Verklýðsblaðið - 24.02.1936, Síða 2
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
liagsmuna. Og hvar það myndi
skipa okkur á bekk í áliti erlend-
is, er vitanlegt.
Samningar þessir verða heldur
ekki varðir með tilliti til augna-
blikshagsmuna eingöngu, því í
allmörgum löndum myndi — með
aðstoð og góðvilja þjóðabanda-
lags-þjóðanria — vera hægt að
komast að vöruskiftum á svona
grundvelli. Og sérstaklega var
vitanlegt að gagnvart Italíu eru
það bein stríðslán að láta það
land fá vörur upp á svona skil-
yrði, — land, sem þakka má fyr-
ir, að fá vörur gegn fyrirfram-
greiðslu í erlendri mynt.
Það er því gefið, að slíkir
samningar sem þessir, eru sið-
ferðislega fordæmanlegir, póli-
tískt glæpur og verzlunarlega séð
vitleysa.
Og það er gefið, að þeir væru
ekki til orðnir svona, nema á Is-
landi væri vald, sem bæri fyrst og
fremst hagsmuni ítalska fasism-
ans fyrir brjósti og gæti fengið
sinn vilja hér fram.
Það vald er til hér. Það vald er
Kveldúlfur, sem rekur hér erindi
ítalskra fasistafirma, landinu til
smánar og skaða.
Þess vegna verður íslenzka al-
þýðan að rísa upp og heimta’ að
samningnum við ítaliu sé slitið,
að það, sem við gerum, sé gert I
bandalagi við ríki Þjóðabanda-
lagsins og einkahagsmunir Kveld-
úlfs séu ekki Iátnir eyðileggja
fyrir íslandi alþjóðlega.
Verði valdhafar Islands ekki
við þessu, verður verklýðshreyf-
ing íslands að grípa til sinna ráða.
Dagsbrún krefst
aukins framlags til atvínnubóta og vcrk-
legra framkvæmda
Á Dagsbrúnarfundi í gær lagði
fél. Skafti Einarsson fram eftir-
farandi tillögur:
Verkamannafélagið „Dagsbrún“
skorar á Alþingi:
Að veita eigi minna en eina milljón
króna til atvinnubóta á næstn fjár-
lögnm og tryggja jafnframt framlög
frá bæjar- og sveitafélögum, sem mið-
ist við gjaldþol þeirra og sén þan
bæjarfélög, sem mikið gjaldþol hafa,
eins og Reykjavíkurbær, skylduð með
lögum til að leggja fram tilskilið
íramlag á móti framlagi rikisins.
Að framlög til verklegra fram-
kvæmda séu eigi minnknð, heldur
ankin að miklum mun frá því sem
úætlað var á siðustu fjárlðgum.
Að rikið kaupi óseljanlegar neyzlu-
vörar, t. d. fisk, kjöt og aðrar land-
búnaðarvörur og útbýti meðal at-
vinnuleysingjanna og séu þessar vör-
ur keyptar eingöngu af smáframleið-
endnm og samviunufélögum.
Að setja lög, sem komi í veg fyrir
okur og óeðlilega verðhækkun.
Benti hann á að atvinnuleys-
ingjarair yrðu að gera þær kröf-
ur, að þingið gerði ráðstafanir til
að mæta hinu aukna atvinnuleysi
með auknum framlögum tii at-
vinnubóta og verklegra fram-
kvæmda. Haraldur Guðmundsson
talaði móti tillögunni og sagði að
verkalýðsfélögin yrðu að fara að
gera það upp við sig, hvort rétt
væri að beita sömu baráttuaðferð-
um við núverandi ríkisstjóm og
þegar Ihaldið færi með völd (!!).
Sagði hann að kröfuraar yrðu
að miðast við það hvort ríkis-
stjómin væri vinsamleg verka-
lýðnum eða hvort hún væri fjand-
samleg, en ekki eftir þörfum at-
vinnuleysingjanna!!
Er nú orðið heldur lítið úr 4
ára áætlun Alþýðuflokksins um
útrýmingu atvinnuleysisins.
Ólafur Friðriksson talaði einnig
á móti tillögunni og undrar það
engan um það nátttröll verkalýðs-
hreyfingarinnar. Sama var um
form. félagsins Guðm. ó., sem
ekkert hafði fram að færa móti
tillögunni annað en að hann væri
sammála Haraldi.
Með till. töluðu, auk framsögu-
manns: Eðvarð Sigurðsson, Hjört-
ur B. Helgason og Árni Ágústs-
son.
Að lokum lagði formaður fram
breytingartillögu við fyrsta lið
tillagnanna um að skora á Al-
þingi að auka framlag til atvinnu-
bóta og samþykkja frumvarp um
útgerð ríkis- og bæjar, og þar
sem hann neitaði að bera hana
upp í tvennu lagi, var hún þannig
samþykkt, en aðrir liðir voru
samþykktir einróma.
Þrátt fyrir það þó Alþýðu-
llokksforingjunum tækist í þetta
Oiympsleíkarnír i Berlín
verða nazistisk útbreiðslusamkunda
Þýzka Ólympsnefndin er ein-
göngu samsett af nazistaforkólf-
um, sem hafa meira og minna tek-
ið þátt í ofsóknum og hryðju-
verkum gegn þýzkri alþýðu. I
nefndinni eru: Generallautnant
von Reichenau, Ýfirstjórnarráð
Ritter von Lex, ofursti Mahnke,
héraðsvinnuforingi dr. Decker og
stormsveitarforingi Nord. En til
að gera nefndina enn „tryggari“,
hefir stormsveitarforingjanum
Ileydrich verið bætt í hana, en
hann er hinn eiginlegi foringi
Gestapo (leynil. ríkislögreglunn-
ar), maður, sem haft hefir for-
gönguna í ofsóknum, morðum og
pyntingum á tugum. þúsunda
vamarlausra manna, og sem m.
a. stjómaði í eigin persónu hinu
ógeðslega morði á flokksbróður
sínum, Gregor Strasser.
Með þessu er því starfsemi
nefndarinnar sett undir beint
eftirlit Gestapo, sem er í því einu
frábrugðið glæpamannafélögum
Ameríku, að það er miklu öflugra
og með ríkisvaldið að baki sér.
I íþróttablöðum nazista — hvað
þá í öðrum blöðum þeirra — eru
reknar opinberar þjóðemisæsing-
ar og reynt að vekja hatur á öðr-
um þjóðum og kynflokkum. Hér
skal tilfærð ein klausa úr íþrótta-
blaðinu „Deutsche Tumzeitung“
frá 25. nóv. s. 1.: „Landamærin
brenna alltaf. Hvorki friðarreglu-
gerðir eða vinsamlegir ríkjasamn-
ingar megna að hindra það að
landamærin brenni, því það rr
hér, sem lífið ólgar. Allsstaðar,
þar sem þjóðir rekast saman,
glampar á eldinn undir öskunni,
og þá og þegar getur hann orðið
að óstjóralegum loga. Þannig er
það einnig við landamærin, sem
skilja að Þýzkaland og Pólland“.
Þetta segja mennirnir, sem ætla
sér að skipuleggja alþjóðaleika,
þar sem frelsi, friður og bræðra-
lag allra þjóða á að vera hæsta
boðorð!
íþróttamenn þeir, sem nazist-
arnir ætla að láta keppa, eru yfir-
leitt engir áhuga-íþróttamenn
(amatörar), heldur menn, sem
hafa um langan tíma ekki verið
látnir gera annað en æfa sig og
þjálfa. En til þess að geta brotið
grundvallarreglur ólympíuleik-
anna, eru þeir skráðir „stúdent-
ar“, „í fríi“, „starfsmenn við op-
inberar stofnanir“ o. s. frv.
Allt þetta sannar enn betur þá
staðhæfingu, að allar ólympsregí-
ur og hugsjónir verða þverbrotn-
ar, ef leikamir fara fram í 3. rík-
inu. Jafnframt er það augljóst
mál, að fasistarnir ætla sér að
gera leikana að einni stórri
skrumauglýsingu, einni stórri
agitasjónssamkundu fyrir þýzku
böðulsstefnuna, nazismann. Þess-
vegna leggja þeir svo dæmalaust
kapp á þessa leika. Skulu hér til-
færð ummæli tveggja nazistafor-
ingja:
Leiðtoginn fyrir „Ríkisnefnd-
ina fyrir ferðalög útlendinga“,
sagði svo í ræðu einni:
„Takmark hinnar ólympsku
agitasjónar er, að draga svo
marga útlendinga hingað sem
mögulegt er, — til að við getum
sýnt þeim hið nasjónal-sósíalist-
iska Þýzkaland".
Og annar nazistabroddur, dr.
Diem, sagði í ræðu, er hann flutti
í lok síðasta árs:
„Verkefni það, sem Ólympsleik-
amir í Berlín eiga að hafa fyrir
Þýzkaland, er þá fyrst leyst, þeg-
ar það tekst að láta innihald hins
þýzka eðlis koma fram 1 hinum
ýmsu hátíðahöldum í sambandi
við leikana“.
Með öðrum orðum: Hinum
drengilegu alþjóðaleikum á að
breyta í nazistiska hallelújá-sam-
skifti að draga úr tillögunum,
hefir Dagsbrún samt látið uppi
sitt álit á pólitík ríki&stjórnar-
innar.
Annars væri gott ef Alþýðu-
flokksforingjamir vildu á næsta
Dagsbrúnarfundi skýra fyrir at-
vinnuleysingjum með hvaða að-
ferðum þeir eiga að berjast móti
atvinnuleysinu, úr því þeir ráða
þeim til að stytta ekki vinnudag-
inn og gera ekki kröfur um
atvinnuaukningu!!
Þar sem foríngj-
arnír læra af
reynslunni
I síðastliðnum mánuði hélt só-
síaldemókrataflokkurinn í Seine-
héraði flokksþing í París, meðal
annai's til þess að undirbúa þing
sósíaldemókrataflokksins í Frakk-
landi, sem átti að koma saman 2.
febrúar, og þingkosningar í marz-
mánuði.
Margir af fulltrúunum, m, a.
Zyromski, mæltu með því að verk-
lýðsflokkamir hefðu sameiginleg-
an lista þegar við fyrstu umferð
kosninganna.
Um væntanlega samfylkingar-
stjóm sagðist Zyromski vera sam-
mála Thorez, ritara kommúnista-
flokksins, að verkalýðsflokkarnir
yrðu að hafa hreinan meirihluta í
slíki'i stjórn og að ekki kæmi cil
mála slík samvinna við borgara-
flokkana eins og hingað til hefði
átt sér stað.
Hvað segja hægriíoringjar ís-
lenzka Alþýðuflokksins um þessi
ummæli eins af aðal foringjum al-
þýðunnar á Frakklandi? Eru þeir
sammála?
Einkcnnílegar
undirtektir
Á fundi Dagsbrúnar í gær var
ákveðið að taka boði rússnesku
verkalýðsfélaganna um þátttöku í
sendinefnd til Sovét-lýðveldanna.
Er auðvitað ætlast til þess, af
þeim sem býður, að sendimenn-
irnir séu kosnir á lýðræðisgrund-
velli, á sama hátt og tíðkast í
rússnesku verkalýðsfélögunum og
allsstaðar þar sem lýðræðið er
einhvers metið. En stjórn Dags-
brúnar heimtaði að fá að ráða
manninum sjálf. Er vandfundin
önnur skýring á slíkri „kurteisi“
en sú, að meii'ihlutanum í stjóra
Dagsbrúnar sé það óvelkomið, að
sá maður sé sendur, sem verka-
mennimir treysta bezt til að i'ann
saka og skýra réttilega frá því,
sem fyrir augun ber.
Rétt er að taka það fram, að
kommúnistamir lýstu því yfir, að
þeir væru fylgjandi því, að ein-
dreginn Alþýðuflokksmaður yrði
sendur. Jafnframt því sem boðinu
um að senda mann var tekið, var
samþykkt áskorun til verkamatma
um að styðja fjársöfnun Sovét-
vinafélagsins til að standast
kostnað af sendinefndinni.
kundu! Slíkt verður innihald
,,ólympsleikanna“ 1936 — ef þeir
fara fram í Berlín. Þá er ólymps-
hugsunin — eins og gefur að
skilja — elcki lengur til.
H. H.