Stúdentablaðið - 01.03.1985, Side 3
Félagsstofnun stúdenta—fyrirtæki með markmið
Allir Háskólastúdentar ásamt Háskóla íslands og Menntamálaráðuneyti eiga aðild að
Félagsstofnun stúdenta (F.S.). Hlutverk F.S. er að annast rekstur, bera ábyrgð á og beita sér
fyrir eflingu félagslegra fyrirtækja í þágu stúdenta við Háskóla Islands.
Fyrirtæki stofnunarinnar eru mörg og
óskyld, en eiga það sameiginlegt að hafa
að markmiði að þjónusta stúdenta, hvert á
sínu sviði, og í sumum tilvikum einnig aðra
námsmenn.
Fyrirtæki á vegum F.S. eru: Stúdentagarð-
ar, Mötuneyti stúdenta, Hótel Garður, Bók-
sala stúdenta, kaffistofur stúdenta, Ferða-
skrifstofa stúdenta, Háskólafjölritun,
Skálkaskjól tvö og Barnaheimili stúdenta.
Við þessi fyrirtæki starfa milli 40 og 60
manns, eftir árstíðum.
Uppbygging til frambúðar
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í F.S. á
undanförnum árum og skulu tekin nokkur
dæmi um það. F.S. tók við Gamla og Nýja
garði úr sér gengnum og er endurnýjun
Gamla garðs nú lokið. Endurnýjun Nýja
garðs er enn ólokið og verður vikið nánar að
því síðar. Byggðar hafa verið íbúðir fyrir
hjónafólk, þó enn séu þær of fáar til að sinna
þörfum Háskólastúdenta. Bóksala stúdenta
hefur vaxið jafnt og þétt og er nú meðal
stærstu bókaverslana landsins. Óhætt er að
fullyrða að engin önnur bókaverslun
hafi jafn „breitt“ og „djúpt“ vöruúrval
fræðirita fyrir námsfólk og háskóla-
borgara. Ferðaskrifstofa stúdenta, sem
áður var einungis starfrækt 3 mánuði á ári,
er nú orðin fullvaxta ferðaskrifstofa með öll
þau réttindi og skyldur sem gilda um íslensk-
ar ferðaskrifstofur. Sérstaða hennar felst í
samningum við erlendar stúdentaferðaskrif-
stofur og getur Ferðaskrifstofa stúdenta
boðið upp á ódýrustu fargjöld sem völ er á til
útlanda. Námsmenn og annað ungt fólk
ætti aldrei að kaupa farseðil fyrr en
verð hefur verið kannað hjá Ferða-
skrifstofu stúdenta. Uppbygging hefur og
átt sér stað á öðrum sviðum hjá F.S. en hér
læt ég staða numið í upptalningu að sinni.
Það er vert að muna það að öll upp-
bygging og þróun þjónustufyrirtækja
F.S. á sér stað að mestu leiti fyrir
frumkvæði stúdenta sjálfra. Stúdenta-
ráð Háskóla Islands tilnefnir 3 stjómarmenn
af 5 í stjórn F.S. og má því segja að þeir
tryggi ætíð að sjónarmið stúdenta séu ríkj-
andi í stjórnun fyrirtækjanna. Ekki má held-
ur gleyma starfsmönnum F.S., en þeir eru
eins og áður sagði 40—60 manns. Flestir
starfsmanna hafa að baki áralanga reynslu í
störfum sínum, og ber okkur sem sitjum við
stjórnvölin að beisla þekkingu þeirra og
reynslu til áframhaldandi þjónustuauka fyrir
stúdenta.
„1984“
Það er mjög í anda framtíðarárs
Orwells, að rekja nýjungar og þróun
stofnana F.S. Ef við stiklum á stóru þá
gerðist þetta markverðast:
F.S. hafði á undangengnum árum tapað
milljónaupphæðum á Matstofu stúdenta.
Gerðar vom ráðstafanir til þess að stofnunin
léti af þessum taprekstri og var aðstaða leigð
út til utanaðkomandi aðila til reynslu í 1 ár.
Þetta varð til þess að svigrúm skapaðist í
fjármálum F.S. til að hefja nýja sókn, til að
endurnýja íbúðaherbergi á Nýjagarði. I mars
á þessu ári verður hafist handa og verða öll
37 herbergi sem óklámð em, með nýjar inn-
réttingar í haust.
Hjónagarðar vom málaðari utan í fyrsta
sinn og ný klæðning sett á þak þeirra. Einnig
em flestar íbúðir nú komnar með skilveggi
milli stofu og svefnherbergis.
A undanfömum ámm hefur þörfin fyrir
tölvuvæðingu fyrirtækja F.S. komið berlega í
ljós. Arlega hafa verið gerðar kannanir og
áætlanir um tölvukaup en ekkert gerst. í des-
ember s.l. vom keyptar tölvur og hugbúnað-
ur fyrir Bóksölu stúdenta og einnig fyrir
Ferðaskrifstofu stúdenta, sannkallaður
tímamóta atburður.
Margt fleira mætti upp telja en ýmsar
ákvarðanir hafa enn ekki komið til fram-
kvæmda, s.s. endurnýjun tækjabúnaðar í
Háskólafjölritun, flutning Ferðaskrifstofu
stúdenta í rúmbetra húsnæði innan F.S. o.fl.
Þessar aðgerðir munu líta dagsins ljós á næstu
vikum ogmánuðum.
Stórvirki 9. áratugarins
F.S. hefur ákveðið að byggja nýja Hjóna-
garða á lóð sinni við Suðurgötu. Haldin verð-
ur samkeppni um gerð bestu tillagna á íbúð-
um fyrir stúdenta við Háskóla Islands. Und-
irbúningur er nú í fullum gangi og hefur þeg-
ar verið skipuð dómnefnd og hafa stúdentar
þar meirihluta.
Þegar byggingu Gamla- og Nýja garðs
lauk gátu 25% stúdenta við HÍ búið á stúdenta-
görðum. í dag geta aðeins 4—5% stúdenta
búiðþar.
Eins og málum er nú háttað í húsnæðis-
málum þjóðarinnar er þetta eitt brýnasta
hagsmunamál stúdenta. En þetta er ekki ein-
göngu hagsmunamál stúdenta, bygging 150
íbúða í Reykjavík mun létta mjög á annars
þröngum leigumarkaði borgarinnar.
Samkvæmt lögum ber Húsnæðisstofnun
Ríkisins að lána 80% byggingakostnaðar til
þessara framkvæmda. Ekki hefur enn fengist
staðfest að fjármagn það sem tilheyrir þeim
lið sem hjónagarðar falla undir fáist. Fyrir-
sjáanlegt er að Verkamannabústaðir, Búseti
og F.S. bítist um sömu krónuna. Nýj-
ungar í húsnæðismálum Islendinga eru
nauðsynlegar.en ekki tímabærar. F.S. hefur
beðið í yfir 10 ár eftir þessum breytingum á
lögum um Húsnæðisstofnun Ríkisins. Það
er ekki síst fyrir tilstilli stúdenta að
loksins hefur veri opnuð leið til ný-
þygginga stúdentagarða. Komi ekki til
aukið fjármagn fyrir félagslegar
íbúðabyggingar, þá hlýtur það að vera
krafa stúdenta að F.S. sitji í fyrirrúmi
við úthlutun f jár til félagslegra íbúða.
Ársæll Harðarson
framkvæmdastjóri F.S.
Stúdentablaðið
3