Spegillinn - 01.09.1944, Blaðsíða 2

Spegillinn - 01.09.1944, Blaðsíða 2
SPEGILLINN XIX. 16- uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui ..iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniir iiimimiiiiiiiiimiiiiiiiuiiiiMiiiifiiiiiiiimiiiiiiiiiiir.iiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiniiiiiiiiiiiHA^iKt SMIEILIl,/ ihrruvVC' lyggir upp JanJið 'J/lilík- og dallýsiilunnu verksm tyM.yÍtUMJÞOW éi7«xicirinn ■OORVHAUGUEit'M £ Grand- .*“•? am>m bi'ftir'nii vcrií lokaS (vrif oHri umfotS og cr boonab a3 hagnvto sér nokkuö úr }ioim. Er verið að v'mna aS Jjví nð nt- ' kaup a vognum - . K ......... Reylcjavíkurbær hefur nú keypt 20 gömul strætó af félaginu, sem áður átti þau, og hyggst nú að reka strætisferðir fyrir eigin reikning og rísíkó — mest það síðarnefnda. Illkvittnir menn eru að spá því, að vagnarnir verði latir í rekstri og ráða það af útliti sumra þeirra. Engu skal hér um slíkt spáð, en hitt vitum vér, að fáir hlutir myndu sóma sér betur í Ruslakistu vorri en hin góðu gömlu strætó, sem mega heita óskabörn höfuðborgarinnar. Reykvíkingur Morgunþlaðsins hefur um langt skeið verið að lýsa eftir kosningabensíni því, er landsnefnd lýðveldiskosninga lofaði öllum þeim, er vildu lána lúxusbíla sína í smalamennskuna í vor sem leið. Það sér á, að Reykvíkingur er ungur og saklaus í pólitíkinni, ef hann þekkir ekki kosn- ingaloforð betur en þetta. Annars hefur dr. Eyj- ólfur nýlega lýst því yfir, að bensínið sé allt í lagi, en lúxuseigendurnir hafi bara ekki vitjað þess. Tveir ritliöfundar, þeir Sigurgeir Einarsson („Norður um höf“) og Halldór Kiljan Laxness („Barn náttúrunnar") hafa nýlega átt í málaferl- um út af hitaveitukrana og bar Laxness hærra hlut í héraði. Samt finnst oss Sigurgeir ekkert þurfa að vera stúrinn yfir þessum málalokum, því að vér höfum gluggað vandlega í dóminn og þar segir ekkert um það, hvor meiri sé rithöfundurinn. Forsetaúrskurður er nú kominn um 10 fasta fána- daga, sem vera skuli á ári hverju, og er þar efst á blaði fæðingardagur forseta Islands, en minna- hlutanum er heldur ekki gleymt, því að þarna er líka 1. maí, en hann er afmælisdagur þess, sem næstflest atkvæðin fékk við ríkisstjórakjörið fyrir þrem árum. Finnst oss þetta drengilega úrskurðað, en hitt miður, að fánadagur Sigurjóns á Alafossi er hvergi nefndur á nafn heldur en hann sé ekki til. — Vísir vill setja á stofn svokallaða „Vinnustofnun Ríkisins", sem hafi á hendi miðlun á allri vinnu, er í landinu fyrirfinnst. Enda þótt þetta minni óþarf- lega mikið á Tímann á einræðisárum Jónasar voi-s, erum vér hlynntir hugmyndinni, ef Vilhjálmi Þór duga ekki þessar fangabúðir, sem kenndar eru við Litla-Hraun og dugðu prýðilega meðan vér vorum konungsríki. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur fyrirskipað eftirlitsmanni hreindýra, Friðriki Stefánssyni, Hól- um í Fljótsdal, að skjóta elztu hreindýratuddana, sem fyrirfinnast á öræfum vorum, og ber þeim að koma til móts við Friðrik á tilsettum tíma, hafandi með sér fæðingarvottorð, svo að sjá megi, hverjir elztir eru. Er þess til getið, að ráðuneytið muni orðið uppiskroppa með bjálfa og ætli nú að nota hreinbjálfa heldur en ekki neitt. Nýjasta nýung í kirkjumálum eru hinir svonefndu fallhlífarprestar, sem notaðir hafa verið með góðum árangri í innrásinni í Normandí og víðar. „Ekki höfðu þeir annað meðferðis en biblíur, bænabækur og sálmabækur", segir Moggi, sem vér höfum þessa vizku úr. Oss finnst þetta nú allt nokkuð, ef upp- lögin eru stór, sem hver hefur af þessum bókum. Thor Thors hefur nýlega verið gerður heiðurs- doktor í lögum við Rider College, Trenton, og ríkis- stjórinn í New Jersey fékk að fljóta með. Sannast þar spakmælið, að „oft njóta hjú góðra gesta". Þrír brezkir skipstjórar hafa verið sviptir skip- stjórnarréttindum af sjóréttinum þar í landij fyrir einhvern klaufaskap í embættinu. Var einn þeirra Chr. Agerskov, sem manninum stal frá oss hérna um árið, og fékk þá enga viðurkenningu fyrir. — Bendir allt til þess, að mannránið hafi ekki þótt neinn klaufaskapur í embættinu. 130

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.