Stúdentablaðið - 01.12.1973, Qupperneq 13
23 dagar
til
jóla
MARÍUVERS I
■
■
■
■
■
■
■
Aftur fann hún það upp á víst:
undur mjúklega á brjóstin þrýst,
— öllu öðru hún gleymdi.
Unaður, meiri en orð fá lýst,
inn í skaut hennar streymdi.
■
■
■
Blóðheit, frjósöm og fagurbyggð,
fann hún komið við sína dyggð,
— engan segginn þó sá hún. j
Heilögum anda yfirskyggð
aftur á bak þar lá hún.
■
■
Ástleitni guðsins ofurseld,
ævintýrið það sama kveld
syrgði hin sæla meyja:
Almáttugur! Ég held . . . ég held . . .
— hvað skyldi Jósef segja?
■
■
■
■
■
Jóhannes úr Kötlum
MENNTUN
Framhald af bls. 12.
skiptir þó mestu máli sú
menntamálastefna, sem í æ
ríkari mæli er fylgt í auðvalds-
ríkjunum, þ. e. að lögð er vax-
andi áhersla á að útskrifa á
sem skemmstum tíma sérfræð-
inga til hagnýtra starfa, á
kostnað vísindalegs gildis
námsins og möguleika til val-
frelsis. Stúdentar geta hins veg-
ar í krafti fjarlægðar sinnar
frá framleiðsluferlinu öðlast
vissa yfirsýn yfir þjóðfélags-
veruleikann. Þessar staðreynd-
ir ásamt þeirri, að stéttarstaða
menntamanna verður stöðugt
líkari stöðu öreigastéttarinnar,
valda því að námsmenn fylkja
sér óðum í hóp þeirra afla
sem stefna að kollvörpun auð-
valdsþjóðfélagsins og viðtöku
þeirra þjóðfélagshátta þar sem
„frjáls framþróun einstaklings-
ins er skilyrði fyrir frjálsri
framþróun heildarinnar“.
G.S.
NATÓ og . . .
Framhald af bls. 16.
York Times 3. marz 1965:
„Víetnam er ekki hinn raun-
verulegi kjarni málsins. Aðal-
atriðið er hvernig hægt sé að
sigra byltingarheri." Því eins og
sama blað hafði eftir Giap,
helsta hershöfðingja Víetnama
í þjóðfrelsisbarátmnni og nú-
verandi varnarmálaráðherra
Alþýðuveldisins Víetnam:
„Suður-Víetnam er fyrirmynd
þjóðfrelsishreyfinga vorra tíma.
Ef okkur tekst að vinna sigur
í þeirri sérstöku tegund styrj-
aldar sem bandarísku heims-
valdasinnarnir gera tilraunir
með í Suður-Víetnam, þá merk-
ir það að hægt er að vinna sig-
ur í slíkri styrjöld hvar sem er
í heiminum."
Þannig eru þeir friðarsamn-
ingar sem Bandaríkin hafa nú
neyðst til að undirrita (og þar
með viðurkennt sinn algera ó-
si.gur) mikilvæg hvatning til
þjoðfrelsisafla um heim allan.
I Víetnamstríðinu hafa
Bandaríkin ekki einungis haft
sér við h!ið leppherinn í Sai-
gon. Aðildarríki SEATO hafa
einnig látið jíeim í té hersveit-
ir (Astralía, Thailand). Þessi
staðreynd varðar okkur Islend-
inga mjög miklu og afstöðu
íslands til NATO, þó svo að
henni hafi lítil sem engin at-
hygli verið veitt í því sam-
bandi. Fvrrnefnd staðreynd
minnir okkur nefnilega á þær
kvaðir og skuldbindingar sem
Islendingar hafa axlað með að-
ild sinni að NATO (sbr. 5. gr.
Norður- Atlantshafssamnings-
ins). Hvenær sem Bandaríkin
telja hagsmunum sínum ógnað
— hernaðarlegum og efnahags-
legum — er Island skuldbund-
ið til að veita þeim aðstöðu til
umsvifa hér á landi. Varnar-
samningurinn svokallaði sem
gengið var frá 1951 ítrekaði
og skýrði j>etta atriði nánar, en
þar segir í 7. grein:
„Hvenær sem atburðir j>eir
verða, sem 5. og 6. grein
STÚDENTABLAÐIÐ
11. tölublað 1973
HÁTÍÐARBLAÐ 1. DES. 1973.
Otgefið af SHÍ og 1. des. nefnd.
Ritstjórar:
Rúnar Ármann Arthúrsson, ábm.
Gestur Guðmundson.
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans.
Prentun: Blaðaprent.
Norður- Atlantshafssamninigsins
tekur til, skal aðstaða sú, sem
veitt er með samningi þessum,
látin í té á sama hátt."
Onnur hlið á j»ssu máli er
sú að bandaríski heraflinn á
Islandi er í raun sterkasti valda-
aðilinn í landinu í krafti vopna
sinna. Við skyldum ekki gleyma
því að á undanförnum áramg-
um hafa Bandaríkin hvað eftir
annað ekki skirrst við að grípa
til hernaðarlegrar íhlumnar og
innrásar í lönd, j^egar þæim
hefur sýnst stjórnmálaþróun í
viðkomandi löndum sér óhag-
kvæm. Dæmin um þetta eru
mörg, svo sem Grikkland,
Tyrkland, Iran, Líbanon, Guate-
mala, Dóminíkanska lýðveldið,
Kúba, Suður Kórea, Laos, Kam-
bodía, að ógleymdu Víetnam.
Með tilvist. bandarísku her-
stöðvarinnar á Islandi er um
augljósa valdaaðstöðu að ræða.
Slíkri valdaaðstöðu fylgja ó-
hjákvæmilega stjórnmálaleg á-
hrif, og í raun er Norður-Atl-
antshafssamningurinn og „varn-
arsamningurinn" ekkert nema
staðfesting á jx?ssum áiirifum,
og mun um leið lagalegur
grundvöllur fyrir heimsvalda-
sinnaðri íhlumn Bandaríkjanna
*
á Islandi.
Rökrétt afleiðing af jsessu er
sú að Island er eitt af Jseim
löndum sem bandaríska heims-
valdastefnan hefur tök á. Bar-
átta okkar gegn bandarísku
NATO-herstöðinni á Islandi er
barátta gegn bandarísku heims-
valdastefnunni. Hún er háð í
fullri samstöðu með víet-
namskri alþýðu og þjóðfrelsis-
hreyfingum um allan heim.
Barátta okkar hér er NATO
BURT AF ÍSLANDI.
FFH & SRH
„Læra má af leik”
LEGO TANNHJÓL
Þroskandi skemmtun fyrir
unglinga á vélöld.
Ný tækifæri til þjálfunar
og þátttöku í tækni nútímans.
CLEGO DUPLO
Stórir LEGO-kubbar fyrir
yngstu börnin.
Einkum ætlaðir ungum börnum,
sem enn hafa ekki náð öruggri
stjórn á fingrum sínum.
Njótió góórar skemmtunar heima.
AÐALSKRIFSTOFA
REYKJALUNDI,
Simi 91 66200
Mosfellssveit
SKRIFSTOFA
I REYKJAVÍK
Suðurgata 10
Sími 22150
STÚDENTABLAÐIÐ — 13