Verklýðsblaðið - 05.11.1935, Side 3
VERKLYÐSBLAÐIÐ
VERKI.ÝÐSBLAÐIÐ
Útgeíandi: Kommúnistaíl. íslands.|j
Ábyrgðann.: Brynj. Bjamason. *
Ritnefnd til viðtals þriðjudaga &
og fimmtudaga 6—7.
Afgr.: Vatnsstíg 3 (þriBju hœð). 1
Simi 2184. — Póstbox 57.
Prentsm. Acta. g|
KOMMÚWXSTAFLOKKUR
ÍSLANDS
(Deild úr Alþj.samb. kommúnista)B
Skrifstofa: Vatnsstíg 3 (3. hæð). g
Viðtalstími framkv.n. dagl. 6—7. gj
REYKJAVÍKURDEILD KFÍ
Skrifstfa: Vatnsstíg 3 (3. hæð). 1
Viðtalst. deildarstj. virka daga 6-7
Sameiginl. viðtalst. fastra nefnda
flokks- og deildarstjóma:
Frœðslu- og útbreiðslunefnd
mánud. 6—7.
Skipulagsnefnd miðvd. 8—9.
Fjárhagsnefnd miðvd. 8—9.
Faglegur leiðtogi þrd. 6—7.
Andfasistar vinna á
f Háskólanum
Félag róttækra Háskóla-
stúd. fær 46,7% greiddra
atkvæða og hefir nú alger-
an meirihluta í Stúdenta-
ráðinu.
Á laugardaginn fóru fram hlut-
bundnar kosningar á 5 mönnum
af 9 í Stúdentaráð Háskóla ís-
lands (4 kosnir áður, einn úr
hverri deild háskólans og eru 3
þeirra úr félagi róttækra Háskóla-
stúdenta). Úrslit kosninganna
sýndu, að Félag róttækra háskóla-
stúdenta, sem eru samtök andfas-
istiskra stúdenta, hefir stórum
aukið fylgi sitt. Það er nú lang-
áhrifaríkast allra félaga innan Há
skólans.
Atkvæðatölurnar eru þessar:
Listi Fél. róttækra háskóla-stúd-
enta 71 atkv. og kom að 2 mönn-
um, listi lýðræðissinnaðra stúd-
enta (íhaldsmenn) 57 og listi
nazista 24.
Efsti maðurinn á lista nazist-
anna komst að á einu vafaat-
kvæði, og hefir kosningin því ver-
ið kærð.
Hinum róttæku innan skólans
vex stöðugt fylgi. Menntamenn-
irnir eru að sjá það betur og bet-
ur, að þeir verða að skipa sér þétt
saman gegn fasisma og þröng-
sýni, ef það á að takast að bjarga
ísl. menningu. Rétt er í þessu
sambandi að athuga úrslit stúd-
entaráðskosninganna síðustu 3
ár. Þau líta þannig út:
1933 1934 1935
atkv. atkv. atkv.
Fél. róttækra há-
skólastúdenta 56 62 71
íhaldið (lýðræð-
issinnaðir stúd.) 80 48. 57
Nazistar . . . . 34 24
Þessi tafla sýnir það, að sam-
einað afturhaldið í skólanum
hefir stöðugt tapað þessi þrjú
ár. Ihaldið hefir í ár samt unnið
á, en eingöngu á kostnað naz-
ista, sem hafa stórtapað. Samein-
að atlcvæðamagn afturhaldsflokk-
anna er í ár minna heldur en í
fyrra.
Verklýðsblaðið fagnar sigri rót-
tækra stúdenta.
Hver stjórnar Islandi ?
Fiskhringuriim eða landsstjórnín?
Þannig hljóðaði fyrirsögn for-
ystugreinar í Alþýðublaðinu þann
28. ágúst 1920. Ástandið var þá
svo, að fiskhringurinn undir
stjóm Coplands skuldaði íslands-
banka svo milljónum króna skipti.
Af 23 milljón króna útlánsfé
hafði verið varið nær því 12 milj-
ónum til fiskbrasksins. Innstæðu-
fé aimennings var í voða. Utanrík-
isverzlunin var í fullkomnu öng-
þveiti. Lög um innflutningshöft
voru samþykkt. Innflutnings-
nefnd var sett á stofn. Iieildsal-
arnii- fengu tækifæri til þess að
Samsæri Kveldúlfs og Landsbankans
Framh. af 1. síðu.
Og því fær ítalska Kveldúlfsfirm-
að 3 fiskfarma án þess að greiða
þá enn að fuilu?
Hér hlýtur að búa á bak við
ægilegasta fjárglæframál, sem
þekkst hefir á íslandi. Það er tví-
mælalaus krafa allrar alþýðu, að
þeir menn, sem þessu ráða, og þá
fyrst og fremst Magnús Sigurðs-
son og Richard Thors, — þessir
eftirmenn E. Claessens og Cop-
lands — verði teknir og allt
mál þeirra, starf og erindrekstur,
rannsakað. Sýni það sig, sem við
búumst við, að Kveldúlfur sé í
rauninni gjaldþrota og Lands-
bankinn ófær að standa við skuid-
bindingar sínar, ef hann er gerður
upp, — þá sé Landsbankastjór-
unum tafarlaust vikið frá og mál
höfðað gegn þeim, en Kveidúlf-
ur gerður upp.
Því það er ekki aðeins hættu-
legt fjármálum þjóðarinnar að
þessir braskarar séu áfram látn-
ir drotna yfir aðalútflutningsvöru
og mestöllum gjaldeyri landsins,
lieldur stafar og sjálfstæði þjóð-
arinnar hætta af því.
Gismondimálið og spönsku mút-
urnar eru ekki aðeins stuldur frá
sjómönnum og smáútvegsmönn-
um, heldur og landráð við þjóð-
ina. Og geta þessir herrar þá ekki
framið önnur verri, ef þeir fá að
leika lausum hala?
HERBRÖGÐ
ÍHALDSINS.
Kveldúlfur veit upp á sig
skömmina. Hahn lætur því Sjálf-
stæðisflokkinn beita ýtrustu her-
brögðum, fara úr utanríkismála-
nefnd og neita þátttöku í sam-
einuðu þingi. Ólafur Thors hljóð-
Haraldur
mun nú vera
áhyggjufyllri
en þégár
myndin var
tekin. -—
En hvað
Berir hann?
ai' svo upp um „ofsóknir" og
reynir að æsa sinn lýð — gerist
svo fífldjarfur að heimta rann-
sóknamefnd á félaga sína, — í
trausti þess, að Magnús Sigurðs-
son hindri að slíkt verði gert og
stjórnin ekki þori það.
Á sama tíma stöðvar Lands-
bankinn yfirfærslur — og marg-
íaldar óánægjuna og Ihaldið og
fasistarnir reyna að beina henni
gegn ríkisstjóminni.
Þessu herbragði verður aðeins
svarað með því að taka upp
hanzkann, sem íhaldið hefir
kastað, og hreinsa til í vespu-
hreiðrí Kveldúlfs.
Sú stjórn, sem nú bregst, er
dauðadæmd hjá þjóðinni.
En alþýða landsins myndi hins-
vegar standa samfylkt bak við
stjórn, sem tæki nú mannlega á
móti.
Fjárglæframennirnir sjálfir
hafa heimtað rannsókn á sig.
Látum þá fá hana.
Landráðamennirnir hafa farið
úi utanríkismálanefnd. Látum
þá aldrei koma nærri utanríkis-
málunum framar.
Landsbankinn og Kveldúlfur
hafa ögrað þjóðinni. Látum þá
fá að kenna á, hver sterkari er.
Dauðinn á 3. hæð
og fleiri sögur eítir
Halidór Steíánsson
koma úí á niorgtto,
Halldór Stefánsson er þegar orðinn kunnur sem
einn helsti smásagnahöfundur landsins. Allir þurfa því
að eignast þessa bók.
Bókaútgáfan Heimskríngla
Laugaveg 38.
okra enn meir á nauðsynjavörum
fólksins. Dýrtíðin óx. —
Alþýðublaðið hóf harðvítuga
baráttu gegn þessari spillingu.
llver greinin rak aðra, þar sem
lcrafizt var þess, að sala fiskjar-
ins yrði tekin undan yfirráðum
fiskhringsins. Fámenn klika
gróðabrallsmanna hafði Imeppt
stjórn landsins í vargaklær sínar.
Hver stjórnar íslandi, fiskhring-
urinn eða landstjórnin? spurði
Alþýðublaðið.
Bankastjórarnir í íslandsbanka
gáfu út hverja skýrsluna á fæt-
ur annari. „Þeir eru fullkomlega
borgunarmenn fyrir því sem þeúri
hefir verið Iánað“, sögðu þeir í
Morgunblaðinu (15/8. ’20) og
reyndu að sefa óánægju fólksins.
Við viljum tilfæra hér nokkr-
ar tilvitnanir úr Alþýðublaðinu
þessa dagana, sem harðast stóðu
átökin milh þess og burgeisa-
klíku Reykjavíkur.
„Sala fiskjarins“, sagði Alþýðu-
blaðið, „þarf að komast undan
Fiskhringnum og undan Islands-
banka, svo það séu hvorki hags-
munir fárra gróðrabrallsmanna
né útlendra hlutnafa, sem ráði
þar, heidur hagsmunir þjóðarinn-
ar“. „Vegna spákaupmennsku
fiskhringsins hefir verið ltomið á
takmörkun innflutningsins. —
Þessi nýja dýrtíð stafar af því að
vöruinnflutningur til landsins er
takmarkaður, en við það gefst
nokkrum sárfáum kaupmönnum og
heildsölum, sem vörur eiga, tæki-
færi til þess að setja þær upp að
mun“. „Og nú er loks svo langt
komið, að það fæst svo að segja
ekki einn eyrir fluttur út úr land-
inu, þar sem íslandsbanki hefir
neitað hvorutveggja, að yfirfæra
fé til útlanda fyrir Landsbankann
og fyrir póststjórn, þó hann sé
til hvorutveggja skyldugur".
Þannig var ástandið fyrír
fimmtán árum. Umboðsmenn bur-
geisanna risu upp til handa og
fóta út af þessum tímabæru að-
vörunum og kröfum alþýðunnar í
landinu. Alþýðublaðinu var stefnt
af bankanum. Skaðabóta var kraf-
izt og nam upphæð kröfunnar 400
þúsund krónum. Ritstjóri Alþýðu-
blaðsins var dæmdur í 60 þúsund
króna skaðabætur, sektir og fang-
elsi.
Landsstjórnin hélt áfram uppi
vernd fyrir bankann. Bankinn
verndaði miljónaspekúlantana. Allt
var látið fljóta sofandi að feigð-
arósi.
Enda kom að því að kýli spill-.
ingarinnar sprakk. íslandsbanki
fór á höfuðið. Fiskhringurinn
kútveltist. — Fátækir bændur
og verkamenn á íslandi, vinnandi
stéttir landsins, fá í dag að greiða
miljónatöp gjaldþrotsins.
Og hvernig er þessum málum
komið í dag? Kveldúlfur skuldar
Landsbankanum yfir fimm
miljónir króna. Með dyggilegri
aðstoð hins „framsýna“ atvinnu-