun
Smáprentun allskonar
Litprentun.
Margskonar pappír, kort og
umslög ávalt fyrirliggjandi.
Bókaverzl. Alþýðu
og afgreiðsla
Verklýðsblaðsíns flutt!
Bókaverzlun Alþýðu og afgreiðsla Verklýðs-
blaðsins er flutt í Aðalstræti 9 (Bakhús), þar
sem afgreiðsla „Vísis“ var áður.
KJÓSENDUR, SEM FARIÐ ÚR BÆNUM.
Skrifstofa lögmanns, er opin kl. 10—L2 árd.
og 4—5 síðd. (í Arnarhvoli). Farið þangað og
greiðið atkvæði. Skrifið aðeins bókstafinn B á
kjörblað, sem ykkur verður afhent, látið í um-
slagið og límið aftur.
SKRIFSTOFA KOMMÚNISTAFLOKKSINS
í Reykjavík er í Aðalstræti 9 (bakhús, gamla
Vísisafgreiðslan). Komið þangað og* fáið allar
upplýsingar viðvíkjandi kosningunum.
Lögreglan myröir Yerkamenn í Svíþjóö
Samúðarverkfall.
Skógarhöggsmenn og flutningavej'kamenn í
Norður-Svíþjóð, eru nú í verkfalli. Voru verk-
fallsbrjótar sendir til vinnunnar. Er verkamenn
vildu verjast þeim, var sigað á þá vopnaðri lög-
reglu, sem drap 5 þeirra.
Afskapleg reiði hefir gripið verkamenn um
land allt, og samúðarverkföll hafin víðsvegar
um landið.
Síðustu borgaralegar fregnir tala um sátta-
horfur.
Verkamenn flykkjast inn í þýzka flokkinn.
Vinstrihreyfing þýzka verkalýðsins er upp á
síðkastið alltaf að aukast. Aðeins í einum hluta
Berlínar hafa kommúnistaflokknum bætzt frá
því 1. marz yfir 1000 nýir meðlimir, í Wiirten-
berg gengu inn á þremur vikum 500 nýir með-
limir. Á fjölmennum fundi í Sshleswig-Hoistein
gengu um 100 verkamenn inn í flokkinn. Verka-
menn, sem fylgt hafa Hitler að málum eru nú
að byrja að átta sig og koma yfir til kommún-
istanna.
9 ára fangelsi fyrir að halda strækuvörð.
í Ahlen í Westfalen var 21 námuverkamaður,
sem haldið höfðu strækuvagt í janúar, dæmdir
í samanlagt 119 mánaða fangelsi. Einn þeirra
var dæmdur í 10 mánaða fangelsi, og var dóm-
urinn byggður á því, að hann væri svo gáfaður
að þessvegna yrði hann að sitja svona lengi.
„V erklýðsblaðið".
Ábyrgðarm.: Brynjólfur Bjamaaon. — Árg. 5 kr., i
lausaaölu 15 aura eintakið. — UtanAskrift blaðsina:
Vérkiý-Jsblaðið, P. O. Box 761, Reykjavík.
PrentamiSjan Aeta.
/
/