Verklýðsblaðið - 11.07.1933, Síða 4
Antonio Gramsci.
Hvernig lífið er murkað
úr foringjum verkalýðs-
ins í fangelsum Mússó-
linis.
Fyrir 7 árum, í nóvember 1926,
var Antonio Gramsci, foringi
Kommúnistaflokksins á Ítalíu,
grafinn lifandi í fangelsum Músso-
linis. Dómurinn, sem yfirstéttar-
réttvísi auðvaldsins hafði kveðið
upp yfir honum hljóðaði upp á
20 ára íangelsisvist. Nú koma frá
íangelsinu í Turi di Bari, þar
sem Gramsci situr, fréttir um
það, að tæringin, sem hann hefir
fengið í fangelsisklefum fasist-
anna, sé að draga hann til dauða.
Hann hefir þita og blóðspýting
og er öðruhvoru meðvitundar-
laus. „Gramsci á aðeins skammt
. eftir ólifað, ef ékki verður breytt
um aðbúð við hann“, hefir prófes-
sor Arcangeli, forstöðulæknir
sj úkrahúsanna í Rómaborg sagt
fyrif stuttu síðan.
1 En blóðsugur ítölsku burgeisa-
stéttarinnar og fulltrúi þeirra,
Mússolini, vilja ekki breyta um
aðbúð við Gramsci. Þær ætla sér
að láta Gramsci deyja, langvar-
andi og kvalafullum dauða, í fang-
elsisklefum sínum.
Hversvegna var Gramsci dæmd-
ur til 20 ára fangelsisvistar?
Fyrir það, að hann var frækn-
asti forvígismaður verkalýðs
hreyfingarinnar á Ítalíu og for-
ingi Kommúnistaflokksins þar,
eina flokksins, sem Mússolini hef-
ir ekki tekizt að yfirbuga, þrátt
fyrir allar ofsóknir og lagabönn.
„Gramsci er lífið og sáiin í
hreifingunni", stóð í ákæruskjal-
inu á móti honum, „og það er
hann, sem hefir vísað flokknum
veginn og stjórnað störfum hans.
I allri fortíð Gramscis er aug-
sýnilegt, að það er hans nafn,
sem mest hefir verið á vörum
fjöldans. Þegar verkalýðurinn á
Norður-ltalíu tók verksmiðjurn-
ar á sitt vald, hafði Gramsci sig
meira en flestir aðrir í frammi.
Öll starfsemi hans sýnir, að hann
er hreinn og beinn flokksforingi“.
ítölsku arðræningjamir eru enn
ekki búnir að gleyma árinu 1920,
þegar flestallar verksmiðjur á
Norður-Italíu voru á valdi verka-
lýðsins. Þá tókst þeim enn einu
sinni að rétta við yfirráð sín og
arðránsmöguleika með aðstoð
sósíaldemókratisku broddanna,
flokksbræðra Jóns Baldvinssonar
og Héðins Valdimarssonar. Og
þar með fengu þeir svigrúm til
þess að koma sér upp þeirri ögn-
arstjórn, sem nú hefir ríkt á Ital-
íu í meira en 10 ár 9g haldið
verkalýðnum undir oki auðvalds-
ins, fasistastjóm Mússólínis. Só-
síaldemókratisku foringjamir
voru brautryðjendur fasismans á
Ítalíu og gengu honum síðan á
hönd alveg á sama hátt og á
Þýzkalandi. Þeir em nú margir
hverjir, eins og Aragona, embætt-
ismenn Mússólínis. En foringjar
Kommúnistaflokksins, sem héldu
tryggð við verkalýðshreyfinguna,
sitja í banvænum fangelsisklefum,
ofurseldir dauðanum.
En þó að Gramsci og fjölmarg-
ir aðrir foringjar Kommúnista-
flokksins verði myrtir, þá verður
ekki sá andi myrtur, sem þeir
hafa skapað hjá ítalska verka-
lýðnum.
j Hann mun á sínum tíma gera
upp reikninginn við Mússólini,
I morðvarga hans, og alla þá stétt,
sem á bak við þá stendur.
j Þess skal getið, að „Rauði fán-
inn“, blað Sambands ungra kom-
múnista var gerður upptækur á
dögunum meðal annars af því, að
í niðurlagi greinarinnar um
„Flugferð ítalanna“ stóð: Viva
Gramsci! (Lifi Gramsci!)
„Atvinnuieysis-
skránitigin".
365 menn hafa látíð skrá sig
atvirmulausa hjá nefnd fulltrúa-
ráðsins. Alþýðublaðið notar nú
tækifærið til að reyna að telja
fólki trú urn að það séu ekki
fleiri atvinnuleysingjar í Reykja-
vík. En á sama tíma hafa 400—
500 atvinnuleysingjar sótt um
atvinnu, aðeins við eitt fyrir-
tæki, sem sé vegalagninguna
vegna Sogsvirkjunarinnar.
Það er því augljóst, að þessi
skráning er gerð í allt öðrum til-
gangi, en látið er í veðri vaka.
Hún er framkvæmd til að iáta
líta svo út, sem atvinnuleysið sé
miklu minna, en það er í raun og
veru — tii þess að draga úr at-
vinnubótakröfunum og atvinnu-
leysisbaráttunni.
Vilmundur kom á fundinn, var
honum fagnað með lófataki, en í
lok fundarins, þegar Jón var bú-
inn að „skrapa“ hann dálítið,
fundu fáir tilhneigingu hjá sér til
að votta honum fylgi sitt.
Framboðsfundur
á Abureyri.
Erlingur Friðjónsson lýs-
ir því yfir, að krata-
broddarnir ætli sér að
sprengja Verkamanna-
félag Siglufjarðar.
Almennan
kjösendafund
halda frambjóðendur allra flokka
í Barnaskólaportinu á miðvikudag
kl. 8 e.h. Ræðunum verður útvarp-
að með gjallarhorni.
Frambjódendur flokkanna
Þar sem kratarnir
ráða.
Þegar lýðskrumarar
auðvaldsins eru
skrapaðir.
Á kjósendafundinum síðastl.
; sunnudag á ísafirði lék hinn lífs-
I gærkvöldi var haldinn almenn-
ur framboðsfundur á Akureyri. —
í'undarsalurínn var þéttskipaður
— sérstaklega verkafólki. Lang-
beztu viðtökurnar fékk félagi Ein-
ar Olgeirsson frambjóðandi K.
F. I.
Þær launadeilur, 'sem átt hafa
sér stað á Akureyri, samfara
hinni hatrömmu ofsókn burgeisa-
valdsins hafa þjappað verka-
lýðnum betur saman í hagsmuna-
baráttunni — einnig hefir barátt-
an afhjúpað kratabroddana svo
rækilega, að fáir munu það vera
meðal verkamanna þar, sem greiða
þeim atkvæði sitt við þessar kosn-
ingar. Erlingur Friðjónsson lýsti
því yfir á fundinum, að krata-
broddarnir ætluðu sér að stofna
nýtt verkamannafélag á Siglu-
firði, þ. e. að sprengja eitt af öfl-
ugustu verklýðsfélögum á land-
inu. Kratabroddarnir þola ekki
„háa“ kaupið á Siglufirði, og nú
á að stofna nýtt verkamanna-
félag, sem vitanlega hagar sér
eins og hin „gulu“ félögin á Norð-
uríandi, auglýsir lægri kauptaxta.
Verkalýður Akureyrar mun
ganga til kosninga samfylktur
gegn burgeisunum og hjálparsvein-
um þeirra, sósíaldemókratisku
broddunum.
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um hefir verðlag á helztu nauð-
synjavörum almennings í Dan-
mörku hækkað um allt að 20%
t. d. á matvælum úr dýraríkinu
um rúmlega 20%.
Þetta er sama sem 20% alls-
herjar kauplækkun. Við þetta
bætast svo allar beinu kauplækk-
anirnar.
I Danmörku ráða ríkjum
flokksbræður Héðins Valdimars-
sonar og Co.
Hvernig hefir „verkamanna-
stjómin“ farið að því að fram-
kvæma þessa kauplækkun?
Það hefir hún gert með því að
fella krónuna, hækka tollana og
banna verkalýðnum að viðlögð-
um ströngum refsingum að gera
verkfall.
Kratabroddamir framkvæma
stefnuskrá fasismans með sínum
aðferðum og sínum blekkinga-
slagorðum.
En fyrir verkalýðinn skiptir
það ekki mestu máli, hvort auð-
valdið slær hann með hægri eða
vinstri hendi.
; glaði borgari og hálaunakrati Vil-
mundur Jónsson nokkur skop-
stykki, til að koma sínum marg-
sviknu fyrverandi kjósendum, ís-
firskum verkalýð í gott skap og
leiða hugi þeirra frá stéttabarátt-
unni. Meðal annars lét hann svo
ummælt, að ef íhaldsmaðurinn
væri skrapaður kæmi innan úr
honum fasisti. — Þetta sagði Vil-
mundur að kommúnistar vildu
gera, og deildi mjög fast á þá fyr-
ir. Frambjóðandi Kommúnista-
flokksins, Jón Rafnsson, sýndi
fram á, í mótsetningu við Vil-
mund, að ef takast mætti að
skrapa, og það sem allra fyrst,
hina borgaralegu stjómmálafor-
kólfa, svo vel að fasistmn í þeim
kæmist fram fyrir augu alþýð-
unnar, þá væri veldi þeirra þar
með lokið. Það væri rétt, þegar
íhaldsmaður, er skrapaður, þá
kemur innan úr honum fasisti, og
þegar Alþýðuflokksforingi er
skrapaður, þá kemur innan úr
honum önnur tegund af fasista,
þ. e. sósíal-fasisti. Stæðu nú þess-
ir herrar skrapaðir frammi fyrir
alþýðunni í allri sinni nekt, þá
myndu þeir veslast upp á
skammri stundu.
Þetta sannaðist líka greinilega
í „praxis“ á þessum fundi. Þegar
Verkamaður,
sem búinn var að vera mjög
lengi atvinnulaus, fékk nýlega
vinnu hjá bænum. Þegar hann
fékk fyrstu útborgunina vantaði
hann 10 kr.,upp á, en með fylgdi
rniði, sem tilkynnti honum, að
þessar 10 kr. hefði einn af starfs-
mönnum bæjarskrifstofunnar tek-
ið upp í skuld, er verkamaður-
inn stæði í við starfsmanninn,
og eigi hann ennþá ógreiddar af
henni 10 kr. Verkamaðurinn hef-
ir engin viðskifti átt við um-
ræddan starfsmann og skuldar
honum ekld neitt, enda hinn ekki
rukkað hann áður. Af ótta við
atvinnumissi þorir verkamaður-
inn ekki að leita réttar síns.
Hvaða nafni nefnir almenningur
þetta framferði starfsmannsins ?
Skemmtifundur
Balbo ræður.
Þegar Ihaldið og annar ræðu-
maður Framsóknar höfðu talað í
útvai’pið í gærkvöldi, tilkynnti
þulurinn „að samkvæmt ósk herra
Balbo ráðherra væri umræðunum
um stjómmál lokið í kvöld“.
Þeim mönnum, sem hlustuðu á
umræðumar niður við Austurvöll
hnykkti heldur en ekki við og
spurðu hver annan: „Hvenær varð
Balbo ráðherra á íslandi ?“ Þótti
mönnum þetta vafasöm kurteisi
við „háttvirta kjósendur“.
Eftir nokkrar mínútur fengu
menn skýringu á fyrirbrigðinu,
því þá byrjaði útvarpið að spila
danslög. Fasistarnir þurftu sem
sagt að skemmta sér.
Sellufundir
verða í öllum sellum annað
kvöld. Skylda allra að mæta.
Allir
ilokks,- F.U.K.-félagar og
studningsmecn B-listans!
verður haldinn í Bröttugötu iaug-
ardaginn 15. júlí kl. 9 e. h.
Félagar fjölmennið!
Skemmtinefndin.
Munið að mæta í Bröttugötu
á sunnudag kl. 10 f. h.
KOSNINGANEFNDIN.
’ VERKLÝÐSBLAÐIÐ
Ábyrgðann.: Brynjólíur Bjamason.
Prentsmiðjan Ac.V\