Spegillinn - 18.10.1946, Page 3
XXI. 18.-19. SPEGILLINN
............
*
Ilákon kon-
ungur fekk Gissuri jarli
hnérki og lúðw og setti hav.n
í hásæ.ti hjá sér, og lét
skutilsveina rína skenkja hov.
um sem sjálfurn sér.“
En á riý hafa íslenzkir höfð
ingjar gerzt heitbuntlriir er-
lendum valdamönnum. í eitt
ár hafa þeir unnið að því öll-
um árum að veita erlendu
ríki tangarhald á íslandi.
Munurinn verður sá að
.,stórgjafimar munu greiðast
i doVurum. og höfðíngjamir
mumt. sitja með merki sín og
lúðra og rtrekka kokkteilú að i
bandariskum síð.
s
■ffac _
l
I
tfffl (fagÍHH Cý VefÍHH
Um það bil er síðasti pistill minn með
þessari þjóðkunnu fyrirsögn var á ferðinni
ofan í landslýðinn, mátti heita ófriðlegt á
landi hér: skeggöld, skálmöld og skildir klofn-
ir — að vísu klofnaði nú ekki verulega nema
Framsóknarflokkurinn, og þarf ekki að taka
fram, að þingmaður þessa blaðs var réttu
megin. Það er kannske ekki tiltökumál þótt
róstur nokkrar geti orðið út af sölu á heilu
landi, eða eins og hér átti sér stað, út af því,
hvernig selja skyldi og hverjum, en skrítið
er samt, að enginn skyldi vera svo kaldur
í höfðinu að láta sér detta í hug þann aug-
ljósa möguleika að fara bara með landið til
Péturs Jak. eða einhvers annars löggilts fast-
eignasala, og spara sér þannig allar óeirð-
irnar, en sleppa með sanngjörn ómakslaun.
Eftir allan hamaganginn má það merkilegt
telja, hvílíkur friður er aftur kominn yfir
sálirnar á örskömmum tíma, svo að varla sér
urmul eftir af öllum hamaganginum, nema
ef telja skal Þjóðvarnarfélagið, sem auglýsir
eftir meðlimum á 50-kall stykkið, þ. e., sem
limirnir eiga að borga en ekki fá fyrir að
ganga í félagið. Auk blaðaútgáfu í ýmsu
broti frá degi til dags, ætlar félagið að koma
sér upp landvættum í hverju landshorni í
stað þeirra gömlu, sem eru teknar að slapp-
ast að vonum. Verða þær grimmari settar á
vesturhorn landsins, en hinar geðbetri á
austurhornin, og má segja að það eigi ekki
af Austfirðingum að ganga að verða útundan
með allt, hvort sem það eru samgöngur eða
annað.
Þess má geta, svona rétt til gamans, að
stjórnin hefur sagt af sér, og kallast vera
í tilefni af landssölunni, þó að guð og menn
viti, að það er gert til þess að sleppa við
dýrtíðarmálið og önnur vandasöm mál, sem
kalla að. Hafa spekingarnir fundið út, að
fljótlegra sé að hlaupa frá þessum málum en
ganga frá þeim, og svo kenna þeir kettinum
um — ja, ég tek svona til orða, en ekki svo
að skilja, að ég sé að líkja honum Ólafi mín-
um við kött; að minnsta kosti fer ekki mikið
fyrir klónum, og svo kæri ég mig heldur ekki
um að komast upp á kant við Dýravernd-
unarfélagið.
Um sama leyti og hljóðna tók um sölumál-
ið, tók beinamálið við, sem kennt er við lista-
skáldið góða, og er gott dæmi upp á óná-
kvæmar nafngiftir, þar sem hér er alls ekki
lengur um nein bein að ræða og tæplega af
listaskáldinu góða, að minnsta kosti telur
Felix litlar horfur á, að svo sé, eins og skipu-
lag kirkjugarða var ónákvæmt fyrir 100 ár-
um, auk heldur fyrir 101 ári. Ég er sammála
því, sem þráfaldlega hefur verið tekið fram
tyiíuhru'TiAbnn
Aðalumboðsmaður
fyrir Island:
ólafur Einarsson
vélfræðingur.
Sími 4340.
H Benedikls;on & Co
Reykjavik
_______
VLÍIIN bátavélar.
VÉLASALaN h.f.
Hafnarhúsinr, Reykjavík.
155