Verklýðsblaðið - 06.04.1936, Blaðsíða 2
VERKLÝÐSBLAÐIÐ
Að bæjarstjóra, Jóhanni G. Ól-
afssyni og bæjargjaldkera verði
tafarlaust vikið úr embætti.
Að starfræksla síðustu tveggja
ára á skrifstofum Vestmannaeyja-
bæjar verði tekin undir opinbera
krítiska rannsókn.
Að allir íhaldsfulltrúainir í
bæjarstjórn verði látnir sæta
ábyrgð gerða sinna, svo sem lög
mæla fyrir.
Afbrotaferill Ihaldsins í Vest-
mannaeyjum er svo furðulegur og
gífurlegur, að allir vænta þess, að
stjórnarráðið láti ekki dragast
að taka svo í taumana, að þetta
afbrotamannahreiður verði full-
komlega hreinsað.
Kemur nú til kasta alþýðunn-
ar í Vestmannaeyjum að sjá um
að svo verði.
V egavinnumálin;
„Falsaða bréiíð*6
Eftir Gurmar Benediktsson
í Aiþýðablaðinu í gær er mikil
forustugrein , með gleiðum fyrir-
sögnum um bréfafölsun í nafni
verkalýðsfélaganna á Stokkseyri
og Eyrarbakka. Þar er átt við bréf
það, sem birtist í Verklýðsblaðinu
fyrir rúmri viku síðan og sent var
til allra verkalýðsfélaga á landinu
og auk þe8s bréf er sent var til
Alþýðusambands íslands. Þetta bréf
segir Alþýðublaðið að sé falsað á
þann hátt, að á bak við það standi
ekki þessi félög, sem nefnd eru:
Báran á Eyrarbakka og Bjarmi á
Stokkseyri. Og fyrir þessu ber
blaðið formann félagsins á Stokks-
eyri, Björgvin Sigurðsson.
Nú skal ég, sem einn þeitra
nefndarmanna, er bréfið sendu
skýra málið.
Rétt eftir áramótin kemur fram
tillaga um það á fjölmennum fundi
i verkamannafélaginu Báran á
Eyrarbakka að kosin sé þriggja
manna nefnd til að leita samvinnu
við verkamannafélagið á Stokkseyri
um að berjast fyrir hækkun á
kaupgjaldi við vegavinnu upp í
minnst eina krónu um kl.stund
og einnig aðrar kjarabætur, sem
félagið hafði samþykkt fyrir tveim
árum að reyna að ná fram. Eg var
kosinn formaður þeirrar nefndar,
og það með öllum greiddum atkv,
I sambandi við kosninguna var
engínn flokkadráttur, en það mun
mestu hafa ráðið, að vitaniegt var
að ég yrði á staðnum í allan vet-
ur. — Ég tilkynnti þetta þegar
ritara og gjaldkera félagsins á
Stokkseyri, en í formann náði ég
þá ekki, og óskaði eftir að fundur
yrði haldinn í félaginu hið allra
fyrsta, svo að þar yrði hægt að
ræða þetta mál. Það varð dráttur
á þvi, að fundur yrði haldinn,
en ég fékk tilkynningu um það,
að stjórnin hefði skipað nefnd til
að vinna með okkur af Eyrar-
bakka. Ég vildi ógjarnan taka það
gilt, og óskaði enn eftir því að
nefndin yrði kosin af fundi, til
þess að ekki yrði hægt að segja
annað en hún starfaði í umboði
félagsins, Og nokkru síðar er fund-
ur haldinn og nefnd kosin og sú
hin sama, sem stjórnin hafði áður
skijtað. Svo að formaðarinn sjálfur
er með i því að stuðla að þvi að
þessir menn yrðu kosnir. Skömmu
8íðar er formaðurinn kominn í
burtu til Sandgerðis og gat þar af
leiðandi ekki veríð meira með í
VERKLÝÐSBLAÐIÐ kemur næst
út á laugardaginn fyrir páska
burtu eða urðu önnum kafnir við
vertíðina heima fyrir og fundahöld
lögðust niður í félögunum, einsog
alltaf verður um þetta leyti árs.
Þó var einn fundur haldinn í fé-
laginu á Stokkseyri eftir þetta og
þar var lesið upp þetta bréf, sem
nefndin hafðí samið og hafði eng-
inn neitt við það að athuga. Og
gjaldkeri félagsins á Stokkseyri lagði
fram fé til að greiða burðargjald
undir þessi bréf.
Það var vitanlega fýrst og fremst
verk þessarar nefndar að undir-
búa málið svo vel sem kosturvar
á fyrir vorið, þegar verkamenn-
irnir kæmu aftur úr verinu. Það
., fyrsta sem við gerum er að rita
bréf bæði í Stjórnarráðið og í Al-
þýðusambandið ogbiðja um aðstoð
þess, og jafnhliða til allra verka-
lýðsfélaga um allt land.
Gunnar Benediktsson.
gangi málsins, Verkamennirnir
báðum þorpunum fóru ýmist
Björgvin sem formann við síðustu
kosningar.
Mikill hluti verkalýðsins í um-
ræddum félögum ber enn traust
til Alþýðusambandsins. Og hvern-
ig verður Alþýðusambandið svo
við því trausti? Um það ber grein-
in í Alþýðublaðinu greinilegast
vitni. Bréf sem skrifað er af kjörn-
um nefndum í félögunum, þar sem
leitað er samvinnu við önnur verk-
lýðsfélög á landinu um mjög brýnt
hagsmunamál, er stimplað eem
falBað. Maður veit ekki á hvoru
maður á að furða sig meira:
ósvífni þess, er að Alþýðublaðs-
greininni stendur, sem rekur hnef-
ann miskunnarlaust framan í sam-
eiginlegt áhugamál hvers einasta
verkamanns innan þessara félaga,
eða ræfilshátt og ómennsku þess
verkamanns, sem lætur hafa sig
Þetta er gangur málsins. Og til þess, að skrifa staðlausa atafi
þetta er i raun og veru allt stað-
fest með frásögn Björgvins, sem
birt er í Alþýðublaðinu. Þar er
sagt, að nefnd hafi verið kosin í
haust (það var nú reyndar ekki
fyrri en nokkru eftir áramót), eft-
ir ósk frá samskonar nefnd á Eyr-
arbakka.
Hvað er það þá sem gengur á?
Hvað var það sem þessar nefndir
áttu að gera? Vitanlega ekkert
annað en þetta, að leita til Al-
þýðusambandsins og til verkalýðs-
ins út um allt land. Björgvin seg-
ir, að í þessar nefndir hafi valist
samfylkingarmenn. Þessa sörnu
samfylkingarmenn vildi Björgvin
stjórnskipa í nefndina og þessir
sömu samfylkingarmenn kusu
um nefnd manna, sem kosin hef-
ir verið af hans eigin félagi til að
knýja fram brennandi hagsmuna-
mál allra félagsmanna, sem sam-
þykt höfðu verið í félögúnum.
Síðar vænti ég að hægt verði
að birta úrdrætti úr fundargerðum
félagsins Bjarma, er um þetta fjalla,
sem sýna enn greinilegar, hve Al-
þýðublaðið fer algerlega með stað-
lausa stafi. Ég get nú þegar upp-
lýst það, að verkamannafélagið á
Stokkseyri gerði í þessum málum
enn hærri kröfur en félagið á Eyr-
arbakka og svo háar, að hin sam-
eiginlega nefnd sá það ekki tíma-
bært að stilla þeim. Þar var stillt
upp kaupi kr. 1,25 um klukku-
FrMaalL á 4. aJBv.
■ ■
Menn tryggja sig gegn slysum, sjúkdóm-
um og eldsvoða. Hvert heimili veit, að það
er nauðsynlegt. Annað tjón, sem líka etur
upp vinnu heimilanna, er hátt vöruverð. Það
er engu síður nauðsyn, að tryggja sig gegn
því.
Þar kom, að neytendur sáu þetta. Þess
vegna hafa þeir stofnað með sér félög, byggð
á frjálsu samstarfi heimilanna.
Neitendafélögin hafa þann tilgang, að
minka dreifingarkostnað varanna, útrýma
skuldaverzlun og skapa heimilum og einstak-
lingum efnalegt sjálfstæði.
Þau veita bezta tryggingu fyrir góðum
vörum og lágu vöruverði.
í Pöntunarfélagi Verkamanna eru nú yfir
1200 fjölskyldur, sem tryggja sér með sam
eiginlegum innkaupum lægsta, fáanlegt verð.
Þessum fjölskyldum verður meira úr vinnu
sinni, þær geta lifað betur, tekjur þeirra
verða drýgri.
í Pöntunarfélagi Verkamanna tryggja heim-
ilin sig með frjálsu samstarfi gegn því tjóni,
sem þau bíða af óeðlilega háu vöruverði.
Hver hefir ráð á að vera ótrygður?
Gott samstarí er bezta tryggingin.