Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1973, Síða 16

Stúdentablaðið - 01.12.1973, Síða 16
NATO OG HEIMS VALDASTEFNAN Vilji maður gera sér grein fyrir heimsvaldastefnunni er nærtækast að leita til hinnar alþýðlegu skýringar sem V. I. Lenin gaf á henni í riti sínu Heimsvaldastefnan, hæsta stig auðvaldsins (19l6). I þessu frá- bæra og aðgengilega riti gefur hann eftirfarandi skýringu: „Heimsvaldastefnan er tíma- bil fjármálaauðvalds og einok- unar, sem allsstaðar ryður braut yfirdrottnun en ekki frelsi. Af- leiðing þessarar tilhneigingar er afturhald á öllum sviðum, við hvaða sjórnmálafyrirkomulag sem er, og enn frekari aukn- ing ríkjandi andstæðna á þessu sviði. Einkanlega fer í vöxt þjóðerniskúgun og ásókn eftir landvinningum, þ.e.a.s. skerðing á þjóðfrelsi (því að landvinn- ingar eru ekkert annað en skerðing á sjálfsákvörðunarrétti þjóða)." (bls. 160). Þessi skýring á eðli heims- valdastefnunnar er enn í fullu gildi. En hér verður fyrst og fremst fjallað um bandarísku heimsvaldastefnuna sem er höf- uðóvinur mannkynsins nú á tímum. í bók sinni Agonie de l’Indo chine gefur franski hershöfð- inginn Navarre prýðisgóða mynd (e.t.v. alveg óvart) af aðferðum bandarísku heims- valdastefnunnar í Indókína*. Þar segir hann (bls. 331): „Nú 'einbeita Bandaríkin sér að breska heimsveldinu og þó sérstaklega okkar (franska) heimsveldi, en með breyttum aðferðum. Þau „aðstoða" ný- lenduþjóðirnar. Þau reisa her- stöðvar í löndum þeirra. Þau senda þangað óteljandi sendi- nefndir, á sviði hernaðar, efna- hags, utanríkisþjónustu, menn- ingar, trúmála og búa þær gild- um sjóðum. Þau sýna hvernig lífið mundi verða betra og auð- veldara — í það minsta fyrir leiðtogana — í „frjálsri" um- gengni við Bandaríkin, frem- ur en undir drottnun okkar. Við öll tækifæri sem gefast, tjá þeir samúð bandarísku þjóð- arinnar með vonum nýlendu- þjóðanna og um leið andúð á okkur. Á kerfisbundinn hátt hvetja þeir áfram alla and- stæðinga okkar. Þeir kalta Sameinuðu þjóðirnar sér til bjargar, cf nauðsynlegt reyn- ist Smám saman ýta þeir okk- ur burt. Þeir koma í staða okk- ar, en á nær ósýnilegan hátt sem er aðeins mögulegur fyrir tilstilli dollaravaldsins. Það er enginn landstjóri, enginn lands- fógeti, en það er til staðar sendiherra Bandaríkjanna, og án hans leyfis er ekki hægt að gera neitt. Þjóðirnar halda að þær séu frjálsar, vegna þess að stjórnvöld eru af þeirra eigin kynstofni, en þær sjá ekki að *Navarre var yfirhershöfðingi franska heraflans í Indókína á árunum 1953—54, þess her- afla sem beið ósigur fyrir þjóð- frelsisherjunum í Vétnam við Dien Bien Phu 7. maí 1954. valdhafarnir eru gjörsamlega háðir áhrifum peninga, eru að- eins leppar Bandaríkjanna." HERNAÐAR- BANDALÖG USA Hið heimsvaldasinnaða eðli einokunarauðvaldsins kemur í ljós í samningum Bandaríkj- annaa við önnur ríki. Þannig er NATO samningurinn aug- ljóst tæki bandarískrar heims- valdaastefnu; önnur, fjórða og sjöttá gr. samningsins tala einna skýrasta máli um það. Með þessum greinum tryggja en þó einkum hernaðarlega að- stöðu í aðildarlöndunum. Þetta fyrirkomulag Banda- ríkjanna að stofna til hernaðar- bandalags er á engan hátt bundið við NATO-ríkin ein. Á sama tíma og McCharty-isminn tröllreið bandarísku þjóðfélagi og kaldastríðsáróðurinn var í hámarki stóð Bandaríkjastjórn fyrir stofnun hernaðarbanda- laga um alla jarðarkringluna. Sérstök áhersla var lögð á „að girða af" hinn sósíalíska heims- hluta. Þannig settu þeir á laggirnar NATO 1949 (14 aðildarríki). SEATO (Suðaustur-Asíu banda- lagið' var stofnað 1954 með aðild 7 ríkja (USA, Bretland, Frakkland, Ástralía, Thaíland, Filippseyjar og Pakistan) stuttu eftir að samningarnir um Víet Nain voru gerðir, (sem Banda- ríkjastjórn neitaði að undirrita). CENTO (Mið-Asíu bandalagið) varð til upp úr Bagdað-banda- laginu (stofnað 1955) með að- ild Bandaríkjanna, Stóra-Bret- lands, Tyrklands, Irans, Pakist- an og Iraks. (Irak sagði sig úr bandalaginu 1959 og þá var nafninu breytt í CENTO). AN- ZUS heitir enn eitt hernaðar- bandalagið sem Bandaríkin komu á laggirnar á svipuðum tíma en x því eru aðeins 3 ríki, Ástralía og Nýja-Sjáland auk USA. (Athyglisvert er að virða fyrir sér á heimskorti staðsetn- ingu þessara bandalaga sem umkringja Sovétríkin, Austur- Evrópu og Kína). Auk þessara samninga við fjölda ríkja í öllum heimsálf- um fyrst og fremst í þeim til- Baráttusamkoma í Háskólabíói 1. des. kl. 2 Tveggja tíma samfelld dagskrá undir einkunn- arorðunum: ÍSLAND ÚR NATO — HERINN BURT Ræðumaður: VÉSTEINN LÚÐVÍKSSON. Fjölmennið og sýnið samstöðu í verki. 1. des. nefnd gangi að halda við lýði aftur- haldsstjórnum sem eru um leið undirgefnar Bandaríkjunum, og þjóna í einu og öllu hagsmun- um einokunarauðvaldsins. Hét má nefna sem dæmi Suður- Kóreu, Formósu, Saigon-stjórn- ina o.s.frv. Suður-Ameríka slapp að sjálfsögðu ekki, þrátt fyrir landfræðilega fjarlægð sína frá hinum sósíalíska heims- hluta. Enda var hér verið að treysta í fyrsta og síðasta lagi stöðu bandarísku auðhringanna með hervaldi. Það var þegar árið 1947 sem OAS var sett á laggirnar sem „varnarsamfélag" 20 ríkja. Oll þessi bandalög eru al- gerlega sambærileg við NATO. I sáttmálunum eru ákvæði um að þau skuli jafnt verjast vopn- aðri árás utanfrá sem og innan- frá. M. ö. o. bandalögum þess- um er ekki hvað síst beint gegn þjóðfrelsisöflum í aðild- arlöndunum sjálfum. I dag eru Bandaríkin með um 3000 her- stöðvar um allan heim og meira en ein milljón banda- rískra hermanna eru utan Bandaríkjanna sjálfra. Banda- ríski sagnfræðingurinn David Horowitz hefur kallað umrædda stefnu Bandaríkjanna „herkvía stefnuna", sem lýsir sér í þeirri viðleitni að „setja hinn komm- úníska heim í herkví" og hindra sigur þjóðfrelsishreyf- inga í löndum sem eru innan hins bandaríska áhrifasvæðis. EKKl „MISTÖK" EÐA „GEÐBILUN" Árásarstríð Bandaríkjanna í Indókína er þess vegna ekki nein „mistök" eins og oft er reynt að láta í veðri vaka, né stafa heldur ógnarloftárásir Bandaríkjanna nú síðustu vik- urnar af „geðbilún" Nixons. Bandaríkin hófu árásarstríð sitt í Indókína til að viðhalda efnahagslegum ítökum sínum í Suðaustur-Asíu, — auðlind- unum (tini, olíu, gúmmíi o.fl.) —• markaði fyrir eigin offram- leiðslu og hernaðarlegri að- stöðu í samræmi við fyrr- greinda herkvíastefnu. Itök þessi voru sannarlega í hættu eftir að Víetnamar höfðu unn- ið sigur á frönsku herjunum. (Bandaríkin höfðu reyndar staðið undir 80% af stríðs- kostnaði Frakka allt frá árinu 1950). Með tímanum hefur Víet- namstríðið fengið annað og mikilvægara inntak. C. L. Sulz- berger lýsti því svo í New Framhald á 13. síðu. FRÓM ÓSK „Sú væri einmitt hin mesta hætta sem að Islandi gæti steðjað að skammsýn Bandaríkjastjórn (þeir geta verið óheppnir með stjórn eins og aðrir) teldi samkvæmt samningum skylt að láta undan óviturlegum óskum ís- lenskra stjórnvalda um heimkvaðningu varnarliðsins. Þá gæti þess verið skammt að bíða að úti væri um Is- land.“ Morgunblaðið 25. ágúst 1970; Kristján Albertsson, helsti sérfræðingur Morgunblaðsins og Sjálfstæðis- flokksins í utanríkismálum um áratuga skeið. (Minnist einhver bréfaskrifa rússadindla í Tékkó- slóvakíu fyrir innrásina 1968?) 16 — STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.