Spegillinn - 01.12.1926, Page 3
SPEGILLINN
því, að vilja endilega láta hann sigla ofan-
sjávar, og senda hann pró fors til útlanda,
til þess að láta setja í hann sundmaga.
Svo er nú hann Þór, sem gerir lítið annað
upp á síðkastið, en nappa áfengi á Vest-
fjörðum; lítið gagn gerir hann okkur, þess-
um, sem liggjum að' Garðsjónum, og illa
værum við farnir, ef ekki væri hann Trausti.
En svo virðist okkur, sem stjórnin hafi yfir
að ráða of litlu af pappír og ritföngum, en
of miklu af nöglum, svo Trausti greyið
verður að gera allar sínar mælingar og
uppskriftir með kolryðguðum fírtommum.
Þar af leiðir svo aftur, að hann er sagður
ljúga öllu, þegar skíttið kemur til dóms og
Iaga. Annars finst mjer það vera einasta
glóran í -öllum málarekstrinum, að láta þá
sverja hvern ofan í tálknin á öðrum, svo
að einfeldningar, eins og jeg, freistast til
að halda, að yfirvöldin hafi gert kontrakt
við þann hníflótta um að tryggja honum, að
minsta kosti annan málspartinn i jólapott-
inn, hvernig svo sem alt annað veltist. Já,
honum er víst alveg óhætt með átuna, þeim
gamla, þó að við hinir verðum að eiga það
undir veðurstöðunni, hvort við krækjum í
hausana og dálkana, sem trollararnir fleygja.
Annars var mjer það sosum ekkert áhuga-
mál, að Þórarinn fengi að fljetta hnappeldur
í Steininum; jeg býst valla við, að hrossin
verði svo fjörug eftir veturinn, að þær verði
útgengileg vara. — Jæja, jeg fer nú að hætta.
Heilsaðu Svenna og flugunni.
Þinn einlægur
Filpus.
Clr öagbók flugunnar.
Meðal annara orða.........
Ef orðunefndin gleður innlenda menn, þá
gerir hún það rjett íyrir jólin og er það
ekki nema vel til fallið. Margur mundi ann-
ars fara í köttinn. Jeg áleit það því ekki
úr vegi að skreppa á síðasta fund:
Allir mættir. Formaður setur fundinn.
Getur þess, að samkvæmt fundarreglum
megi ekki minnast á orður, heldur að eins
þá menn, sem álitnir sjeu færir um að bera
þær. Björn, sem er á móti orðum á sjálfan
sig, en ekki vill meina það öðrum, sem
gaman hafa af því, en þeir eru sagðir 99731
á íslandi, eða 99732, ef barnið er nú fætt
3
THE INSTRUMENT OF QUALITY
ono
CLEAP AS A BELL
TheHiqhest
Ciass TaikingMachine in
the World"
Allir Sonora grammófónar með hljóðdósum af nýjustu gerð.
Einkasalar:
Samband ísl. Samvinnufjelaga.
Verslíð í EDINBORG
því bestii katipín gerast þar.
10 °|0 afsláttur gefínn frá híntt afar
íága verðí t-í-1 j-ó-l-a.
Fyígíst með fóíksstraumnum á
Jólasöla EDINBORGar
í Þingholtunum og Pjetur Sóf. telur rjett úr
skýrslum; já, Björn fær orðið: Þó jeg eigi
bágt með að koma orðum að, .... Ekki
út fyrir fundarsköpin, segir formaður og
hringir. — Ja, það er ekki gott að orða það
. . . Formaður hringir í annað sinn. — Þetta
er orðaleikur, segir þá G. B., jeg veit það,
og veit líka hvað þið ætlið að segja, vinir
minir, og jeg skal segja það sjálfur, til þess
að lengja ekki fundinn. Við felum formanni
að sjá um útnefningu á þá, sem hjer segir:
1 prófessor, sem engan staf hefir skrifað af
viti um æfina, 1 lækni, sem engum gefur
hundaskamt, 1 prest, sem frelsað hefir eina
sál, 1 bónda, sem flosnað hefir upp af smá-
koti og telur sig nú leiðtoga bænda,
1 trollaraskipstjóra, sem ekki hefir
tvenn ráðherralaun að minsta kosti,
1 skipstjóra, sem hefir strandað á
eðlilegan hátt, 1 verslunarmann, sem
hefir kr. 133.33 í mánaðarlaun, elur
tvo hesta, eina konu og þrjú börn,
og svo loks eina konu, helst danska
eða að minsta kosti færeyska —
munu þá þessir allir verða ánægðir.
Samþykt með einu atkvæði gegn
engu, því hinir voru allir sofnaðir,
en jeg var fyrir löngu farin af fundi.