Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1973, Qupperneq 15

Stúdentablaðið - 01.12.1973, Qupperneq 15
Ávarp Sveins Framhald af bls. 2. NATO, í ljósi baráttu alþýðu um allan heim gegn heims- valdastefnunni I apríl þessa árs gerðist það ennfremur, að þing Æskulýðs- sambands Islands ákvað að gera þessi mál að höfuðbaráttu- málum sambandsins. Ljóst er, að námsmenn og ungt fólk almennt, er á- kveðnast og fljótast til í j>ess- ari baráttu. Þannig er það um allan heim. En hér sem annars staðar er fólki að lærast bemr að skilja eðli heimsvaldastefn- unnar. Nóg eru dæmin. Ekki alls fyrir löngu fékk almenningur á Vesturlöndum að heyra fréttir sem öflugustu fjölmiðlar hafa lengi þagað yfir. Hér á ég við nýlendustríð portúgölsku NATO-herjanna í Angóla Mósambik og Gínea- Bissau. Þess er sömuleiðis að vænta, að þrátt fyrir tilburði ísl. vina fasismans í Chile, í fréttamiðl- um hér á landi, þá fordæmi Is- lendingar valdarán herforingj- anna, morðið á forseta lands- ins, Salvador Allende og ó- töldum fjölda manna, sem framarlega höfðu staðið í bar- áttunni gegn áhrifum banda- rískra auðhringa og fyrir lýð- ræði og félagslegum framför- um, og sýni samstöðu með al- þýðu Chile í baráttunni gegn fasisma og heimsvaldastefnu. Og þessa dagana fylgist fólk með því hvernig Bandaríkja- stjórn tekur þátt í nýlendustríði ísraela gegn þjóðum og í löndum Araba. En samt er enginn vafi á því að íslenzk alþýða hefur dregið sína skýrustu lærdóma og mun ávallt gera, af sinni eigin baráttu við heimsvalda- stefnuna. Innrás brezka NATO-flotans í ísl. lögsögu 19- maí s.l. opn- aði augu þeirra Islendinga sem sjá vilja, hverju hlutverki NATO í raun gegnir. Var ein- hver að tala um varnar- eða öryggisbandalag? Meira að segja Heimdelling- ar hlupu til með öðrum og hótuðu endurskoðun á aðild íslands að NATO. ísl. ríkisstjórnin lét hjá líða að slíta stjórnmálasambandi við Breta og NATO. A sama tíma hefur heilmikið sjónarspil verið sett á svið bæði hér og í Lundúnum og hefur Jósep Lúns, NATO-foringi komið fram í ýmsum gervum. Bretar kölluðu flotann út fyrir 50 mílurnar, en létu fylgja með þá hótun að inn réðust þeir afmr, ef ísl. landhelgis- gæzla dirfðist að snerta við landhelgisbrjótunum. Stjórnin mun hafa þáð þetta ógnar- vopnahlé, meðan forsætisráð- herra tygjaði sig til Lundúna- ferðar. Hann er snúinn aftur með samkomulagsdrög, sem fela ekki í sér viðurkenningu Breta á fiskveiðilögsögu íslands. Nú mun þess skammt að bíða, að Morgunblaðið krefjist friðarverðlauna til handa Jósep Lúns fyrir milligöngu hans um þetta samkomulag. Það kann vel að vera að siðleysingjarnir í Nóbelsnefnd Norska Stór- þingsins, sem engan greinar- mun gera á bandarískri heims- valdastefnu og þjóðfrelsisbar- átm Víetnama, verði Morgun- blaðsmönnum sammála í þessu sem öðm. En ísl. alþýða hefur fengið nóg af skollaleiknum. Hún sættir sig ekki við það að geng- ið verði að afarkostum Breta. Hún á engra hagsmuna að gæta í því að auðvelda NATO fótfesm á íslandi. Henni er hvorki vörn né öryggi í banda- rískum her á Islandi. Stéttarlegir hagsmunir ís- lenzkrar alþýðu eru aðrir. ÍSLAND ÚR NATO! HERINN BURT!______________ Ræða Jóns Framhald af bls. 2. þeir aldrei átt erindi og við það eiga þeir engar skuldbind- ingar lengur. Við krefjumst þess að íslendingar lýsi yfir stuðningi við vinaþjóðir okk- ar meðal nýfrjálsra þjóða og þjóða þriðja heimsins; þar falla saman hagræn og siðræn sjón- armið. Og fullveldisdeginum sýnum við mestan sóma með því að helga honum þennan málstað. Ekki skal ég svo úr ræðu- stóli fara, að ég víki ekki lítil- lega að bákninu góða, þótt þar sjáist lítt handaskil fyrir þoku og froðu. Mér er þó kært að lýsa því yfir hér, að vernd gróðurs, aukið tillit til manns- ins, dreifing þekkingar, mann- fólag réttlætis og virkt lýðræði eru meðal baráttumála Verð- andi. Verðandi berst líka gegn stöðnuðum stjórnvöldum og vélvæddu mannlífi. Fjarstýrð skoðanamyndun er líka alvar- legt fyrirbæri að okkar dómi. Við leggjum til að Vaka gangi til samstarfs við okkur í bar- áttunni gegn því, og í fyrsta áfanga mætti hugsa sér að breyta Morgunblaðshöllinni í t. d. ódýrt leiguhúsnæði fyrir verkafólk. Um malbikað borg- arlíf er það að segja, að við höfum ekki haft spurnir af því, að til stæði að malbika Reykvíkinga, en ég held að það hljóti að vera vont að láta malbika sig, sérstaklega ef not- aðir eru þessir stóru og þungu valtarar. En þar sem ég er úr sveit, þykir mér vænt um mal- bik, því að Bísleifur hefur sagt, að gróðurinn elti malbik- ið. Mér er kunnugt að almenn- ur áhugi er hjá bændum að malbika ofbeittar afréttar sín- ar. Það er að vísu dýrt að klæða landið á þennan hátt, en afurðirnar aukast og við vitum líka, að báknið lánar stundum fé mönnum, sem hafa meira umleikis en svo, að þeir geti staðið undir því af sjálfsdáð- um. En þeir hinir sömu geta þá sagt eins og Loðvík 14.: Báknið, það er ég. Pham Van... Framhald af bls. 10. Gagnvart okkar fólki, þá hef- ur baráttan fyrir kröfunni um að allir aðilar virði nákvæm- lega og framfylgi samvizku- samlega Parísar-samkomulag- inu; ennfremur það markmið að skapa hin ótvíræðu skilyrði til friðsamlegrar endursamein- ingar landsins. Ef um verður að ræða frið, þjóðlegt sjálf- stæði, lýðréttindi og samlyndi þjóðarinnar, þá mun friðsam- leg endursameining Víetnam eiga sér stað. VÍETNÖMSK ÆSKA SLÁANDI AFL í stuttu máli þá eru mark- miðin fjögur í baráttu víet- nömsku þjóðarinnar nú þessi: a) Að verja og styrkja frið- inn. b) Að reisa sósíalisma í norðri og efla Alþýðulýðveldið Víetnam á öllum sviðum. c) Að leiða til lykta hina þjóðlegu, lýðræðislegu byltingu í suðurhluta Víetnam, og: d) Að sækja fram til frið- samlegrar endursameiningar Víetnam. I föðurlandssinnuðu mót- spyrnustríði okkar gegn árás Bandaríkjanna, hefur víet- nömsk æska alltaf verið sláandi afl; stöðugt reiðu- búin að takast á hendur öll torveld og sæmdarfull verk- efni. Núna, í endurreisn hins stríðseydda lands, heldur sigur- sæll kraftur hennar áfram að vera sláandi afl í uppbyggingu sósíalisnians í norðurhluta Víetnam. Æskan er afl, sem land okk- ar og ríki getur treyst á. Við erum þess fullviss að ungir Víetnamar munu ásamt með öðrum landsmönnum ná at- hyglisverðum árangri á öllum sviðum; framleiðslu, námi og undirbúningi fyrir baráttu, og leggja þannig af mörkum sinn verðuga skerf til málstað- ar hinnar þjóðlegu byltingar. Víetnamska þjóðin hefur í baráttu sinni gegn bandarísku, heimsvaldasinnuðu árásar- mönnunum ávallt notið sam- úðar og stuðnings sósíalísku bræðralandanna, og vina sinna í heimsálfunum fimm, þar með talda æsku heimsins. Þessi samúð og stuðningur var mik- ilvægur þáttur, sem stuðlaði að okkar nýlega, sögulega sigri. Víetnamska þjóðin er sannfærð um, að í baráttunni fyrir því, að verja friðinn, byggja upp sósíalisma í Alþýðulýðveldinu Víetnam, ná fullu sjálfstæði og lýðræði í Suðrinu, sækja fram til friðsamlegrar endur- sameiningar Víetnam. fyrir því að reisa friðsælt, endur- sameinað, sjálfstætt, lýðræðis- iegt og velmegnandi Víetnam og að leggja fram sinn skerf til varnar friði í Suð-Austur-Asíu og heiminum, þá munum við halda áfram að njóta öflugs stuðnings og gífurlegrar og á- hrifamikillar aðstoðar hinna bróðurlegu sósíalísku landa, framsækinna þjóða um allan heim og hinna sterku afla æsku og stúdenta um gervallan heim. (Oopinber þýð. — srh) Ógnarlæti Framhald af bls. 5. inu í Indókína. Obeint hafa þau öfl sem að baki þessum her standa, stuðlað að valda- ráninu í Chile og ótal öðrum fasistabyltingum um allan heim. Og æðsti yfirmaður hers- ins, Richard Nixon, er yfirlýst- ur misindismaður og lygari sem fáir trúa eða treysta. A meðan íhaldið syngur NATO lof og prís, situr af- kvæmi þess, fasistaklíkan gríska, í sínum sess og beitir þjóð sína kúgun og ofbeldi. Portúgalska einræðisstjórnin rekur grimmileg nýlendustríð, og sjálfir þekkjum við Islend- ingar NATO-„verndina" af eigin raun úr þorskastríðinu. Hvers konar menn vilja eiga svona vini? Hvers konar menn vilja svona verndara? Hvers konar menn? HASICOLA STÚDENTAR AFSLATTUR Notfærið ykkur hin sérstöku kjör, sem við bjóðum háskólastúdentum einum. Við veitum ykkur 10% afslátt af öllum viðskiptum við verzlanir okkar gegn framvísun skírteinis. TI'ZKUVERZLUN LAUGAVEGI 47 SÍM117575 Coctailsósa &sinnepssósa Cocktailsósa: f2 dl af tómatsósu í dós af sýrÓum rjóma. Sinnepssósa: 2 msk af sinnepi í dós af sýróum rjóma. Gott meó fiski, pylsum, hamborgurum, steiktu kjöti, kjúklingum, kryddsíld, humar, rœkju o.fl. MJÓLKURSAMSALAN í REYKJAVÍK 1 CREME í FRAICHE STÚDENTABLAÐIÐ — 15

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.