Verklýðsblaðið - 16.12.1935, Qupperneq 4
Ttmariöð
. RÉTTUR
« kemur út mánaðarlega.
Arg. 5 kr. — Qerist áskriiendarl
VERKiyÐSBLAÐID
LESENDURI
Kaupið hjá þeim, «em aaglýea
hjá ohkor og gatlð þá
Verklýðeblaðsliu.
Hneyksíi I
- í útvarpi
Útvarpiö hefir undanfarið látið
fara tvær útsendingar, sem benda
ógeðslega til nánari tengsla við
Þýzkaland Hitlers en frjálslyndir
menn á íslandi óska eftir að hafa
við ríki villimennsku og morð-
varga.
I.
Til landsins, sem rekið hefir
beztu núlifandi skáld sín úr landi
eða pínir þau í dýflissum (Thomas
Mann, Heinrich Mann, Remarque,
Ludwig Renn, Ossietsky) og
brennir beztu rit þjóðarinnar á
báli, — til þess lands hélt Gunn-
ar Gunnarsson til að halda fyrir-
lestra. Hann mun hafa fengið þá
vel borgaða, því að Þýzkaland
Hitlers á erfitt með að fá nokkra
sanna andans menn til að líta við
villimennsku sinni. Og hann þakk-
aði nazistum fyrir sig með út-
varpsræðu — frá Leipzig!
Það var ekki neitt líkt röddinni
miklu frá Leipzig, sem vakti að-
dáun alls hins menntaða heims
fyrir 2 árum, — það var ekki líkt
rödd fangans, sem dauðadómur
vofði yfir í Leipzig og talaði svo
hugdjarft að heimurinn hreifst
með, en „dómarar“ harðstjórans
skulfu.
Nei — það var aumingi, sem
ekki þorir að taka þátt í frelsis-
baráttu fjöldans, sem tísti frá
Leipzig um „að íslendingar ættu
að taka sér Þjóðverja til fyrir-
myndar“.
Við höfðum ekki haldið að
Gunnar Gunnarsson sykki svona
djúpt.
II.
2 ráðherrar Islands ávarpa
þýzka hlustendur með vel undir-
búnum ræðum, en sem skellt er í
útvarpið án nokkurra tilkynninga
fyrr en sama kvöldið.
Ráðherrar samvinnumanna og
sósíaldemókrata lýsa ánægju sinni
yfir sambandinu við landið, þar
sem samvinnufélögin eru eyði-
lögð og sósíaldemókratar eru fang-
elsaðir og drepnir.
Hvað á þetta að þýða?
Er þessum ráðherrum virkilega
ekki nóg raun að því, að þurfa
að hafa hið venjulega „diplomat-
iska“ samband við Þýzkaland?
Þurfa þeir auk þess að „sleikja" j
sig upp við Þýzkaland Hitlers
með þessu móti?
Það ætti þó að vera fyrsta boð- j
orð hvers frjálslynds manns, að j
hafa mökin við ríki morðingjanna j
og brennuvarganna þýzku eins 1
lítil og hægt er.
Vill ríkisstjórnin ekki skýra
hvað þetta útvarp átti að þýða
— og forðast slík hneyksli fram-
vegis?
Og því tekur eins frjálslyndur
og ágætur maður og Guðmundur ,
Thoroddsen þátt í slíku?
Barátta fyrír frelsi Thálmans
Prentarar í Stockhólmi og helztu menntamenn Svía mótmæla.
EINKASKEYTI TIL
YERKLÝÐSBLAÐSINS.
Kauprn.höfn 14. des.
Fi'ú Stokkliólmi er símað:
30 menntamenn, prófessorar, rithöf-
undar, listamenn, læknar og lögfræð-
ingar haía sent mótmæli til Hitlers
gegn dauðadómunum yfir Klaus og
Kayser.
Prentaraféiafgið i Stokkhólmi, sem
telur 4100 meðlimi, hefir samþykkt að
krefjast þess að Thalmann sé látinn
laus.
NORDPRESS.
Sleðaíerðir barna.
A eftirtöidum svæðem og götum er
heimilt að renua sér á sleðum:
Auaturbær:
1. Arnarhóll
2. Torgið fyrir vestan Bjarnaborg og milli Hverfisgötu
og Lindargötu.
3. Afleggjarinn af Barónsstíg, sunnan við Sundhöllina.
4. Njálsgötu frá Barónsstíg að Hringbraut.
5. Bragagata frá Laufásvegi að Sóleyjargötu.
6. Spítalastígur milli Oðinsgötu og Bergstaðastrætis.
7. Egilsgata frá Barónsstíg að Hringbraut.
Vesturbær:
1. Biskupsstofutún norðurhluti.
2. Vesturgata frá Seljavegi að Hringbraut.
3. Glatan frá Bráðræðisholti nr. 39 niður að sjó.
Bifreiðaumferð um ofaugreiuda götu-
hluta er Jafnframt bönnuð
Lðgreglustjórinn í Reykjavik
Gustav A. Jóuasson
settur.
THlögur Lavals og Hoare
Framh. af 1. síðu.
stefnu var ákveðið að gjöra sér-
stakt átak til að vinna almenn-
mgsálitið í Frakklandi fyrir utan-
ríkispólitík Þýzkalands. Skyldi eklc
ert fé til sparað, að kaupa þýð-
ingarmikla, franska stjórnmála-
menn, einkum úr radikala flokkn-
um, og blaðamenn við hin ýmsu
blöð. Ennfremur var ákveðið, að
koma upp nazista-vinsamlegu dag-
blaði í París á næsta ári. Göbbels
hafði við orð að „fall Lavals
mundi koma sér mjög illa, sem
stæði“ og yrði að hindra það,
hvað sem það kostaði, vegna hætt-
unnar við þjóðfylkinguna frönsku.
Tillögur þeirra Lavals og Hoares
hafa því flett betur en nokkru
sinni fyr ofan af fyrirætlunum
brezku og frönsku imperialist-
anna: Bandalag við fasistana á
Þýzkalandi og á Ítalíu, til styrkt-
ar fasismanum, til undirbúnings
Evrópustriðs, til kollvörpunar Sov-
ét-Rússlands, til kæfingar verka-
lýðsbaráttunnar í blóði og eldi —
ný myrkraöld kúgunar og kvalar,
áþjánar og ofbeldis í heiminum.
Sú barátta, sem nú er háð gegn
tillögum þeirra Hoares og Lavals
um skipting Abessiniu er því ekki
eingöngu baráttan u.m heiður
þjóðabamlaiagsins, heiður Eng-
lands, verndun smáþjóðanna o. s.
írv., heldur barátta gegn Evrópu-
stríði.
Sovét-Rússland mun eins og áð-
ur vera foringi þeirrar baráttu.
Norðurlönd og aðrar smáþjóðir,
fleiri og fleiri, munu nú leita
trausts hjá því. Hver þjóðin af
annari mun nú fara að sjá, að
brezki og franski imperialisminn
hefir verið að reyna að flytja
þær í friðarhjúpi á höggstokkinn
— aðeins sigrandi verkalýður Sov-
étríkjanna og aukin og margföld-
uð samfylking verkalýðs og milli-
stétta auðvaldsríkjanna mun geta
hindrað stríðið.
Jólamatur Sláturfélagsins
ætti að vera á hvers manns borði um hátíðina. Fyrst og fremst hangdkjötið sem
allir lofa, nýslátrað nautakjöt, alikáltakjöt og grísakjöt. Frosið dilkakjöt,
aligæsir, kjúklingar, endur og rjúpur. — spikþræddar ef pantaðar eru í tíma.
Smjör og ostar frá Mjólkurbúi Flóamanna. — Nýir ávextir og niðursoðnir.
Nýorpn egg á 1,25 V, kgr, eðs> 14 aura atk. Bökunaregg á 1,00'/, kg.
eða 11 aura stk.
Fátt er ljúffengara á kvöldborðið én gaffalbitar og egg.
Askurður á brauð og niðursuðuvörur í fjölbreyttu úrvali.
Gjörið pantanir yðar tímanlega, það er öllum fyrir beztu.
JXEatardeildin Matarbúðin
Hafnarstræti 5, sími 1211. Laugaveg 42, sími 3812.
Kiötbúdin Kiötbúð Sólvalla
Týsgötu 1, sími 4685 Sólvallagötu 9, sími 4879,
Kjötbnö Anstnrbæjar
Laugaveg 82, sími 1947.