Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 06.03.1978, Side 3

Stúdentablaðið - 06.03.1978, Side 3
Stúdentablaðið 3 *8 Vinstrimenn hafa gefið út fyrir þessar kosningar 8 síðna blað til að kynna stefnu sína og framboð. Eru stú- dentar eindregið hvatt- ir til að lesa blaðið sem þeir hafa fengið sent heim í pósti. ( Blaði vinstrimanna er stefnuskrá okkar birt, viðtöl eru við formann stúdentaráðs og nokkra frambjóðendur og auk þess greinar um lána- mál, Félagsstof nun stúdenta og fjöldatak- markanir í læknadeild. xfi Stefna vinstrimanna Að venju hafa vinstrimenn i Háskóla íslands sett fram itar- lega og málefnalega stefnuskrá i háskólaráðs- og stúdentaráðs- kosningum. Stefnuskrá þeirra vorið 1978 er birt i heild i Blaði vinstrimanna sem kom út i sið- ustu viku. 1 formála stefnu- skrárinnar er vakin athygii á þvi að kosningarnar fari að þessu sinni fram i skugga harkalegra kjararánsaðgerða rikisvaldsins, sem stærstu sam- tök launafólks i landinu hafi sameinast um að verjast. Sama rikisstjórn hafi i vetur sýnt námsmönnum fullan f jandskap. Þvi er lýst yfir að vinstrimenn vilji að námsmannahreyfingin haldiáfram að skipa sér við hlið verkalýðshreyfingarinnar á virkan hátt og jafnframt eru námsmenn hvattir til stuðnings við andheimsvaldasinnaða bar- áttu og kvenfrelsisbaráttu. Þá hvetja þeir námsmenn sjálfa til órofa samstöðu um hagsmuna- mái sin. 1 menntamálum er höfuökjör- orð vinstrimanna menntun er mannréttindi. Þeir lýsa yfir fullri andstöðu við hvers kyns fjöldatakmarkanir i Háskólan- um og setja fram kröfu um frjálst námsval. Þeir berjast gegn hækkun lágmarkseink- unna, óhóflegu vinnuálagi, lækkun útgjalda til mennta- mála, slæmri kennsluaðstöðu, kröfum ajvinnurekenda um hlutdeild í stjórn menntakerfis- ins og atlögum rikisvaldsins að stúdentum með óraunhæfum námsmarkareglum LtN. Þeir setja fram kröfu um lýðræðis- lega stjórnskipan Háskólans og telja að til þess að það geti orðið að veruleika þurfi allt starfsfólk skólans, kennarar, nemendur og aðrir að hafa jafnan atkvæðisrétt.Einn maður — eitt atkvæði. í lánamálum er höfuðkjörorð vinstrimanna „jafnrétti til náms”. t þvi felst að sérhverj- um eigi að vera kleift að stunda það nám sem hann æskir án til- lits til félagslegra aðstæðna. Helstu kröfur vinstrimanna í lánamálum eru: 1. Full lán á grundvelli ófalsaðs kostnaðar- mats. 2. Fullt tillit til fjölskyldu námsmanns. 3. Allt framhalds- nám verði lánshæft. 4. Jafnrétti alls náms til lána. 5. Timanlega útborgun lána. 6. Gegn visitölu- bundnum endurgreiðslum námslána. 7. Endurgreiðslur miðist við greiðslugetu mennta- manna — engar endurgreiðslur á lágmarkslaunum. 1 stefnuskrá vinstrimanna segir einnig að mjög brýnt sé að auka þekkingu námsmanna á lánamálunum og öðrum hags- munamálum námsmanna. Þeir telja að þetta verði m.a. gert með aukinni kynningu i menntaskólunum og innan deildarfélaga Háskólans. Vinstrimenn leggja á það áherslu að sem flestir úr þeirra hópi taki þátt i uppbyggingu deildarfélaganna og vinni að þvi að gera þau að baráttutækj- um i iagsmunamálum stúdenta. Vinstrimenn lita svo á að Félagsstofnun stúdenta (FS) hafi tviþættu hlutverki að gegna. Annars vegar á hún að veita þjónustu er miðar að þvi að lækka beinan kostnað vegna námsins. Hins vegar á hún að selja þjónustu er lýtur að bein- um nauðþurftum,' fæöi, húsnæði o.þ.h. Vinstrimenn telja að höfuðá- stæðan fyrir rekstrarvanda Félagsstofnunar sé sú að rikis- framlagið hafi dregist saman undanfarin ár svo það er orðið að hreinum gervistuðningi. Þeir minna á loforð rikisvaldsins um að tryggja rekstur FS við stofn- un fyrirtækisins 1968 og telja að knýja verði rikisvaldið til að standa við fyrirheit sin. Ef rikisvaldið verður ekki við kröf- um stúdenta og heldur áfram að svelta FS fjárhagslega verður að taka upp róttæka rekstrar- stefnu, sem m.a. felst i þvi að fyrirtækið neiti að greiða opin- bergjöld til rikisins og skammti sér þannig sjálft það fjármagn sem það þarf. Vinstrimenn leggja sérstaka áherslu á að rikisframlagið til stúdentagarðanna verði hækkað verulega og benda á að garð- arnir eru að hruni komnir og ekki ibúðarhæfir ef ekki verður tekið i taumana. 1 utanrikismálum leggja vinstrimenn sem fyrr áherslu á að efla tengslin við norræna stúdentahreyfingu og áfram- haldandi þátttöku i norrænu formannaráðstefnunni (NOM). Þá telja vinstrimenn að islensk- um stúdentum beri að taka þátt i alþjóðlegri baráttu gegn heimsvaldastefnu. Vinstrimenn leggja áherslu á baráttuna gegn erlendum herstöðvum á Islandi og fyrir úrsögn Islands úr NATO. Vinstrimenn styðja and- fasiska baráttu og alla baráttu fyrir lýðréttindum. Þeir styðja þjóðfrelsisbaráttu græn- lendinga og baráttuna fyrir frelsun pólitiskra fanga hvar sem er i heiminum. Vinstri- menn berjast gegn rányrkju heimsvaldasinna á auðlindum og ibúum jarðar. 1 þvi sambandi styðja þeir starf „Baráttuhreyf- ingar gegn heimsvaldastefnu.” Vinstrimenn i Háskóla Islands sameina innan sinna vé- banda námsmenn með ólikar pólitiskar skoðanir. Innan sam- fylkingarinnar eru menn úr ólikum flokkum og samtökum og utan þeirra, sem eiga þáð sameiginlegt að vera til vinstri við Sjálfstæðisflokkinn. Sam- staða er meðal vinstrimanna um baráttu fyrir hagsmuna- málum námsmanna og um þá stefnuskrá sem hér hefur laus- lega verið kynnt. Listi vinstrimanna er B-list- inn. Er Vaka útibú frá Sjálfstæðisflokknum? Sirkus (Hólm)steina smart. öllum sem hefja nám við H.í. verður fljótlega ljóst, að innan skólans starfar litið útibú frá sirkus Geira smart — Vaka félag „lýðræðissinnaðra” stúdenta. Sirkus er reyndar engu minna réttnefni á Vöku en móðurflokkn- um stóra, þvi gegnum rysjóttar tiðir hefur margur konstugur trúður sprottið úr f jólugarði Vöku og siðasta og bestþekkta dæmið nú um stundir er náttúrlega Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Að sönnu hefur vegur þess vig- reifa andskota vinstrihyggjú af öllu tagi ekki alltaf staðið jafnhátt meðal „lýðræðislegra” stúdenta. Það er t.a.m. ekki langt siðan sómakær forysta Vöku útilokaði hann frá störfum sinum, þegar böndin bárust að Hannesi sem heimildarmanni Morgunblaðsins að lognum fréttum um afgreiðslu Stúdentaráðs á tillögu til fordæm- ingar á fikniefnum. Um það mál hefur reyndar oft áður verið f jall- að iblöðum stúdenta, og óþarfi að tiunda þær deilur á ný. Aftur á móti segir það sina sögu um Vöku i dag, að nú er Hannes orðinn innsti koppur i búri hennar, orð- inn leiðtogi hóps harðsnúinna Heimdellinga sem stjórna Vöku einsog hljómsveitarstjóri hljóm- sveit, og eiga sér þá ósk heitasta að sem flestir stúdentar dilli sér eftir hljómfallinu. Fjárhagsleg tengsl Vöku og Sjálfstæðismanna. Um náin tengsl Vöku og Sjálf- stæðisflokksins vitnar þó margt fleira en vera Heimdellinga i kjarna Vöku. Það er t.a.m. kostnaöarsamt að standa straum af félagi, sem oft á tlðum stendur i umfangsmikilli og fjárfrekri blaðaútgáfu. Þetta hafa vinstri menn oftlega reynt, og þurft að standa fyrir happdrættum, dans- leikjum og stundum samskotum til að ná endum saman. Félag „lýðræðissinnaðra” stúdenta er aftur á móti hafið yfir þess konar búhokur — það leysir sin vanda- mál á þann einfalda hátt að senda árlega betlibréf til álitlegs hóps auðugra Sjálfstæðismanna og biðja um framlög til sinnar göfugu iðju. Þessi aðferð hefur gefist vel, enda lita Sjálfstæöis- menn almennt á Vöku sem deild flokksins I Háskólanum og telja þvi sjálfsagt að styrkja stráka- greyin. Eitt slíkt betlibréf var les- ið upp á kosningafundi á sl. ári og vakti mikinn fögnuð fundar- manna. Heimavígstöðvarnar heita Albert Hall. Þegar kosningar fara i hönd njóta Vökumenn einnig tengsla sinna við sirkus Geira smart á rikulegan hátt. Þá fá þeir jafnan aðstöðu til hringinga og annars kosningaundirbúnings i húsi þvi sem Sjálfstæðisflokkurinn á við Háaleitisbraut og er ýmist nefnt Ármannsfell eða Albert Hall. Þrátt fyrir að þetta sé á allra vit- orði neitar Vaka enn öllum tengslum við Sjálfstæðisflokkinn. Það ber vott um aðdáunarverða staðfestu, sem ber að virða. Bundnir á klafa flokksins. Það er vissulega rétt hjá Vöku- mönnum, að félag þeirra er ekki i beinum skipulagsbundnum tengslum við Sjálfstæðisflokkinn. Aftur á móti er ljóst, að Vaka nýt- ur ýmissar vildar af hálfu flokks- ins, sem ekki verður skilin á ann- an hátt en þann, að flokkurinn tel- ur sig hafa einhvern hag af góð- um þrifnaði Vöku. Sú afstaða Sjálfstæðisflokksins verður ekki skýrð með öðru en þvi, að stefna Vöku fer saman við megindrætti þess hugmyndakerfis sem hann grundvallar starf sitt á. Þessu hefur Vaka ævinlega neitað. Sé á hinn bógin einhver fótur fyrir þeirri staðhæfingu að stefna Vöku Framhald á 4. siðu „Frumkvæði” Vökuvarfrumhlaup Frá þvi hefur verið skýrt i Stúdentablaðinu að Vaka, félag hægri stúdenta, átti frumkvæði að þvi að senda fjárveitinga- nefnd Alþingis áskorunarbréf um hækkun rikisframlagsins til Lánasjóðs islenskra námsmanna. Svipaðar hugmyndir höfðu reyndar komið áður fram hjá vinstrimönnum. En það er athyglisvert að i þessu máli skipaði Vaka pólitisk- um einkahagsmunum sinum ofar hagsmunum námsmanna. Áskorunarherferð hennar var skipulögðán nokkurs samráðs við stúdentaráð, deildarfélög Háskólans eöa kjarabaráttunefnd námsmanna, sem þá voru að undirbúa mótmælaaðgerðir i lánamálum. Að fáum dögum liðnum kom i ljós að herferð Vöku var hreint glappaskot, illa skipulögð og vanhugsuð. Vinstrimenn gerðu sér grein fyrir þvi að ef örfá áskorunarbréf. bærust fjárveitinganefnd mundi hún túlka það sem almennt áhugaleysi námsmanna um kjaramál sin. Þvi var ákveðið i samráði við Vöku að stúdentaráð og kjarabaráttunefnd náms- manna yfirtækju áskorunarherferðina. Eftir á kom i ljós að vinstrimenn höfðu rétt fyrir sér. Vöku hafði aðeins tekist að safna saman um 100 áskorunarbréfum. A örfáum dögum tókst stúdentaráði og kjarabaráttunefnd hins vegar að tólffalda þá tölu og skiluðu fjárveitinganefnd Alþingis 1200 áskorunarbréfum. Þannig tókst vinstrimönnum að koma i veg fyrir að frumhlaup Vöku yrði námsmönnum til tjóns. J Greidum atkvædi gegn Numerus Clausus Tvo vinstrimenn í háskólaráð! Eitt helsta deiluefni i stúdenta- baráttunni i Háskólanum er af- staðah til fjöldatakmarkana (Numerus Clausus). Afstaða vinstrimanna er skýr og af- dráttarlaus. Þeir berjast gegn öllum takmörkunum undir kjör- orðinu menntun er mannréttindi. Þeir telja að faglegar kröfur eigi að ráða framvindu náms en hvorki duttlungar afturhalds- samra prófessora né s.n. „þarfir atvinnuveganna”, þ.e. atvinnu- rekenda. Afstaða Vöku einkennist af hálfvelgju og hiki. I stað þess að berjastgegn öllum takmörkunum vilja Vökumenn velja „skástu leiðina” og makka viö háskóla- yfirvöld um það hvernig fara eigi að þvi að skerða réttindi stúdenta. Vaka hefur tek- ið afstöðu með þeirri frá- leitu kenningu eins af laga- prófessorum ihaldsins að núverandi fjöldatakmörkun i læknadeild sé i samræmi við reglugerð Háskólans. I sam- ræmi við það hefur fulltrúi Vöku i háskólaráði ekki mótmælt Num- erus Clausus heldur látið vinstri mönnum eftir að halda uppi málsvörn fyrir læknanema. Það er þvi ljóst að með þvi að kjósa nýjan Vökumann i háskóla- ráð er verið að kjósa gegn hags- munum stúdenta. Hætta er á þvi að þá myndist meirihluti i ráðinu sem er fjandsamlegur réttindum stúdenta og kann að koma á tak- mörkunum ifleiri háskóladeildum Vinstrimenn skora á stúdenta að kjósa ekki lista Vöku til há- skólaráðs og benda á aö kjörseð- illinn er tviskiptur, svo þeir sem viija styðja Vöku i stúdentaráð geta kosið tvo eindregna and- stæðinga fjöldatakmarkana, Pét- ur Orra Jónsson viðskiptanema og Vilhelminu Haraldsdóttur læknanema, i háskólaráð með þvi að greiða lista vinstrimanna þar atkv^ý sitt. AL.væði greitt B-Iistanum er atkvæði gegn Numerus Clausus! Engan stuðningsmann fjöldatak- markana i háskólaráð!

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.