Verklýðsblaðið - 16.12.1935, Page 3
VERKLtÐSBLAÐIÐ
VEDKLÝÐíBLAfi!!)
Útgefandi:
KOMMÚNISTAFL. ÍSLANDS.
Ritstjóri:
EHSTAR OLGEIRSSON.
Afgr.: Vatnsstíg 3 (þriöju hœÖ).
Sími: E184. — Pósthólf 57.
Prentsmiðjan Acta h.f.
KOMMÚNISTAFLOKKUR
ISLANDS
(Deild úr Alþjóöa-
samhandi kommúnista).
Formaður:
BRYNJÓLFUR BJARNASON.
Skrifstofa: Vatnsstíg 3 (3. hœö).
Viötalstími:
Daglega kl. 6—7, virka daga.
„Rauðir pennar“
Tákn þess að sósialisminn
er að sigra i islenzkum
bókmenntum
Fyrir verkalýðshreyfing-una og
þar með fyrir framtíð íslenzku
þjóðarinnar, táknar þessi líðandi
vetur 1935 straumhvörf í íslenzk-
um bóltmenntum. Það, sem „Bréf
til Láru“, „Fuglinn í fjörunni“ og
„Ég læt sem ég sofi“ hafa verið
forboðar að, hefir nú brotizt út í
öllum sínum krafti í að heita má
öllum greinum skáldskaparins.
„Sjálfstætt fólk“, „Rauða hætt-
an“, „Samt mun ég vaka“ og
„Dauðinn á þriðju hæð“, — skáld-
saga, Ijóð, smásögur, ritgerðir, —
allt samið af slíkri list, að and-
stæðingar beygja sig fyrir því, —
það táknar,að þar sem íslenzk list
kemst hæzt nú, þar gefur sósíal-
isminn henni innihald og viðhorf,
eldmóð og kraft.
Smiðshöggið á þennan sigur só-
síalismans í íslenzkum bókmennt-
um leggur safnritið „Rauðir penn-
ar“. Þegar 15 íslenzkir höfundar
— með þá Halldór Kiljan, Þórberg,
Jóhannes úr Kötlum, H. Stefáns-
son og Kristinn Andrésson í
broddi fylkingar — leggja sameig-
inlega fram nýjustu sögur sínar,
ljóð og ritgerðir, ásamt hinni
glæsilegu þróunarsögu og stefnu-
lýsingu Kr. E. A., þá er augljóst,
að nú eru það ekki lengur nokkrir
„árgalar“, sem einangraðir rjúfa
þögnina, heldur voldug fylking
núlifandi skáldakynslóðar, sem í
krafti listar sinnar og málstaðar
kveður sér hljóðs með slíkum
mætti, að menn verða að hlýða á.
Strax fyrsta kvæði bókarinnar,
„Frelsi“, eftir Jóhannes úr Kötl-
um, gefur kröftuglega til kynna,
að skáldum þessum er ljóst, hvert
hlutverk þeirra er fyrir íslenzku
þjóðina. í þessu kvæði hljómar
jafnt af snilld og krafti sama
raustin og 1835 í ,ísland farsælda
frón“, og 1895 í „Brautin“ — og
staðfestir orð Shelleys: „Skáldin
eru básúnurnar, sem syngjandi
kalla til orustu. Skáldin eru óvið-
urlcenndir löggjafar heimsins".
Efni þessara „Rauðu penna“
skal ekki rakið hér. Til þess er ei
rúm. Til þess að kynnast því,
Hvað segja beztu foringjar sósial-
demokrata um samfylkinguna ?
Jean Longuet
meðlimur í flokksstjórn franska Sósíalistaflokksins,
þingntaður sósíalista fyrir París, meðlimur í fram-
kvæmdanefnd II.
Jean Longuet er einn vinsælasti
foringi sósíalista í Frakklandi.
Hann er dóttursonur Karls Marx.
Hann var nýlega spurður um álit
sitt á Dimitroff, baráttunni gegn
fasismanum og samfylkingunni.
Svar hans var svohljóðandi:
Persóna og hlutverk Georgi Dimi-
troffs verður í hugum allra, sem
fylgst gátu með málaferlunum í Leip-
zig, tengt því ógurlega dæmi nm „rétt-
arfar“ nazismans.
pað, hvernig þessi óbugandi, búlg-
arski byltingamaður, reis upp í sann-
kölluðum hetjumóð mitt í ragmennsku
cg skriðdýrshætti, — augliti til aug-
liti við herra dagsins og tók upp bar-
áttuna gegn blóði drifnum harðstjóra,
eins og Göhring, — það hlaut að fylla
nlla sósíalista og byltingamenn eld-
móði. Já, ég held, að sú framkoma
liafi hlotið að hrífa hverja mannlega
vcru, sem hefir nokkra hugmynd um
Verkalýðshreyfingin ein getur nú á
Internationale.
\
manngildi.
dögum skapað persónur með slíkum
siðferðisþrótti. Fyrir alla þá, sem
þjázt í dyflissunm og fangabúðum
pýzkalands og í fangelsum annara
fasistaríkja, hefir áreiðanlega ekki
verið til betri huggun og andlegur
aflgjafi, en framkoma þessa fulltrúa
hyltingarinnar frammi fyrir skósvein-
um gagnbyltingarinnar.
En síðan hefir Dimitroff aftur unn-
ið sér næstum eins mikla samúð og
þakklæti verkalýðs allra landa. pað
var þegar hann á heimsþinginu í
Moskva lýsti því yfir, að í verkalýðs-
hreyfingu veraldarinnar „tæki við
tímabil einingarinnar eftir tímabil
klofningsins“.
Ég heilsa Dimitroff sem hermanni
byltingarinnar og sem BRAUTRYÐJ-
ANDA EININGAR VERKALÝÐSINS,
— sem ég persónulega hefi aldrei
hætt að trúa á, ekki einu sinni á
döprustu stundum bróðurvíganna
milli sósialista og kommúnista".
2,72 á viku, eða af öllum þeim,
sem nú eru í atvinnubótavinnu
kr. 1251,20 á viku, svo þetta er
ekki svo lítil upphæð, sem rænt
er af þeim, sem ekki hafa ráð á
að uppfylla allra brýnustu þarfir
sínar, atvinnuleysingjunum.
Og þó er hér annað ennþá al-
varlegra á ferðinni. Ef bæjar-
stjórn helst þessi ósvinna uppi,
án þess að Dagsbrún grípi í taum-
ana, hvað verður þá langt þangað
til að aðrir atvinnurekendur ganga
ó. sama lagið og virða taxtann að
j vettugi.
En slíkt má ekki koma fyrir.
I Sameinaður verður verkalýðurinn
að hindra slíkt.
Norskir sjómenn gera verk-
fall gegn hergagnasendingu
til ítaliu
EINKASKEYTI TIL
VERKLÝÐSBLAÐSINS.
Kaupm.höfn 14. des.
i rá New York er símað:
Hásetarnir á norska skipinu „Spero“
hafa gert verkfall sðkum þess að
íarmurinn á skipinu er hráefni tll
italska hergagnaiðnaðarins.
NORDPRESS.
MæðrastyrksnefndlB
Taxíabrotin og bæjarstjórnin
Frá því að atvinnubótavinnan
byrjaði í haust hefir ekki verið
greitt fyrir hana, samkvæmt taxta
Dagsbrúnar, heldur hefir bæjar-
stjórnin látið sig muna um að
ræna nokkrum aurum af dag-
kaupi hvers einasta atvinnuleys-
ingja.
Fulltrúi kommúnista hefir hvað
eftir annað hreyft þessu í bæjar-
stjórn, en árangurslaust, því
að íhaldið sér í þessu einn af sín-
um skemmtilegustu draumum
rætast, að taxtar verkalýðsins séu
að vettugi virtir, og kaup greitt
eftir geðþótta atvinnurekandans.
verða menn að lesa bókina sjálfir.
En hafi einhverjum fundist ís-
lenzk verkalýðshreyfing andlega
fátæk fram að þessu, þá verður
það ekki sagt með neinum snefil
af rétti eftir þennan dag.
Með „Rauðum pennum“ og
ritunum, sem hér eru nefnd, er
íslenzk verkalýðshreyfing orðin
eins andlega rík og verklýðshreyf-
ing ýmissa þeirra auðvaldslanda,
er fremst standa í þeim efnum.
Þökk sé sltáldum ,Rauðra penna*
og sérstakl. hinum snjalla skipu-
leggjara þeirra, fél. Kr. Andrés-
syni. — Þau hefja alla hreyfingu
vora upp á hærra stig og skapa
henni aukið aðdráttarafl fyrir all-
ar þær þúsundir, sem fram að
þessu hafa haldið, að sósíalisminn
og verkalýðshreyfingin væri ,bara‘
hagsmunabarátta undirstéttanna,
— því þeir munu sjá, að sósíal-
isminn: það er líka öll list, allur
skáldskapur, öll menning, öll feg-
urð — fyrir lífið og hið vinnandi
fólk. E. 0.
Þessi afstaða íhaldsins kemur víst
fáum verkamönnum á óvart, en
hinu eiga þeir erfiðara með að
átta sig á, að fulltrúar Alþýðu-
flokksins láti sig það litlu skipta,
eða fjandskapist .beinlínfs á móti
því að málið sé rætt í bæjarstjóm
eins og Ólafur Friðriksson.
En verkalýðurinn er nú á ann-
ari skoðun en Ólafur. Hann krefst
þess, að málið sé rætt og taxtinn
haldinn að fullu. Þó hér sé ekki
um stóra upphæð að ræða fyrir
hvern einstakan, þá safnast þeg-
ar saman kemur. Nú er greitt fyr-
ir vikuna kr. 54.40, en á að vera
samkvæmt taxta kr. 57,12 eða af
hverjum verlcamanni er tekið kr.
hefir hafið söfnun til jólaglaðn-
ings fyrir fátækar mæður. Fatn-
aður, nýr eða gamall, matvæli,
peningar, — allt er með þökkum
þegið, sem getur orðið fátæku
heimili til gagns eða gleði. Nefnd-
in hefir opna skrifstofu daglega
ki. 3—6 í Þingholtsstræti 18.
Coubertin vantrúaður á framtið
Olympiuleikanna.
Basel: Á fundi svissnesku Ol-
ympíunefndarinnar talaði þann 1.
nóvember Pierrc de Coubertin, stofn-
andi Olympiuleika hins nýja tíma.
Ræddi iiann um þá óvæntu örðug-
'oika, scm leikarnir eiga nú við að
•stríða, og lét í ljós ótta fyrir því, að
kcppnin í Berlín kynni að verða
ondalok hinna 01>unpisku leika.
(R. S. I.).
nýjasta kvæðabókin
eftir Jóhannes úr Kötlum
er komin út
Hver einasti ljóðelskur íslendingur þarf að
eignast þessa ljóðabók.
Kostar í skrautlegu bandi 6.00 kr,, heft 4,50
BOKAÚTOáFAN
HEmSKRINOLA
Laugaveg 38