Verklýðsblaðið

Issue

Verklýðsblaðið - 11.12.1933, Page 1

Verklýðsblaðið - 11.12.1933, Page 1
UTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ISLANDS (DEILDÚR A.K.) IV. árg. Reylsjavílc 11. des. 1933 54. tbL Samsteypustjórnin situr sem óþing- rædisleg' stjórn. Hannes á Hvammstanga og Jón i Stóradal reknir úr Framsóknarfl. Tr. Þorhallss. og H. St. tylgja þeim. Ríkislögreglan og Alþýðuflokkurinn. „Varalögreglunni verður beint gegn Alþýðuflokknum“, segir Al- þýðublaðið s. 1. laugardag. Hver einasti verkamaður, sem fylgst hefir með gangi ríkislögreglu- málsins, veit að þetta er hreint og beint öfugmæli. Varalögregl- an var sett á stofn til þess að berja niður baráttu verkalýðsins og til að vernda hagsmuni auð- valdsins og þar með hagsmuni Alþýðuflokksbroddanna. Dæmin sem sanna þetta eru fjölmörg. Fyrst og fremst hjálpuðu Al- þýðuflokksbroddarnir til að koma ríkislögreglunni á. Jón Baldvins- son greiddi atkvæði með ríkis- lögreglufrumvarpi „Framsóknar" á Alþingi og Alþýðuflokksfor- ingjamir börðust af alefli gegn tilraunum Kommúnistaflokksins til að skipuleggja verkalýðinn til byltingarsinnaðrar baráttu gegn stofnun stéttarhers auðvaldsins. Og með áhrifum sínum innan verkalýðsins tókst kratabroddun- um að hindra allsherjarverkfall og kröfugöngu gegn ríkislögregl- unni og haldið þannig niðri því eina afli, sem gat brotið hana á bak aftur. Þannig voru það Alþýðuflokks- foringjamir, sem áttu úrslita- þáttinn í því að ríkislögreglan komst á. Hver skyldi svo trúa því, að þeir hefðu unnið svo dyggilega að stofnun hennar, ef henni ætti að beita gegn Alþýðu- flokknum ? Nei, varalögreglunni verður ekki, og hefir ekki verið beitt gegn Alþýðuflokknum, heldur er hún stofnuð til þess meðal ann- ars. að vernda Alþýðuflokkinn. Atburðirnir 9. nóv. s. 1. sanna þetta greinilega. Gegn hverjum var varalögreglunni beitt þá? Gegn atvinnulausum, sveltandi verkalýð, sem hafði það eitt til saka unnið, að bera fram kröfur um að bætt yrði úr sárustu neyð hans. Hverjir voru það, sem köll- uðu á varalögregluna til þess að ráðast á verkajýðinn, þegar hann vildi fá að tala við forseta sam- einaðs þings, Jón Baldvinsson, og færa honum kröfur sínar? Það gerðu Alþýðuflokksbroddarnir, sem vom að skemmta sér inni í Iðnó þetta sama kvöld. Þeir höfðu engan tíma til að hlusta á kröfur atvinnuleysingjanna og kölluðu því á lögregluóaldarliðið, til að flæma þá í burtu. Það er einnig opinbert leyndar- mál, að fyrir „Dagsbrúnarfund- inn“ í fyrra, þar sem kommún- istarnir þrír voru reknir, fór Héð- inn Valdimarsson til Hermanns Jónassonar og bað hann að hafa tilbúna lögreglusveit, til að í fvrrad. var Alþingi íslendinga slitið. Fyrir hönd auðvaldsins lýsti Jón Baldvinsson, forseti Al- þýðusambandsins og sameinaðs þings, ánægju sinni yfir störfum þessa þings, sem hefir verið ein samfelld árás á verkalýðinn og lífskjör hans. Hann lýsti sérstak- lega ánægju allra þingflokka yfir afgreiðslu stjómarskrármálsins og kosningalaganna, sem eru þannig úr garði gerð, að borgara- flokkunum þykir von um, að með þeim sé flokkur verkalýðsins, Kommúnistaflokkurinn, sviftur fulltrúaréttindum á Alþingi, fyrst í stað, án frekari aðgerða. Samsteypustjómin situr áfram, á ábyrgð konungs(!) Hún er ekki lengur þingræðisstjórn. Af henni geta allir flokkar þvegið hendur sínar eins og Pílatus forð- um. Hannes á Hvammstanga og Jón í Stóradal voru reknir úr senda sér til aðstoðar niðui' á fundinn, ef óeirðir kynnu að verða út af brottrekstrinum. Varalögreglan hefir því verið r.otuð og verður framvegis notuð til þess að verja hagsmuni Al- þýðuflokksburgeisanna gegn verkalýðnum og að hjálpa þeim í klofnings- og eyðileggingar- starfsemi þeirra í verklýðsfélög- unum. Tillaga Alþ ýðuflokksforing j - anna á síðasta Alþingi um að leggja niður varalögregluna, er því ekkert annað en blekking. Nú þegar búið er að koma ríkislög- reglunni á með dyggilegri aðstoð krataforingjanna, er það ekki nema sjálfsagður greiði af hinum auðvaldsflokkunum, að lofa kröt- unum að hræsna með þessa til- lögu núna rétt fyrir kosningarn- ar, ef ske kynni, að þeir gætu veitt á því nokkur atkvæði. Hinum vaxandi ofsóknum og herbúnaði auðvaldsins, verður verkalýðurinn að svara með vold- ugri baráttusamfylkingu. Það er eina ráðið til þess að kveða ríkis- lögregluna niður. Sameinuð átök verkalýðsins stenzt engin lögregla eða auð- valdsher, það sýndi sig 9. nóv. í fyrra. Og ef verkalýðurinn er nógu samtaka og varast svika- starfsemi krataforingjanna, verð- ur þess eflaust ekki langt að Framsóknarflokknum um leið og þingi var slitið. Fyr var ekki hægt að gera það, til þess að hægt væri að nota „agabrot" þeirra, seni tylliástæðu fyrir stj ómarkreppu borgaraflokkanna. Allt er með ráðum gert! Tveir höfuðbroddar flokksins, Tryggvi Þórhallsson og Halldór Stefánsson, hafa fylgt þeim og gengið úr flokknum. Samstevpustjórn Framsóknar og íhaldsins er ætlað það hlutverk, að skerpa auðvaldsárásimar á al- þýðu landsins, án þess að hægt sé að gera flokka burgeisastéttar- innar formlega ábyrga fyrir gerðum hennai'. — Þingræðið er virt að vettugi, án þess að blöð „lýðræðisflokkanna“ minnist á það einu orði. — Ríkisvaldið fær- ist smátt og smátt í fasistiskara horf, einnig að forminu til. Uppreisn á Spáni. Við síðustu kosningar marg- faldaði Kommúnistaflokkurinn at- kvæðatölu sína. Verkalýðurinn á Spáni hefir nú víða gert allsherj- arverkföll. Öll „lýðræðisréttindi", svo sem prentfrelsi etc. hafa verið afnumin. Símasamband við útlönd slitið. Ilppreisn í nokkrum borgum. Réttur. 3. hefti XVIII. árg. er nýkom- inn út. I þessu hefti, sem aðal- lega er helgað baráttunni gegn fasismanum, eru margar þýðing- armiklar greinar. Efni heftisins er: Brúna höndin, kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum, Lýðræði og fasismi, eftir Brynjólf Bjarnason, Sálmur til jarðarinnar, kvæði eftir Rudolf Nielsen, Hvað er að gerast í Þýzkalandi, eftir Fritz Heckert og Stríðsundirbúningur- inn, eftir Dýrleifu Árnadóttur. Heftið fæst á afgreiðslu Vei’k- lýðsblaðsins. Gerist áskrifendur. BiawiiBWM^Mwna-WBam^ bíða, að verkalýðurinn upplifi annan slíkan og ennþá sigursælli 9. nóvember. Dagsbrúnarmeðlimiir nr. 813. Bæjarstjörnar- kosníngarnar. Listi Kommúnistaflokksins Miðstjórnin og Reykjavíkur- deild K. F. í. hafa ákveðið, að eftirfarandi menn skuli vera í kjöri, í Reykjavík af hálfu verkalýðsins og hins eina flokks, hans, Kommúnistaflokksins, við bæ j arst j órnarkosningarnar, sem fram eiga að fara í byrjun næsta árs. Björn Bjamason verkam. Einar Olgcirsson. Hjalli Árnason verzlunarm. Edvard Sigurðsson verkam. Brynjólfur Bjamason. Guðbrandur Guðmundsson verkam. Stefán Ögmundsson prentari. Enok Ingimundarson kyndari. Gunnar Gunnarsson verkam. Kristín Ó. Einarsdóttir húsfrú. Páli þóroddsson verkam. Dýrleif Árnadóttir. Guðjón Banediktsson verkam. Sigurvin Össurarson verkam. Elín Guðmundsd. verkakona. Rósinkrans ívarsson sjóm. Áki Jakobsson. Hlín Ingólfsdóttir verkakona. þórður Jóhannsson verkam. Bergsteinn Iljörleifsson verkam. Mattías Guðbjartsson verkam. Jóhannes Jósepsson verkam. Jón Sigurðsson verkam. Einar Andrósson sjómaður. Árni Guðlaugsson prentari. Tómas Jónsson verkam. Haukur þorlcifsson. Gunnar Benediktsson. Það er engin tilviljun, að þessi nöfn skuli vera á listanum, þetta úrvalslið verkamanna úr þýð- ingarmestu atvinnugreinunum, manna, sem allir njóta trausts og virðingar samverkamanna sinna. Það er heldur engin tilviljun, að verkamaður, félagi Björn Bjarna- son skipár efsta sæti. Kosningabarátta Kommúnista- flokksins, er barátta fyrir hags- munamálum verkalýðsins. Hún er barátta fyrir hækkuðum laun- um og bættum vinnuskilyrðum, fyrir atvinnubótum og atvinnu- leysistryggingum, fyrir hverri smáendurbót á kjörum verkalýðs- ins. Hún er barátta gegn launa- lækkunum, gegn tollum og skött- um, gegn þrælameðferðinni, á fá- tæklingunum, gegn öllum árásum burgeisastéttarinnar á lífskjör verkalýðsins. Hún er barátta gegn ríkislögreglu og fasisma, fyrir sigri sósíalismans. | Kommúnistaflokkurinn notar ! kosningabaráttuna til liðsafnaðar j meðal verkalýðsins, til baráttu fyrir hagsmunamálum hans, til þess að gefa dægurbaráttunni pólitískt innihald, til þess að sam- eina hana í volduga sókn gegn valdhöfunum, gegn stjórn og yfirráðum burgeisastéttarinnar.

x

Verklýðsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.