Stúdentablaðið - 01.12.1973, Blaðsíða 7
Drekkið kaffið og lesið blöðin í
NORRÆNA HÚSINU.
Kaffistofan opin virka daga kl. 9—18.
Sunnudaga kl. 13—18.
Bókasafnið opið kl. 14—19.
Laugardaga og sunnudaga kl. 14—17.
Velkomin í Norræna húsið.
NORR4ENA HUSIÐ
POHJOLAN TAIO
NORDENS HUS
Skærullðar PAIGC leggja á ráðin.
SJÁLFSTÆÐIS YFIRLÝS-
ING GUINEU-BISSAU
Þjóðarsamkunda Guineu-
Bissau og Grænhöfðaeyja átti
sér stað á frelsuðu landssvæði
suður þar dagana 23. og 24
sept. síðastliðinn. Hún fæddi af
sér sjálfstæðisyfirlýsingu Iýð-
veldisins Guineu-Bissau.
Síðan 1961 hafa innfæddir
þjóðernissinnar háð vopnaða
baráttu við nýlendukúgara sína,
en það eru bandamenn okkar
í NATO, Portúgalir. Aðrir
bandamenn okkar hafa aðstoð-
að portúgölsku fasistana dyggi-
lega, efnahagslega, stjórnmála-
lega og siðferðilega. Án morð-
tækja, þ. e. flugvéla, frá öðrum
NATO ríkjum hefði stjórninni
í Lissabon aldrei haldist uppi
að heyja grimmilegt kúgunar-
stríð sitt gegn íbúum Guineu-
Bissau og valda þeim heljar-
miklum blóðsúthellingum og
hörmungum.
Meirihluti landsins á valdi
þjóðfielsishrey f ingarinnar
Eftir tíu ára fórnfúsa bar-
áttu hefur íbúum Guineu-Bis-
sau tekist að ná á sitt vald
þrem fjórðu hlutum landsins,
sem spannar yfir 36.125 fer-
mílur, og hafa þeir fulla stjórn
á helmingi landsins.
1 frelsuðu héruðunum hefur
Afríski sjálfstæðisflokkurinn
(án gæsalappa) PAIGC sett á
laggirnar stjórnarstofnanir,
endurskipulagt efnahagslífið og
afnumið þrælkun og arðrán.
Nýlega sagði Aristides Per-
eira, aðalritari PAIGC, um
baráttuaðferðir þjóðfrelsishers-
ins: „Hernaðarmáttur okkar er
í höndum fólksins í landinu og
undir því kominn. Herflokkar
Skæruliðar leggja upp i leiðangur.
eiga sífellt í skærum við heri
nýlendukúgaranna, þar sem
þeir hafast enn við, með það
fyrir augum að ná algerum yf-
irráðum yfir landinu. Þjóð-
frelsisherinn hefur þeirri skyldu
að gegna að treysta líf og ör-
yggi á frelsuðu svæðunum. Nú
sem stendur er máttur okkar
meiri en nokkru sinni fyrr, eft-
ir meira en tíu ára vopnabar-
áttu.“
Það hefur komið á daginn
að Portúgölum er um megn að
ná aftur þeim landsvæðum,
sem þeir hafa misst, því að í
hvert skipti sem þeir hafa
freistað þess, er þeim svarað
með hörðu, jafnvel í höfuð-
borginni Bissau eða Bogata,
annarri mikilvægustu borg
landsins, og öðrum vígjum
Portúgala víðs vegar um land-
ið.
Lýðveldisstofnun
Á þingi PAIGC var ákveð-
ið að efna til þjóðarsamkundu
og lýsa þar yfir stofnun lýð-
veldisins Guineu-Bissau, koma
á fót stjórnarstofnunum og
taka í gildi stjórnarskrá til að
koma hinu nýja ríki í fast
horf samkvæmt kenningum
Amilcar Cabral, sem myrtur
var af útsendurum portúgalska
nýlenduveldisins. Fundinn sóttu
120 fulltrúar, kosnir á ráð-
stefnum í sextán héruðum
landsins, þ. á m. þeim sem
Portúgalir sitja enn í. Einnig
sátu fundinn fulltrúar verka-
lýðssambands Guineu-Bissau
og stúdenta og æskulýðssam-
taka. Þjóðarsamkundan stóð í
tvo daga.
Hátindur þessarar sögulegu
samkundu var sjálfstæðisyfir-
lýðveldis við gífurleg fagnað-
ast hafði saman í tilefni dags-
ins. Allar hörmungar síðustu
ára virtust hverfa eða umbreyt-
ast í hávær hvatningaróp í bar-
arlæti manngrúans sem safn-
áttunni við heimsvaldastefn-
una, og þakkarkveðjur voru
færðar m. a. Kúbu, Sovétríkj-
unum og Svíþjóð fyrir bróður-
lega aðstoð í frelsisbarátlunni.
Samkundan samþykkti ein-
róma fyrstu stjórnarskrá lýð-
lýsingin. Forseti þjóðarsam-
kundunnar lýsti yfir stofnun
veldisins. Samkvæmt henni er
þjóðarsamkundan æðsta stjórn-
unartæki ríkisins og svarar til
Alþingis Islendinga. í samræmí
vð 34. grein stjórnarskrárinnar
sóru fulltrúar eið með upp-
rétta hnefa: „Ég sver að leggja
mig allan fram til þess að meg-
inmarkmið stjórnarskrárinnar
nái fram að ganga: alger reikn-
ingsskil við stjórnarhætti ný-
lenduveldisins, sameining Gui-
neu og Grænhöfða og fram-
kvæmd þjóðfélagslegra um-
bóta.“ Stjórnarskráin kveður á
um stjómarhætti og stjórnun-
arstofnanir. Samkvæmt henni
skal valdið vera í höndum
vinnandi stétta í nánum tengsl-
um við PAIGC og þjóðfrelsis-
herinn FARP. Stjórnarskráin
kveður á um félagslegt jafnrétti,
jafnrétti kynjanna og rétt þegn-
anna til að njóta menntunar
og atvinnuöryggis. Á samkund-
unni var fæðingardagur Cab-
rals, 12. september, einróma
valinn þjóðhátíðardagur Gui-
neu-Bissau, til minningar um
sjálfstæðishetju þjóðarinnar.
Fyrsta ríkið sem viðurkenndi
nýstofnað lýðveldi Guineu-
Bissau, var nágrannaríkið Gui-
nea.
Ávöxtur erfiðis
í setningarræðu sinni fórust
Aristides Pereira svo orð um
sjálfstæðisyfirlýsinguna: „Að
liðinni 17 ára langri vopnaðri
og pólitískri baráttu og fórn-
um, eftir að þjóðin hefur orð-
ið að vökva svörðinn með
blóði sínu, svita og tárum, er-
um við í dag að uppskera hinn
kærkomna ávöxt, sem sprettur
upp vegna erfiðis okkar og
fórnfúss starfs á siðustu árum.
Við gróðursettum tré, sem er
flokkurinn okkar, og lögðum
á okkur heljarmikið erfiði tl
þess að sá meiður mætti bera
þann ávöxt sem er bitur þyrn-
ir í augum portúgölsku ný-
lendukúgaranna og banda-
manna þeirra, afrísku kvisling-
anna og allra þeirra sem ætíð
hafa neitað að leggja traust og
trúnað sinn á hæfileika Afríku-
búa í heild og þjóðar okkar
þó sérstaklega til að mola
hlekki erlendra kúgara og
losna undan arðráni þeirra.“
Ordráttur úr frásöögn
Correa Wilson, frétta-
manns Prensa Latina,
sem viðstaddur var
þjóðarsamkundu Giu-
neu-Bissau. —JoB
STÚDENTABLAÐIÐ — 7