Spegillinn - 18.10.1946, Page 2

Spegillinn - 18.10.1946, Page 2
SPEGILLINN XXI. 18.-19. iiiiiiiiiiii(iiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiMiiiiiiiimiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiiiiiitiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiK ^IGURDAR Oi/MONAR %i?ixícirinn lygyir upp lanJið /J}HI<k- ag dállýíishinnu i/erkm ^M.féiurteom Nolckur deila, hefui’ staðið um það undanfarið með þjóð vorri, hverjum væri um að kenna kamra- skipulag' það er hingað til hefur ríkt í Arnarhváli, til nokkurs angurs þeirn innbyggjendum þess húss, sem bráðlátari eru. Hafa sagnfræðingar hingað til viljað kenna Guðjóni um þetta, en nú bregður svo við, að Jónas alþm. Jónsson hefur gengið fram fyrir skjöldu og tekið á sig' alla ábyrg'ð af skipu- laginu, með þeirri greinargerð, að Guðjón muni hafa nóg á sinni könnu samt. Þykir Jónasi hafa farið drengilega í málinu, hvað sem um sannleikann kann að vera. Magnús Sigurðsson, sem í seinni tið má heita fjármálasendiherra vor (þótt ef til vill skilji hann ekki eftir jafnmarga pappira og' Pétur Ben.), hefur rétt svona skotið þvi að bankaráði hins nýja Al- þjóðabanka, að Islendingar muni ekki koma þangað í fjárleit næsta ár, þar sem. vér séum allbirgir af sterling'spundum og dollurum í bili. Þykii- sumum hér kenna nokkurs ríkilætis, en nánar athugað kem- ur þetta alveg heirn við það, sem annar merkur fjár- málaniaður lét danskan blaðamann hafa eftir sér, fyrr á þessu ári: „Vi har jo tjent ganske godt i de sidste Aar“. ________ . .Furðuflugvélar hafa undanfarið verið að sjást yfir Norðurlandi og stendur blár log'inn aftur úr þeim. (Eitt sunnanblað segir, að Skag'firðingai' hafi orðið hræddir, en þetta er lýgi — að minnsta kosti hefur þeim þá farið aftur síðan á Sturlungaöld, ef svo er). í norðanblöðum, sem vér höfum lesið, er verið að tala utan að því, að vélar þessar séu rússneskar, og víst er um það, að kommar vorir hafa enn ekki talað um hlutleysisbrot i sambandi við þær. Getur þetta komið bölvanlega út fyrir kommana, ef það skyldi sýna sig, að þær hefðu verið amerískar. Sa.mkvæmt áreiðanlegum blaðafregnum hefur fé fækkað í Astralíu um 29 milljónir, undanfarin fjögur ár, og' er þetta kennt þurrkum, sem þarna hafa geng-ið. Ekki er þetta nú sanit mikið hjá fjárfell- inum, eins og hann er sag'ður í nýsköpuninni hjá okkur, enda ku hún nýlega hafa tekið sér kjörorðið: „Deyr fé, deyja frændur". Ekki eru þó bág'borinheit hennar talin stafa af neinum þurrki í Ríkinu. Starfsmenn við franska ríkissjóðinn hafa nýlega gert verkfall, til mikillar armæðu öllum þeim, er þar áttu að fá útborgað, en ekki að sarna skapi hinum, sem skyldu inna þar af hendi skyldur og skatta. Oss dettur i hug, hvort það gæti ekki verið snjallræði, þegar rikissjóður vor er orðinn tómur, að láta bara starfsfólkið stræka. Þá þarf enginn að vita um tómahljóðið í kassanum, ef þetta er gert í tæka tíð. Ekki er nema sanngjarnt að geta þess, að mörg einkafyrirtæki nota svipaða aðferð nú þegar og segja þá: ,,Ja, gjaldkerinn er bara ekki við núna“. Félag íslenzkra skókaupmanna hefur nú breytt nafni sínu og heitir framvegis bara Skókaupmanna- félag'ið. Hafa þessi skipti orðið vonbrigði, i fyrsta lag'i þjóðhollum mönnum, sem hefðu kosið nafnið ,,Hið Islenzka Skókaupmannafélag'" og' í öðru lag'i kvennþjóðinni, sem hefði gjarna viljað láta pappann koma einhversstaðar fram í nafninu. Meðan æsingaskrifin stóðu sem hæst í Seljalands- málinu, lét frú Theresía Guðmundsson veðurstofu- stjóri þess g'etið, að ef hún sætti sig' við uppkastið, ætti hún erfitt með að líta í spegilinn. Kvennfólkið er nú ekki að súta smá-erfiðleika, þegar svo stendur á, en annars eru nú hin og þessi úhöld, hitamælir o. fl., væntanlega til á Veðurstofunni, handa frúnni að glugga i, ef í hart fer. Mjólkursamsalan hefur fyrir nokkru hellt niður 6000 lítrum af mjólk, sem var svo slæm, að jafnvel samsölunni ofbauð. Sumir g-eta þess nú reyndar til, að þetta hafi verið g'ert til þess að halda við mjólk- urskorti þeim, sem jafnan er um þetta leyti árs, og' forða þannig höfuðstaðnum og' ibúurn hans frá öll- um stökkbreytingum til hins betra. 154

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.