Verklýðsblaðið - 24.02.1936, Side 4
Tvær leiðir
Framh. af 8. síðu.
þeir, sem sviftir hafa verið störf-
um og stöðurn af fasistastjórn-
inni, fái þær aftur. Jarðarafgjald
verði lækkað stórlega. Skattamir
og gjöldin á bændaalþýðunni
verði lækkuð. Afnám hinna aftur-
haldssömu leiguliðalaga. Sveitaai-
þýðan fái aðgang að landi, af al-
menningseign. Afnám laganna um
skaðabætur til aðalsins, fyrir lönd,
sem gerð hafa verið upptæk. Lög
um vernd og öryggi fyrir iðnað-
arverkalýðinn. Atvinnubætur og
opinberar verklegar framkvæmdir
í stórum stfl. Alþýðutryggingalög-
gjöfin verði endurreist. Hækkun
verkalaunanna, einkum hjá hinum
lægst launuðu í landbúnaðinum.
Og kosningasigur samfylkingar-
innar varð glæsilegur í mótsetn-
ingu við hinn örlagaríka ósigur
hinnar sundruðu alþýðu 1933.
Fasismanum á Spáni hefir nú
verið greitt það högg, sem mun
ríða honum að fullu, ef réttilega
verður fylgt á eftir. Verkalýðs-
samtökin hafa nú fengið svigrúin
til að sameina fólkið í baráttunni
fyrir bættum kjörum, svigrúm
til að undirbúa sig undir það að
kollvarpa fyrir fullt og allt veldi
aðalsins og hinnar sþilltu bur-
geisastéttar á Spáni, svigrúm til
að undirbúa verkalýðs- og bænda-
byltinguna.
Sömu flokkamir og flokksbrot-
in, sem áður ruddu fasismanum
braut og hjálpuðu honum til
valda, með samvinnu við bur-
geisastéttina, eru nú að hjálpa
til að greiða fasismanum bana-
höggið og ryðja sigri alþýðunnar
braut, með samvinnu við Kom-
múnistaflokkinn.
Þetta er hinn þýðingarmesti
lærdómur fyrir verkalýðinn alls-
staðar í heiminum.
Lítum á Þýzkaland. Þar var
fyrri leiðin farin — leið samvinn-
unnar við burgeisastéttina. Þýzku
sósíaldemókratamir bældu stétta-
baráttu verkalýðsins niður með
ofbeldi og klufu verkalýðssamtök-
in, en gáfu fasistunum ótakmark-
að svigrúm. — Þannig studdu
þeir Hitler til valda. — Hefðu
þeir tekið samfylkingartilboðum
Konimúnistaflokksins, hefðu þeir
gengið þá braut, sem flokksbræð-
ur þeirra í Frakklandi og Spáni
eru nú að hverfa inn á, hefði
verkalýðurinn í Þýzkalandi geng-
ið sameinaður til kosninga með
það fyrir augum að leysa upp fé-
lagsskap fasistanna, hreinsa til í
hernum, hjálpa smábændunum til
að ná fram kröfum sínum, láta
hina ríku borga, en styrkja sam-
tök verkalýðsins til þess að ná
bættum kjörum — þá væri Þýzka-
land nú rautt.
Hinir ráðandi foringjar Alþýðu-
flokksins á Islandi feta í fótspor
flokksbræðra sinna í Þýzkalandi.
Þeir hafa tekið þann kostinn, að
halda áfram að vera höfuðstoð
burgeisastéttarinnar, í stað þess
að gerast afgerandi afl í barátt-
VBnamsBiAOio
Á ad taka npp nefskattiim
i álagningn bæjariólag-a ?
Nýjar miljónaálögur á alpýðuna í aðsigí
um.
Útsvarslöggjöfin hefir í eðli
sínu verið einhver róttækasta lög-
gjöfin í borgaralegu þjóðfélagi.
Hún fól í sér möguleika fyrir al-
þýðuna að framkvæma í rauninni
það, sem ákveðið var í bókstaf
laganna: að leggja á eftir efnum
og ástæðum.
Þessi löggjöf hefir verið mis-
notuð af yfirstéttinni og erind-
rekum hennar og hlutfallslega
l.agt allt of mikið á verkamenn og
millistéttir, en hátekjumönnum
hlíft. ■
Ennfremur hefir réttur fólks-
ins til að leggja á verið takmark-
aður ár frá ári með því valdi,
sem yfirskattanefndum og yfir-
völdum er fengið til að takmarka
álagninguna á hátekjumenn.
Og nú virðist eiga að brjóta al-
veg í bág við höfuðstefnu út-
svarsálagningarinnar, eftir þeim
tillögum að dæma, sem þriggja
manna nefndin, sem falið var að
rannsaka tekjustofna bæjar- og
sveitafélaga, hefir lagt fram.
Aðalinnihald þeirra tillagna er
að taka um fjórða hluta tekna
bæjarfélaganna (eða um 2 millj-
ónir kröna) með vörugjaldi, nef-
skatti á hvern verkfæran mann,
hækkun kaffi- og sykurtolls og
annara tolla og renni hækkunin til
hreppsfélaga, fasteignaskatti og
dálitlum skatti á ríkisfyrirtækj-
unni fyrir sigri sósíalismans. —
Reynslan hefir þegar skorið úr
um það, til hvers það leiðir. Þess-
vegna hvílir mikil ábyrgð á Al-
þýðuflokksverkalýðnum, sem hef-
ir það verkefni að vinna, að sjá
til ,þess að horfið verði af þessari
braut, sem leiðir til ófyrirsjáan-
legra hörmunga, og tekin upp
stefna Largo Caballeros og beztu
foringja sósíalistaflokksins í
Frakklandi — stefna samfylking-
arinnar, sem leiðir til sigurs.
Grein um Jötunssamningana
eftir Jón Rafnsson, kemur í
næsta blaði.
Meginhlutinn af sköttum þess-
um eru nefskattar og tollar á
nauðsynjavörum, sem koma
þyngst niður á alþýðu.
Þessar tillögur þýða því að
breyta alveg um stefnU og taka
upp þveröfuga stefnu við út-
í'.varsálagninguna:
Hætta að leggja á eftir efnum
og ástæðum og byrja að leggja á
vanefnin og skortinn, en Mífa
stórlöxunum.
Það er líka eftirtektarvert, að
þessari nefnd dettur ekki í hug
að finna nýja tekjustofna, sem
þýddu það að láta þá ríku borga.
Kommúnistaflokkurinn gæti b ent
henni á slika, svo sem:
Luxusíbúðaskatt,
Luxusbflaskatt,
Verðhækkunarskatt á lóðum,
Hærri fasteignaskatt á stór-
eignir o. fl., sem koma niður á
þeim ríku.
Alþýðan verður að mótmæla
þessum nýju tollum. Það dugar
ekki að íhaldið og stefna þess
ráði allri pólitík stjómarflokk-
anna, en það er gert með þessum
tillögum. , Fasteignaskatturinn er
það eina af þeim, sem eitthvað
vit er í, ef hann er stighækkandi,
en vörugjöldin og nefskatturinn
eru alger svik við alþýðuna og
stefnuskrár stjómarflokkanna.
Deíldarfundur,
á föstudagskvöld kl. 8V, í
K.R.—húsinu uppi
Dagskrá:
1. Politíska viðhopfið
2. Atvinnuleysisbar-
áttan og stytting
vinnudagsins.
3. Starfsáætlun deild
arinnar
4. Spánn.
Munið að sýna skírteini
Deildarstjórninn
Stytting vinnudagsms
Framh. af 1. 3Íðu.
Því sendlar íhaldsins, ýmsir verk-
stjórar og fleiri, lágu sannarlega
ekki á liði sínu. Og er nokkuð að
undra þó að færi að renna tvier
grímur á verkamennina, um að
eitthvað væri til í því sem sendl-
ar íhaldsins sögðu, þegar það kom
alveg heim við það sem ýmsir
„æruverðugustu foringjar“ þeirra
sögðu, og stjórnin í verkalýðsfé-
laginu þeirra var hlutlaus!
Morgunblaðið þagði!
Það er alveg nýtt þegar slflct
mál er á döfinni. Morgunblaðið
skildi sem sé að það var alveg 6-
hætt að láta Alþýðublaðið eitt um
að hræða verkamenn frá því að
greiða atkvæði með styttingu
vinnudagsins, enda miklu kæn-
legra. — Og það sýndi sig líka, að
Alþýðublaðið „stóð vel í stöðu
sinni“!! „Sérfræðingar“ voru
fengnir til að telja menn af að
vera með sínum eigin hagsmun-
um — og svo enduðu kannske
greinamar á því að blaðið væri nú
samt sem áður hlutlaust! Dags-
brúnarmönnum, sem rituðu með
styttingu vinnudagsins, var neit-
að um rúm.
Ýmsum mun hafa dottið í hug
bílstjóraverkfallið. Þá voru þeir
herrar ekki hlutlausir — þá höfSu
þeir sannarlega skoðun!
Kommúnistaflokkurinn stóð einn
uppi í baráttunni fyrir styttingu
vmnutímans með sama dagkaupi
og áður. Naut hann hins bezta
tilstyrks hins heilbrigðasta hluta
Alþýðuflokksmanna í Dagsbrún. í
þetta skipti tókst að sundra þeim
meiríhluta, sem þegar var fenginn
því allt framundir það, að at-
kvæðagreiðslan var ákveðin, stóð
félagið að mestu einhuga með. En
róðurinn mun verða hertur til að
sannfæra verkamennina um hið
rétta. 1 næsta skipti mun það tak-
ast. Vonandi verður vinnudagur-
inn styttur með óskertu dagkaupi
bæði hér og víðsvegar á landina
? næsta ári. Og til þess að lífsaf-
koma verkamannanna, sem sækja
höfnina og aðra hlaupavinnu, getí
orðið svo, að þeir geti séð heimil-
um sínum farborða, verður strax
að gera ráðstafanir til verulegra
kjarabóta á þessari vertíð.
Við treystum nú hafnfirzku
verkamönnunum til að láta engan
bilbug á sér finna og ríða djarf-
lega á vaðið til að koma fram
þeim kjarabótum, sem þeir hafa
ákveðið. Reykvíski verkalýðurinn
hefir ákveðið að veita þeim allan
stuðning, sem unt er, svo þeir
eiga alveg vísan sigurinn. — Og
reykvíski verkalýðurinn mun hik-
laust feta í fótspor þeirra.
Hús dauðans
heitir rússnesk kvikmynd, sera
nú er sýnd á Gamla Bíó og gerð
er eftir hinni heimsfrægu sögu
Dostojevskis. Kemur þar loks
kvikmynd, sem er virkileg list.
A. S. V. A. S. V.
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildarinnar verður haldinn í K.R.—húsinu (uppi)
{imtudaginn 27. feb. kl. 8 e.m.
D A G S K R A :
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Barnaheimili A. S. V. í sumar
3. Fræðsluerindi
Fólagar sýni skírteini við innganginn.
STJÓRNIN