Stúdentablaðið - 01.03.1985, Síða 10
— Menntamál —
Vaka telur það einn af horn-
steinum lýðræðisins að hver
maður fái þroskað hæfileika sína
og sinnt áhugamálum sínum.
Þannig á hver einstaklingur rétt á
að stunda það nám við Háskóla
íslands, er hugur hans stendur til,
uppfylli hann eðlilegar og sann-
gjarnar fagkröfur. Nemandinn
sjálfur ber ábyrgð á því hvernig
skólaganga hans nýtist honum
þegar út í atvinnulífið er komið.
• Vaka telur nauðsynlegt að
stúdentar taki virkan þátt í
stefnumótun og stjórnun innan
Háskólans og hafi þar raunveru-
leg áhrif. Þess vegna berst Vaka
fyrir a.m.k. þriðjungsaðild
stúdenta að helstu stjórnstofn-
unum Háskólans.
• Sjálfstæði nemenda í námi er
mikilsvert. Sveigjanleiki varðandi
nám í fleiri en einni deild getur
aukið frelsi í námi.
• Nauðsynlegt er að gera ríkinu
ljósa fjárhagsstöðu Háskólans á
hverjum tíma og afleiðingar fjár-
skorts. Með útkomu skýrslu
Þróunarnefndar Háskólans gefst
tækifæri til að setja fram eðlilega
stefnu til lengri tíma, en verið
hefur, með árlegum
fjárhagsbeiðnum.
• Húsnæðisskortur Háskólans
er eitt alvarlegasta vandamál
hans og hefur mætt litlum skiln-
ingi hjá fjáveitingavaldinu. Brýnt
er að fjárveitingar til bygginga-
framkvæmda verði stórauknar.
• Vaka leggur til að æviráðning
kennara verði endurskoðuð.
• Nauðsynlegt er að efla rann-
sóknarstarfsemi í Háskólanum,
en bæði þarf að auka aðhald að
þessu starfi og kynningu á
afrakstrinum. Jafnframt þarf að
auka möguleika stúdenta til þess
að taka þátt í rannsóknarstarfinu.
• Vaka bendir á mikilvægi þess
að stofnað verði kennslugagna-
safn.
• Vaka telur tímabært að hugað
sé að því hvort heppilegt sé að
stofna til framhaldsnáms í fleiri
greinum innan Háskólans.
Frambjóðendur Vöku til Háskólaráðs
1. Eyjólfur Sveinsson,
vélaverkfræði.
2. Margrét Hilmarsdóttir,
franska.
3. GerðurThoroddsen,
lögfræði.
4. Ásgeirjónsson,
lögfræði.
10
Stúdentablaðið