Verklýðsblaðið - 29.05.1934, Blaðsíða 4
Lærisveinar Hitlers
Framh. af 1. síðu.
sköttum, kauplækkunum, húsa-
leiguokri, mjólkurokri o. fl.
Og loks birtist „lýðræði“ sjálfra
krataburgeisanna í útilokun rót-
tækra verkamamia úr verklýðs-
félögunum, klofningi á verklýðs-
félögunum á Sig'lufirði og Akur-
eyri, í sundrun á samfylkingar-
baráttu verkalýðsins í hvert
skipti, sem hann heyir baráttu
fyrir bættum lífsskilyrðum. Þátt-
taka krataforingjanna við stofn-
un ofbeldisliðs burgeisanna, ríkis-
lögreglunnar, er talandi staðreynd
um „lýðræðisást“ þeirra. Og síð-
ast en ekki sízt er hið blóðuga
hvítliðaofbeldi ki-ataforingjanna á
Akureyri og Siglufirði í félagi við
fasistana og aðra auðvaldsþjóna
— sönnun fyrir því að kratafor-
ingjamir eru engir áhangendur
lýðræðis heldur framkvæmendur
fasismans ásamt hinum borgara-
flokkunum, en framkvæmendur
hungurs- og ofbeldispólitíkur auð-
valdsins gagnvart verkaiýðnum.
Hvernig hafa krataforingjamir
framkvæmt slagorðið um „vinnu
handa öllum“?
Frá því að atvinnuleysið varð
landlægt hér á landi, hefir Komm-
únistaflokkurinn haft forustuna á
hendi í baráttunm gegn því.
Reknir áfram af verkalýðnum
hafa krataburgeisamir neyðst til
að samþykkja fjöldamargar kröf-
ur um atvinnubætur. En þessar
kröfur hafa aldrei komizt nema á
pappírinn, og Alþýðuflokksbrodd-
amir hafa aldrei gert neina ráð-
stöfun til að framkvæma þessar
kröfur verkalýðsins — heldur
þvert á móti barizt gegn þeim.
7. júlí 1932 knúði verkalýður-
inn fram atvinnubótavinnu undir
forustu K. F. í. gegn vilja krata-
broddanna.
9. nóv. sama ár hindraði verka-
bændurna, og eru háðir þeim og
ríkisauðvaldinu í gegh um skuldir
við samvmnufélögin og ríkislán-
stofnanir. Flestir þessara bænda
(smá- og millibændur) hafa það
•ameiginlegt með verkalýðnum,
að þeir lifa aðeins af vmnuafli
sínu — framleiða aðeins með eig-
in vinnuafli og fjölskyldu sinnar
— og eru, í gegnum verzlun með
þetta vinnuafl (í formi fram-
leiðsluvaranna) féflettir af verzl-
unarauðvaldinu.
Samkvæmt hagsmunaaðstöðu
sinni ættu því þessir bændur að
berjast við hlið verkalýðsins. —
En framsóknarflokknum er ekki
stjórnað af smábændum, heldur
af pólitískum spákaupmönnum •
(Hriflu-Jónas og lærisveinar1
hans), er boða afnám arðránsins
— kaupmannavaldsins — í gegn
um sameiginleg verzlunarfyr^-
irtæki stórbænda og smábænda, á
grundvedi auðvaldsþj óðskipulags-
ins, og lækkun framleiðslukostn-
aðarins (auk ítrasta sparnaðar *á
lífsnauðsynjum) í gegnum sam-
éiginlega herferð gegn launakjör-
um verkalýðsins.
'í stað þess að leiða hagsmuna-
baráttu hinna fátæku bænda,
blekkja forystumenn Framsókn-
arflokksins smá- og millibændur
til samvinnu við stórbændur óg
rílflSvald auðhririganná, sem arð- 1
lýðurinn undir forustu K. F. í.
launalækkun í atvinnubótavinri-
unni og fyrirhugaða stöðvun vinn-
unnar.
Með blekkingu auðmannanna
um að „engir peningar séu til“
hafa krataforingjarnir æ ofan í
æ hindrað samfylkingarbaráttu
verkalýðsins fyrir atvinnubótum.
Á Akureyri hafa Alþýðuflokks-
foringjarnir opinskátt barizt gegn
öílum atvinnubótum og stofnað
hvítlið með burgeisunum til að
berja niður kröfur atvinnuleys-
ingjanna.
I dag er mjög mikið atvinnu-
leysi í Reykjavík. Verkalýðurinn
og Kommúnistaflokkurinn er reiðu-
búinn til þess að berjast fyrir at-
vinnubótum þegar í stað. Þrösk-
uldurinn í vegi þessarar nauðsyn-
legu lífsbaráttu verkalýðsins’fyrir
vinnu eru krataforingjarnir, sem
neita að halda fund í „Dagsbrún“
um atvinnuleysið, sem hafa stjóm
félagsins með höndum, en sem
nota þessi völd og' áhrif yfir
rriiklum hluta verkalýðsins í
Reykjavík til þess að hindra alla
baráttu fyrir aukinni atvinnu.
Baráttan gegn aukinni notkun
kolakranans — sem mundi hafa
þýtt atvinnu fyrir fjölda verka-
manna — er augljóst dæmi um
það, hvemig krataforingjarnir
ryðja hinum fasistisku hungur-
árásum auðvaldsins braut, hvern-
ig þeir berjast með auðvaldinn
móti aukinni vinnu.
Álíka gildi hafa slagorð krata-
foringjanna um „skipulag á þjóð-
arbúskapnum" innan auðvalds-
skipulagsins. Verkalýðurinn veit
að.auðvaldið og krataforingjarnir
skipuleggja aldrei neitt með hag
verkalýðsins heldur með eigin
hag fyrir augum. Auðvaldið og
krataforingjarnir skipuleggja nú
jafnt og þétt fasistiskar hungur-
árásir á verkalýðinn hér á landi.
rænir þá. Ennfremur skapa þeir
grundvöll fyrir fasismann í sveit-
imum með því að æsa smábænd-
urna upp gegn verkalýðnum, sem
þeir eiga hagsmunalega samleið
með..
Alþýðuflokkurinn samanstendur
að mestum hluta af verkalýð, sem
hefir gersamlega andstæða hags-
muni við burgeisaflokkana. En
Alþýðuflokknum er ekki stjómað
af verkamönnum, heldur af stór-
kaupmönnum og bankastjórum
fjármálaauðvaldsins — umboðs-
mönnum auðvaldsins innan . verk-
lýðsstéttarinnar, sem ryðja fas-
ismanum braut með því að blekkja
verkalýðinn til friðsamlegrar sam-
• vinnu við stéttaróvin sinn (at-
' vinnurekendavaldið) og með kenn-
ingum um endurbætur á auðvalds-
skipulaænu og friðsamlega þróun
þess yfir-.í sósíalismann.
t stað þess að vera baráttutæki
vérkalýðsins gegn auðvaldinu, er
Alþýðuflokkurinn þannig, í hönd-
um foringjanna, tæki til að hindra
frelsisbaráttu verkalýðsins, tæki,
sem með þjóðfélagskenningum
sínum undirbýr jarðveginn fyrir
lýðskrum fasistanna og með
klofningsstarfsemi sinni á verk-
lýðshreýfingunni veikir móstöðu-
afl verkalýðsstéttarinnar gegn
fasistiskum árásum á lífskjÖr
1 hennár.
-Hin „fasta stjóm og skipulag •
á þjóðarbúskapnum“ sem krata- •
foringjarnir reyna að blekkja
með, getur ekki þýtt annað en
fastari ofbeldisstjóm auðvaldsins
og skipulagðari fasistiskar hung-
urárásir á verkalýðinn.
Óumflýjanlegt skilyrði fyrir
skipulagðri starfsáætlun — að
dæmi Sovétlýðveldanna — er
sovétstjórn verkamanna og’ smá-
bænda, yfirráð verkalýðsins yfir
f r amleiðslutæk j unum, bönkum,
landi og lóðum, og baráttan fyr-
ir þessu takmarki verður aðeins •
háð undir forustu K. F. I. — sem
er flokkur verkalýðsins og hinnar
byltingasinnuðu baráttu gegn auð-
valdinu, sem skipuleggur hina
daglegu hagsmunabaráttu verka-
lýðsins með því takmarki, að
vinna meirihluta verkalýðsins til
fylgis við verkalýðsbyltinguna,
kollvörpun auðvaldsins og alræði
verkalýðsins og smábænda.
Framsókn og kratabroddarnir
stila auðsjáanlega upp á það, að
geta komizt að kjötkötlunum eft-
ir næstu kosningar, — þessvegna
eru ekki spörað loforðin og gyll-
ingarnar. En verkalýðurinn þekkir
frá árunum 1927—1931 hvemig
þéssir lýðsskrumsflokkar fram-
kvæmdu sömu hungurstefnuna
gegn verkalýðnum. og íhaldið
gerði, hvernig öll loforðin urðu
að svikum við alþýðuna.
Þessi skrumauglýsing kratafor-
ingjanna í anda Hitlers er einn-
ig örþrifaráð auðvaldsins til að
hindra verkalýðinn í því, að sam-
einast um hagsmunamál sín á yf-
irstandandi augnabliki.
Fyrir dyrum stendur barátta
síldarverkalýðs á sjó og landi
gegn hungurkjörunum, sem þar
hafa ríkt. Vegavinnuverkamenn
um land allt eru orðnir óánægðir
yfir sultarlaununum, sem þeir
hafa orðið að búa við undanfarin
Einnig Alþýðuflokkurinn er
þannig — þrátt fyrir verkalýðinn,
sem í honum er — í fylkingu auð-
valdsins gegn hagsmuna- og frels-
isbaráttu verklýðsstéttarinnar.
Starfsemi allra þessara flokka
miðar að því að viðhalda auð-
valdsþjóðskipulaginu — er vörn
fyrir það arðrán og þá pólitísku
áþján, sem það óhjákvæmilega
býr öllum vinnandi stéttum þjóð-
félagsins.
Gegn þessari samfylkingu borg-
araflokkanna rís Kommúnista-
flokkur Islands og stillir verkefn-
unum: Afnám auðvaldsáþjánar-
innar. Uppbygging sósíalismans
að dæmi Sovét-Rússlands.
K. F. í. samanstendur af fram-
sæknasta og þroskaðasta hluta
verklýðsstéttarinnar, sem séð hef-
ir í gegn um blekkingar borgara-
flokkanna og fyrir leiðbeinirigar
liins vísindalega' marxisma
fræðilega og í framkvæmd (Sovét-
Rússland) öðlast óbifanlega sann-
færingu um, að afnám auðvalds-
þjóðskipulagsins er eina leiðin til
lausnar verkalýðnum og öðrum
undirokuðum stéttum.
Hlutverk K. F. í er að afhjúpa
blekkingar borgaralegu flokkanna,
í öllum þeirra margbreytilegu
mýndum, sannfæra verkalýðinn,
‘ og smábænduma, um réttileik
marxismans og leiða þessar stétG
Opinberan fnnd
heldur Sovétvinafélag1 íslands
í Bröttugötusalnum þriðjud.
29. maí kl. 81/*.
Fundarefni:
1. Gruðm. Gíslason:
Tscheljuskinleiðangurinn.
2. Skuggamyndir:
Líf og kjör verkamanna-
fjölskyldu í Sovétríkjunum.
3. Sig. Brynjólfsson
segir frá för sinni til Rússl.
í fyrra.
4. Upplestur
5. Félagsmál (sendinefndin
o. fl.). Inngangur 25 aura.
Stjórnin.
ár. Atvxinnuleysingj arnir verða
á ný að hefja baráttu fyrir vinnu.
Til þess að draga athygli, verka
lýðsins frá svikum Alþýðuflokks-
broddanna við alla þessa baráttu
verkalýðsins, — til þess er 4 ára
áætlunarblekkingin tilvalin upp-
finding.
Hitler fann upp 4 ára áætlun-
arblekking-u sína rétt fyrir kosn-
ingar -—eins og krataforingjamir.
Eftir 2 mánuði varð Hitler að
viðurkenna, að 100 ár mundi
þurfa til að framkvæma hana. —
Ætli það færi ekki eins fyrir krata-
fasistunum og Framsókn, ef beir
yi’ðu stjórnarflokkar auðvaldsins.
Verkalýðurinn mun svara blekk
ingum krataforingjanna með því
að efla sameiningu sína og bar-
áttu fyrir dægurkröfunum gegn
auðvaldinu undir forustu K. F. I.
— það er um leið baráttan fyrir
fullkomnu frelsi verkalýðsins og
allrar alþýðu — verklýðsbylting-
in og alræði öreiganna — það
er eina leiðin sem til er fyrir
verkalýðinn út úr kreppunni.
ir úrslitaorustu og sigurs yfir
auðvaldsþ j óðskipulaginu.
Þetta hlutverk mun K. F. í.
ekki leysa með handauppréttingu
í sölum Alþingis, þó hann fái full-
trúa þar, heldur með óslitinni,
daglegri baráttu fyrir brýnustu
hagsmunakröfum hinna undirok-
uðu stétta.
Engu að síður tekur K. F. f.
þátt í borgaralegum kosningum,
til þess að nota, í þágu verkalýðs-
ins, þann orustuvöll, sem þing-
ræðið kostar. Nota hann til þess
að afhjúpa frammi fyrir alþýðu
landsins lýðskrum allra hinna
borgaralegu flokka og fjandskap
þeirra við raunverulegar hags-
munakröfur alþýðunnar, en um
leið að fylkja verkalýð og bænd-
um til virkrar baráttu fyrir slík-
um kröfum, utan löggjafarsam-
kundu hins borgaralega ríkis-
valds.
íslenzk alþýða til sjávar og
sveita! K. F. í. tekur þátt í Al-
þingiskosningunum 24. júní n. k.
— Rannsakið gaumgæfilega kosn-
ingastefnuski’á hans, og berið
saman við stefnu og starf hinna
borgaralegu flokka. — Hvert nýtt
atkvæði, sem á þeim grundvelli er
greitt K. F. L, gérir hann færari
um að leysa af hendi hlutverk sitt
í frelsis- og réttindabaráttu himia
undirokuðu stétta. S. A.