Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 12.04.1932, Síða 1

Verklýðsblaðið - 12.04.1932, Síða 1
VFR KI WI^RI Alllll ▼ SJFðDulll fl V ÚTGEFANDI: KOMMÚNIST AFLOKKURISLANDS (DEILD ÚR A.K.) III. ápg, Reykjavík 12. appíl 1932 15. tbl. Leynisamningar milli íhaldsog Framsóknar Ihaldið ætlar að svíkja kjördæmamálið fyrir eitt ráðherrasæti i „þjóðstjórn44 Hér í blaðinu hefir þegar oftar en einu sinni verið sagt í sambandi við kjördæmaskipunar- málið, að íhaldsflokkurinn væri þrátt fy,rir allt raup um „réttlætismál11 og „mannréttindi“ reiðubúinn að svíkja sitt eigið kjördæmaskip- unar- og kosningarréttarfrumvarp, ef samn- ingar tækjust við Framsóknarflokkinn um samsteypustjórn eða „þjóðstjórn“ og bróður- lega skiptingu á bitlingum ríkissjóðs. Síðustu daga hafa nú þeir viðburðir gerst á bak við tjöldin, sem taka af allan efa um þetta mál og eiga eftir að gera öllum lýðum ljóst, hvert stefnir í stórpólitíkinni hér á landi. Ihaldsflokkurinn hefir staðið í leynilegum samningaumleitunum við Framsókn um stofn- un „þjóðstjómar" nú þegar á þessu þingi. En þrátt fyrir allt leynimakk getur „Verklýðs- blaðið“ í dag frammi fyrir öllum landslýð flett ofan af þeim svikráðum, sem þar hafa verið rædd: Ihaldsflokkurinn hefir að undangengu sam- komulagi við fjármálaráðherrann, Ásgeir Ás- geirsson, boðið Framsóknarflokknum að láta kjördæmaskipunar- og kosningarréttarmálið niður falla í þrjú ár eða þar til þetta kjör- tímabil er á enda, ef samningar takizt milli þeirra um myndun „þjóðstjórnar“ með Tryggva Þórhallssyni sem forsætisráðherra, Ásgeiri Ásgeirssyni sem fjármálaráðlierra og Pétri Magnússyni sem dómsmálaráðherra. íhaldsflokkurinn hefir treyst því, að þetta leynitilboð kæmist ekki almenningi til eyrna, og að hann mundi eftir sem áður, ef því yrði hafnað, geta leikið málsvara „mannréttind- anna“. En svikin eru komin upp. íhaldið er reiðubúið að selja kjördæmaskipunar- og kosn- ingarréttarfrumvarp sitt, „mannréttindin“ og undirskriftimar allar, sem það safnaði, fyrir eitt ráðherrasæti og önnur þau fríðindi, sem fylgja því að vera stjórnarflokkur. Hvort þessi kaup takast þegar á þessu þingi skal enn ósagt látið. En svo mikið er víst, að með að- stoð Ásgeirs Ásgeirssonar hefir íhaldinu þeg- ar tekist að vinna Framsóknarmennina Bjarna Ásgeirsson, Lárus Helgason, Bernharð Stef- ánsson og Jón Jónsson í Stóradal til fylgis við þenna fyrirhugaða bræðing. En samninga hefir einnig verið leitað við aðra og áhrifameiri menn í Framsókn: Ólafur Thors sat í tvo tíma á ráðstefnu við Trygg\?a Þórhallsson forsætisráðherra á föstu- daginn, til þess að ræða þessar fyrirætlanir. Og að þær samningaumleitanir ennþá ekki hafa borið tilætlaðan árangur er eingöngu að kenna persónulegum mótsetningum milli Ihaldsforingjanna og Jónasar frá Hriflu. Því að eftir að íhaldsflokkurinn hefir tjáð sig fús- an til þess að falla frá kjördæmaskipunar- frumvarpi sínu, er um engan verulegan ágrein- ing að ræða milli Framsóknar og Ihalds. Fýrir báðum vakir sem stendur aðeins þetta eitt, að bjarga auðvaldinu hér á landi út úr yfirstand- andi kreppu á kostnað verkalýðsins með áfram- haldandi launalækkunum. Fyrir þessum sam- eiginlegu hagsmunum munu allar persónulegar mótsetningar áður en varir verða að engu. ,,Þjóðstjórn“ Framsóknar og Ihalds verður stolnuð eí ekkl á þessu þingi, þá að afstöon- um kosningum! Alþýðuflokksforingjarnir eru með lífið í lúkunum út af þessum leynisamningum. Þeir sjá fram á það, að þeir muni, ef samningarnir takast, verða afskiptir við úthlutun bitling- anna. Bankastjórastöðumar eru í hættu. Það er bersýnilegt, að Ihaldið hefir haft Alþýðu- flokkinn að ginningarfífli. Þegar hann hefir orðið því að því gagni, sem til var ætlazt, gefur það honum sparkið. Eina von Alþýðu- flokksins er sem stendur, að honum muni tak- azt að selja sig Framsókn ódýrara en íhaldið. Bakarar segja upp sammngi við atvinnurekendur Bakarasveinafélagið hefir sagt upp samning- um við atvinnurekendur frá 1. maí. Krefjast þeir allmikillar hækkunar frá núgildandi taxta (25—30%), 8 stunda vinnudags og tveggja vikna sumarfrís, í stað 1 viku í núgildandi samningi. Undanfarið hefir kaupið víðast ver- ið hærra en taxtinn, enda hafa bakarasveinar haft lægst kaup af iðnlærðum mönnum hér i bæ. I sumar var kaup það, sem greitt var, kr. 86.65 á viku, að meðaltali, en í haust var kaupið talsvert lækkað hjá mörgum atvinnu- rekendum. Nú krefjast bakarasveinar 90 króna meðalkaups á viku. Ætla mætti að bakarasveinar standi betur að \ugi vegna þess, að Alþýðubrauðgerðin er einn samningsaðili af atvinnurekenda hálfu, og kröfur þeirra eru í fullu samræmi við þær samþykktir, sem gerðar voru í verklýðs'mál- um á síðasta þingi Alþýðusambandsins. Enn- fremur er rétt að minnast þess, að hvergi í nálægum löndum er vinnutími bakara lengri en 8 stundir á dag. Trésmíðavinnustofa ® Árna J. Árnasonar Skólastræti 1 B. Síiui; 1423 Reykjavík Framleiðir alls konar húsgögn, dýr og ódýr: I Svefnhei'bergi, borðstofur, skrifstofur, smíðar búðarinnréttingar, og einnig sér- stök stykki. Vinnustofan vinnur með nýtýsku vélum og hefir ágætum fagmönnum á að skipa. — Gerir tilboð og teikningar. — Vörur sendar um land alt gegn eftirkröfu. Leitið upplýsinga. Peningar og pólitík „Hver ráð eru til þess að knýja valdsmenn þjóðarinnar til að láta undan?“, spyr Morgun- blaðið í grein er nefnist „Skattarnir“. Og blaðið bendir jafnframt á eina leið í að neita skattgreiðslum til ríkissjóðs. Barátta íhaldsmanna fyrir myndun „þjóð- stjómar“, er að taka á sig skýrara og skýrara form. I fyrsta lagi er það barátta fyrir þátt- töku í úthlutun bitlinganna og í öðru lagi bar- átta fyrir „nauðsynlegri samvinnu flokkanna — til þess að samrýma vinnulaunagreiðslu við afrakstursverð atvinnuveganna", eins og Páll Ólafsson framkvæmdarstjóri kallar það sem á almennu máli nefnist launalækkun. Framsóknarflokkurinn hefir enn sem komið er verið andvígur þjóðstjórnarhugmyndinni, þótt hinsvegar munu vera mjög svo skiftar skoðanir um málið innan flokksins. Þessi a£- staða Framsóknarmanna á síður en svo rót sína að rekja til viljaleysis í þá átt að velta byrðum kreppunnar yfir á verkamenn og fár tæka bændur, heldur mun hún sumpart eiga orsök sína í metnaðargirni og valdafíkni ein- stakra foringja hans og embættalýðsins sem eru hræddir um stöður sínar og sumpart í hræðslu flokksins við að missa fylgi einhvers hluta „iðjumannanna“, sem seint mundu skilja slíka sambræðslu. Hinsvegar er það engum vafa undirorpið að íhaldsmenn eiga yfir því vopni að ráða, sem getur knúð þessa kröfu þeirra frani. Þetta vopn felst í valdi þeirra yfir þeim framleiðslu- tækjum, sem skapa yfirgnæfandi meirihluta alls útflutningsverðmætis og þar með gjald- eyrisins. Á því sviði er mikill aðstöðumunur með flokkunum. Nægir í því sambandi að benda á að þeir 40 togarar, «em gerðir eru út hér og að mestu leyti eru háðir yfirráðum Kveldúlfs og Alli- ance framleiddu um 35% af öllu útflutnings- verðmæti landsins í fyrra, eða 15—16 milj. króna áf 45l/2 milj. kr. útflutningi. Á sama tíma komast allar afurðir landbúnaðarins ekki upp í 10% af verðmæti útflutningsins. Land- búnaðurinn er nú rekinn með stórkostlegu þjóðarbúskapslegu tapi og fer afkoma hans sí- hrörnandi. Þannig voru fluttar út fyrstu tvo mánuði 1931 landbúnaðarafurðir fyrir 468 þús. krónur, en á sama tíma í ár fyrir 177 þús. kr. og eru það ekki nema um 2þó % af verðmæti útflutningsins. Saltkjötstunnan, sem stóð í 102 kr. í fyrravetur, er nú komin niður í 45 krónur. Hótanir um að beita þessu valdi eru þegar að stinga upp höfðinu í blöðum íhaldsins, sam- tímis eru á ferðinni dulklæddar hótanir um að neita skattgreiðslum til ríkissjóðs og nú alveg nýlega fréttist um nýja fyrirætlun íhalds- manna, sem er einn liður í þessari baráttu, stofnun sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Forystumaður þessa fyrirtækis er Jón Þor- láksson. Hefir þegar verið kosin stjóm og mun þessi nýi banki sem „viðstöðulaust fékk staðfestingu af fjármálaráðh. Ásg. Ásg.“ (!) (Jón Þorl.) taka til starfa alveg á næstuimi. Útan um sparisjóðinn standa undir forustu í- haldsins, efnuðustu miðstéttarmenn Reykja- víkur. Stofnun Sparisjóðs Reykjavíkur ber tví- mælalaust að skoða sem pólitíska hótun til

x

Verklýðsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.