Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 7
Pistill
næturinnar
—tilþfn
EftirÁgúst Hjört
Það er nótt og snjóflyksur á flögri
kringum ljósastaurinn. Það er nótt og
kosningar til Háskólaráðs nálgast. Ég,
frambjóðandi Umbótasinna sit hér og
hugsa í nóttinni um spurningu vinkonu
minnar frá þvi í dag:
„Ágúst hversvegna þú, i heimspeki,
þú af öllum mönnum, og hversvegna
Umbótasinnar? Þetta er vonlaust fyrir-
tæki. Umbar hafa aldrei komið manni að
og þú! heimspekineminn!, hvað getur þú
svosem sagt af viti?“
Æ þessi vinkona mín — þessi tví-
fætta samviska mín. Ég skulda henni
skýringu. Og ykkur öllum stúdentar. Og
ég skulda ykkur hreinskilna skýringu.
Þess vegna beið ég með svarið fram á
nótt. Nóttin gerir mann hreinskilnari og
jafnframt sannari.
Ég gef kost á mér vegna þess ein-
faldlega að mér er ofboðið. Samvisku
minni, skynsemi minni, skoðunum mín-
um er misboðið með þeirri óráðsíu og
reiðuleysi sem einkennir alla stjórnun
Háskólans. Ég get tæpast setið
aðgerðalaus lengur. Mér finnst að þó
svo geti farið að ég fái litlu áorkað, þá
verði ég minnsta kosti að reyna. Að ég
verði að leggja mitt lóð á vogarskálina i
þeirri von að það hafi eitthvað að segja.
Já ég er óánægður, rétt eins og svo
margir aðrir innan skólans. Ég hef verið
að nöldra, að kvarta við hina og þessa en
auðvitað hefur það engu breytt. Það
virðast engir hafa raunverulegan vilja til
að breyta þessu. Fyrst aðrir framkvæma
ekki þær breytingar sem mér finnast
nauðsynlegar, þá verð ég að drífa í þeim
sjálfur. Annars yrði ég að fallast á að
vilji minn og virkilegur áhugi væri
enginn. Á það vil ég ekki fallast. Og ég
vona að þið séuð sammála því að það sé
rétt afstaða.
En þetta er auðvitað bara önnur hlið
málsins. Hin hliðin er löngun mín og
metnaður. Ég vil hafa einhver áhrif á
það við hverskonar háskóla ég stunda
nám. Og kannski kem ég til með að
starfa við þennan háskóla seinna meir.
Því vil ég hafa eitthvað að segja um það
hvemig hann muni þróast á næstu
ámm. Ég vil hafa áhrif og ég er tilbúinn
til að leggja á mig þá vinnu sem það
krefst.
Vegna þessa gekk ég til liðs við Um-
bótasinna. Þar er pláss fyrir mig sem
einstakling innan um aðra einstaklinga.
Ég er ekki sammála öllu sem þar er sagt
eða ákveðið, en ég tek tillit til annarra og
þess i stað er tekið tillit til minna skoð-
ana. Ég er hluti af hóp þar sem rödd mín
er aðeins ein margra. En hún heyrist og
mun heyrast áfram séuð þið sammála
mér.
Það hefði verið eðlilegt að ganga til
liðs við annað hvort Vöku eða FVM ef
það markmið eitt hefði vakað fyrir mér
að komast í Háskólaráð, stöðunnar
vegna. Og mér hefði staðið það til boða
ef — já ef ég hefði verið tilbúinn til að
undirgangast ákveðnar flokkspólítískar
línur. Ég er ekki tilbúinn til þess. Ég hef
ekki fundið mig svo heima í neinum
stjómmálaflokki að ég hafi séð ástæðu
til að ganga í hann. Og á því verður
eflaust bið.
En að ég og allir aðrir sem líkt er
ástatt um skulum vera útilokaðir frá
áhrifum á málefni Háskólans, það sætti
ég mig ekki við. Þess vegna gekk ég til
liðs við Umbótasinna.
Ég er að biðja ykkur um að kjósa mig.
En þá og því aðeins að þið séuð sam-
mála því sem ég vil berjast fyrir. Ég lofa
því einu að vera trúr minni eigin sann-
færingu og engu öðm og það vona ég að
þið verðið einnig á kjördegi. Ég er að
biðja ykkur að kjósa Umbótasinna
vegna þess að ég trúi því að það sé eina
leiðin sem stúdentum er fær til gagn-
gerra betmmbóta á skólanum okkar.
Við förum fram á liðsinni allra óháðra
stúdenta til að lyfta því Grettistaki sem
nauðsynlegt er að lyfta.
Og hverju vil ég beita mér fyrir innan
Félags umbótasinnaðra stúdenta? Hvað
get ég svosem sagt af viti?
Mig langar til að:
—• Hrinda af stað víðtækri umræðu
innan Háskólans og utan hans um
hvernig hann eigi að vera. Að sem flestir
taki þátt í þeimi umræðu og að á gmnd-
velli hennar verði teknar ákvarðanir —
sem fylgt verði eftir af fullri einurð.
— Gerð verð rækileg könnun á því
hver raunvemleg vinna, bæði nemenda
og kennara sé — og að í kjölfar þess
verði þær breytingar gerðar sem nauð-
synlegar em til samræmingar. Eininga-
kerfið á að endurspegla vinnuna sem að
baki býr!
— Taka þátt í að koma traustari fót-
um undir fjárhag Háskólans, m.a. með
samningum við ríkisvaldið um fasta,
verðtryggða tekjustofna honum til
handa.
— Berjast fyrir því að fjöldatakmörk-
unum í öllum myndum verði aflétt, að
nemendur fái aukin árhif á stjómun
skólans, að æviráðningar prófessora
verði afnumdar. Og margt fleira.
Ég vil berjast fyrir bættum Háskóla,
sjálfum okkur til sóma og þjóðinni allri
til hagsbóta.
Veittu okkur Umbótasinnum lið í
sameiginlegri baráttu okkar fyrir bætt-
um skóla!
X-C
Stúdentablaðið
7