Stúdentablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 8
Félagsstofnun
Stúdenta
Markmið Félagsstofnunar stúdenta
Markmið Félagsstofnunar stúdenta skal vera að veita sem besta og fjölbreyttasta
þjónustu á sem lægsta verði. Með þetta í huga skal, leitast við að reka fyrirtæki F.S. á
sem hagkvæmastan hátt og ávallt reyna að finna nýjar leiðir til að mæta þörfum
stúdenta.
Matsalan
Rekstur matsölunnar verður að taka til gagngerrar endurskoðunar, en 1. september
rennur út samningur við Ferðaskrifstofu ríkisins, sem hefur annast hann.
í þessu sambandi kemur einkum tvennt til greina:
I) Reksturinn verði boðinn út.
II) Leitað verði tilboða í matarpakka og þeir seldir á kaffistofum.
Bóksalan
Vaka leggur megináherslu á að halda uppi góðri bókaþjónustu við námsmenn, þannig
að öruggt sé að þær bækur er til þurfi séu fáanlegar á réttum tíma, á sem bestu verði.
Vaka bendir á nauðsyn þess að gera miklar breytingar, bæði á rekstri og húsnæðis-
málum bóksölunnar. Af mörgum ástæðum virðist það fýsilegur kostur að Háskólinn
gerist eignaraðili að bóksölunni og hún gerð að sérstöku sjálfstæðu fyrirtæki.
Stúdentablaðið
Vaka leggur til að áskrift að Stúdentablaðinu verði gefin frjáls. Þannig verður það
undir hverjum og einum stúdent komið hvort hann kaupir blaðið eða ekki. Utgáfa
blaðsins verður eftir sem áður fjármögnuð með áskriftargjöldum að hluta og af aug-
lýsingatekjum er dekka annan kostnað.
Með frjálsri áskrift er tryggt að forsvarsmenn Stúdentablaðsins muni leggja sig fram
við að gefa út blað er höfðar til stúdenta og annarra. Þannig dæma stúdentar sjálfir um
ágæti blaðsins. Fjöldi áskrifenda er besti vitnisburður um það.
Bygging nýrra Garða
Lengi hefur verið ljóst að mikil þörf er á nýjum stúdentagörðum og þá fyrst og fremst
hjónagörðum. Vaka telur skynsamlegt að stefna að byggingu 150 íbúða sem byggðar
yrðu á 3 til 4 árum. Áður en ráðist verður í fyrirhugaðar framkvæmdir er nauðsynlegt að
fyrir liggi heilsteypt fjárhagsáætlun til að tryggja örugga fjármögnun frá upphafi. í
þessu sambandi er bent á stefnu Vöku, sem birtist í Vökublaðinu.
Vaka — Vaka — Vaka — Vaka — Vaka —
1. Ólafur Amarson,
viðskiptafræði.
2. Helgi Jóhannesson,
lagadeild.
3. Þómnn Sigurðardóttir,
lagadeild.
4. Bjöm Aðalsteinsson,
hjúkrunarfræði.
8
Stúdentablaðið