Stúdentablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 9
— Lánamál —
Lánamál
Markmið námslána er að tryggja að allir námsmenn geti stundað nám án tillits til
efnahags. Vaka leggur áherslu á að hér er um lán að ræða og hafnar hvers kyns hug-
myndum um námslaun.
Namslánakerfið á að vera þannig úr garði gert að það hvetji námsmenn til þátttöku í
atvinnulífinu.
Nauðsynlegar breytingar
I) Vaka leggur áherslu á að 1. árs nemar fái venjulegt skuldabréfalán, sem er forsenda
þess að nemendurgeti hafið nám óháð efnahag.
II) Endurgreiðslutíminn verði styttur í 30 ár.
III) Ekki verði gert upp á milli lánþega hvort þeir búa í föðurhúsum eða ekki.
IV) Nauðsynlegt er að taka viðmiðanir Lánasjóðsins til endurskoðunar, samfara því að
könnun á framfærslukostnaði stúdenta fari fram.
V) Skipuð verði samstarfsnefnd stjórnvalda og samtaka námsmanna til að endurskoða
lög og reglur LÍN.
VI) Efla verður Háskóla Islands, svo íslenskum námsmönnum sé kleift að stunda
nám hér heima í ríkara mæli, en nú er stór hluti útgjalda Lánasjóðsins vegna íslenskra
námsmanna erlendis.
VII) Gerð verði breyting á rekstri og starfsmannahaldi LÍN til að bæta þjónustu hans
við lánþega.
— Stúdentaráð —
Vaka leggur áherslu á að Stúdentaráð starfi fyrst og fremst á þeim vettvangi sem
tengist beint málefnum stúdenta.
Einn hluti þessa er að SHÍ haldi uppi öflugum tengslum við deildarfélög.
5. Inga Margrét Skúladóttir,
félags. deild.
6. Einar Úlfsson,
vélaverkfræði.
7. Ingólfur Johannessen,
læknisfræði.
Stúdentablaðið
9