Verklýðsblaðið

Tölublað

Verklýðsblaðið - 10.09.1934, Blaðsíða 2

Verklýðsblaðið - 10.09.1934, Blaðsíða 2
Alþýðublaðið kinnhestar Alþýðuflokkinn Verkalýðurinn g-erir uppreisn gegn auðvaldsþjónustu foringjanna í mjólkurmálinu. Klofningur og ringulreið í foringjaliðinu. Nýja ríkisstjómin hefir sett nýtt útflutningsgjald á saltfisk, sem gerir hað að verkum, að ó- kjör hlutamanna og smáframleið- enda versnar enn stórkostlega. Og með þessari óhemju skattaálagn- ingu er auðvaldinu hlíft við aukn- um sköttum', sem sjálfsagðir hefðu verið. Þannig er „skipulagningin“, sem Alþ.fl. og Framsókn hafa galað hæzt um, skipulagning á arðráni og dýrtíð fyrir verkalýðinn, en skipulagning á miljónagróða til handa auðvaldinu. Skipulagning nýju stjórnarinn- ar, sem komst á atkvæðum alþýð- unnar upp í ráðherrasætin, er samskonar „skipulagning“ og Hitl er og Roósevelt hafa framkvæmt í þ>águ hringanna og fjármálíiauð- valdsins — fasistiskar hungurá- rásir á alþýðuna. Og stórauðvaldið er enn ekki á- nægt, þrátt fyrir allar gjafir stjómarinnar. Nú heimta atvinnu- rekendur að fá nokkrar miljónir í viðbót af fé verkalýðsins og al- þýðunnar til að styrkja stórút- gerðina (Mbl.). 1. okt. á þing að koma saman. Til hvers? Eftir undanfarna reynslu um störf stjórnarinnar dettur senni- lega engum í hug að Alþingi eigi að samþykkja lög um lækkun á tollum, atvinnuleysistryggingar eða bæta á annan hátt kjör verka- lýðsins. Hlutverk Alþingis verður líka allt annað, þ. e. að samþykkja bráðabirgðalög stjómarinnar, og skella nýjum álögum á alþýðu manna og gefa auðvaldinu nýjar gjafir. En það er á valdi verkalýðsins að breyta þessum hunguráform- um auðvaldsins. Svar verkalýðs- ins í Bandaríkjunum við sams- konar hungurskipulagningu og nýja stjórnin er að framkvæma, var verkföll miljónanna og kröf- ur um hækkun kaupsins og bætt lífskjör. í Alþýðublaðinu s. 1. fimmtu- dag ljóstrar Sigurður Einarsson því upp, að sambræðslustjóm Al- þýðuflokksins og Framsóknar, stjórnin, sem lofaði að vinna bug á dýrtíðinni, þegar hún var að ginna kjósendur til að lyfta sér upp í valdasessinn, hefir ákveðið að láta mjólkureinokun sína halda uppi 40 aura okurverðinu á mjólkinni hér í Reykjavík. Auk þess er tvímælalaust afráðið að hækka mjólkurverðið á ým'surn stöðum. Þetta til viðbótar við okur k j öteiriokunarinnar, blóðskattana á smáútvegsmenn og sjómenn, hækkunina á sígarettum o. s. frv. Og Sigurður Einarsson bætir við, eftir að hann hefir lýst okr- inu á mjólkinni: „En stjóm, sem hyggst að kaupa sér þannig frið við hina ágengu stórhagsmuni á kostnað alþýðu, má ekki láta sér bregða í brún, þó 4iún finni það, „er til þings kemur, að hún á formæl- endur fá“.“ Lesendur Alþýðubl. stóðu undr- andi. Hvað var að gerast? Blað Þetta ráð — samfylkingarbar- áttan — er líka eina leiðin sem til er fyrir verkalýðinn til að bæta kjör sín og hindra frekari árásir af hendi burgeisanna. Svar verkalýðsins til Alþingis verður því að vera barátta fyrir atvinnubótum, atvinnuleysistrygg- ingum, gegn dýrtíðinni, fyrir hærri launum. Að öðram kosti bíður verkalýðsins nýr hungur- vetur — verri en nokkru sinni áð- ur. ríkisstjórnarinnar, málgagn Har- alds Guðmundssonar og Her- manns Jónassonar, sem eru að „skipuleggja" okrið, málgagn þeirra herra Ingimars Jónssonar og Co., sem hafa samið einokunar- lögin, ræðst allt í einu á hús- bændur sína, og fer að tala máli neytenda!! Skýringin er: Verkalýðurinn í Alþýðuflokknum gerir uppreisn gegn auðvaldspólitík foringjanna. Eftir okurráðstafanimar nieð j kjötið o. fl. o. fl. er bikarinn orð- inn fullur. — Knúnir fram af þessari uppreisn alþýðunnar, grípa þeir Sigurður Einarsson og ritstjóri Alþýðublaðsins það ráð, að ráðast á ríkisstjómina og Al- þýðusambandsstjómina í hennar eigin málgagni. Allt þetta gera þeir á bak við stjórn flokksins, sem bregður heldur en ekki í brún, þegar hún sér sitt eigið málgagn. Héðinn Valdimarsson „óskaði Sig. Ein. til hamingju með nýja flokkinn" og stjórn Alþ.samb. og þingflokkur stjórnarinnar voru í ofboði kallaðir saman til að brjóta „uppreisnina“ á bak aftur. Síðan hefir verið dauðaþögn um mjólkurmálið í Alþýðublaðinu. Sigurður Einarsson hefir nú lagt niður skottið. Hann hefir sennilega verið minntur á það, að árstekjur hans, þúsundirnar, sem hann á undir náð húsbænda sinna væru í hættu. En verkalýðurinn í Alþýðu- flokknum skal halda baráttunni áfram, minnugur sigursins frá í vetur — í bandalagi við Kommún- istafl. og alla alþýðu í Rvík. Alþýðan heimtar 35 a. mjólkurverð Framh. af 1. síðu. Á fundinum, sem Kommúnista- flokkurinn boðaði til í Bamaskóla portinu í gær, mættu engir af þeim, sem boðnir voru, hvorki fulltrúar stjómmálaflokkanna né ríkisstjómarinnar, né Sig. Ein. Enginn þessara herra töldu sig vera í standi til að tala við al- þýðuna um þessi mál. En verkalýður og alþýða Reyk- javíkur fjölmennti og sýndi vilja sinn í því, að halda baráttunni á- fram. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt í einu hljóði: Um leið og fundurinn mótmælir okri kjöteinokunarinnar, krefst hann þess, að mjólkurverðið í Reykjavik verði ekki ákveðið hærra en 35 anr- ar á Iiter. Fundurinn skorar á verkalýðsfó- Iögin að boða tafarlaust til fundar um mjólkurmálið og taka upp sam- eiginlega baráttu með Kommúnista- flokknum fyrir lækkun mjólkurverðs- ins niður í 35 aura. Minnugir sigursins í neytendaverk- fallinu i vetur, treystum við reyk- vískri alþýðu til að svara nú aftur í sömu mynt, ef stjómin ætlar að halda sama okurverðinu og áður. Einhuga mótmæli alþýðunnar í þessu máli hafa þegar skotið rík- isstjóminni svo skelk í bryngu, að hún mun nú vera horfin frá upphaflegri fyrirætlun sinni um 42 aura mjólkurverð, en ætlar að freista að halda uppi okurverðinu 40 aurar. Þetta má henni ekki takast. — Þó að við verðum að vísu að kaupa nauðsynlegustu mjólk handa böm umim, pretum við takmarkað neyzluna svo, að ríkisstjómin og mjólkurhringurinn verður að láta undan. Það sýndum við i vetur. Krefjumst funda í verkalýðsfé- lögunum þegar í stað. Við skulum láta liðhlaupana sigla sinn sjó, en standa öll sam- einuð í baráttunni þar til krafan um 35 aura verð er uppfyllt. Síórkosileg verðlxkkun!h ■ ■ ■ ■ Hið ný^endurbætta áéæta II Flóra-smjörliln jj er komið og kostar aðeíns jj kf. 1,30 kg. Kaupféiag Reykjavíkur jj ■ ■■ ■ ■■

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.