Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1973, Page 10

Stúdentablaðið - 01.12.1973, Page 10
Pham Van Dong: Með Víetnam, í baráttu þess og endurreisn Eftirfarandi grein er eftir Pham Van Dong .forsætisráð- herra Alþýðulýðveldisins Víet- nam; hún birtist í tímaritinu World Youth, 3.-4. tbl. 1973: SAMSTAÐA ER MIKILVÆGUR ÞÁTTUR 1. Parísarsamkomulagið um „að binda endi á stríðið og koma aftur á friði í Víetnam1' var undirritað á grundvelli við- urkenningar á grundvallarrétt- indum Víetnama sem þjóðar. En Bandaríkin og Saigon- styrktar þeim friði sem rétt er kominn á í Víetnam. 2. 1 hinum sósíalíska norður- hluta vinnur víetnamska þjóð- in nú að því að annast þá sem særðust í stríðinu og endur- reisa landið sem lagt hefur verið í eyði af völdum stríðs- ins. Þetta er erfitt verkefni, sem krefst geysilegrar sam- þjöppunar krafta og gáfna. 1 kjölfar mikilla og árang- ursríkra sigra í föðurlandssinn- aðri baráttu gegn árás Banda- rikjanna, sem hafa skapað nýj- stjórnin hafa ekki hætt að brjóta mikilvægustu skuldbind- ingar samkomulagsins á blygð- unarlausan og kerfisbundinn hátt, og ógna þannig alvarlega þeim friði sem er í þann mund að komast á í Víetnam. Þess- vegna er varðveisla og styrking friðar mjög áríðandi og afar mikilvægt markmið í baráttu víetnömsku þjóðarinnar. Sem aðilar að undirritun Parísarsamkomulagsins og Samþykkt hinnar Alþjóðlegu ráðstefnu um Víetnam, þá er víetnamska þjóðin og ríkis- stjórn Alþýðulýðveldisins Víet- nam ásamt með Bráðabirgða- byltingarstjórninni í suðurhluta Víetnam, ákveðin í að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að virða nákvæmlega og gegna samviskusamlega skyld- um sínum og berjast á sama tíma af staðfestu og fast- heldni með það fyrir augum að knýja alla viðkomandi að- ila til að gera slíkt hið sama. Þetta er hið mikilvægasta til ar, vilhollar aðstæður, og með aðstoð vinveittra landa, mun þjóð okkar án vafa fá skráð nýja sigra í uppbyggingu sósí- alismans, — sköpun sósíalísks hagkerfis, sósíalískrar menn- ingar og sósíalisks einstaklings — í þeim tilgangi að efla styrk norðurhlutans í öllu tilliti; póli- tískt, efnahagslega, menningar- lega og hvað varðar varnir þjóðarinnar, en þetta mun auka áhrif hins sósíalíska norð- urhluta í þágu byltingarafla allra landa. BRENNANDI ÞRÁ 3. 1 suðurhluta Vietnam undir forystu Þjóðfrelsisfylk- ingarinnar (FNL) og Bráða- birgðabyltingarstjórnarinnar (BBS), eina réttmæta fulltrúa allra stétta meðal íbúa Suður- Víetnam, heyja félagar okkar ákveðna baráttu á þessu augna- augnabliki til að framfylgja vopnahléinu, til að varðveita og styrkja friðinn, til að ná þjóðlegu sjálfstæði, lýðréttind- um og samlyndi meðal þjóðar- innar. Þetta er brennandi þrá og knýjandi þörf alþýðu Suð- ur-Víetnam á öllum sviðum þjóðlífsins. En eins og allir vita, þá hefur Saigonstjórnin, með að- stoð og eggjan Bandaríkjanna, aftur og aftur beitt brögðum til ágangs gegn frelsuðu svæð- unum undir stjórn Bráða- birgðabyltingarstjórnar Lýð- veldisins Suður-Víetnam, haft á oddi stefnu kúgunar og ógna gegn öllum stéttum með- al íbúanna á þeim svæðum. sem eru undir hennar stjórn (Saigon), og komið í veg fyrir alla starfsemi í þágu friðar, lýðréttinda og samlyndis með- al þjóðarinnar. Hvað viðvík- ur borgurum, sem í haldi eru (pólitískum föngum), þá reyn- ir Saigonstjórnin allar mögu- legar leiðir til að komast hjá því að láta þetta fólk laust; og það sem meira er: hún gríp- ur til ákaflega villimannlegra aðferða ofsókna og morða. Það eru ennþá tugþúsundir bandarískra hermanna, dul- búnir sem borgarar, að verki ólöglega í suðurhluta Víetnam; hundruð þúsunda tonna af stríðstækjum hafa verið flutt inn og er haldið áfram að flytja inn í Suður-Víetnam. Allt þetta ber vitni um að Bandaríkin hafa ekki gefið upp á bátinn metnaðaráform sín og geigvænlegar ráðagerðir við- vikjandi Suður-Víetnam. Þau notfæra sér leppstjórn Nguyen Van Thieu með það fyrir aug- um að umbreyta suðurhluta Víetnam i bandaríska síð-ný- lendu og viðhalda skiptingu Víetnam. Andspænis þessu ástandi, er víetnamska þjóðin ákveðin í að berjast djarflega fyrir fram- kvæmd allra skuldbindinga Parisar-samkomulagsins og að fletta ofan af geigvænlegum ráðagerðum Washington og Saigon frammi fyrir almenn- ingsáliti heimsins. Fólkið berst af krafti og árangri, með að- stoð aukinnar samúðar og stuðnings þjóða hinna bróður- legu sósíalísku landa og þjóða alls heimsins, þar með talin framsækin alþýða Bandarikj- anna. Víetnamska þjóðin mun áreiðanlega ná fullum sigri fyrir sínum réttmæta og vissu- lega happasæla málstað. AÐ VARÐVEITA OG STYRKJA FRIÐINN 4. Velmegandi, lýðræðissinn- að, sjálfstætt, endursameinað. friðsælt Víetnam er hin helga hugsjón gjörvallrar víetnömsku þjóðarinnar frá norðri til suð- urs. Eins og Parísar-samkomu- lagið kveður skýrt á um, mun endursameining Víetnam eiga sér stað skref fyrir skref með friðsamlegum hætti, á grund- velli umræðna og sámkomu- lags milli hinna tveggja hluta. Framhald á bls. 15. FRÁ RÁÐSTEFNU YÍETNAMNEFNDAR Ráðstefna í Norræna húsinu, 10. nóv. 1973, sem Víetnam- nefndin á ísiandi boðaði til með aðildarsamtökum sinum og stuðningsfólki, sendir frá sér eftirfarandi ályktanir: Um Indókina: 1. Ráðstefnan vekur athygli á hinum sífelldu og stöðugt vax- andi brotum á Parísarsam- komulaginu um frið í Víet Nam, sem Saigonstjórnin með stuðningi Bandaríkjastjórnar gerir sig seka um. I því sambandi er bent á a) að enn eru yfir 200 þúsund pólitískir fangar í fangels- um og einangrunarbúðum Saigonstjórnarinnar.1) b) að enn eru í Suður-Víet Nam yfir 20.000 banda- rískir hermenn og hernað- arsérfræðingar, dulbúnir sem borgaralegir ráðgjafar, sem skv. upplýsingum flug- manna, sem teknir hafa verið til fanga, stjórna m.a. loftárásum Saigonstjórnar- innar.2) c) að loftárásir og landvinn- ingaherferðir Saigonhersins á yfirráðasvæði Bráðabirgða byltingarstjórnarinnar (BBS), færast nú stöðugt í aukana, d) að í fjárlögum Bandaríkja- stjórnar er gert ráð fyrir aukningu fjárveitingar til stríðsrekstrar í Indókína í formi hernaðaraðstoðar, úr 2.735 milljörðum dollara fyrir fjárhagsárið 1972— 73 í 4,069 milljarða fyrir árið 1973—74.3. Heimildir: 1) Chan Tin, kaþólskur prest- ur í Saigon. 2) GPA. 3) Elliot Richardson, fyrrum varna- og dómsmálaráð- herra USA. Ráðstefnan minnir á fyrir- heit Háskólabíósfundarins á gamlársdag ’72 með þátttöku forsvarsmanna stjórnarflokk- anna þriggja um viðurkenningu á Bráðabirgðabyltingarstjórn- inni, og stuðning við þjóðfrels- isbaráttuna í Víet Nam. Ráðstefnan krefst tafarlausr- ar viðurkenningar íslenzku rík- isstjórnarinnar á BBS. 3. Eftir að Bandaríkastjórn og Saigonstjórn voru þvingaðar til að hætta loftárásum sínum á Kambodíu í ágúst s.l., hafa þjóðfrelsisöflin undir forustu Hinnar konunglegu einingar- stjórnar Síhanúks (GRUNC) unnið stórfellda hernaðarsigra. Konunglega einingarstjórnin ræðuf nú nær öllu landinu og viðurkenning hennar er komin á dagskrá Allshérjarþings Sam- einuðu þjóðanna. I því sam- bandi krefst ráðstefnan viður- kenningar íslenzku ríkisstjórn- arinnar á Hinni konunglegu einingarstjórn Kambodíu og stuðnings við hana á vettvangi S.Þ. Um herstöðvamál: 1. Ráðstefna Víetnamhreyf- ingarinnar á Islandi, haldin 10. nóv. 1973, skorar á ríkisstjórn Islands að standa við fyrirheit málefnasamningsins um brott- för hersins af landinu. Jafnframt vill ráðstefnan ítreka, að ekki verði fallist á neins konar málamiðlun í her- stöðvamálinu. Ráðstefnan krefst skilyrðis- lausrar brottfarar alls hersins á kjörtímabilinu, að herstöðv- arnar verði lagðar niður og Island gangi úr Nató. 2. Ráðstefna VNI, 10. 11. ’73, vill beina þeirri áskorun til allra félaga og samtaka í landinu, sem vilja berjast gegn setu bandaríska hersins hér á landi, að þau hefji nú þegar hina öflugustu baráttu fyrir því að herinn hverfi á brott á kjör- tímabilinu og að herstöðvarnar verði lagðar niður. Ennfremur lýsir VNI sig reiðubúna til samstarfs við alla þá, sem fyrir þessu vilja berjast. Um önnur mál: Ráðstefna Víetnamnefndar- innar mótmælir harðlega veit- ingu friðarverðlauna Nóbels til Kissingers, fulltrúa þess heims- veldis, sem ber ábyrgð á ger- eyðingarstríðinu í Víet Nam og síendurteknum brotum á Parísarsamkomulaginu um frið í Víetnam. Samþ. samhljóða. 10 — STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.