Spegillinn


Spegillinn - 01.08.1936, Síða 3

Spegillinn - 01.08.1936, Síða 3
XI. 15 SPEGILLINN Stannino, Alsing Andersen og Ivar Wennerstrðm i bðpi íslenzkra flokksbræðra. Ummæli þeirra um stefnu Alþýðuflokkanna áNorðurlöndum Gullfoss í vestansól För Stauníngs austur ad Geysi *o § '3 " | l’o » - < Sj c o 'i? í «: '3 2 u ■(5 00 3 00 * !■« ■“>»2. _ £ MíS jjj oi ees co 'KS :0 v v uj £ J; a---S.S. Í2 3 • Haraídur fór meö Stauning. Hádegisveisla að Hóíel Borg. Stauning á Siglufirði. Heim&ók StauninQS.I Ekið var með Stauning að skoða reifveituna-á Isafirði og síðan i skóginn og loks vár kúabúið skoðað. Dagverður vár snæddur ^ Templarahúsinu. „Argus“. fór frá ísafirðt,^. 4 í gær áleiðis;t;l Sigluf^járðar. +-■ Þangað var ‘ Stauning, væntan- legur í morgun '« • Stauning hrifinn af “U I §táfriniíörum lslands Síaiming á Akureyn Gft «ið E&ývatn „firflns1' er nó á leU tll AusUiarðá. Th. Stauning: Þið eigið visan sisor, et Þið pngiðornat álram að settu marki. is-för Staunings. Tignarlegt gos. C .tí Rl o bfliU. 3 >-JX >,Qi rt.. Öllum þjóðhollum mönnum má vera það ósvikið gleðiefni, hve margir út- lendingar heimsækja okkur á sumrin, og láta mikið yfir menningu vorri, þeg- ar heim kemur. Og ekki gerir það skarð í gleði vora, að því er virðist, að menn- irnir hafa margir hverjir komið til landsins með þær hugmyndir um þjóð- ina, að hún væri eskimóar, sem æti lýs og selspik við. Einhver gleðilegasti votturinn um skilning erlendra manna á fjármálum vorum og öðrum menningarmálum, er hin nýafstaðna heimsókn staunings hins danska. Vjer höfum fyrir satt, að hann hafi svo mikið að gera heima fyrir, að hann t. d. elti aldrei útlendinga, sem koma til danmerkur, norður í vendsys- sel, eða suður til gedser, og er fyrir þá sök ekki talinn líkt því eins gestrisinn og t. d. ráðherrar vorir, fyrr og síðar. Því einkennilegra er það og gleðilegra, að ekki þarf Haraldur annað en segja: „Hör engang, kammerat stauning, du kunde vel ikke skreppe op til Island i Sommer; jeg har saa fandens megen bisniss at snakke om med dig, men tör ikke være længer i denne Sejling; man véd aldrig hvad for dumheder Hærmand og Östen kan lave“. Eitthvað þessu líkt mun Haraldur hafa sagt við stauning í síðustu siglingunni, þegar Sv. Björns- son vildi ekki hleypa honum til Spánar. Og stauning var þá ekki lengi að bregða við. Haldið þið ekki, að hann láti slíta upp eitt vitaskipið (sbr. dagblöðin hjer) sem hafði legið árum saman við bauju sína og lýst hverjum landa, og þeysi því til íslands. Venjulega eru vitaskip vjel- arlaus og hefir því orðið að setja í það nýjan rokk, sem við fáum sennilega að borga, þegar við verðum múraðir. Það er ekki ofmælt, að för staunings til lands vors, hafi verið óslitin sigur- för. Og að því leyti var hún betur lukk- uð en kóngsferðin, að Geysir ældi, eins og honum væri borgað fyrir það, og gaf stauning þó ekkert til íþróttamála, eins og kóngur. — Veislurnar, sem haldnar voru fyrir þá fjelaga, viljum vjer ekki reyna að telja upp, og því síður lýsa þeim, enda komum vjer Reykvíkingar þar ekki nema í annari röð, svo er Reykjavíkuríhaldinu fyrir að þakka. — Aftur á móti skyggði ekkert á gleðina á ísafirði, enda ráða fjelagar og jábræð- ur staunings þar lögum og lofum. Helsta númerið og minnisverðasta var það, að stauning var sýnt kúabúið, því tsfirð- ingar hafa bú mikið, og eru þar rauðar kýr. Á þessu númeri varð aðalkostnað- urinn, því áður en heiðursgesturinn kom, var sendur heill her af þvottakon- um með fötur, skrúbbur og þvottaefni, til þess að moka flórlærin af kusunum, en lærður rakari var sendur til að snyrta á þeim halana, í ýmsum stíl; ljetu sum- ar bara krulla sig, en aðrar ljetu klippa á sig drengjahala. — Ennfremur hafði framhlið fjóssins verið máluð, og ekk- ert til sparað. Þegar í fjósið kom, kast- aði stauning fram þeirri spurningu, hvort betra mundi að vera naut eða belja, og varð fátt um svör hjá heima- mönnum, en málið mun verða tekið til alvarlegrar íhugunar. Eins og gengur, var förin norður fyr- ir land lítið annað en endurtekning af því, sem á undan var gengið; á Akur- eyri söng karlakórinn Strokkur Inter- nationale, en Steinsen borgarstjóri hjelt góða ræðu og var ósköp feginn, þegar hann mátti hætta. Frá Akureyri var farið að Mývatni og svo áfram um Þing- eyjasýslu, þangað til menn hættu að sjá nokkurt hross; vissu menn þá, að þeir væru komnir í Norðursýsluna, kjördæmi Gísla, og var þá snúið við. Á Austfjörð- um var víða komið við, þar sem vænleg- ast er fyrir dani að hafa uppsátur í framtíðinni, og má ætla, að stauning sje stórum ástsælli af Austfirðingum en kóngurinn, sem ekki virti Austurland viðlits. Það átti að vísu ekki að vera efni þessa greinarkorns, en vjer getum ekki stilt oss um það samt, bara til að sýna hugarfar vort, að vísa rógskrifum Mogga um þessa vellukkuðu för staun- ings heim til föðurhúsanna. Því setjum nú svo, að Haraldur hafi ætlað að veð- setja honum ísland með húð og hári, þá hefði hann alls ekki sýnt honum eins mikið af því og raun varð á, heldur lát,- ið sjer nægja, að sýna honum Hjeðin. sem sönnun þess, að íslandi væri „et godt Madsted", og alls ekki farið með hann til tsafjarðar í alla vesöldina. Það hefði enginn óvitlaus maður gert, og jafnvel Moggi hefir aldrei frýjað Har- aldi vits. Gáð gjöf. Það er ekki nóg með það, að stauning ætlar að veita okkur hjer á landi, dansk- an ríkisstyrk, sem annars hefði farið í færeyinga eða eskimóa, heldur má svo heita, að danir salli á oss gjöfum úr öll- um áttum, svo vjer höfum valla við að taka við og þakka pent fyrir okkur. Síð- asti vottur hins danska bróðurhugar er það, að legsteinasmiður, sem sjálf- sagt hefir haft viðskifti mikil við ts- lendinga, og þau góð — því legsteinar borgast altaf vel, eins og allur hjegómi 87

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.