Spegillinn - 01.09.1944, Blaðsíða 4

Spegillinn - 01.09.1944, Blaðsíða 4
SPEGILLINN XIX. 16- iiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuM<iiHimiMiii(.«MM«uuuiiinH{íiiiiliiiiniiUf>imiiit!Hiiiirtm)n)))iiiiiiiiiiiiimmiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiii]iiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiimiiiifmmiMiiinitKiiHr Aðakimboðsmaður fyrir ísland: Ólafur Einarsson vélfræðingur. Sími 4340. Pappirsvörur RHlöng Bókhaldsbækur Verzlunin Björn Kriiijónsson Pappírsdolld H Benedikis'on £/ Co Reykjavík I_____________________ „Ef einhverjir óvandaðir skúmar ætla í orði og verki að fara að seilast til lands og ríkja á mínu lándi, íslandi, þá er mér að mæta. Ég hef samninginn við Roosevelt uppá vas- ann og ætla að hann sé fullgóður pappír, ekki síður en gamli sáttmáli forðum“. Var Vil- hjálmur hinn skörulegasti og hvítnuðu blaða- snáparnir í framan, en blaðafulltrúi vor gleymdi alveg að skrifa hjá sér, að stundin hefði verið hátíðleg. Datt ýmsum föðurlands- vinum í hug að fá Vilhjálm gagngert til að tala við nafna sinn Stefánsson og vita, hvort hann hefði ekki neina lyst á að endurskoða ræðuna, sem hann hélt^ á lýðveldishátíð Is- lendinga í New York hin 17. júní og þeir klöppuðu mest fyrir. Yfirleitt virðist svo sem för þeirra kump- ána hafi verið með miklum ágætum og ber það væntanlega að þakka — auk sköru- legrar framkomu — hinum drifhvítu smók- ingfötum, er Hannes á Horninu kollega segir, að þeir hafi látið gera sér áður en vestur var farið, og sjá má sýnishorn af á forsíðu vorri. Hafa klæðskerar vorir nú engan frið fyrir pöntunum upp á þessar flíkur og mun slíkt þéna til hins mesta ógagns fyrir vísi- tölu vora og aðrar tölur, er vér eigum af- komu vora undir. . Þegar forseti kom úr landferðalagi sínu, áður en hann fór vestur, skeði lítið atvik, sem gefur tilefni til þess að álykta, að-vér höfum einni reglugerðinni of fátt í landinu, þótt sumir eigi ef til vill bágt með að trúa því. Þegar heimkoma forseta nálgaðist, var pöntuð lúðrasveit til þess að blása nokkur ættjarðarlög, er hann stigi á land. Kom pöntun þessi frá máttarvöldum ríkisins, en var brátt afturkölluð vegna þess, að forseti hefði aldrei út úr ríkinu farið og því ætti Reykjavíkurbær að standa straum af blæstr- inum. Ekki er fullkunnugt um, hvernig þessu lyktaði, en hvort reikningurinn verður eilíft þrætuepli, líkt og vegarspottinn móts við Iföfða, hér innan við bæinn, sem aldrei fékkst lagaður, af því óvíst var, hvort bær eða ríki ætti að kosta hann. Ætti því að gefa út þó ekki væri nema úrskurð um þetta, til eftir- breytni framvegis, og jafnvel gera stjórnar- skrárbreytingu, ef annað ekki dugar. Aðaljón. er bezta skemmtibókin. 132

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.