Verklýðsblaðið - 25.07.1931, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKHUR ISLANDS (DEILD ÚR A.K.)
II. árg. Reykjavík 25. júlí 1931 35. tbl«
Striðsundirbúningur
stórveldanna
— á Islandi
Krepian i PýskiM i Jlinimi
Næststærsti banki Þýskalands gjaldþrota. Fjöldi fyrirtækja stödvast.
Atvinnuleysið eykst giturlega. Atvinnnleysingjar yfír 4 miljónir. Mark-
tall i rauninni byrjað i stórum stil. Prentfrelsi og tundatrelsi takmark-
að og næstum atnumið. Skörp viðskiptahött sett á.
Sjaldan hefir auðvaldsblekking- gufað eins
fljótt upp og gjaldafrestur Hoovers. Þrátt
fyrir hann, skall viðskiptakreppan yfir í sinni
skörpustu mynd, sem bankahrun. Danat-bank-
inn, næststærsti banki landsins, stjóraað af
aðalfjármáladrotnara Þýzkalands, Jakob Gold-
schmidt, varð gjaldþrota. Ríkið tók á sig
ábyrgð fyrir bankann, án þess sjálft að hafa
fé til nokkurs. Fjölmargar verksmiðjur hafa
þegar stöðvað alla vinnu, því þær geta ekki
greitt út — svo neyð og atvinnuleysi aukast.
En braskaramir flytja féð úr landi svo miljón-
um skiptir. Ríkisstjórnin þykist reyna að hefta
þetta glæpsamlega brask, en beinir aðalkraft-
inum að því að halda lýðnum í skefjum. Bann-
ar hún fundi, ritskoðar og bannar blöð og of-
sækir kommúnistaflokkinn þýzka á allan hátt.
Fjöldi fólks sér ekkert nema hungrið fram
undan og byltingarhreyfing lýðsins vex dag frá
degi.
Kröfur þýzka kommúnistaflokksins.
Betur og betur sér nú þýzka alþýðan að eina
lausnin út úr öngþveitinu er kommúnisminn
og sameiginleg barátta með verkalýð heimsins
og einkum þó Ráðstjórnarríkjanna gegn auð-
valdsríkjunum. Kröfur kommúnistanna eru nú
þessar:
Verkalýður Vestmannaeyja
krefst atvinnubóta.
i 15. júlí var verklýðsfundui haldinn í Vest-
mannaéyjum að tilhlutun Kommúnistaflokks-
ins. Voru þar samþykktar tillögur, er kröfðust
atvinnuleysisstyrkja, styttingar vinnutímans,
byggingar veLkamannabústaða, starfrækslu
ailra framleiðslutækja, sem venjulega eru rek-
in, og skaðabótalaust eignanám ella,, og auk
þess allmikilla atvinnubóta. Voru allar tillög-
urnar samþýkktar með öllum greiddum at-
lcvæðum.
Ennfremur skoraði funduiinn á Alþingi að
tákmarka með lögum vinnutíma kvenna og
barna í verksmiðjum, við fiskverkun og aðra
eifiðisvinnu og' benti á hvílík óhæfa það væri
að þræla húsmæðrum' og börnum út í jafnvel
12 til 15 stunda vinnu, þegar verkamennimir
um leið ganga atvinnulausir.
Allsstaðar tekur verkalýðurinn að fylkja sér
um kröfur kommúnista. Á fjórum fundum, á
Siglufirði og Akureyri, í Vestmannaeyjum og
Reykjavík samþykkir verkalýðurinn samskon-
ar kröfur sem kommúnistaflokkur Islands ber
fram sem brautryðjandi verkalýðsins.
Sífelt vex skilningur alls verkalýðs á því,
að hann verður að standa saman undir for-
ustu Kcmmúnistaflokksins til þess að verjast
árásum auðvaldsins og hefja gagnsókn sína.
Braskararnir og auðmenn þeir, sei i sök eru
í auðmagnsflóttanum og gjaldþrotunum, séu
fangelsaðir og dæmdir.
Öll bankainneign yfir 20.000 mörk sé tekin
eignanámi og notuð til að tryggja innieign
smáu sparendanna.
Eignir miljónamæringa, stórgróðamanna og
eftirlaunastórlaxa séu teknar eignanámi skaða-
bótalaust.
Öll stöðvuð fyrirtæki séu opnuð og starf-
rækt án tillit til þess, hvort það borgar sig
fyrir auðmennina.
Matar-, klæða-, skó- og aðrar nauðsynjavöru-
birgðir séu teknar eignarnámi og úthlutað til
hungrandi lýðsins, atvinnuleysingja og fátæk-
linga.
Hinar stóru íbúðir, „villur“ og hallir séu
teknar eignarnámi handa hinum búsnæðislausa
og bágstadda verkalýð.
„Lifi baráttan fyrir frjálsu, sósíalistisku
Þýzkalandi!"
Þannig lýkur ávarpi þýzka kommúnista-
flokksins til þýzku þjóðarinnar.
Úrslitabaráttan nálgast nú alstaðar í veröld-
inni með hverjum degi sem líður.
Islenzkur verkalýður! Ert þú líka reiðubú-
; inn, þegar ráðþrot valdhafanna eru fullkcmin,
! og þú verður sjálfur að skapa þér örlög þín?
Byltingarhreyfing verkalýðs-
ins magnast á Spáni.
Hernafiarástand og gðtuhar-
dagar I Sevilla.
Lýðveldisstjórn borgaraflokkana og sóslai-
demókrata á Spáni megnar ekki að leysa vand-
ræði alþýðunnar. Óánægjan vex með degi
hverjum, I Sevilla og Andalúsíu — héraðinu,
eru kommúnistar einna sterkastir á Spáni.
Þar brauzt út pólitískt allsherjarverkfall
síðastliðinn mánudag og hófust strax erjur við
lögregluna. Hafa 11 manns beðið bana í skær-
unum, en 900 verið fangelsaðir.
Á miðvikudagskvöld var lögieitt hernaðar-
ástand í Sevillahéi aði og má búast við stór-
tíðindum jiaðan biáðlejja, því með byssukúlum
tekst sósíaldemókrötum og herrum .þdi'ra, auð-
valdinu, ekki að seðja svangan verkalýð.
ini'ini—miiii iii mnniinnTTi—imiinTTnnni~Tni«« 11riim
Taltmarkinu meö áskriftafjölgunina var náð
23. júlí. — Félagar! Hvað getum við komist
langt fram úr áætlun?
-~rr--T--1 - r i -1—iti—
Auðvaldsríkin um allan heim undirbúa
árásarstríð á ráðstj ómaríkin. Alstaðar reyna
þau að flækja smáþjóðimar inn í það, til þess
að geta att þeim fram fyrir sig og til þess að
tryggja sem fullkomnasta einangrun og að-
f'lutningsbann til Rússlands. Einnig hér á Is-
landi gerir alþjóðaauðvaldið nauðsynlegan
undirbúning og annast það einkum sú deild. al-
þjóðaauðvalds, sem drottnar hér, brezka auð-
valdið.
Inngangan í Þjóðabandalagið.
Samtök auðvaldsríkjanna gegn i'áðstjómar-
ríkjunum, það er Þjóðabandalagið. Starf þess
á að vera að útvega hentugar átyllur til stríðs-
byrjunar, fegra og dylja herbúnaðinn með
friðarglamri og afvopnunarfundum, útvega
auðvaldsræningjunum sem fegui'sta hugsjón á
broddi byssustingjanna (frið, frelsun menning-
arinnar, varðveizlu kristninnar etc.) og koma
skipulagi á algerða einangran ráðstjórnarríkj-
anna og tryggja þátttöku, sem allra flestra
ríkja.
Þessvegna er það skilyrði í lögum þessa
bandalags, að hvert einasta ríki, sem í því er,
taki þátt í viðskiftastríðinu og einangruninni
og' leyfi her að fara um land sitt, etc.
ísland yrði því gert að flota- og flugvjela-
stöð, þegar stríð byrjaði, að svo miklu leyti,
sem það yrði hentugt, og að nokkru leyti yrði
það tvímælalaust hentugt fyrir brezka her-
valaið að nota ísland þannig.
Þeir, sem berjast fyrir inngöngu íslands í
Þjóðabandalagið, Framsókn og kratar, vinna
því beinlínis að því að láta það ganga í hern-
aðarbandalag stórveldanna, gefa upp hlutleysi
sitt og taka þátt í stríði móti ráðstjórnar-
ríkj unum.
Þátttakan í II. Internationale.
Alþjóðasamband sósíaldemókrata er upp-
víst að þvi að hafa varið stórfé til hernjósna
og skemmdarverka í Rússlandi, til þess að
undirbúa þannig styrjöld auðvaldsins gegn
ráðstjórnarríkjunum. I þessu sambandi eru
íslenzku sósíaldemókratamir og feng'u frá því
40000 kr. 1928. I þakklætisskyni fyrir þessa
Júdasarpeninga kljúfa kratabroddamir ís-
lenzku verklýðshreyfinguna og reyna að úti-
loka kommúnista. Með þátttöku sinni í II. Int-
emationale taka ísl. kratamir einnig beinan
þátt í undirbúningi styrjaldar gegn ríkjum
verkalýðsins og sósíalismans.
En íslenzki verkalýðurinn verður að hindra
að Island gangi í Þjóðabandalagið og knýja
Alþýðusambandið út úr II. Internationale.
Þar með vinnur hann að sínu litla leyrti móti
stríðshættunni.
En undirbúningur stói'veldanna undir stríð,
jafnvel héðan frá íslandi, er ekki aðeins inni-
falinn í þessum alþjóðasamtökum þeirra og
innlimun Islands í þau. Hann er einnig beins
hernaðarlegs eðlis.