Spegillinn - 18.10.1946, Qupperneq 7

Spegillinn - 18.10.1946, Qupperneq 7
XXI. 18.-19. SPEGILLINN IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllUlllllllllllllllllllllltl Guðmunds- son, veðurstofustjón: „Ef ég mig við uppkastið. mundi ég eiga erfitt með .að iíía í s#gil, því að mig óar við að hugsa til, hverjum ég i að fara að líkjast." niður ketið, svo að bændurnir þurfi ekki að sligast undir oki dýrtíðarinnar og geti jafn- vel fengið sér jeppa, en svo heitir nú þarf- asti þjónninn, síðan hinn fór til Póllands, þótt ekki væri það í jafnstórum stíl og æski- legt hefði verið, og hefði landinn gjarna mátt vera sölufúsari á því sviði en raun varð á. En það er ekki dýrtíðin ein, kærir bræð- ur, sem nú hrjáir landið eins og ein and- skotans grashoppa, svo að notuð séu orð meistara Jóns. Allir þér, sem komnir eruð til ára á þingi, svo að ekki sé sagt til vits, munið eftir brimbrjótnum í Bolungarvík. Nú er hann sama sem kominn á þing aftur, og á væntanlega eftir að verða þar eilífur augna- kall og himnesk hnúta. Svo er það mæðu- veikin, sem enn grasserar í landinu. Þar hafa að vísu nú loks verið hafnar raunhæfar að- gerðir, sem sé hin miklu fjárskipti, sem nú standa yfir og geta gert hinn mesta glund- roða í flokkaskiptingu þingsins, eins og eng- um þarf að koma á óvart, þegar búið er að skera niður hverja framsóknarkind í Þing- eyjarsýslu og í staðinn koma forhertar íhalds- kindur vestan frá Djúpi, og ekki verða þær betri af Ströndunum — allar Hermanns megin, og eiga því engan þátt í ráðstöfunum Þingvallanefndar — með fógetavaldi eða öðruvísi. Er hætt við að búandköllum í Þing- eyjarsýslu þyki jarmurinn annarlegur, fyrst um sinn að minnsta kosti, og ekki er víst, að kvistlendið falli í kram þessara kinda, sem eru vanar kúskeljum og þöngulhausum. Margt er það fleira, sem þið þurfið að vera viðbúnir að leysa af vandamálum þjóð- arinnar, en ég treysti ykkur, þrátt fyrir allt, að standa vel í stöðu ykkar, og ég get huggað ykkur með því, að ekki verður farið að rjúfa ykkur, fyrst um sinn. Amen. (ZuMakiAtaw Per Albin Hanson, forsætisráðherra Svía, er ný- látinn, og' þykir merkur maður verið hafa — af forsætisráðherra að vera. Ekki er enn vitað, hvort Stefán Jóhann kemst til Svíþjóðar fyrr en eftir þinglausnir, til þess að koma sér upp nýjum dús- bróður meðal frændþjóðar vorrar, en sennilega þarf hann þess alls ekki, þar eð þeir munu hópast hing'að, er það vitnast, að plássið er laust. Hið góða slcip GULLFOSS hefur nú verið selt til Færeyja, eftir að frændur vorir Syíar hafa haft það til yfirhaling'ar og gert það sem nýtt. Hafði annars verið talsvert umtal um að kaupa það hingað til lands, af þjóðræknileg-um ástæðum og jafnvel g'era úr því sjóminjasafn. Nú er það sem sagt af og' frá, nerna einhver vilji kaupa skipið á svörtum markaði af frændum vorum. 159

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.