Verklýðsblaðið - 11.04.1933, Page 4
■ÞÍslenzk tnálverk og margskonar rammar á Freyjugötu 11
Samfylkingín
Framh. af 1. síðu.
hervæðingu). Tillögur Hermanns
þykja heppilegri af tveimur á-
stæðum:
í fyrsta lagi er auðveldara að
koma þeim í framkvæmd að
verkalýðnum óvörum og í öðru
lagi er gert ráð fyrir, að slíkt
herlið yrði betur fallið til víga
gegn verkalýðnum.
Verkalýðurinn sveltur og þjá-
ist af skorti á öllu því sem til
lífsins þarf. •
Samtímis hervæðist burgeisa-
stéttin til þess að bæla niður
frumstæðustu kröfur verkalýðs-
ins til lífsins og brjóta niður
samtök hans.
Og Alþýðuflokksforingjamir
reyna að hindra það„ með þögn,
undandrætti og vífilengjum, að
verkalýðurinn sameinist til ein-
huga baráttu.
Það má ekki takast.
LandsiUEdur
bæuda.
Hingað til Rvíkur hafa safn-
azt um 40 bændur víðsvegar að
af landinu til þess að ræða um
kreppuna og bera fram kröfur til
Alþingis um ráðstafanir til við-
reisnar landbúnaðinum. Þessir
fulltrúar munu flestir vera full-
trúar stórbændanna og þær kröf-
ur, sem samþykktar verða, eru
sniðnar mestmegnis með tilliti til
stórbúskaparins. Þó hafa fram
komið raddir frá einstaka mönn-
um eins og sr. Eiríki á Hesti og
nokkrum öðrum, sem benda í
þá átt, að þeim hafi skilizt, að
bændurnir hafi ekki allir sömu
hagsmuna að gæta, og að þá
uggi, að réttur smábóndans verði
fyrir borð borinn á þessum
fundi og í þeim ráðstöfunum, sem
Alþingi, fulltrúar stórbændanna
þar, koma til með að gera.
1 öllum stærstu verkalýðsfé-
lögunum í bænum, nema í Sjó-
mannafélaginu, þar sem stjórnin
hefir ekki fengizt til að halda J
fund, hefir tillagan um mótmæla-
verkfall og kröfugöngu verið
tekin til umræðu. Alstaðar hefir j
verkalýðurinn verið einhuga |
fylgjandi henni. í Járniðnaðar- \
mannafélaginu og Prentarafélag- :
inu var hún samþykkt. 1 „Dags- !
brún“ og „Framsókn" hafði hún j
jafn einhuga fylgi, en krata- j
broddarnir létu hana ganga til
fulltrúaráðsins. En fulltrúaráðið !
hefir þagað. Hversvegna? Það j
mun reynast erfitt að neita því,
að til fulltrúaráðsins var tillög-
unni vísað í þeim tilgangi að j
svæfa hana. ■
Svo búið má ekki lengur standa. j
Kommúnistaflokkurinn hefir i
skrifað stærstu verklýðsfélögun- :
um og óskað eftir að samfylk- ;
ingartilboðið verði strax tekið til i
umræðu og strax tekin ákvörðun j
um baráttuna gegn ríkislögregl- j
unni og fyrir atvinnubótum.
1. maí nefnd flokksins hefir !
sent 1. maí nefnd Alþýðuflokksins j
bréf, og óskað eftir sameiginlegri I
kröfugöngu 1. maí, á grundvelli j
samfylkingarávarpsins.
Verkamenn, sem fylgið Alþýðu- j
flokknum! Takið starx höndum j
saman við hina kommúnistisku j
stéttarbræður ykkar, til að undir-
búa kröfugöngu og mótmælaverk-
fall, fyrir atvinnubótum, gegn
ríkislögreglu. Veljið sameiginleg-
ar baráttunefndir á vinnustöðvun-
um til þess að stjóma baráttunni.
Takið málið upp í verkalýðsfélög-
unum, og ef broddamir koma í
veg fyrir það, að þið fáið að
greiða atkvæði, þá látið það ekki
hindra framkvæmdir, heldur tak-
ið málin í ykkar hendur, þrátt
fyrir broddana.
Samfylkingin skal verða sköp-
uð — nógu víðtæk og máttug til
að sigra — þrátt fyrir allt.
1. maí skal verða sameiginleg-
ur baráttudagur einhuga verka-
Jýðs — hverju sem Alþýðuflokks-
foringjajmir svara.
Sannleikurinn er sá, að í
sveitum landsins skiftast bænd-
urnir í tvær stéttir: stórbændur
og smábændur, sem hafa gjör-
ólíkra hagsmuna að gæta. Smá-
bóndinn, sem ekki hefir stærri
kartöflugarða en svo, að kartöflu-
uppskeran nægir aðeins til
heimaþarfa, hefir engan hag af
innflutningstolli á kartöflum.
Hann hefir engan hag af því að
kaupgjald til verkafólks í sveit-
um verði lækkað, síður en svo,
því að hann hefir sjálfur ekkert
verkafólk og verður oft að leita
sér atvinnu utan síns heimilis í
vegavinnu eða við heyskap hjá
stærri bændum, og kemur þá
kauplækkunin beinlínis niður á
honum. Hann hefir heldur ekki
hag af gengislækkun vegna þess
að útflutningsafurðir hans eru
hverfandi litlar, en lækkun krón-
unnar hefir í för með sér hækk-
un á öllum innfluttum varningi
og í skjóli þess verðhækkun á
iðnaðarvörum, sem búnar eru
til í landinu sjálfu eins og t. d.
dúkum frá Álafossi o. fl.
Á þessum kreppufundi bænda
hafa verið ræddar og bomar
fram tillögur um stofnun stéttar-
félaga bænda. í þessum tillögum
er talað um nauðsynina fyrir
bændur á því að standa saman
um hagsmunamál sín og knýja
þau fram með stéttarsamtökum.
Ef þessi félagsskapur kemst á,
þá mun reynslan leiða 1 ljós, að
hann verður stéttarfélagsskapur
stórbændanna og verður aðeins
vopn í þeirra hendi til kaupkúg-
unar í sveitum og til hagsbóta
þeim á kostnað verkafólks og
smábænda. Stéttarvakningin í
sveitum er enn ekki orðin það
mikil, að smábændunum hafi
fyllilega skilizt, hvað þar er að
gerast, en stéttamunurinn verð-
ur æ ljósari með hverjum deg-
inum sem líður, og smábænd-
urnir munu brátt komast að
raun um, að „Framsókn" ber ekki
þeirra hagsmuni fyrir brjósti.
Jón Þorbergsson, stórbóndinn
frá Laxamýri, lét sér þau orð
um munn fara í útvarpsræðu
Varnarlið Verkalýðsins.
Fuiidur
veröur á fimtudag 13. þ.
m. (skírdag) kl. 2 e. h.
Stfórnin.
Bréf fra. Ingu og fleirum.
Haudan.
II
NÝ BÓK:
Fæst hjá flestum bóksölum. Ennfr. Bréf frá Ingu, L,
samt líður nú óðum að þau séu uppseld. Verð hvors
bindis er aðeins kr. 3,75 innb. í shirting. Ath. allt
andvirðið rennur til bókasafna sjúklinga á Vífilsstöð-
um og Kristnesi. — Verða bækumar afgreiddar,
burðargjaldsfrítt, frá
Bókasafni sjúkl. á Vífilsstöðum eða Bókasafni sjúkl. KristnesL
Pósthólf 608, Rvík. Pósthólf 27, Akureyri.
Tilkynning til húsmæðra.
Sökum þess, hve dýrt er að síma geta þær húsmæður sem,
vilja, pantað nýjan fisk fyrir vikuna í einu. Tekið verður á móti
pöntunum í síma 4456 — 2098 og 4402.
Hafliði Baidvinsson.
NB. Tekið á móti pöntunum í síma 4456, alla daga til kl.
9 sídegis.
Kolasalan
Sítni 45 i 4
einni á kreppufundinum, að af-
koma einyrkjans væri nú á þess-
um krepputímum jafnvel betri en
stórbóndans. Og þetta er ekki
einstæð skoðun meðal stórlax-
anna í sveitunum. Út úr þess-
um orðum má lesa yfirlýsingu
um það, að stórbændur einir
þurfi hjálpar við, enda þótt víst
sé, að smábændur almennt skulda
meira að tiltölu við afurðasölu
og bústofn og mí'guleika á vaxta-
greiðslu heldur en stórbændur.
Gegn þessu verða smábændur
um land allt að hefja harðvítug
mótmæli. Þeir verða að kreijast
þess, að skuldir þeirra verði af-
dráttarlaust strikaðar út, jarðar-
afgjald lækkað til stórra muna
og tollar á öllum nauðsynjavör-
urn afnumdir.
Þetta eru í fám dráttum þær
mest aðkallandi kröfur, sem fá-
tækir bændur hljóta að gera, ef
þeir eiga ekki að flosna upp og
segja sig til sveitar. En þessum
kröfum verður því aðeins kom-
ið fram, að smábændur um land
allt myndi ineð ser öflug sam-
tök í náinni samvinnu við verka-
lýðinn í bæjunum og sýni vald-
höfunum með því fulla einurð og
vilja í verki á því að knýja fram
þessar réttmætu hagsbætur.
l
í
I
i
Ábyrgðann.: BrynjóIIur BJamason.
Prentsmiöjan Acta.
EGG íslenzk 17 aura.
EGG útlend (suðu) 17 aura.
Ágætt íslenzkt b ö g g 1 a-
s m j ö r og allt annað í
páskabaksturinn.
KAUPFÉLAG ALÞÝÐU,
Njálsgötu 23, sími 4417,
Verkamannabúst., sími 3507.
TH1IHI— IIIIIIMI IIUIil IM ■Mlllllillllllll II ■■■■IIIM
Takið effcir!
íslenzkt smjör 1.50 pr. M> kg.
Smjörlíki 80 aura 1/2 kg.
Hvítkál á 20 aura Vz kg.
Minnist þess ávalt, að kaffi,
sykur og aðrar nauðsynjar
eru ódýrastar hjá
Jóhannesi Jóhaxmessyni
Grundarstíg 2. Sími 4131.
Síldarstúlkur!
í síðasta blaði misprentaðist föður-
nafn fyrverandi formanns verka-
kvennafélagsins „Ósk“ á Siglufirði.
Hún heitir Sigríður Sigurðardóttir, en
ekki Sigurhjartardóttir. — Núverandi
formaður „Óskar“ er Anna Guð-
mundsdóttir, kona Sveins þorsteins-
sonar. Eru sildarstúlkur beðnar að
snúa sér til hennar auk þeirra, sern
nefndar voru i síðasta blaði eða ann-
ara stjórnarmeðlima.