Verklýðsblaðið - 22.10.1934, Síða 3
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
VERKLÝÐSBLAÐH)
Útgefandi: Kommúnistafl. íslands.
Ábyrgðarm.: Brynj. Bjamason.
Ritnefnd til viðtals þriðjudaga
og fimmtudaga 6—7.
'Afgr.: Bröttugötu 6, Rvík
Sími 2184. — Post-box 57.
KOMMÚNISTAFLOKKUR
ISLANDS
(Deild úr Alþj.samb. kommúnista)
Skrifstofa: Bröttugötu 6.
Viðtalstími framkv.n. dagl. 6—7.
REYKJAVÍKURDEILD KFl
Skrifstofa: Bröttugötu 6.
Viðtalst. deildarstj. virka daga 6-7
Sameiginl. viðtalst. fastra nefnda
flokks- og deildarstjórna:
Frœðslu- og útbroiðslunefnd
mánud. 6—7.
Skipulagsnefnd þrd. 6—7.
Faglegur leiðtogi miðv.d. 6—7.
Fjárbagsnefnd miðv.d. og laugard.
kl. 6—7.
—i—
Ríkísrekstur
og sósíalismí
Ríkisstjórnin leggur hvert
einkasölufnimvarpið eftir annað
fyrir Alþingi. Eldspýtulr, vindl-
ing-apappír, — fóðurmjöl, fóður-
bætir, — bifreiðar, mótorvélar,
rafmagnsvélar og rafmagnsáhöld.
AJþýðuflokkurinn reynir að
telja verkalýðnum trú um að hér
sé sósíalisminn á ferðinni, „þjóð-
nýtinginn eflist“. Morgunbl. tekur
tania taum; og reynir að hræða
endur sína á þessu.
Þetta er hin argasta blekking
frá beggja hálfu.
TÍllögur rfldsstjómariiuiar um
einkasölur og ríkisrekstur eiga
ekkert skylt við sósíalismann —
og eru því síður verkalýðnum tiJ
hagsbóta.
Marx og Engels drógu sundur í
logandi háði þá menn, sem héldu
því fram, að ríkisrekstur í auð-
valdsskipulagi væri „sósíalistisk-
ur“. „Þá yrði að telja Napoleon
og Metternich sem stofnendur
sósíalismans“, segir Engels. Þá
væri líka „konunglega skipaút-
gerðin, konunglega postulínsfram-
leiðslan, já, jafnvel deildarklæð-
skerarnir við herinn, sósíalistiskar
stofnanir — og eins þá sú „þjóð-
nýting" á — pútnahúsunum, sem
náungi riokkur lagði til að fram-
kvæmd yrði á ríkisárum Friðriks
Vilhelms III. á fjórða tug 19.
aldar“, -— segir Engels í „Þrótm
sósíalismans“.
Það að reyna að telja alþýð-
unni trú um að sósíalisminn sé
að sigra með einkasölunum, er
því beinlínis tilraun til að drepa
trúna á sósíalismann í hjörtum
íslenzka verkalýðsins.
Einkasölurnar táknuðu áður
fyrr atvinnulegar framfarir
auðvaldsskipulagsins gagnvart
stigi hinnar frjálsu samkeppni, —
en á þeim tímum!, þegar úrslita-
baráttan stendur milH auðvalds
einokunarhringanna — imperial-
ismans — annarsvegar og verka-
lýðsins og allra undirokaðra þjóða
og stétta hinsvegar, þá er þvaðr-
ið um þjóðnýtingu í auðvalds-
skipulaginu aðeins blekking til að
Norðlenskir sjómenn
krefjast greiðslu síldartollsins fyrir 1. nóv.
og mótmæla fisktoilinum
EINKASKEYTI TIL
VERKL.BLAÐSINS.
Akureyri 22/10. 1934.
Á fundi Sj ómannafélags Norð-
urlands í gær voru eftirfarandi
tillögur samþykktar:
1. Fundurinn skorar á ríkis-
stjórnina að greiða sfldartollinn
óskertan í síðasta lagi fyrir 1.
nóv. n. k.
2. Fundurinn mótmælir hinum
nýja saltfiskstolli og krefst þess
að hann verði afnuminn strax.
FRÉTTARITARI.
Þcrberyur þórSarson, ritböfundur,
cr kominn heim eftir þriggja vikna
Verkalýðar Nordarlands
heimtar Thalmann tr|á.lsan
EINKASKEYTI TIL
VERKL.BLAÐSINS.
Akureyri 22/10. 1934
Á fundi Sjómannafélags Norð-
urlands í gær, var eftirfarandi
samþykt:
Fundurinn mótmælir harðlega
hinum dýrslegu ofsóknum í
Þýzkalandi gegn andstæðingum
fasismans og krefst þess, að for-
ingi þýzka verkalýðsins, Thál-
mann, og aðrir andstæðingar
fasismans, sem sitja í fangelsum
Þýzkalands, verði þegar í stað
Iátnir lausir. Ennfremui- skorar
fundurinn á alla alþýðu íslands,
frjálslynda menntamenn og milli-
stéttarmenn, að hefja nú baráttu
fyrir frelsun Thálmanns og ann-
ara andfasista, sem nú eru kvald-
if í dýfiissum nazista.
Á fundi verkakvennafél. Ein-
ingin í gær, var eftirfarandi
samþykkt:
Fundurinn mótmælir harðlega
meðferðinni á þýzka verkalýðs-
foringjanum Thálmann og félög-
um hans, sem kvaldir eru í fang-
elsum nazista í Þýzkalandi, og
krefst þess, að hann og aðrir
andfasistar verði tafarlaust látn-
ir lausir.
FRÉTTARITARI.
dvöl í Sovétríkjunum. Verklýðsblaðið
heíii' liitt þorberg og kveðst hann
liafa dvalið þar i góðu yfirlæti, en
verst allra frétta, því lia,nn ætlar að
, halda fyrirlestur annað kvöld í Iðnó
um ástandið í Sovétríkjunum og vill
ekki að nokkurn mann rámi i hvað
hann ætlar að segja. Er tvímælalaust
mikill „spenningur" í mörgum að
heyra livað þorbergur hefir að flytja.
— þorbergur fór austur á vegum
Sovétvinafélagsins. Sat hann þar m.
a. hið stórmerka rithöfundaþing, sem
Verklýðsblaðið vonast eftir að geta
bráðlega skýrt nánar frá.
Kjör fátækrastyrkþega
Nauðsyn á myndun
félagsskapar allra
sfynkþega
draga athygli verkalýðsins frá
baráttunni um völdin.
Einkasölufrumvörpin, sem fyrir
liggja, bera líka með sér að til-
gangur þeirra er sami og verið
hefir hjá öllum ríkisstjómuml yf-
irstéttanna með slíkum einkasöl-
um: Það að skaffa fé í gjaldþrota
ríkissjóð, til að halda uppi allri
embættavél kúgunarskipulagsins,
greiða erlenda auðvaldinu blóð-
skattinn og trygg’ja bitlingana.
Engin einkasalnanna á að vera
til hagsbóta fyrir almenning með
lækkuðu vöruverði. Þvert á móti
er t. d. einkasalan á eldspýtum
og vindlingapappír gerð til þess
að geta lagt allt að 100% á eld- •
spýturnar og ótakmarkað á vind- *
lingapappírinn, til þess þannig að
hindra að menn noti hann utan
um ódýrt tóbak í stað hinna rán-
dýru yindlinga.
Einkasöíumar eru því hvorki
„þjóðnýting" né verkalýðnum til
hagsbóta. Þær eru tilraun til
festingar auðvaldsins, frekara
arðrán á neytendum, styrking á
ríkisvaldi burgeisastéttarinnar.
Barátta verkalýðsins beúiist
hinsvegar gegn arðráninu og okr-
inu, gegn völdum burgeisastéttar-
innar, — og fyrst þegar verkalýð-
urinn hefir steypt bnrgeisastétt-
,inni með byltingu og tekið ríkis-
valdið í sínar hendur, þá notar
hann ríkisrekstur og einkasölur til
að svifta auðmannastéttina valdi
hennar og arðránsskilyrðum. En
Alþýðuflokkurinn er einmitt með
stéttasamvinnupólitík sinni þrösk-
uldurinn í veginum fyrir að þessi
verklýðsbylting takist.
Til hræsnananna
Eftir að hafa lieyrt „trúmálafyrir-
lcstur" Guðrúnar Lárusd'óttur í út-
varpinu, orti citt af vinsælustu skáld-
um Islauds eftirfarandi vísu:
Eí allt þelta fólk fær í glitsölum
hinmanna gist,
sem gerir sér mat úr að nudda sér
utan í Krist,
þá hlýtur sú spurning aö vakna,
hvort mikils sé misst,
þótt maður að siðustu lendi í
annarri vist.
Samkvæmt íslenzkum borgara-
legum lögum er hverju hrepps-
og bæjarfélagi skylt að sjá þegn-
um síniun fyrir öllum brýnustu
nauðsynjum, svo sem fæði, klæði
og húsnæði. En væri saga þeirra
skráð, sem hafa þurft að nota
þennan rétt, yrði það vafalaust
sá ljótasti blettur í menningar-
sögu íslands á síðari öldum og enn
þann dag í dag er hinn svívirði-
legi hreppaflutningur fullkomlega
lögmætur, og fram að síðustu
stund má segja að þeir ménn,
• sem hafa orðið að nota hinn svo-
kallaða sveitarstyrk, séu settir
á bekk með þjófum og öðrum
glæpamönnum, með því að svifta
há öllum mannlegum réttindum í
þjóðfélaginu. Af þessari ástæðu
hefir fjöldinn þessara manna trú-
að því, að þeir væru svo langt
fyrir neðan alla aðra menn, að
þeir hafa varla þorað að ganga
úppréttir.
En minnist þess þegar þið þurf-
ið að fá slíkan styrk að það er
enginn ölmusa, sem þið biðjið um,
heldur er það sá réttur, sem þið
Það er hygéíleéast
að koma beint til okkar. Við höfum altaf nœgar birgðir, hvað sem skipaferðum líður
Raf t æk j a verzlun
Júlíus Björnsson
Austurstrœti 12.
:Sími: 3837.