Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 11

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 11
• Stundakennsla er of hátt hlut- fall af kennslunni í HÍ. Stafar þetta af því að ekki hefur fengist heimild til að fastráða þann fjölda kennara sem eðlilegan má telja. • Vaka leggur til að kannaðir verði kostir sumar- og kvöld- námskeiða fyrir nemendur Háskólans og aðra. • Vaka telur brýnt að vinna að eflingu og uppbyggingu Háskóla- bókasafns. • Háskólinn verður að gera lægri skólastigum ljósar þær kröfur sem hann setur um kunnáttu þeirra sem hefja vilja nám við skólann. • Til þess að auka upplýsinga- streymi milli skólastiga, er brýnt að flýtt verði útgáfu bæklings um háskólanám innanlands og utan. • Vaka telur að þeir sem leita til Háskóla íslands eftir menntun og standast eðlilegar og sanngjarnar kröfur sem deildir setja, eigi rétt á að stunda það nám er hugur þeirra stendur til. Vegna þess mun Vaka ávallt berjast gegn hvers konar hugmyndum sem ganga þvert á þennan rétt stúd- enta. • Vakamunbeitasérfyrirþvíað settur verði á laggirnar sérstakur sáttadómur, sem fjalli um ein- staka málaleitanir stúdenta. Sáttadómur skal hafa úrskurðar- vald í deilumálum nemenda, kennara og yfirvalda Háskólans. • Nauðsynlegt er að gera gagn- gerar breytingar á kjöri til rektors- embættis HÍ. Vaka telur eðlilegt að menn bjóði sig sérstaklega fram til þess og skulu ekki aðrir veraíkjöri. • Vaka telur það grundvallar- atriði að hugur háskólastúdenta til háskólaútvarps verði kannað- ur áður en út í framkvæmdir verði ráðist. Stefnuskrá Vöku birtist íheild í Vökublaöinu. Að gefnu tilefni Góðir stúdentar Nú er enn einu sinni komið að kosningum til Stúdentaráðs og Háskólaráðs. Það er því ekki úr vegi að renna lauslega yfir nokkra punkta. Litð um öxl Eftir miklar sviptingar í herbúðum um- bótasinna s.l. vor var samþykkt með eins at- kvæðis mun að ganga í meirihlutasamstarf við Vöku. Þegar í upphafi var ljóst að sumir af forustumönnum umbótasinna voru ekki tilbúnir að sætta sig við þessi málalok og myndu nota öll tækifæri til þess að vinna á hinum nýja meirihluta. Þetta átti sér líka stað og er einn stærsti þátturinn í því sundurlyndi og moldviðri sem of mikið hefur viljað loða við meirihlutann. Um þátt vinstri manna í Stúdentaráði í vetur hefur lítið verið ritað. Einkum kemur það til af verkum þeirra sjálfra. Þegar til þeirra hefur heyrst, hefur það sjaldnast verið liður í umræðu um málefni stúdenta. Þeirra helsta baráttumál frá í fyrra hefur verið að reyna að koma fram vantrausttillögum á einhverja „hættulega" Vökumenn' í Stúd- entaráði með því að notfæra sér reikula um- bótasinna. Ber þar tvennt hæst: Tillaga frá vinstri mönnum í Stúdentaráði í júní um vantraust á meirihlutann. Sú tillaga var reyndar endurflutt á næsta fundi eftir. Til- laga á 12. fundi SHÍ í lok janúar s.l. um að formaður Vöku segði sig úr ráðinu. Hvorugt frumhlaupið bar árangur en var flutnings- mönnum einungis til háðungar. En þótt margt sé athugavert þá hefur verið unnið að mörgum málum sem horfa til bóta. I upphafi var ákveðið að breyta Stúdentablað- inu á þann veg að gera það „eigulegra" og meira aðlaðandi fyrir stúdenta. Að hluta til hefur þetta tekist og ljóst að næsti meirihluti hefur alla möguleika á að ljúka hálfunnu verki hvað varðar endurbætur á Stúdenta- blaðinu. Hugsanlegt væri að breyta útgáf- unni þannig að gefa út mánaðarblöð og svo misserisrit sem yrði vandaðra með stórum viðtölum o.s.frv.. Útgáfa Stúdentafrétta hefur verið nokkuð regluleg i vetur og ég held því beri að halda. Þannig eiga stúdentar að fá fréttir af því sem gerist á fundum SHÍ sem fyrst eftir þá. Jafn- framt gefa Stúdentafréttir möguleika á að koma á framfæri ýmsu því sem er að gerast hverju sinni og mætti jafnvel vera með stutt- ar fréttir úr deildum inn á milli. Fundir með formönnum deildarfélaga hafa verið nokkuð reglulega og óvenju vel mætt. Eg er viss um að með því að auka þessi beinu tengsl SHÍ og deildarfélaga megi gera samstarf þessara aðila vel virkt og sýnist mér það mun vænlegri kostur heldur en að deildafélög fari að tilnefna í Stúdenta- ráð eins og var hér um árabil fyrir 1974. Þá var pólitíkin í deildunum og ég held að þeim sé lítill greiði gerður með því að færa pólitík- ina þangað aftur. Að lokum Menn eru gjamir á að rísa upp og segja: „Þetta er pólitískur skrípaleikur, hanaslagur einhverra framagosa". Ég held að þetta sé að mestu misskilningur. Að vísu má alltaf gera betur en ekki held ég að framboð á borð við manngildissinna sé skref í þá átt. Stúdentar, kynnið ykkur þær fylkingar sem bjóða fram til Stúdentaráðs. Kynnið ykkur störf þeirra hingað til. Þá sjáið þið að Vöku má treysta. Skilum Vöku sterkari eftir kosningamar 14. mars. Stefán Kalmansson. Stúdentabl aðið 11

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.