Stúdentablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 4
HERNÁMSHUGSJÓN
OG HERMANG
Staðreyndir hermangs raktar og ræddar
Hernámssinnar hafa að
undanförnu hopað úr hverju
víginu á fætur öðru í rök-
semdafræslu sinni. I kosningum
til 1. des. nefndar í Háskóla Is-
lands kom ekki fram ein ein-
asta mótbára við rökum her-
stöðvaandstæðinga, einungis
vikið að vafasemi þess að
hampa hermálinu 3 árið í röð.
Almennt séð eru hernámssinn-
ar rökþrota. Rússagrýlan er á
hraðri leið til forveru sinnar,
barnaætunnar Grýlu, inn í heim
þjóðsögulegrar arfleifðar, fræði-
mönnum til grúsks og almenn-
ingi til skemmtunar. Skipa þeir
fáu morgunblaðspáfar, sem enn
trúa á tilveru skrímslisins svip-
aðan sess í huga þjóðarinnar og
þeir sem taka tilvist Lagarfljóts-
ormsins trúanlega.
Enginn vafi er á því að þeg-
ar herinn kom hingað óttuðust
menn í alvöru rússahættuna,
enda var það á þeim tímum
þegar andi McCarthys sveif yfir
Vesmrheimi og hermálaráð-
herra Bandaríkjanna hoppaði
út um glugga hrópandi „Rúss-
arnir koma, Rússarnir koma".
En þrátt fyrir alla trú manna
á Rússagaldra, liggur ljóst fyrir
að Sjálfstæðismönnum var það
kappsmál að einangra sósíalista
og stilla öðrum flokkum upp
frammi fyrir þeirri samvisku-
spurningu, hvort þeir væru
„lýðræðissinnaðir", sem á máli
Morgunblaðsins þýðir nán-
ast það sama og vera and-
kommúnisti. Síðan hamaðist
hin risavaxna áróðursmaskína
íhaldsins við að spyrða saman
í vimnd almennings Rússa og
sósíalista, og tókst að einangra
þá síðarnefndu í íslenskum
stjórnmálum með þeim afleið-
ingum að íslensk verkalýðs-
hreyfing lamaðist, borgarastétt-
inni til ánægju og gróða.
En fleira skiptir hér máli og
ýmislegt sem hernámssinnar
veifa ekki en veldur sennilega
einna mesm um trúfesti þeirra
við hernámshugsjónina. Er hér
einkum átt við hinn fjárhags-
lega gróða sem hluti íslenzkrar
borgarastéttar hefur af her-
náminu og þeirra á meðal
ýmsir forystumenn hennar á
pólitískum vettvangi. Augljóst
er, að sérlega hagstæð aðstaða
Loftleiða í Bandaríkjunum var
tengd áframhaldandi hersem
hér á sínum tíma, en sú að-
staða hefur gert því fyrirtæki
kleift að raka saman einhverj-
um mesta gróða sem hér þekk-
ist. Svipuðu máli gegnir um
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Onnur fyrirtæki hafa milliliða-
lausan gróða af hernáminu, og
vil ég telja upp nokkur þau
helsm.
íslenskir aðalverktakar er
fyrirtæki sem stofnað var bein-
línis til hermangs og er senni-
lega það fyrirtœki íslenskt sem
mestan gróða hlýtur. Fyrirtækið
nýtur einokunaraðstöðu um
framkvæmdir á vegum hersins
og fær að launum mun hærri
upphæðir en venjuleg útboð
myndu hafa í för með sér.
Velta Islenskra aðalverktaka
nemur hundruðum milljóna ár-
lega, og serri dæmi má
nefna að gróði þeirra af
lengingu flugbrautarinnar á
Keflavíkurflugvelli er talinn
nema 100—200 milljónum
króna. Meðal ráðamanna þessa
fyrirtækis er Thor Olafsson
Thors og Þorbjörn Jóhannes-
son í Borg borgarstjórnarmaður
íhaldsins í Reykjavík. Eitt sinn
var starfsmaður fyrirtækisins
Geir Hallgrímsson núverandi
formaður Sjálfstæðisflokksins
og Arvakurs, útgáfufélags
Morgunblaðsins. Framsóknar-
menn eiga aðild að fyrirtækinu,
og er það athyglisvert að þar
á í hlut sá hluti flokksins sem
íhaldssamastur hefur verið tal-
inn og ófúsasmr til að vísa
hernum úr landi, þ.e.a.s. SIS-
auðvaldið.
Olíufélagið (ESSO) er einnig
SÍS-fyrirtæki að hluta og eru
20% heildarviðskipta þess við
herinn, eða hundruð milljóna
árlega.
Eimskipafélagið flytur allan
sjóflutning á vegum hersins
fyrir hátt verð og hefur í krafti
þess nánast komist í einokunar-
aðstöðu með sjóflutninga. Með-
al stjórnarmanna þess félags
eru Birgir Kjaran, fyrrv. þing-
maður íhaldsins, og Ingvar Vil-
hjálmsson og Ottar Möller,
kunnir sjálfstæðismenn.
Vífilfell selur hermönnum
hið vinsæla kók, en það fyrir-
tæki er í eigu Björns Olafsson-
ar, sjálfstæðismanns og fyrrv.
ráðherra. Einnig er Orn Vil-
hjálmsson Þór þar í stjórn.
Tryggingafélögin hafa mikil
viðskipti við herinn.
Hekla h/f skiptir við herinn
fyrir 50—100 milljónir árlega.
Athyglisvert er að eigendur
þess fyrirtækis eru jafnframt
eigendur Vísis, þess blaðs, sem
m.a. gerir skoðanakannanir
undir yfirskyni hlutleysis, sem
að dómi blaðsins sýna fram á
fylgi hernámshugsjónarinnar.
Fjölmörg önnur fyrirtæki
hafa viðskipti við herinn, fyrir-
tæki sem forysmmenn Sjálf-
stæðisflokksins eiga, og er aug-
ljóst að heildarviðskipti við her-
námsliðið nema milljörðum ár-
lega og að þau viðskipti færi
meiri gróða en nokkur annað
bísness hérlendis. Hins vegar er
aðra sögu að segja um efna-
hagsleg áhrif hernámsins á
landsmenn almennt. Vegna her-
semnnar hefur útgerð nær
lognast út af frá Keflavík, og
staðurinn fær ekki nauðsynlega
fyrirgreiðslu, þar sem her-
mansgróðinn er talinn nægja
honum. Leigjendur í Keflavík
hafa orðið fyrir barðinu á her-
náminu, sem hefur sprengt upp
verð á leiguhúsnæði þar sem
slóðir.
I ljósi þessara staðreynda
hlálegt að heyra hernámssinna
Framhald á bls. 14.
ÞEIR ERU
BEISNIR Á
BEISNUM
Þeir eru beisnir á beisnum
Ælægæg
Smæla til smælingjanna
Ælægæg
Og gauka að þeim smælkinu
Ælægæg
Dagur Sigurðarson
ÞRJÁR ÁSJÓNUR GEIRS HALLGRÍMSSONAR
, K/eeo vÍKjie, é& eÆfci y
j þ/ee G-oe-ÐiFRÉnmftL,
FLu&BeACjTAecefJG-tKJCrtrU
FÆft-fei OCVCOfe 'OO mco-aoKJA
GeÓBA ’.
Sd'AUF ST7EÖI SfUOEUSlfOS,
JMorgurthlaðiðl
FofcMW>ufc ÓTCrÁFO SrjófcjJAB:
HAUL&eÍHSSOK)
SfcoUofoo.M HEeíOAHS-
zzrrz ÁNDS wtfeitoG-A BÁfeA
H HA&SHuwie eUssA
KfiáSTaANJ At-eBerSSou t
RUSSAEUÍR «0HA !*
UF/ KjATO !(
4 — STÚDENTABLAÐIÐ