Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 06.03.1978, Side 4

Stúdentablaðið - 06.03.1978, Side 4
Skilafrestur Skilafrestur efnis i næsta tbl. sem kemur út i apríl er til 30. mars n.k. 8. mars, alþjóðlegur baráttudagur verkakvenna S.MARS!! alþjúdli'nur luiniltuilagur vrrluikiriina 8. mars var geröur að alþjóð- legum baráttudegi á ráðstefnu sem haldin var af róttækum konum i Kaupmannahöfn áriö 1910. Frumkvæðið að þessu átti hinn frægi, þýski baráttumaður og kommúnisti, Klara Zetkin. Baráttudagurinn 8. mars á sér þannig langa og viðburðarrika sögu. Til dæmis má nefna að rússneskar verkakonur fóru i mótmælagöngu þrátt fyrir lög- reglubann árið 1913 og að verkföll verkakvenna i Pétursborg 8. mars 1917 lögðu sinn skerf að mörkum byltingarinnar. 8. mars var siðan baráttudagur kommún- iskra kvenna og fylgismanna þeirra fram undir seinni heims- styrjöld en á eftirstríðs- árunum fór minna fyrir þessari hefð. A sjöunda áratugnum hefur nýtt fjör færst i þessa kommún- isku siðvenju að frumkvæði rauð- sokka og annarra róttækra kvennahreyfinga. Hér á Islandi hefur 8. mars verið heldur litið sinnt. Það er skylt að geta þess að MFÍK og Kvenfélag sósialista hafa staðið fyrir fundi á þessum degi um langa hrið og i fyrra tóku rauð- sokkar svo daginn upp sem baráttudag. Það er hins vegar til háborinnar skammar að sósial- iskar hreyfingar skuli ekki fyrir löngu hafa gert þennan dag að baráttudegi svo um muni. Eða eru islenskar verkakonur svo vel staddar að það sé við hæfi að stein-stein-þegja ogflétta fingur á baráttudegi þeirra? Eða eru menn kannski svo svartsýnir að þeir vilji slá saman dögunum áttunda og tiunda mars (sem er alþjóðlegur bænadagur kvenna) og biðja bara guð að hjálpa islenskum verkakonum? Nei — félagar! Við skulum gera 8. mars að baráttudegi — nú og f ramvegis — og taka stöðu islenskra verka- kvenna til umræðu og greiningar. Og hér má kannski skjóta því að til gamans að háttvirt útvarpsráð hafnaði umsókn Rauðsokka- hreyfingarinnar um báráttudag- skrá i Utvarpinu 8. mars — ég bara man ekki hvaða útvarps-laga-krókur var notaður i frávlsuninni. Islenskar verkakonur gegna lægst launuðu störfum i þjóðfélaginu. Um þaö bil 84% þeirra vinna svokölluð „kvenna- störf” sem eru ekki aðeins lágt launuð heldur lika litils metin alla jafnan. Þetta með matið á störfum þeirra er þó breytilegt eftir þörfum atvinnuveganna (les. atvinnurekendanna). Stundum er það „heppilegt” að konur vinni úti og ýmsir sér- fræðingar kallaðir til vitnis um það að börn hafi gott af því að vera á barnaheimilum. Stundum er það aftur á móti „afar óheppi- legt” að konur vinni úti og um daginn var hollenskur (af hverju hollenskur ???) sérfræðingur kallaður til vitnis um það að börn biðu varanlegt tjón af dag- heimilavist. Þetta er söngurinn i Mogganum einmitt núna þegar islensk borgarastétt er búin að spila rassinn úr buxunum i efna- hagsmáiunum. Núna á sem sagt að fara — og er raunar byrjað — að „reka konurnar” af atvinnu-’ markaði og inn á heimilin, og hugmyndafræði-maskina borg- arastéttarinnar er byrjuð að vinna af fullum krafti. Ég veit ekki hvort ég ætti að ráðleggja nokkrum manni að lesa Moggann eða hlusta á þáttinn „Um daginn og veginn” en þar má sjá skýrt og greinilega aö „varavinnu- aflið” þ.e. islenskar verkakonur eiga að fara að fara heim. Þessari aðför verður að svara afdráttarlaust: — Fulla atvinnu fyrir alla — Atvinnuöryggi fyrir alla — Sama rétt til allrar vinnu —■ Lifvænleg laun fyrir átta stunda vinnudag Þetta eru baráttumál Rauðso kk a hr ey f ing ar innar, ásamt fleiri jafnréttismálum og visast til 2. þings hreyfingarinnar 1976Jtauðsokkahreyfingin skoðar jafnréttisbaráttu sina sem óað- skiljanlegan þátt stéttabarátt- unnar og baráttu gegn kapital- ismanum. Gagnrýni „8. mars hreyfingarinnar” svokailaðrar eða Eikar m-1 (Einingarsamtaka kommúnista marxistanna/lenln- istanna) á Rauðsokkahreyfing- una er i sem stystu máli sagt út f hött. Rauðsokkar eru þar út- hrópaðir fyrir feminiskt karl- hatur og borgaraskap af öllum tegundum og guð-má-vita-hvað en allt það tal fer litið fram fyrir opnum tjöldum. Þeir stúdentar sem vilja kynna sér Rauösokka- hreyfinguna i alvöru og starfa með henni að jafnréttismálum eru hins vegar velkomnir niður i Sokkholt milli 5-6:30 alla virka daga — siminn er 28798. Og aftur að 8. mars sem er á m iðvikuda ginn kemur. Rauðsokkahreyfingin ákvað á ársfjórðungsfundi I desember s.l. að halda baráttufund þennan dag og verkalýðsmálahópi hreyfing- arinnar var falið að sjá um fram- kvæmd hans. Hópurinn ákvað að halda fundinn i Félagsstofnun stúdenta, miðvikudaginn 8. mars, klukkan 8.30 og fjalla um kjör islenskra verkakvenna. — Hamírlld ilsigshrá í félagHKlofnun Htúdrnla H.nuirK — húsid opnar I.I.H.5U 3TÖTAW«'»TI* lirv*MUt L*u» ty*í* '*rt* ítumu vitwu ! 3ttK LAUM r»fc* $*Mft**iH<;« VlKHu! JAMÍ ttTTUR TtV *U«*R vtftNu' FUU ATVtrtNA FrKIR AUA'. AivtNNuöíYa;; »v»i« »lu' 3*m«tlT't Ttk. M*Mi! Samstarfeaðilar að dagskránni eru MFÍK og Kvenfélag sósial- ista. Hefðin fyrir 8. mars sem baráttudegi er að verða sjötug og hópnum fannst forvitnilegt að athuga hvort og hvernig kjör islenskra verkakvenna hafa breyst þennan tima. Verkalýðs- málahópur ákvað þvi að byggja dagskrá fundarins á stöðu is- lenskra verkakvenna fyrr og nú. Af þeim samanburði má sannar- lega draga nokkrar ályktanir. STCDENTAR —FJÖLMENNUM A BARATTUFUND RAUÐ- SOKKAHREYFINGARINNAR Þ. 8. MARS í FÍQLAGSSTOFNUN STUDENTA. Dagný K. EIKml gefur út róg- bréf í Háskólanum Einingarsamtök kommúnista m-1 hafa sent frá sér dreifibréf i Háskólanum sem ber yfirskrif- tina „Skilum auðu i stúdenta- ráðskosningunum!” Þar er að finna harkalegar árásir á vinstrimenn i stúdentaráði og Stúdentablaðið. Vegna pláss- leysis er bréf „marx-leninista” ekki birt i þessu tbl. en ætla má að þvi verði dreift I byggingar Háskólans fyrir kosningarnar 9. mars. Það er álitamál hvort rök- ræða eigi við „marx-leninista” eða maósinna í EIK ml á sama grundvelli og venjulegt fólk. Að hætti guðföðurs sins Jóseps Stalins taka þeir ekki rökum heldur stagast á þvættingi sem þeir hafa sef jað sjálfa sig til að trúa. Þetta er m.a. ein ástæða þess að undirritaður hefur ekki séð ástæðu til að svara rógburði og sóðaskrifum þeirraum stúd- entaráð f s. n. „Verkalýðs- blaði” sem EIK ml gefur út. A stundum er hægt að ganga svo langt I ósvifni og siðleysi að skikkanlegu fólki verði orðfall. Einnig er vert að benida á áð hér I Háskólanum munu ekki nema 5—6 manns hneigjast til stuðn- ings við EIK ml og félagatalan á öllu landinu mun vera innan við 50 manns. En meö hin ágætu orð Ara fróða í huga að hafa beri ávallt það sem sannara reynist, verð- ur hér á eftir gerð stutt athuga- semd við yfirlýsingu EIK ml. 1. Það er ósatt að ágreiningur á ráðstefnu vinstrimanna 12. febrúar s.l. hafi verið á milli „kommúnista annars vegar og trotskista og leiðandi Alþýðu- bandalagsmanna hins vegar.” Sá litli skoðanamunur sem þar kom upp var á milli u.þ.b. 50 vinstrimanna úr mismunandi stjórnmálaflokkum (frá Fram- sókn til Fylkingar) og utan flokka annars vegar og 4—5 maósinnaúrEIKmlhins vegar. Þeir siðamefndu komust reynd- ar I slikt rökþrot i lok ráðstefn- unnar að þeir hlupu út. 2. Vitaskuld eru deilur meöal vinstrimanna um skilgreiningu áeðli rikisvaldsins. Það leiöir af sjálfu sér þegar haft er i huga hve vinstrimenn eru viðtæk samfylking. Ráðstefna vinstri- mannahafnaði aigjörlega kröfu maósinna um að sett yrði fram „marx-leninisk” skilgreining á eðli rikisvaldsins. Slík skil- greining væri fremur til þess fallin að sundra námsmönnum, en sameina þá. 3. Með öllu er tilhæfulaust aö ritstjóri Stúdentablaðsins hafi „lofað” ákv. stjórnmálaflokk- um atkvæðum stúdenta i kom- andi þingkosningum. Enda verður ekki séð hvaðan hann ætti að fá umboö til þess. Vitnað er i leiðara Stbl. (janúar 1978) sem undirritaöur 'skrifaði og fullyrt að þar sé „loforðið” að finna. En þeir sem lesa þennan leiðara geta auðveldlega skorið úr um að ásakanir EIK ml eru út i hött. t leiðaranum er ein- faldlega verið að mótmæla fjandsamlegri afstöðu Alþingis tilnámsmanna um leiö og þvi er fagnaðað barátta okkar hafi þó borið þann árangur að nokkrir þingmenn verkalýðsflokkanna hafi flutt tillögur um aukið framlag rikisins til Lánasjóðs islenskra námsmanna og Félagsstofnunar stúdenta. Rétt er að vekja athygli á þvi að I sama tbl. Stbl. skrifar rit- stjóri að ákvörðun þingmanna aðhækka ekki rikisframlagið til LÍN „veiki mjög traust náms- manna á Alþingi.” Varla eru þau ummæli dæmi um áróður fyrir þvi að námsmannahreyf- ingin einbeiti kröftum sinum að þvi að sannfæra Alþingi um málstað sinn. 4. Leiðrétta verður þá rang- færslu „marx-lenínista” að þeir hafi átt frumkvæði að þvi að stúdentaráð tók upp samstarf við deildarfélög Háskólans i vetur! Samstarf þetta komst á fyrir atbeina vinstri meirihlut- ans i stúdentaráði og stjórnar ráðsins. Maósinnar komu þar hvergi nærri. 5. „Upphlaupa- og klofnings- aðgerðir trotskista” eru hvergi til nema i annarlegum hugar- heimi EIK ml. Einu „vinstri- mennirnir” sem verið hafa með kolfnings- og sundrungarstarf- semi innan námsmannahreyf- ingarinnar eru félagar IEIK ml. Meðstarfsemisinniganga þeir i rauninni erinda rikisvaldsins og kjörorð þessarar fimmtu her- deildar um að skila auðu i stúd- entaráðskosningunum þjónar engum öðrum en ihaldinu i Há- skólanum og andstæðingum námsmanna utan skólans. Guömundur Magnússon ritstjóri Stúdentablaðsins Vaka, Framhald af3. siðu. sé allnærri hugmyndum flokks- ins, þá er ekki ýkja fjarstæðu- kennt að búast við þvi, að fjöldi virkra meðlima Vöku skjóti jafn- framt upp kolli i röðum Sjálf- stæðisflokksins. Svo heppilega vill til, að ganga má úr skugga um það, þvi ungur og bráðefnileg- ur þjóðfélagsfræðinemi af kyni góðra Sjálfstæöismanna hefur gert itarlega könnun á þessu: Niðurstöður hans urðu i stuttu máli þær, að obbinn af forystuliði Sjálfstæðisfiokksins hefur hlotið fyrstu reynsiu sina i starfi með Vöku, og nær allir sem einhvern tima hafa staðið I forystu fyrir Vöku, höfðu starfað meö Sjálf- stæðisflokknum. Það hvilir þvi engin launung yf- ir hnökralausum ástum Vöku og Sjálfstæðisflokksins Félagið hef- ur reynst framagosum haldgott stökkbretti til frama innan flokksins, og má þar visa til manna einsog Bisleifs, Daviðs Oddsonar, Ellerts Schram, Frikka Sóf og fjölmargra ann- arra. Nýjustu dæmin eru Hannes Giss. og Kjartan Gunnarsson sem var fyrir skömmu kjörinn for- maður Heimdallar. Þá má nefna Magnús Ásgeirsson, litinn Vöku- Leiðrétting Meinleg villa slæddist inn i grein Páls Skúlasonar prófessors „Viðhorf til menntunar” sem birt var i siðasta tbl. Stúdentablaðs- ins. 1 kaflanum um menntun i markaðskerfi féll niður ein setn- ing sem breytti merkingu kaflans verulega. Um leið og blaðið biður Pál Skúlason og aðra lesendur vel- virðingar á þessum mistökum birtir það hér á eftir þann hluta greinarinnar sem brenglaðist: „öll stjórnun mennta- og skóla- mála er reist á hugmyndum um það hvers konar menntun sé æskilegt að gera fólki kleift aö öðlast. Slikar hugmyndir ráðast ekki af geðþótta manna, hvorki þeirra sem stjórna né hinna sem eiga að njóta kennslu. Vandinn er þvi I fyrstu alls ekki sá að finna hagkvæmar leiðir eða meta gildi einstakra námsleiða, né heldur er vandinn fjárhagslegur. Stjórnun menntakerfisins er einungis tæknileg á ytra borði — I rauninni hvilir hún á rökstuddu eða órök- studdu mati á þvi hvers konar þroska, þ.e. hvers konar mann- legar gáfur og eiginleika leggja beri rækt við. Þess vegna ber okkur fyrst að ihuga vandlega hvers konar manneskjur við vilj- um vera, hvers konar manngerð- ir við viljum ala upp.” F élagsmálasj óður Stjórn félagsmálasjóðs stú- denta hefur auglýst eftir umsókn- um um styrki úr sjóðnum. Hlutverk félagsmálasjóðs stú- denta er að styrkja og efla félags- starfsemi stúdenta innan Háskóla Islands. Það skal gert með þvi að: A) Styrkja starfsemi deildarfé- laga innan Hí og annarra félaga, sem starfa i þágu stúdenta við skólann. Styrkir til deildarfélaga hafa að öðru jöfnu forgang. B) Styrkja þá blaðaútgáfu, sem er á vegum þeirra aðila sem getið er um i lið A). Umisóknum skal fylgja stutt dreng, sem ætlar nú að freista gæfunnar i prófkjöri Sjálfstæðis- manna til borgarstjórnarlista, hafandi það eitt sér til ágætis að hafa þagað fyrir Vöku i Stúdenta- ráði um tveggja ára skeið. Starf helstu forsprakka Vöku innan Sjálfstæðisflokksins ásamt vissum fjárhags- og aðstöðu- tengslum milli félagsins og Sjálf- stæðismanna, tekur þessvegna öll tvimæli af þvi, að félagið lúti greinargerð um starfsemi um- sækjenda. Umsóknir skulu hafa borist skrifstofu stúdentaráðs fyrir 15. mars. n.k. Stjóðsstjórn. Kosningaball Vinstrimenn efna til árlegrar kosningagleði sinnar fimmtudag- inn 9. mars n.k. I Tjarnarbúð. Miðaverð er kr. 700. Húsið verður opnað kl. 21.00 og stendur ballið langt fram á nótt. Nánar auglýst i byggingum Háskólans. Allir vel- komnir. Framkvæmdanefndin. S túdentablaðið Utgefandi: Stúdentaráð Háskóla tslands Ritstjóri og ábm.: Guðmundur Magnússon Prentun: Blaðaprent hf. Riststjóri óskast Stúdentaráð óskar eftir að ráða ritstjóra að Stúdentablaðinu, sem jafnframt hefði umsjón með annarri útgáfustarfsemi á vegum ráðsins. Umsóknum ásamt upplýsingum um fyrri störf skal skilað á skrifstofu stúdentaráðs, I Fé- lagsheimili stúdenta við Hring- braut II hæð, fyrir 10. april n.k. AUar upplýsingar um starfið fást á skrifstofu stúdentaráðs og Stúdentabiaðsins i Félagsheim- ili stúdenta, simi 15959. Útgáfustjórn beinu hugmyndalegu forræði flokksins, og sé að verulegu leyti mannað af ungliðasveitum hans. Og þó skipuleg tengsl séu af hag- kvæmnisástæðum ekki höfð uppi við, þá er hitt þó öldungis ljóst, að gegnum tiðina hafa Vaka og Sjálfstæðisflokkurinn notið góðra samfara, þó formleg vigsla hafi að sönnu ekki farið fram. össur Skarphéðinsson

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.